Þjóðviljinn - 09.06.1979, Blaðsíða 5
Laugardagur 9. Júnl, 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
F.v. Andri Teitsson, Akureyri, Bergþór Gunnlaugsson Þingeyri, Böivar Þórisson Kópavogi og Helgi
Laxdal Kópavogi. Lengst til hægri eru vélhjólapiltarnir Þorsteinn Gunnlaugsson Hafnarfirði, og Þórð-
ur Pálsson Keflavik.
íslenskir strákar í hjól-
reiöakeppni í Madrid
Loka-
átakið urn
helgina
Eins og kunnugt er hafa
dróttskátar á suðvesturlandi
skipulagt og framkvæmt
kassabflakeppni til stvrktar
góðu málefni.
Keppnin fór fram fyrir
tveim vikum og lauk henni á
lóð Kópavogshælis innan um
fjölmenni i hinu besta veðri.
Þessu lofsverða og frumlega
framtaki skátanna var
hrundið af stað til fjáröflun-
ar fyrir ákveðið verkefni á
hælinuogkunna allir velunn-
arar vistmannanna þeim
hinar bestu þakkir.
Verkefnið sem unnið er að
með fjársöfnun skátanna er
að kaupa bifreið til að aka
vistmönnum i ýmsar nauð-
synjaferðir sem þeir ekki
komast annars vegna fötlun-
ar sinnar. Rikisspitalarnir
munu siðan bera reksturs-
kostnað bifreiðarinnar þegar
hún er fengin.
Enn vantár nokkurt fjár-
magn til bifreiðarkaupanna
ogþvihugsaskátarnir sér að
hefja stórsókn til lokaátaks-
ins nú um helgina.
Það er von min að við sýn-
um skátunum þakklæti i
verki um þessahelgi með þvi
að láta nokkra fjármuni
renna til söfnunarinnar.
Rétt er að geta þess að
girónúmer söfnunarinnar er
63336-4.
Arni Pálsson
sóknarprestur
Mynd Gunnlaugs Scheving,
sem Jansson gaf Listasafn-
inu.
Höfðingleg
gjof
Dr. Sven B. Jansson fyrr-
verandi þjóðminjavörður
Svía sem var hér á fyrir-
lestraferð nýlega færði
Listasafni tslands höfðing-
lega gjöf.
Er hér um að ræða oliu-
málverk af sjómanni eftir
Gunnlaug Scheving, málað
1934. Þegar Jansson dvaldist
hér á árunum fyrir seinni
heimsstyr jöldina keypti
hann málverk þetta.
Gjöf þessi er Listasafninu
afar kærkomin ekki aðeins
fyrir það hversu gott verkið
er, heldur einnig vegna þess
að safnið á mjög litið af
verkum Gunnlaugs Schev-
ings frá þessum tima, segir i
frétt frá Listasafninu.
Guðrún
varamaður
Á fundi borgarstjórnar sl.
fimmtudag fóru fram kosn-
ingar í borgarráð og ýmsar
nefndir á vegum borgarinn-
ar. Sú breytinga varð á skip-
an varamanna i borgarráði
að Guðrún Helgadóttir tekur
nú við af Þór Vigfússyni. 1
borgarráði sitja þeir Sigur-
jón Pétursson, Kristján
Benediktsson og Björgvin
Guðmundsson fyrir meiri-
hlutann og Birgir ísleifur
Gunnarsson og Ólafur B.
Thors fyrir minnihlutann.
— ká
t lok maí fór fram 17. alþjóð-
lega hjólreiðakeppnin i Madrid á
Spáni. Af islands hálfu tóku þátt i
keppninni: Böðvar Þórisson og
Helgi Laxdai báðir úr Kópavogi,
Bergþór Gunnlaugsson frá Þing-
eyri og Andri Teitsson frá Akur-
eyri.
Frammistaða reiðhjólapilt-
anna var allgóð, þeir urðu i 9.
sæti af 14 þjóðum og fremstir
Norðurlandabúa. t fyrsta sæti
urðu heimamenn Spánverjar, i
A vegum samgönguráðuneytis-
ins er nú unnið að útgáfu og end-
urskoðun laga og reglugcrða um
öryggis- og hagsmunamál sjó-
manna á mörgum sviðum, þám. i
sambandi við öryggisbúnað á
loðnuskipum og á neta- og línu-
vindum og lokið er athugun á
bættri veðurfregnaþjónustu við
skip. Kemur þetta fram i frétta-
tilkynningu frá ráðuneytinu þar
1 dag kemur hingað til lands
GMteborgs Domkyrkas Gosskör á
vegum islensk-sænska félagsins
og I samvinnu við menntamála-
ráðuneytið.
Kórinn mun dvelja hér i sex
daga og heldur sina fyrstu
tónleika á Miklatúni á morgun
sunnudag, á f jölskylduhátið
þeirri sem samtökin „Lif og
land” gangast fyrir. Kórinn
heldur einnig tónleika i Háteigs-
kirkju á þriðjudag kl. 20.30 og i
Selfosskirkju á miðvikudag kl.
öðru sæti Frakkar og þriðja urðu
Portúgalir.
I keppni einstaklinga varð
Böðvar Þórisson i 19. sæti af 56
einstaklingum og verður það að
teljast mjög góð frammistaða.
Jafnframt fór fram 4. alþjóð-
lega vélhjólakeppnin og tóku
tveir islenskir piltar þátt i henni
þeir Þorsteinn Gunniaugsson úr
Hafnarfirði og Þórður Pálsson frá
Keflavik.
Vélhjólapiltarnir urðu i 11.
sem það segist, að gefnu tilefni,
viija upplýsa eftirfarandi:
l.Nefnd sem skipuð var til að
endurskoða ákvæði i lögum
varðandi fjarskiptastöðvar á
islenskum skipum hefur lokið
störfum. Voru tillögur nefndar-
innar sendar 8 umsagnaraðil-
um og er svara að vænta um
miðjan þennan mánuð. 1 tillög-
20.30. Þá mun drengjakórinn
syngja i boði forseta íslands á
Bessastöðum á mánudag.
A efnisskrá Göteborgs
Domkyrkas Gosskör i þessari
Islandsferð eru bæði kirkjuleg og
veraldleg verk, þar á meðal mörg
þekkt klassisk tónverk, svo og
sænskar visur og þjóðlög.
Stjórnandi kórsins eru Birgitta
Persson og undirleikari er organ-
istinn Eric Persson sem er faðir
stjórnandans.
Drengjakór dómkirkjunnar i
Gautaborg var stofnaður 1962 og
sæti. 1 einstaklingskeppni á vél-
hjólum varð Þorsteinn i 14. sæti af
26 einstaklingum.
Móttökur Spánverja voru með
ágætum. Ferð piltanna voru
verðlaun fyrir góða frammistöðu
i spurningakeppni er fram fór i
mars s.l.
Fararstjórn og þjálfun önnuð-
ust Guðmundur Þorsteinsson
námstjóri i umferðarfræðslu og
Baldvin Ottósson lögregluvarð-
stjóri.
um þessum er m.a. gert ráð
fyrir neyðarsendum i gúmmi-
björgunarbátum. Komi ekki
fram alvarlegar athugasemdir
við þessi áform er þess að
vænta, að nýjar reglur verði
gefnar út þegar að umsagnar-
fresti loknum.
2.Starfandi er nefnd, sem fjallar
um aðbúnað og öryggismál sjó-
manna á islenskum skipum.
Verkefni nefndarinnar er viða-
mikið. Hefur ein reglugerð ver-
ið gefin út af samgönguráð-
herra um aðbúnað i fiskiskip-
um, en nefndin heldur áfram
störfum. Verður sérstaklega
óskað eftir þvi af ráðuneytinu
að nefndin geri tafarlaust
tillögur um hertar reglur varð-
andi öryggisloka á neta- og
linuvindur og öryggisbúnað á
skut loðnuskipa, þar sem ráðu-
neytið telur að ekki megi leng-
ur dragast að reglur séu hertar
i þessum efnum.
3. A vegum ráðuneytisins hefur
verið starfandi nefnd til að
semja reglur um smiði og ör-
yggisbúnað báta minni en 6 m.
Nefnd þessi hefur lokið störfum
og hafa reglurnar verið birtar.
hefur siðan haldið fjölmargva
tónleika heima og erlendis. A
tiltölulega stuttum starfstima
hefur drengjakórinn getið sér
afburða gott orð og jafnvel verið
likt við Vinardrengjakórinn.
Fjörutiu drengir eru i Islands-
ferð kórsins, en þetta er i fyrsta
sinn sem Göteborgs Domkyrkas
Gosskör kemur hingað til lands.
Kórdrengirnir dvelja á heimilum
félagsmanna i tslensk-sænska
féláginu og hjá ýmsu tónlistar-
áhugafólki meðan á Islands-
dvölinni stendur.
1 Fjölbrautaskólanum
j á Akranesi slitið
Aukin starf-
semi og nýjar
verknáms-
I brautir
Fjölbrautaskólanum á Akra-
nesi var slitið 24. mai. Skóla-
meistari ólafur Asgeirsson flutti
yfirlitsræðu um starfsemi skól-
ans. Nemendur I vetur voru 286 á
Bnámssviðum. Auk þessannaðist
skólinn kennslu i 8. og 9. bekk
grunnskóla. Kennarar i vetur
voru 43 talsins þar af 36 fastir
kennarar.
Starfsemi skólans hefur aukist
mjög nú á öðru starfsári hans,
hafin var kennsla á verknáms-
brautum i málm-, tré- og rafiðn-
um og gefinn út nýr námsvisir
skólans, sem starfar eftir áfanga-
kerfi.
Komfram i máli skólameistara
að mjög brýnt er að hraðað verði
byggingu nýs grunnskóla á Akra-
nesiþvi mjög þröngt er um starf-
semi skóla í bænum, en skóla-
bygging stendur fyrir dyrum. Þá
er brýnasta verkefni i húsnæðis-
málum fjölbrautaskólans að reist
verði hús yfir verknámsdeildir
hans.
I vetur sóttu skólann 63 nem-
endur utan Akraness og bjó hluti
þeirra i heimavist. Aætlað er að
nemendur verði um 400 haustið
1979.
Að þessu sinni voru brautskráð-
ir frá skólanum nemendur á fjór-
um námssviðum. Fjórir nemend-
ur af heilbrigðissviði, af tækni-
sviði 23, þar af: 13 húsasmiöir, 1
húsgagnasmiður, 5 vélvirkjar, 1
bifvélavirki, 1 rafvirki, 1 málari
og 2 vélstjórar (l.stigs.). Þá
4.Samstarfshópur á vegum ráðu-
neytisins hefur lokið athugun á
bættri veðurfregnaþjónustu við
skip. Ráðuneytið mun beita sér
fyrir þvi að koma tillögum
nefndarinnar til framkvæmda.
5.Um endurskoðun á lögum um
skipstjórnarmenn og vélstjóra
á islenskum skipum hefur verið
starfandi nefnd, sem nú hefur
einnig verið falið að endur-
skoða lög um lögskráningu sjó-
manna frá 1961. Nefnd þessi
hefur haldið marga fundi um
verkefnið og bætist nú við end-
urskoðun laga um lögskráningu
sjómanna. Má gera ráð fyrir
nokkrum tima enn.til að nefnd
þessi geti lokið störfum, enda •
verkefnið umfangsmikið.
Tækniskóla
íslands slitið:
Fyrsta konan
útskrifast sem
byggingar-
tæknifræöingur
Tækniskóla tslands var slitið
31. mai sl. í vetur stunduðu ná-
lega 400 nemendur nám við skól-
ann, þar af voru 22 á Akureyri og
11 á isafirði.
Afangakerfi hefur verið reynt
við skólann i tvö ár og gefið góða
raun. 1 skólanum eru sex deildir
og námsbrautir niu. Alls útskrif-
uðust 123 „tæknar” úr ýmsum
greinum þar af 24 útgerðartækn-
ar.
Ein kona lauk námi sem bygg-
ingartæknifræðingur og er hún
fyrsta islenska konan sem lýkur
þvi námi hér á landi eftir þvi sem
við best vitum.
— ká
Framhald á 14. siðu
SAMGÖNGURAÐUNEYTIÐ:
Endurskoðun laga um öryggis-
og hagsmunamál sjómanna
Drengjakór dómkirkjunnar I Gautaborg.
Sænskur drengjakór í íslandsheimsókn