Þjóðviljinn - 04.07.1979, Blaðsíða 3
Miövikudagur 4. júli 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
jSteypa, sandur
jmöl og smjörlíki
ihækkuðu í gær
Staöfestar hafa veriö samþykktir verölagsnefndar frá þvi á
mánudag um hækkanir á steypu, smjörliki og sandi og möl, en
_ aörar afgreiöslur nefndarinnar hafa enn ekki hlotiö staöfestingu,
I þ.á m. veröhækkanir á farmgjöldum skipafélaganna.
■ Hækkun steypunnar er heimiluö i framhaldi af 25% hækkun á
möl og sandi til húsbygginga vegna samþykktar bygginga-
■ nefndar Reykjavikur um aö þvo skuli alla sjávarseltu úr
| byggingarefni. Sótt haföi veriö um 40 — 50% hækkun vegna
; þvottarins.
Þá var staöfest i gær samþykkt verölagsnefndar um 8,3%
hækkun á framteiöslu smjörlikisgeröa.
Enn ein óstaöfestar samþykktir verölagsnefndar um 20,5%
| hækkun á haröfiski, hækkun á aögöngumiöaveröi veitingahúsa
■ úr 400 i 500, ef húsin eru opin til 23,30 en I úr 500 i 600 úr ef húsin
I eru opin lengur og loks hækkun á farmgjöldum skipafélaganna
" og afgreiöslugjöldum þeirra. —AI
BM Vallá
Hótar eim lokun
Töpum miljón á dag, segir forstjórinn
Samþykkt verölagsnefndar frá því á mánudag um 7,5% verö-
hækkun á steypu án sements var staöfest á fundi rlkisstjórnar I
gær og mun þessi hækkun valda um 3 — 4% hækkun á steypu-
veröinu, þar sem engin breyting hefur veriö gerö á sementsveröi
sem er um helmingur af útsöluveröi steypunnar. Steypustööin
hf. haföi sótt um 20% hækkun og Steypustöö BM Vailá um 18%
og sú siöarnefnda hótaölokun ef hækkunin fengist ekki.
Við þaö hélt forstjóri BM Vallár, Viglundur Þorsteinsson, i
gær er Þjóðviljinn ræddi viö hann, en sagöist reyndar lita svo á,
að beiðni þeirra væri enn óafgreidd:
— Ég tel, að viö höfum enga hækkun fengiö enn, og 7,5 prósent-
in aðeins til aö mæta 25% hækkuninni á möl og sandi til Björg-
unar hf., sagði hann. Fáist ekki þau 18% sem viö sóttum um er
sjálfgert aö hætta, þvl viö töpum miljón kr. á dag, miöaö viö þá
framleiöslu sem viö erum meö á þessum tima, 470 — 500 rúm-
metra á dag. Þetta er okkar aöalvertiö og veltan mikil. _vh
Forstjóri Eimskips um farmgjalda
hækkunina:
Við bíðum átekta
Ég tel farmgjaldahækkunina sem verölagsnefnd samþykkti
algerlega óviðunandi og ekki rekstrargrundvöll fyrir skipafélög-
in, sagöi Höröur Sigurgestsson forstjóri Eimskips viö Þjóövilj-
ann i gær. Viö munum hinsvegar biöa átekta, þar sem viö teljum
þetta bráöabirgöahækkun, sem veröi endurskoöuö eftir einn til
tvo mánuöi.
Einsog sagt var frá i Þjóöviljanum sóttu skipafélögin um 40%
farmgjaldahækkun, en verölagsnefnd samþykkti 18% auk 4%
vegna gengisbreytinga eöa samtals 22% hækkun.
Höröur sagöi rangtúlkaö, aö Eimskip heföi hótaö aö stööva
skipin ef ekki fengist 40% hækkun. Sagt hefði verið aö þau sigldu
áfram eftir farmannaverkfall i trausti þess, aö eölileg fyrir-
greiösla verölagsnefndar fengist.
Höröur sagöi, aö siöasta hækkun sern skipafélögin heföu fengiö
heföi veriö i mars 1978, 15%, en i febrúar sl. heföi veriö sótt um
25% sem ekki heföi fengist afgreitt.
Þaö hefur valdiö miklum vanda, hve þetta hefur dregist lengi,
sagöi hann, þvi við höfum orðið aö mæta almennum kostnaöar-
hækkunum á þessu timabili. Einkum er þaö olluhækkunin sem
þarna kemur til, en siðan i október 1978 hefur hún hækkað um
160%. Verðiðfyrir ársnotkun 1978 var 4.650.000 dollarar, en miö-
aö viö júniverðið á þessu ári er sú upphæö 10,5 miljónir dollara.
Ég get lika bent á, sagöi Höröur aö lokum, aö siöan i mars 1978
hafa flutningsgjöld skipafélaganna hækkaö um 60%, en á sama
tima hafa dagblöðin hækkaö um 160%. . _vh
Loftleiðaflugmenn á fundi I fyrrakvöld. Að neðan til vinstri stjórn félagsins. Ljósm. —eik—
Loftleiðaflugmenn um uppsagnarmálin:
Óska eftir viðrædum
vid stiórn Flugleiða?
Félag Loftleiðaf lug-
manna hélt fund um upp-
sagnarmálin í fyrrakvöld,
en á fundinum var ákveðið
að fara fram á viðræður
við stjórn Flugleiða.
A fundi Loftleiöaflugmanna s.l.
mánudagskvöld var ákveöið aö
fara þess á leit viö stjórn Flug-
leiða aö hún héldi fund meö Loft-
leiöaflugmönnum um uppsagnar-
málin. Flugleiöir hafa, eins og
fram hefur komið 1 fréttum, á-
kveöið aö segja upp 9 Loftleiöa-
flugmönnum og 9 flugmönnum
hjá Flugfélagi Islands. Hins veg-
ar er starfsaldur Loftleiöaflug-
manna mun hærri en Flugfélags-
mannanna og hefur þaö valdiö
megnri óánægju Loftleiöaflug-
manna. A fundinum s.l. mánudag
var nokkur hiti i mönnum vegna
þessa máls, aö sögn heimildar-
manns blabsins. Fundur þessi
mun eiga aö fara fram fyrir helgi,
og mun eftir hann liggja fyrir
hvert verður næsta skref Loft-
leiðaflugmanna. —Þig
Flugdagsnefnd:
Gjaldeyris-
gródi af
flugdegi
Hafna ummœlum um
orku- og gjald-
eyrisbruðl
' Flugdagsnefnd Flugmálafélags
islands hefur látib reikna ðt hver
var eldsneytiseyðsla þeirra flug-
véla, sem sýndu listir sinar á
flugdeginum nýafstaðna, vegna
ummæla Hjörleifs Guttormsson-
ar iðnaðarráðherra um að hér
væri um að ræða „illt fordæmi að
sóa gjaldeyri I svona loftfim-
leika” i Alþýöublaöinu 28. júnl s.l.
Samkvæmt útreikningunum mun
bensineyðslan hafa numiö 113
þúsund krónum báða dagana.
Flugdagsnefnd boöaði til blaða-
mannafundar 1 gær vegna skrifa i
Alþýðublaöinu um aö Flugdagur-
inn hefði verið orku- og gjaldeyr-
isbruöl og vegna ummæla iönaö-
arráöherra i sama blaði þar sem
undir þessa skoöun var tekiö.
A blaöamannafundinum iögöu
þeir forsvarsmenn flugdagsins
Flugdagsnefnd á blaðamannafundlnum I gær. Frá vinstri: Sigmundur
Andrésson, Ragnar Ragnarsson og Baldur Sveinsson. Ljósm. — eik.
fram sundurliöaöa töflu, sem
sýnir aö samtals var eytt 1193
litrum af flugvélabenstni aö upp-
hæð samtals 113 þúsund króna,
sem er útsöluverö. A móti þessari
upphæö lögöu þeir flugdagsmenn
fram tölur sem þeir telja aö sýni
aö gjaldeyrishagnaöur hafi oröiö
af flugdeginum. Vegna dagsins
gistu 29 erlendir gestir landiö á
eigin kostnað og námu gisti-
reikningar þeirra um HOOþúsund
krónum. Þá keyptu erlendu flug-
vélarnar 25 þúsund litra af ben-
sini fyrir 2.5 miljónir króna,
þannig, aö mati flugdagsmanna,
þá nema gjaldeyristekjurnar ti-
falt hærri upphæö en eyöslan var.
A blaöamannafundinum kom
jafnframt fram aö einu útgjöld
flugdagsnefndar vegna komu er-
lendra flugmanna hingaö var
borgun á flugfari tveggja list-
flugsmanna, en á meöan á dvöl
þeirra stóö gistu þeir á einka-
heimilum. Þá greiddi nefndin
bensinkostnað vegna listflugsins,
sem nam rúmum 16 þúsund krón-
um. Aörir erlendir gestir voru
flugmenn nokkurra Nato-flug-
herja sem sýndu listir slnar á
herflugvélunum endurgjalds-
laust, eöa sem þakklæti viö veitta
þjónustu á flugstjórnarsvæöi ís-
lands á undanförnum árum, eins
og einn flugdagsnefndarmaöur
komst að orði.
Fiugdagsnefnd er skipuð af
Flugmálafélagi Islands sem er
landssamband áhugaflugfélaga
og einstaklinga. Kostnaöur vegna
Flugdagsins mun nema tæpum 4
miljónum króna, en tekjur eru 4.4
miljónir, og tekjustofninn er inn-
gangseyrir aö flugsýningunni.Þig
I
I
■
I
■
I
■
I
■
Deilur Sunnu og Suðumesjamanna
Staðhæfing gegn staðhæfingu
Mikið fjör er nú hlaupið i deilur
ferðaskrifstofunnar Sunnu og
ferðafólksins frá Suðurnesjum
sem sagt var frá I blaðinu i gær.
Sunna sendi I gær frá sér frétta-
tilkynningu þar sem ásakanir
hópsins eru bornar til baka, en i
staðinn ber Sunna á fararstjórana
að þeir hafi heimtað fritt far fyrir
sig og slna og haldi uppi atvinnu-
rógi og lygum gegn Sunnu.
1 fréttatilkynningunni segir aö
sú 11 þús kr. hækkun sem varö á
feröinni hafi stafaö af hækkun á
flugkostnaði, en hópurinn hafi
ekki veriö látinn greiöa hann.
Hins vegar hafi fararstjórinn
stungiö upp á því aö hinir öldruöu
greiddu hækkunina gegn þvi aö
vfnflaska væri sett inn á hvert
herbergi. Þótti feröaskrifstofu-
mönnum „þetta ekki viðeigandi I
skemmtiferð aldraöra”. Þá er
rakin saga hótelpantana og segir
þar, að hótelin hafi veriö staöfest
löngu fyrir komu hópsins, en eftir
þvi sem segir i Suðurnesjatiðind-
um var allt i óvissu meö gistingu
þar til nokkrum klukkustundum
áöur en hópurinn kom til Mall-
orca. Sú skýring er gefin á stytt-
ingu ferðarinnar um tvo daga aö
röskun á flugi DC 10 þota hafi sett
allt úr skoröum. Þá kemur feröa-
skrifstofan Sunna I lokin meö þaö
boö til farþeganna frá Suðurnesj-
um að þeir fái fria ferð næsta
sumar og aö þeim veröí bætt tjón-
iö sem þeir uröu fyrir. Segir I
fréttatilkynningunni aö Sunna
vilji koma til móts viö fólkið „þar
sem ánægju þeirra hafi veriö
spillt á óvenjúlegan hátt af „far-
arstjórum” og venslafólki þeirra,
sem feröuöust fritt á þeirra
kostnaö.”
Þegar Þjóöviljinn haföi sam-
band viö einn farþeganna i gær
haföi ekkert bréf borist frá
Sunnu, en þess var krafist aö
hann svaraði kröfum þeirra fyrir
2. júlí. Sagöi viömælandi blaösins
aö framkoma Sunnumanna I
þessu máli væri meö ólikindum
og feröin heföi valdiö farþegunum
miklum vonbrigöum.
Hann sagöi einnig aö fleiri viö-
skiptavinir Sunnu heföu sömu
sögu aö segja; greinilega stæði
fyrirtækiö mjög illa aö vigi, hótel
á Spáni skiptu ekki viö Sunnu
nema gegn tryggingum, búiö væri
að loka fyrir flug þeirra og fréttir
hermdu aö Sunna væri aö fara á
hausinn.
Málið stendur nú þannig aö
staöhæfing er gegn staðhæfingu,
en i fréttatilkynningu Sunnu segir
aö fanarstjórinn og ábyrgöar-
maöur Suöurnesjatiöinda veröi
látnir sæta ábyrgð fyrir atvinnu-
róg á réttum vettvangi.
—ká