Þjóðviljinn - 21.07.1979, Page 14

Þjóðviljinn - 21.07.1979, Page 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN um húshitun og sparnað Loft- ræstið rétt Það skiptir verulega mikiu máli fyrir orkunýtinguna, að loftræsting i húsum sé gerð á sem hagkvæmastan hátt. Best er að iáta viðra i gegnum ibúðina eða einstök herbergi i 3- 5 minútur. Sumir telja, að hag- kvæmara sé að hafa einn glugga opinn i lengri tima, en það er rangt. Við það kólnar ekki ein- ungis andrúmsioftið heldur einnig veggir, loft, gólf, og hús- gögn, en upphitun þeirra er verulega orkufrek. Þið sem hafið ánetjast tækni- væðingunni svo mjög að þið eruð búin að festa kaup á eldhús- viftu, munið að láta hana ekki ganga lengur en þörf er á. Hún sogar út mikið magn af lofti, sem þið eruö búin að kosta upphitun á. —ÖS Uppröðun innbús skiptir máli! Það getur skipt nokkru máli hvernig innanstokksmunir eru staðsettir i ibúðinni. Til að mynda er ekki óaigengt, að þykkar gardinur nái niður fyrir ofnana að innanverðu, og ein- angra þá þannig mjög frá her- berginu. Hringrás loftsins um ofnana er þá torveiduð og upp- hitunin nýtist ekki nærri nógu vei. Sumir stifto lfka voldugum húsgögnum fast að ofnunum og hindra að þeir biti loftið I her- berginu nægtíaga vel upp. Það ætti auðvita-ð að varast. t sparnaöarskyni ættu menn að stilla bókahillum eða skápum i upp við útveggi, vegna þess að j slíkir munir hafa einangrandi áhrif á vegginn, og minnka hita- tap um hann. Veggteppi á út- vegg eru lika einangrandi. Og yfir nóttina er þjóðráð að renna rúllugardinunum niður. Það minnkar útgeislunina. —ÖS Hvernig má spara orku án tilkostnaðar Til að minnka orkutap út húsum þarf yfirleitt að I nota til að auka nýtingu á orkunni sem við notum til kosta til einhverjum fjármunum til að bæta upphitunar og annarra hluta i ibúðum okkar, og einangrun, auka þéttingar eða kaupa nýtt og betra kosta þó ekki túskilding með gati. Nokkrum hinna gler. En það eru samt sem áður mörg ráð, sem má | helstu er lýst hér á eftir. RÚMUR þriðjungur orkunnar tilhúshitunar Hitaveita til sem flestra fyrir i dag eru hús á Islandi kynt upp með þremur mis- munandi orkugjöfum/ þ.e. olfu/ rafmagni og hita- veitu. Hrein orkunotkun til húsa er í dag í kringum 2100 GW h þar af er raf- magn 300 GW h en nýting rafmagns*£H húsanotk- unar er 100%. Olíunotkunin til húsahitunar er I dag um 900 GW h en nýtingin á oliunni er aðeins 65%. Sama orkumagn af hitaveitu- vatni eða 900 GW h er notað til húsahitunar á landinu I dag. Nýt- ingin á hitaveituvatninu er góð, en vatnið nýtist alveg niður i 4 gr. C. Eins og þessar tölur sýna fer mikið orkumagn til húsahitunar hér á landi og segir sjálfsagt vetrakuldinn og votviðrasöm sumur þar til sin. Af vergri orku- notkun islendinga fer nú um 39,2% til húsahitunar en i Sviþjóð fer um 25% af orkunotkuninni til húsahitunar. A þessari töflu sést verðmis- munur á kyndikostnaði miðað við ársgrundvöli, eftir þvi hvaða 1984 kyndileiðir eru nýttar. Húsnæðið sem kyndikostnaðurinn er miðað- ur við er 450 ferm eða 115 ferm samkvæmt teikningum Hús- næðismálastjórnar rikisins. Kyndimöguleikar.. Kostn.á ársgr.velli.- Olíukynding................650. þús Rafv. Rvik.................300. þús Rafv. Akraness.............340. þús Orkubú Vestfj..........420. þús Rafv. Akureyr .........290. þús Rafv Reyðarfj..........360. þús Rafv. Selfoss..........270. þús Rafv Hafnarfj..............250. þús RARIK......................4io. þús Hitaveit. Rvik.............120. þús Hitaveit. Akurey...........290. þús Hitaveit. Seifoss..........120. þús A þessari töflu sést greinilega hversu ódýr og hagkvæmur orku- gjafi hitaveitan er. Taka ber tillit til þess að Hitaveita Akureyrar er svo til nýtekin til starfa og þvi vatnið dýrara meðan stofnkostnaður er greiddur. Þá er einnig áberandi hversu mis- munandi raforkuverð gildir I landinu hjá hinum ýmsu rafveit- um, en meö sameiningu i eina stóra landsveitu, sem varð að veruleika á dögunum, ætti sá mismunur að hverfa. Rikisstjórnin hefur nú mótað þá stefnu i orkumálum að fyrir árs- lok 1983 verði 80% landsmanna komnir með hitaveitu til húsahit- unar, en i dag hafa um 65% lands- manna þennan ódýra orkugjafa i ofnum húsa sinna. -lg Lækkum hitastigið Spörum þamnig orku og aukum vellíðan Með þviað minnkahita- stigið í híbýlum okkar um eina gráðu, spörum við hvorki meira né minna en fimm til sjö prósent af orkunotkuninni. Þetta ættu menn að hafa í huga þegar svimhár orku- reikningurinn berst þeim í hendur. Of hár innihiti A vorum siðustu og verstu timum gildir, að fólk hefur yfir- leítt alltof háan hita I hibýlum sinum. og til dæmis er ekki óal- gegnt aö 25 gr á C séu I ibúðum. Hins vegar er kjörhiti meðal- mannsins talinn vera um 20 gr. á C. Þessi mikla hitun veldur að sjálfsögðu óþarflegri orku- eyðslu, sem kemur tilfinnanlega við kaunin á fólki, einkum á ollukyntu svæðunum. Þar að auki eru læknar sam- mála um, að það sé slæmt fyrir menn að búa við of mikinn hita. Þá verður nefnilega loftið of þurrt, en það getur valdið óþæg- indum og smám saman sjúk- leika i slimhimnum öndunar- færanna. Forðum var gjarnan talið aö 18 gr. á C. væru besta hitastigið innanhúss. I seinni heimsstyrj öldinni færðu margar rikis- stjórnir það i reglur, að innihit- inn ætti að vera 16 gr. á C til að spara sem mest af kolum og oliu sem ella færu i kyndingu. En með vaxandi velferð hefur hita- stigið i mannabústöðum rokið upp, og sumir vilja helst hafa 25 gr. á C, einsog fyrr er sagt. en það er i flestum tilfellum alltof hátt. Þó skal það undirstrikað, að þeir sem eru orðnir gamlir eða sjúkir, og eiga við of hæga blóö- rás að striða, þurfa að hafa til- tölulegra hærra hitastig en meðaljóninn. (Sjá töflu). Að næturlagi er 18 gr. á C talið kjörhitastigið. Einungis með þvi að lækka hitann úr 20 gr. á C að degi og niður i 18 gr. á C að nóttunni minnkar orkuþörfin um heil 3 — 6%. Oft er æskilegt að hafa mis- munandi hitastig i herbergjum, til dæmis 18 gr. á C i svefnher- bergjum, 20 gr. á C I stofum o.sv. framv. Þá verða menn hins vegar að gæta þess, að hurðir milli herbergja séu lok- aðar og vel þéttar. Ella nýtist sparnaöurinn ekki A vinnustöðum, þar sem fólk er á hreyfingu, er 18% á C hag- kvæmasta hitastigið. —ÖS Hagkvæmasta hitastigið í híbýlum t ibúð, að degi til ............................20 gr. á C 1 Ibúð, sem er auö aðdeginum, ...............16-18 gr. á C t Ibúð, sem stendur auð um lengri tlma ......14-18 gr. á C t skrifstofum ..................................20 gr. á C t svefnherbergjum ............................ 18 gr. á C í vinnusal, þarsem mikil hreyfing er áfólki.......................................16-18 gr.áC t stöðum, sem sjaldan eru nýttir ............10-15 gr. á C í bílskúrum og öðrum útihúsum...................5 gr. á C

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.