Þjóðviljinn - 21.07.1979, Side 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. júll 1979
I DAGMLA.
Kvaddi landsliö og möl
Páll Magnússon, blaöamaður, ræddi við hjónin Katrinu
Axelsdóttur og Kára Mariasson er hann var á ferð um Skaga-
fjörð nýlega.
Þeir, sem eitthvað hafa fylgst með iþróttum hin siðari ár,
kannast mætavel við Kára Mariasson, en hann hefur um ára-
bil verið einn okkar besti körfuknattleiksmaður og á fjölda
landsieikja að baki. Kári hefur nú kvatt landslið og möl og
stundar þess i stað hænsnarækt.
Landiö tnilli jöklanna
Helgarblaðið var nýlega á ferö um Fimmvörðuháis, Það er
leiðin frá Skógum undir Eyjafjöllum og I Þórsmörk. Að sögn
kunnugra er þetta ein allra skemmtilegasta gönguleið sem til
er. Jöklar til beggja handa, opiö hafið i suðri, hrikalegt en
fallegt land i norðri.
Frægöin kom þeim
i opna skjöldu
Rætt um fjórar söngkonur poppsins, sem urðu heimsfrægar
með fyrstu plötunni. Þær erutAmii Stewart .Anita Ward,
Lene Lovich og Kickie Lee Jones.
Skalli er algengur
í minni ætt”
— segir Jón Böðvarsson, Islenskumaður, skólameistari og
herstöðvaandstæðingur I hressilegu Helgarblaösviðtali.
Benti á banamann sinn!
.Lýsing hinnar látnu á morðingjanum kom lögreglunni á
rið”.
.Sérstæð sakamál” eru venju fremur sérstæö að þessu
sinm
erkomin!
Auglýsið í
Þjóðviljanum
DWÐVIUINN
Sýning
mynd-
höggvara
hefst 1 dag
Sumarið á Kjarvalsstöðum er i
fullum blóma. í dag hefst þriðji
hluti sýningarinnar, þegar
myndhöggvarar bætast í hóp
þeirra sem fyrir eru.
Það eru 15 félagar Mynd-
höggvarafélagsins I Reykjavik
sem sína auk Jóhanns EyfeUs
sem búsetturerí Bandarikjunum
þar sem hann kennir við háskóla i
Florida.
Verk myndhöggvaranna eru
bæði úti og inni en fyrir rúmum
áratug vöktu sýningar þeirra á
Skólavörðuholti mikla athygli.-
Upp úr þeim hræringum varð
félag þeirra til. Myndhöggvaram
ir hafa aðstöðu að Korpúlfs-
stöðum þar sem þeir vinna verk
sin I aUs konar efni.
Ragnar Kjartansson, formaður
félagsins, sagöi að þeir sýndu
verk á breiðum grundvelli allt iíý
gjörningi til natúralisma og efnin
eru aUt frá grjóti til torfs.
Sýningin verður opnuö kl. 2 i
dag en kl. 2.30 fremur Rúri Fann-
berg gjörning (performance) og
Hafsteinn Austmann
Sumarsýning
þriggja mynd■
listarmanna
Um siðustu helgi var opnuð i
Norræna húsinu sumarsýning
sem orðin er árviss viðburður i
listalifi borgarinnar. Að þessu
sinni eru sýnd verk eftir þrjá
listamenn þá Gunnlaug
Scheving, Hrólf Sigurðsson og
Hafstein Austmann.
Verk Gunnlaugs eru úr einka-
safni nafna hans Þórðarsonar,
verk frá ýmsum skeiðum á list-
ferli Gunnlaugs, elsta myndin frá
þvi um 1930.
Hrólfur Sigurðsson hefur ekki
haldið einkasýningu frá 1963 og
er þetta þvi gott tækifæri til að
kynnast list hans. Myndir hans
eru i ætt við naturalisma og eru
allar nýjar af nálinni.
Hafsteinn Austmann er yngstur
þeirra þriggja. Hann hélt
einkasýningu i vinnustofu sinni sl.
vetur en hefur nú bætt við nýjum
myndum. A sýningunni er hann
fulltrúi abstrakt listar.
Sýningarsalur Norrænna húss-
ins er opin frá kl. 2-7 nema þriðju-
daga og fimmtudaga þá er opið 2-
10. Sýningin stendur til 19. ágúst.
Ragnar Kjartansson
kl. 3.30 syngur Hamrahliöar-
kórinn undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur.
Þá má minna á, að á Kjarvals-
stöðum standa nú yfir sýningar
Septem-hópsins og félaga úr
Galleri Langbrók auk mynda
eftir Jóhannes Kjarval i eigu
Rey kjavikurborgar.
—ká
Gömul leikföng á leikfangasýningunni I Árbæjarsafni, ungum og öldn-
um til yndisauka.
Leikfangasýning í Árbæ
Ef veðurbliöa helst um helgina
er tilvalið að bregða sér I
Árbæjarsafn og kaupa kaffi og
pönnukökur I Dillonshúsi um leið
og hægt er að skoða leikfanga-
sýninguna. „Fyrrum átti ég
falleg gull” sem staðið hefur um
nokkurra vikna skeið og verður
opin i allt sumar.
Þar getur að lita gömul leik-
föng sem varðveitst hafa i fórum
fólks sem ekki lenti I þvi að brjóta
og týna. Má þar nefna hluti eins
og bollastell, dúkkur, báta og
bíla, leikföng sem tengjast fortíð
og nútið. Arbæjarsafn er opið alla
daga nema mánudaga frá kl. 1-6.
-ká
-ká
HÚSB Y GGJENDUR!
Plastgerð Suðurnesja hefur margra ára reynslu i framleiðslu
plasteinangrunar.
Plastgerð Suðurnesja hefur ávallt fyrirliggjandi plasteinangr-
un i öllum þéttleikum og þykktum.
Nótað einangrunarplast fyrir steypumót. Sláið upp með
einangruninni i. Timbrið hreint og veggurinn einangraður.
PLASTGERÐ
SUÐURNESIA
YTRI-NJARÐVÍK
SÍMI 92-1959