Þjóðviljinn - 21.09.1979, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 21.09.1979, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. september 1979 Fjalla-Evvindur á ísafirði Leikstjórinn: Jón Jiiliusson Frá fréttaritara Litli leikklúbburinn á ísafirði frumsýndi s.l. föstudag leikritið vin- sæla Fjalla-Eyvind eftir Jóhann Sigurjónsson. Þetta er 31. verkefni leikklúbbsins og 15. leik- ár hans. Leikstjóri er Jón Júliusson. Fullyr&a má, aö meö þessari sýningu hafi Litli leikklúbburinn sýnt þá leikrænu tækni og leik- gleöi, aö ekki veröur meira kraf- ist af áhugamannaleikhúsi. En jafnvel miöaö viö hinar fagmann- legustu kröfur má segja aö leikur Margrétar óskarsdóttur i hlut- verki Höllu sé leiksigur. Margrét hefur, eins og mörgum er kunn- ugt, ekki aöeins leikiö um langt árabil meö LL, heldur leikstýrt fjölda leiksýninga og haldiö leik- listarnámskeiö á Isafiröi og viöar Cr þriöja þætti upp viö jökla. Taliö frá vinstri: Snorri Grimsson (Arnes), Margrét óskarsdóttir (Halla) Kristjana Bjarnþórsdóttir (Tóta) og Aöalsteinn Eyþórsson (Fjalla-Eyvindur). um Vestfiröi. I þessu „drauma- hlutverki” flestra leikkvenna hefur hún sýnt stórkostlegan leik- og sviöstækni. Meö hlutverk Fjalla-Eyvindar fer Aöalsteinn Eyþórsson. Aöal- steinn, sem er aöeins 18 ára menntskælingur, skilar sínu hlut- verki lýgilega vd, þannig aö meö meiri reynslu og leikrænni ögun má búast viö miklu af honum ef hann á eftir aö troöa fjalir leik- sviösins i framtiöinni. Björn hreppstjóri er leikinn af Guömundi R. Heiöarssyni, sem áöur hefur getiö sér gott orö á sviöinu, en meö hlutverk Arnesar fer nýgræöingur, Snorri Grlms- son, og er hinn trúveröugasti. Fimmtán aörir leikarar fara meö minni hlutverk. Sýningin I heild og árangur aöalleikaranna ber leikstjóran- um, Jóni Júliussyni, ágætt vitni. Þar hefur veriö fagmannlega unniö og smáatriöum I leik og leikmyndekki gleymt.eins og svo oft vill veröa. Þess má geta til gamans, aö Aöalsteinn Eyþórsson, sem leikur Fjalla-Eyvind, rekur ættir sfnar til bróöur Fjalla-Eyvindar: Jóns Jónssonar Skipholti I Hruna- mannahreppi. Vestfiröingum er þjóösagan af Fjalla-Eyvindi og Höllu ekki meö öllu ókunn, þvl aö Halla var ættuö úr Jökulfjöröum, noröan viö Djúp, var ung ekkja þar.en lagöist Ut meö Eyvindi og þar báruþau einnig beinin aö lok- um, eftir tuttugu ár i útlegö. Næstu leiksýningar á Fjalla-Eyvindi veröa I kvöld og á sunnudag, i félagsheimilinu i Hnifsdal, en sýningum fer aö fækka, þrátt fyrir þaö aö húsfyllir hefur veriö hingaö til, — vegna annars annrikisleikenda. H.P. Margrét óskarsdóttir og Aöalsteinn Eyþórsson I hlutverkum Ilöllu og Fjalla-Eyvindar. Athyglisverð skoðanakönnun Landsþing Landssambands Isl. samvinnustarfsmanna, hiö fjóröa I rööinni, var haldiö aö Bifröst helgina 8. og 9. sept. Aö þvi er Samvinnufréttir segja vöktu hvaö mesta athygli á þinginu niöurstööur skoöana- könnunar þeirrar, sem gerö var meöal samvinnustarfsmanna fyrr I sumar, en þær voru lagö- ar fram á þinginu. Nokkuö i-ó þó úr gildi þess- arar sko&anakönnunar hvaö þátttaka var dræm. Bárust aö- eins um 1860 gild svör frá um 5900 samvinnustarfsmönnum, sem fengu spurningalistana I hendur. Hefur þvi aöeins um 1/3 hluti þessa hóps sent inn svör. Eigi aö siöur má draga ýmsar ályktanir af niöurstööunum, a.m.k. um skoöanir þeirra, sem I könnuninni tóku þátt. Eitt af því sem um var spurt var þaö, hvaöa fyrirkomulag menn vildu hafa I samningum viö laun og ýmis hagsmunamál samvinnustarfsmanna á land- inuöllu. Varþetta Iframhaldi af þeim umræöum, sem undanfar- iö hafa fariö fram innan LIS og m.a. hafa snúist um þaö, hvort rétt væri aö stefna aö þ vi, aö LIS tæki aö sér aö vera samningsað- ili viö Vinnumálasamband sam- vinnufélaganna um kaup og kjör samvinnustarfsmanna I landinu. Niðurstöðurnar eru þær, aö aöeins 15,8% vilja hafaáfram ó- breyttþaö fyrirkomulag, sem er nú. Hinsvegar vilja aöeins 19,6% aö LIS semji beint viö Vinnumálasambandiö um kaup og kjör og aö starfsmannafélög- inveröi gerö aö stéttarfélögum. meðal samvinnu- starfsmanna 18.2% vilja aö geröur veröi samningur milli samvinnu- hreyfingarinnar og verkalýös- hreyfingarinnar, aö norrænni fyrirmynd, um þaö, aö ekki veröi gerö verkföll hjá sam- vinnufyrirtækjum, gegn þvi aö þau gangi aö þeim samningum, sem geröir eru viö aöra vinnu- veitendur hverju sinni. 17,9% vilja, aö geröur veröi heildar- samningur um laun og hin ýmsu sérmál viö Vinnumálasamband iö, likt og gert hefur veriö hjá tsal og rikisverksmi&junum, þannig aö samninganefndin veröi aö forminu til á vegum landssamtaka innan ASI og e.t.v. fleiri, en skipuö tyrst og fremst samvinnustarfsmönn- um úr viökomandi stéttarfélög- um og samböndum. 9,3% vilja stofna landsfélög e&a landssam- bönd ýmissa starfsstétta me&al samvinnustarfsmanna, svo sem I verslun, mjólkuriönaöi, fisk- i&naöi eöa ullariönaöi og að þessi landsfélög e&a sambönd annist samningagerö. Loks hafa 19.3% ekki skoðun á málinu og 20,5% svöruöu ekki. Af öörum atriöum má nefna, a& 88,7% telja æskilegt, aö starf- andi sé samstarfsnefnd starfs- fdlks og stjórnenda um málefni starfsfólksins og vinnustaöar- ins. 67,2% vilja sækja fundi starfsmanna meö stjórnendum um ýmis samskiptamál og mun fleiri, 51,4%, telja eölilegt aö starfsmannafélagiö hafi af- skipti af aðbúnaöi og fleiru tengdu vinnustaö heldur en stéttarfélagiö (35,8%). Þá vilja 58,4% vera I llfeyrissjóöi á veg- um starfsmannafélaga eöa samvinnufélaga, en aðeins 26,7% vilja vera I llfeyrissjóöi á vegum stéttarfélaga. 64,1% telja, aö samvinnufyrirtæki eigi aö greiða I orlofssjóöi starfs- mannafélaga, en a&eins 19,1% aö þau eigi aö greiöa I slika sjóöi hjá stéttarfélögum. 82,3% telja eölilegt, aö starfsmenn eigi full- trúa I stjórn samvinnufélaga, 62,6% telja, aö allir starfsmenn eins og sama samvinnufélags eigi aö vera I sama stéttarfélagi og 76,8% vilja láta samvinnu- hreyfinguna og launþegasam- tökin auka samstarf sittfrá þvl, sem nú er. —mhg Frá 4. landsþingi samvinnustarfsmanna I Bifröst. Stjórnog varastjórn LIS: Frá v. Eysteinn Sigurösson, Reykjavfk, Kristinn Jónsson, Bii&ardai, Marius Sigurjónsson, Keflavfk, Jóhann Sigurösson, Akureyri, Páil A. Magnússon, Þórkatia Pétursdóttir, Reykjavik, Pétur Kristjónsson, Reykjavík (for maöur), Ann Mari Hansen, Hafnarfiröi, Þórir Páli Guöjonsson, Reykjavfk, Egill Jónasson, Höfn, Gunnar Jónsson, Húsavfk, Gunnar Sigurjónsson, Reykjavfk.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.