Þjóðviljinn - 29.09.1979, Page 2
2 SIÐÁ — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. september 1979
AF GLERAUGNAVÍMU
Fróðir menn telja að uppeldisfræði sé elsta
vísindagrein í heimi og jafn gömul lífinu á
jörðinni. Þeir vísindamenn eru ekki lengur til,
sem efast um það, að menn og málleysingjar
hafi frá upphafi vega notið uppeldisfræðslu í
einhverri mynd. Að vísu er talið að þessi fræði
haf i verið sett f ram í f rumstæðri mynd meðal
einf rumunga,en vísindi eru þetta eigi að síður.
Ef vér hugsum oss að uppeldisf ræðsla hafi
haf ist á f rumlífsöld,þá er fræðigreinin hvorki
meira né minna en þriggja til fjögurra
miljarða ára gömul, en á síðari árum hafa
skandinavískir fræðimenn hallast æ meir að
þeirri kenningu, að hin ýmsu vísindi, tengd
uppeldisfræðinni, — s.s. félagsfræði, kyn-
fræði, sambýlisfræði, að ógleymdri sjálfri
sálfræðinni, — hafi ekki litiðdagsins Ijds í nú-
verandi mynd fyrr en með tilkomu hins viti
borna manns (Homo Sapiens).
Þannig eru þessar vísindagreinar f raun og
veru ekki eldri en um 500.000 (fimmhundruð
þúsund) ára.
Nú hljótum vér að undrast þá staðreynd að í
449.990 (f jögurhundruð f jörutíu og níuþúsund
níu hundruð og nfutíu) ár hafa sárafáar nýjar
kenningar komið uþp meðal, sál-, uppeldis-,
félags- og kynfræðinga um það með hverjum
hætti réttast sé að uppfræða börn og unglinga
um leyndardóma þeirra líffæra sem notuð
eru meðal annars tíl þvagláta. En sem betur
fer eygjum vér dagsbrún í þessu kynfræðilega
myrkviði.
Það er sem sagt ekki fyrr en á síðustu tíu
árum, sem fræðimenn, með skandinava í
fararbroddi, hafa rofið hinn fimmhundruð
alda gamla þagnarmúr sem umlukt hefur
. kynferðislíf mannkynsins og reynt að varpa
nokkru Ijósi á það, hvar, hvenær og hvers
vegna karl og kona dragi sig saman og hvernig
börn komi undir.
Mestur fengur er að sænskum bókum um
kynferðismál fyrir börn og unglinga og hefur
talsvert af þeim verið þýtt yf ir á íslensku, svo
sem „Magga frænka skilur", „Ég vildi að ég
skildi", „Pollíana fer á spítala", „Hvað eru
pabbi og mamma að gera" og margar fleiri.
Nú les ég í blöðum að enn ein bókin haf i bæst
í hóp kynfagurbókmenntanna. Er sú nýút-
komin og ku heita „Gerum hitt rétt". í frétta-
tilkynningunni segir, að bókin sé líkleg til að
svara fjölmörgum spurningum sem
óhjákvæmilega hljóti að koma uppí hugann
þegar kynhneigðin fari að gera vart við sig.
Sannleikurinn er nefnilega sá að unglingar
hafa ekki gert nærri nóg af því að bíða eftir
svörum við spurningum, þegar kynhneigðin
fór að gera vart við sig, heldur hafa án þess að
ráðfæra sig fyrst við fræðimenn, bara látið
slag standa og gert það sem hugur og hold
bauð þeim. Verkleg kynfræðsla getur að sjálf-
sögðu verið afsakanleg og jafnvel æskileg í
vissum tilfellum, en — svo vitnað sé í Dante —
„það er með hana eins og aðrar f ræðigreinar,
hún verður að vera byggð á fræðilegum
grunni".
Þess vegna er mikill fengur í þessari nýju
bók,
önnur er sú fræðigrein, sem sannarlega
hefur ekki átt upp á pallborðið hjá uppeldis-
vísindamönnum (og konum) síðustu fimm-
þúsund aldir, en það eru vímufræði, já vímu-
fræði.
Nú berast þau gleðilegu tíðindi að farið sé að
kenna þessi fræði í skólum og ber að fagna
því. f þessum efnum er mikill fengur að nýrri
bók, sem koma mun út fyrir jólin og er eftir
svíann próf. dr. Christine de Pisan.
I bók sinni færir próf. Pisan óyggjandi rök
fyrir því að ein af frumþörfum mannkynsins
sé að vera undir annarlegum áhrifum — í
vímu, eins og það er kallað. Hver kannast ekki
við gleði barnsips við að fara tuttugu koll-
hnísa, standa sfðan upp og snúa sér sextíu
sinnum í hring og steinliggja svo af svima.
Þetta ástand er nefnt frumbernskuölvunin.
Af sama toga eru allir hinir f jölmörgu hring-
dansar bæði í kringum jólatré og ekki í kring-
um jólatré.
Síðan þegar æskuárin færast yf ir er farið að
þefa uppúr gúmílímdollum eða bensíni í bóm-
ull þangað til steinlíður yfir allan æskuskar-
ann. Með aldrinum lærist svo að fullnægja
þessari frumþörf mannkynsins, að vera í
annarlegu ástandi, með því að taka tíu, tutt-
ugu sjóveikispillur þótt verið sé að fara inná
Kjöl, en af slíku komast neytendur í það sælu-
ástand — að sögn dr. próf. Pisan — að þeir
halda að hljómplötur séu flatkökur, smyrja
þær, setja á þær ost og borða þær síðan með
kaffi, sem þeir halda að sé te.
Dr. próf. Pisan kemst að þeirri niðurstöðu að
áfengi,eitur- og fíknilyf séu úrelt fyrirbrigði
sem leyst hafi verið af hólmi af miklu full-
komnari sæluvímugjöfum. Til dæmis bendir
prófessorinn á, að mjög algengt sé í röðum
sænskra menntamanna að ná upp svimavímu
með því að brúka sterk gleraugu. Þessi vímu-
gjafi er tiltölulega skaðlaus að því frádregnu
að menn missa sjónina fyrr en ella, en þó ekki
jafnsnemma og ef drukkinn er tréspíritus að
staðaldri.
Þá fordæmir Pisan það háttarlag að kalla
þá sem háðir eru sterkum gleraugum „sænsku
gleraugnamafíuna"; „þeir eru einfaldlega"
segir prófessorinn að lokum, „glassistar eða,
eins og sagt er í Ameríku, hooked on glasses".
Og próf essorinn doktor Pisan fordæmir hinn
úrelta sæluvímgjafa brennivínið með þessum
lokaorðum:
Brennivins að bera kross
bölvun er og pína,
en gleraugun þau gefa oss
góða vímu og fína.
Flosi.
i^} Húsnæði óskast
Vantar tilfinnanlega 3-4 herb. ibúð strax
til leigu. Snyrtilegri umgengni heitið.
Upplýsingar i sima 39363.
laðberar
óskast
Austurborg:
Flókagata (1. okt.)
Mávahíið og nágr.
N eðri-Laugavegur
Vesturborg:
Suðurgata (1. okt.)
Tómasarhagi (1. okt).
Kópavogur:
Kársnesbraut (Strax)
MOWIUINN
Þingfulltrúar á nýafstöönu
landsþingi Þroskahjálpar lýstu
ánægju sinni yfir aö megin
baráttumál samtakanna frá upp-
hafi, setning löggjafar um mál-
efni þroskaheftra, náöi fram aö
ganga á siöasta Alþingi. Einnig
voru samþykktar áskoranir til
stjórnvalda um úrbætur á ýmsum
málefnum sem snerta þroska-
hefta.
Ný deild
í ráðuneyti
1 áöurnefndum lögum er gert
ráö fyrir aö stofnuö veröi innan
félagsmálaráðuneytisins sérstök
deild sem annist málefni þroska-
hefra. Mál þroskaheftra falla
undir .þrjú ráöuneyti, þ.e. heil- Frá landsþingi Þroskahjáipar.
Aukin aðstoð
við þroskahefta
brigöis- og tryggingamálaráöu- laganna. Þingiö benti lika á nauö- um lögum eiga aö fjármagnast
neyti, félagsmálaráöuneyti og syn þess aö Framkvæmdasjóðn- beint úr rlkissjóði.
menntamálaráöuneyti, I þessa um veröi ekki faliö aö fjármagna
nýju deild i félagsmálaráöuneyt- þau verkefni sem samkvæmt öör- Framhald á 14. siöu
inu veröa skipaöir fimm menn,
einn frá Þroskahjálp, einn frá
öryrkjabandalaginu og einn skip-
aöur af hverju þeirra þriggja
ráöuneyta sem málin falla undir.
Deildinni er ætlaö aö hafa yfirsýn
og yfirstjórn þessara mála þó þau
falli undir ráöuneytin þrjú. Auk
þess á deildin aö annast stjórn
Framkvæmdasjóðs öryrkja og
þroskaheftra.
Landsþingið vakti athygli á þvi
aö deildin hefur enn ekki verið
stofnuð og væntir þess jafnframt
að fullt samráö veröi haft viö
Þroskahjálp viö samningu þeirra
reglugeröa sem leiöi af samningu
Ný stjóm Þroskahjálpar
Landssamtökin Þroska-
hjálp héldu annaö landsþing
sitt 22. og 23. sept. sl. A
þinginu var m.a. kosin ný
stjórn samtakanna, en hana
skipa: Eggert Jóhannesson,
formaður og Jón Sævar
Alfonsson, Jóhann
Guðmundsson, Dúfa Silvia
Einarsdóttir, Bjarni Krist-
jánsson, séra Gunnar
Björnsson og Svanhvit Páls-
dóttir, meöstjórnendur. I
varastjórn voru kosin:
Siguröur Garöarsson,
Þórhildur Svanbergsdóttir
og séra Daviö Baldursson.
Þingiö, sem haldiö var aö
Hótel Loftleiöum var vel sótt
af fulltrúum frá öllum lands-
hlutum en I samtökunum eru
nú 21 félag með samtals um
7500 meölimi.