Þjóðviljinn - 29.09.1979, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 29.09.1979, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. september 1979 Umsjón: Magnús H. Gíslason Eigum yon á togara Rœtt við Guðmund Hermannsson, sveitarstjóra á Bíldudal Það er nú ekki nema um það bil mánuður siöan ég kom hingað til Blldudals og tók við þessu starfi. Það væri þvi kannski betra að taia við gamla og gróna heima- menn þegar leitað er frétta héðan en mig. En úr þvi þú hringdir i mig get ég svo sem reynt aö segja þér eitthvaö, enda þótt litið veröi. Uppáhald Garðverja Þeir segja það I Suður- nesjatíðindum, að vinsældir Jónasar Arnasonar, rithöf- undar og alþingismanns, séu traustar suður I Garðinum. Til stuðnings þeirri staðhæf- ingu bendir blaðið á, aðLitla leikfélagið hafi staöiö fyrir sýningum á Koppalogninu, Delerium Búbónis og auk þess kynningu á öðrum verk- um Jónasar og nú séu að hefjast æfingar á „Þið munið hann Jörund”. Verður þvi naumast i efa dregið að Suðurnesjatiöindi hafi rétt fyrir sér um vinsældir Jón- asar þarna suöur meö sjón- um. Leikstjóri er Jón Sigur- björnsson en trúlega mun Viggó Benediktsson taka Jörund að sér, Sigurjón Skúlason Charlie Brown og Hreinn Guðbjartsson Stúdíósus. Sýningar verða I Sam- komuhúsinu i Garöinum og hefjast að likindum I októ- berlok. -mhg^ Þannig fórust Guömundi Hermannssyni sveitarstjóra á Bildudal orð er Landpóstur spjallaöi við hann s.l. þriðjudag. Hvað byggingaframkvæmdir snertir, sagði Guðmundur, þá er það af þeim að segja, að þrjú ibúöarhús eru hér I smlöum, mis- munandi langt á veg komin. Svo er Rækjuvinnslan meö töluverða viöbótarbyggingu og þá I þvi augnamiði meðfram, að vera betur i stakk búin til þess að fást við skelfiskinn. Skortur hefur verið hér á köldu vatni þvi vatnsbólið hefur veriö of lltiö. Er nú veriö að vinna að lagfæringu á þvi og standa vonir til að fullnægjandi úrbætur fáist. Atvinnuástand má kallast hér nokkuð gott en það er ákaflega viðkvæmt, ef svo má aö orði komast. Þaö byggist ööru fremur á fiskvinnslunni og ef einn bátur „dettur út” þá er hætt viö að strax horfi til vandræöa. Rækjuvinnslan byrjar aö .öllu eðlilegu nú i október og viö hana bindum viö alltaf miklar vonir. Hér eru tveir allstórir bátar, sem sennilega fara að róa með linu. Þetta er auðvitað engan veginn nægilegur bátakostur og annar báturinn er alls ekki héöan þótt hann leggi hér upp. Og litlu bátarnir stunda aðallega rækj- una. Annars eigum viö nú von á togara hingað seinnipartinn i vetur. Hann mun raunar smiöaöur fyrir einkaaðila á Tálknafirði en meiningin er að hann leggi hér upp. Viö erum að gera okkur vonir um aö hann geti oröiö kjölfesta atvinnulifsins hér. gh/mhg. Stjórn Krabbameinsfélags Austfjarða ásamt yfirlækni Fjórðungs- sjúkrahúsins á Neskaupstað. Frá vinstri: Guðrún Sigurjónsdóttir, gjaldkeri, Eggert Brekkan, yfirlæknir, Sigurbjörg Bjarnadóttir, Nanna Þóröardóttir, Sigurborg Einarsdóttir, formaður, og Aðaibjörg Magnúsdóttir, varaformaður. Sjúkrahúsið í Neskaupstaö Fær rannsóknartæki Hinn 24. júli I sumar afhenti Krabbameinsfélag Austfjaröa, Fjórðungssjúkrahúsinu I Nes- kaupstað að gjöf magaspeglun- artæki, að verðmæti rúmlega 4 milj. kr. Athöfnin fór fram I sjúkrahús- inu aö viðstaddri stjórn Krabba- meinsfélags Austfjarða, ásamt nokkrum félagskonum, sem þátt tóku I f járöflun til kaupa á tækinu, svo og stjórn Fjórðungssjúkra- hússins og.nokkru af starfsfólki þess. Formaður félagsins, Sigurborg Einarsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur frá Eskifiröi, afhenti tækið og lýsti tildrögum að tilgangi féiags- ins meö þessari gjöf, sem hún sagði ma. vera einn þátt I starf- semi félagsins i baráttunni við krabbameinið. Eggert Brekkan, yfirlæknir, þakkaði gjöfina og lýsti gerö og notkun þessa rannsóknartækis. Sagði hann aö með tilkomu þess batnaöi verulega aðstaða lækna sjúkrahússins við athugun á sjúk- dómum I meltingarfærum, m.a. greiningu á krabbameini á byrj- unarstigi. Bfldudalur. Væntanlegur togari á að geta oröiö kjölfesta atvinnuilfsins. Fjóröungsþing Vestfiröinga: I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i i ■ i ■ ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i L Innlend orka til upphitunar verði allsstaðar á sambœrilegu verði A f jórðungsþingi Vest- firðinga, sem haldiö var á Pat- reksfiröi dagana 18. og 19. ágúst voru ýmsar ályktanir sam- þykktar. Fara hinar helstu þeirra hér á eftir. Simamál Fjórðungsþingið... þakkar ráðamönnum Pósts- og sima- málastofnunarinnar og núver- andi og fyrrverandi samgöngu- ráðherrum þær breytingar, sem gerðarhafa verið á gjaldtöxtum með tilliti til jöfnunar sima- kostnaðar viö breytilegar aðstæður. Jafnframt leggur þingið áherslu á að haldið veröi áfram á sömu braut meö þvi að lengja skrefin I langlinusam- tölum. Þingið beinir þvl til alþingis- manna aö hlutast til um, aö Póst- og slmamálastofnuninni verði tryggður aögangur að nægjanlegu fjármagni, m.a. lánsfé , til að lagfæra léleg simakerfi og til að ljúka nauösynlegum uppbyggingar- verkefnum, svo sem aö leggja sjálfvirkt simakerfi til notenda, ljúká viö fjölrása örbylgjukerfi umhverfis landiö og koma upp fullnægjandi strandstöðvum til þjónustu viö fiskimenn. Meðl’n ekki er lokið við að leggja sjálfvirkt simakerfi á sveitabæi, leggur þingið áherslu á, að þeir eigi kost á tengingu við simast'öð, sem opin er allan sólarhringinn, til að tryggja neyöar- og öryggisþjónustu. Könnun á atvinnusköpun Fjóröungsþingiö... vill beina þvi til stjórnar sambandsins, að gerð verði könnun á þvi, hve hlutur Vestfjaröakjördæmis i atvinnusköpun fyrir önnur kjör- dæmi er stór. Er þar átt við hve miklar tekjur renna til farand- verkamanna, sem skráðir eru I öðrum kjördæmum og reynt að fá fram hlutfall skólafólks I þessum tekjum. Þá veröi einnig safnaö upplýsingum um greiðslu til verktaka utan Vest- fjarða frá sveitarsjóðum og opinberum stofnunum ásamt greiöslum fyrir sérfræðiþjón- ustu. Fjármagn til vegamála Fjórðungsþingiö.... væntir þess, að staðiö verði við þau lof- orð, sem gefin hafa veriö um stóraukið fé til vegamála. Þingið telur þó ekki nóg að gert I viðhaldi vega, og skorar á Alþingi að veita meiru fé til þess málaflokks. Vandamál vegna oliu verðh ækkana Fjórðungsþingið.... lýsir áhyggjum yfir þeim miklu verð- hækkunum, sem orðið hafa á oliu til upphitunar húsnæðis. Þingið telur, að meöan ekki er hægt að veita öllum lands- mönnum aðgang að innlendum orkugjöfum til upphitunar ibúðarhúsnæðis, sé óhjákvæmi- legt aö stjórnvöld sjái svo um, að greitt verði niöur verð á oliu til upphitunar, svo kostnaður við upphitun verði ekki meiri en hann var áður en hinar miklu veröhækkanir hófust. Vill þingiö I þvi sambandi vekja athygli á erfiðleikum aldraös fólks, sem býr oröið eitt i sinni ibúð. Ennfremur telur þingiö, aö óhjákvæmilegt sé að greiða niður oliu til raforkuframleiðslu á sama hátt og að framan greinir, og visar I þvi sambandi á fyrirsjánlegan, geigvænlegan oliukostnað Orkubús Vestfjarða vegna raforkuframleiðslu i ollu- stöðvum á vetri komanda. Þingiö beinir þvi til sveitar- stjórna, að þar sem ekki eru þegar starfandi stillingarmenn fyrir kynditæki, veröi úr þvi bætt hiö fyrsta. Jafnframt skorar þingiö á stjórnvöld að hraða svo sem mestmá verða framkvæmdum, sem miða að þvi að allir lands- menn geti fengið innlenda orku til upphitunar á sambærilegu veröi. Þá vill þingið benda á nauðsyn þess að teknar verði upp sérstakar lánveitingar til þeirra, sem búa I eldra húsnæöi i þeim tilgangi að auðvelda þeim að einangra hús sin betur, til aö draga úr orkueyöslu. Alyktun um vegamál Fjórðungsþingiö.... leggur áherslu á, að samgöngur innan svæða séu forsenda atvinnu- legrar uppbyggingar og eöli- legra samskipta I félags- og menningarmálum á Vest- fjöröum. Verulegt átak veröur að gera til uppbyggingar vega innan svæða og þeir vegakaflar látnir ganga fyrir, sem helst teppast af snjóum og auðveldlega mætti laga á ódýran hátt. Þá verður ekki lengur við það unað, að tenging norðursvæðis Vest- fjarða við Strandasýslu um Steingrimsfjarðarheiði dragist öllu lengur. Þá er sérstaklega bent á, að vegasamband sama svæðis við Austur-Barða- strandarsýslu um Þorska- fjarðarheiði er svo bágboriö, að vart er um sumarveg að ræða. Brýnt er þvi aö ákveöa vega- stæði og tengingu Djúpvegar viö aðalvegakerfi landsins, og skapa þannig jafnrétti í sam- göngum milli landshluta. Þá má nefna, að i aðalvega- kerfinu á Vestfjörðum eru viða kaflar, jafnvel á láglendi, sem eru illir yfirferðar, hættulegir og teppast fljótt í snjóum, sem brýna nauösyn ber að lagfæra, eins og t.d. i Austur-Baröa- strandarsýslu. Aðstoð við kaupstaði og kauptún Fjórðungsþingið.... fer þess á leit við þingmenn Vestfjaröar- kjördæmis, að þeir beiti sér fyrir breytingu á lögum nr. 41/1963 um aðstoð rikisins við kaupstaði og kauptún vegna landakaupa, sbr. siðari breyt- ingar meö lögum nr. 43/1972 og 15/1973, þannig að aðstoöin nái einnig til þeirra kaupstaða og kauptúna, þar sem svo er ástatt, að auka þarf landrými meö fyll- ingum I sjó fram vegna þess aö nauðsynlegt byggingarland skortir. Heilsuhæli á Vestfjörðum Fjóröungsþingið.... telur timabært að kannaðir verði möguleikar á aö koma á fót heilsu- og hressingarhæli á a.m.k. tveimur stööum á Vest- fjöröum, t.d. á þeim stöðum, þar sem ónotaö húsnæði og jarð- hiti er til staöar. Þingið felur stjórn Fjórðungs- sambandsins að hafa forgöngu i málinu, og heimilar henni aö skipa nefnd til að vinna að málinu, ef slikt er talið æskilegt eftir frekari umfjöllun. Þingiö bendir á, að erfitt reynist jafnan að fá aögang aö þeim hvildar- og hressingar- hælum, sem nú eru starfrækt I landinu, en telja verður eðlilegt aö fólk, sem haldið er atvinnu- sjúkdómum og þeir, sem þurfa endurhæfingar við, eigi aðgang að sllkum heilsuhælum. —mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.