Þjóðviljinn - 29.09.1979, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 29.09.1979, Blaðsíða 7
Laugardagur 29. september 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Umsjón af hálfu Þjóðviljans: Ingibjörg Haralds- dóttir Berglind Gunnarsdóttir Guftmundur HailvarOsson Hjördts Hjartardóttir Eirikur GuOjónsson Hildur Jónsdóttir Ingibjörg Haraldsdóttir Hvað varð af undir- skrif talistanum ? Rætt við Margréti Sigurðardóttur Margrét Siguröardóttir átti sæti i samstarfsnefndinni, sem skipulagöi undirskriftasöfnunina, sem fulltrúi fyrir Ibúasamtök Þingholts. ViO byrjum á þvi aO spyrja um félagslegan bakgrunn þessarar samstarfsnefndar: Sv.: Þaö voru einir tólf félaga- hópar sem mynduOu þessa sam- starfsnefnd: Fóstrufélag Islands, Iðnnemasamband íslands Félag einstæðra foreldra, nemendafáð Kennaraháskólans, ibúasamtök Vesturbæjar og Þingholts, Ifauösokkahreyfingin, Fram- farafélag Breiðholts, Sjúkraliða- félag Islands, Stéttarfélag ísl. félagsráðgjafa, SHI og 8. mars hreyfingin. Þessir aöilar mynd- uðu samstarfsnefndina, sem tókst á hendur það verkefni að skipu- leggja undirskriftasöfnunina. Js.: Hvaða kröfur og hvers- konar fólust aðallega i þessari undirskriftaherferð? Sv.: Aðalkrafan gekk auðvitað út á Næg og góð dagvistarheimili fyrir öll börn, og einar átta kröfur að auki. Innihald aðalkröfunnar merkir einfaldlega að öll börn sem það þurfa og vilja fái dag- vistunarpláss, þannig að það sé hvorki háð efnahagslegum for- réttindum eða stéttarlegri stööu. Eins töldum við mikilvægt að börn sem eru hreyfihömluö eöa þroskaheft á einhvern hátt gætu fengið dagvistunarpláss innanum heilbrigö börn. Þessi mynd var tekin 7. júnl s.l. þegar Margrét SigurOardóttir afhenti Sigurjóni Péturssyni undir- skriftalistana. Ljósm. Leifur. Söfnuninm verður fylgt eftir Js.: Þiö hafið e.t.v. vænst mik- ils vegna loforða borgarstjórnar- meirihlutans um átak I félags- málum? Sv.: Jú vissulega. Að visu veit ég ekki hver kosningaloforð Alþýðuflokksins voru í þessum efnum, en hinsvegar var Alþ.b. með loforð um aukið dag- vistunarrými. Reyndar er búiö að opna tvö barnaheimili I Breiðholti fyrir stuttu og eins veit ég ekki við hve miklu hægt er að búast á einu ári. Js.: Hvernig viðtökur fékk undirskriftasöfnunin svona al- mennt séð? Sv.: Yfirleitt voru viðtökurnar mjög góðar og við náöum rösk- lega 10 þúsund undirskriftum, sem við teljum nokkuð góðan árangur miðað viö það hversu seint var farið af staö með undir- skriftasöfnunina út I sjálf ibúa- hverfin, en þar var svo til ein- ungis um fjölbýlishúsahverfi að ræða. JS.: Nú eru liðnir tæpir fjórir mánuðir siðan undirskriftalist- arnir voru afhentir borgarstjórn, án þess að nokkuð hafi gerst i málinu. Hvernig veröur málinu fylgt eftir? Sv.: Samstarfsnefndin á eftir að koma saman. Fundur hefur ekki verið ákveðinn enn, en hún mun örugglega koma saman von bráðar til að ákveða hvað gera skuli til að fylgja málinu eftir og til hvers konar aðgerða þarf að grlpa. Eins og lesendum Jafnréttis- siðu er kunnugt, var skipulögð seinni hluta vetrar undirskrifta- söfnun tii stuðnings kröfunni um næg og góð dagvistarheimili fyrir öll börn. Megintilgangur þessarar söfnunar var sá, að gera kröfur til borgaryfirvalda um skjótar úrbætur I dagvistun- armálum, enda höfðu þeir flokkar, sem að núverandi borg- arstjórnarmeirihluta standa, lýst yfir vilja slnum til stór- átaka I félagsmálum, sem hlaut þvi að gefa vonir um verulegar úrbætur I dagvistunarmálum. Undirskriftasöfnunin fór hægt af stað, en tók síðan fjörkipp undir vorið, en þá stóðu að- standendur hennar uppi meö rösklega tiuþúsund undirskrift- ir. 7. júni s.l. voru listarnir sfðan afhentir borgarstjórn, á siöasta fundi hennar fyrir sumarfri. Siöan eru liðnir tæpir fjórir mánuðir og fátt hefur frést af afdrifum undirskriftalistanna. Hvort þeir liggja einhversstað- ar i rykföllnum skjalageymsl- um borgarinnar innanum „gulnuð söguleg skjöl” (!) skal ósagt látið, en hitt er vist, að Jafnréttisslðan hefur óyggjandi heimildir fyrir þvl, aö Félags- málaráð Reykjavíkurborgar, sem dagvistunarmál heyra und- ir, hefur ekki enn fengið undir- skriftalistana 1 hendur. Þvl spyrjum við: hvar eru listarnir? Og hvað ætla borgar- yfirvöld að gera I málinu? Til að fræðastnánar um málið leitaði Jafnréttisslðan til þeirra Margrétar Siguröardóttur, sem átti sæti I samstarfsnefnd þeirri er stóð a 6 undirskriftasöfnun- inni, og Gerðar Steinþórsdóttur sem fulltrúa borgaryfirvalda. ,,Félagsmálaráð hefur fullan hug á að standa vel að þessum málum” Jafnréttissiðan náði tali af Gerði Steinþórsdóttur formanni félagsmálaráðs Reykjavikur- borgar. Félagsmálaráð sér um uppbyggingu dagvistarstofnana, en þó skal tekið fram að allar framkvæmdir eru háðar fjár- hagsáætlun Reykjavikurborgar. Það kom fram strax I upphafi viðtalsins að undirskriftasöfnunin sl. vor hefur ekki verið rædd I félagsmálaráöi þannig að við undum okkur beint I að spyrja hvað væri á döfinni I dagvistar- málum. Geröur sagði að skv. fjárhags- áætlun 1979 hefði átt að byrja á 4 nýjum dagvistarheimilum, 3 blönduðum — þ.e. bæöi leikskóli og dagheimili, og slðan 1 skóla- dagheimili. Nú þegar væri byrjað segir Gerður Steinþórsdóttir á tveim, taka ætti grunninn að þvl þriðja I þessum mánuði og llklega yröi byrjað á þvi fjórða á árinu. Þessi heimili munu rúma samtals 134 börn og eru öll I Breiðholtinu. Skv. áætlun á að opna þau öll á næsta ári, en óvlst er hvort það tekst, þ.e. framkvæmdir hafa dregist. Á árinu hafa veriö opnuö 3 ný heimili með samtals 106 plássum. Vesturborg sem er með þvl nýja fyrirkomulagi aö aldursdeildir eru alveg blandaöar frá vöggu- börnum og upp úr, Suðurborg og loks skóladagheimilið Völvufell. Þá var skóladagheimilið Suður- borg opnað rétt fyrir siðustu ára- mót, en þar er rými fyrir 20 börn. Þá sagði Geröur að yfir stæöu viöræður við fræðsluyfirvöld um möguleika á nýju skóladag- heimili I Austurbæjarskóla, en það mál væri á algjöru umræðu- stigi. Ahersla á dagvistarmál Félagsmálaráð gerði sl. vetur bókun þess efnis að I tilefni árs barnsins skyldi á árinu lögö áhersla á dagvistarmál. Varðandi uppbyggingu á dag- vistarstofnunum sagði Geröur að félagsmálaráö heföi I april sl. Gerður Steinþórsdóttir, for maður Félagsmálaráðs Reykjavikurborgar. skipað 5 manna starfshóp til að vinna aö tillögum, — bæði 3ja ára áætlun og eins langtimaáætlun um uppbyggingu á dagvistar- þjónustu. I starfshópnum eru: félagsmálastjóri, framkvæmda- stjóri stjórnarnefndar dag- vistunar, yfirmaöur fjölskyldu- deildar. sem er jafnframt félags- ráðgjafi, félagsfræðingur og umsjónarfóstra. Mun starfs- hópurinn skila tillögum á næstunni. Sl. haust var skipaöur starfs- 'hópur til að gera tillögur um sam- ræmingu á gæslu á einkaheim- ilum og dagvistarstofnunum. Hópurinn hefur skilað tillögum sem byggjast á tveim valkostum. Félagsmálaráö hefur ekki tekið afstöðu til þessara valkosta, en I framkvæmd eru þeir siðan háðir fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Valkostirnir eru: 1. aö Reykjavíkurborg ráði einka- heimili til að hafa I gæslu 175 börn og 2. að bætt verði dagvistun á einkaheimilum meö auknu eftir- liti, meiri stjórnun og skipulagi og aukinni fræðslu. Einnig að framhaldsleyfi til að taka börn I gæslu verði háð þvl að dag- mamman hafi sótt námskeiö. Þá lagði hópurinn til aö komið yrði á meira samstarfi milli dagmæðra þannig að þær leystu hver aðra af I veikindaforföllum,frIum o.þ.h. Talað er um að með meiri sam- ræmingu milli gæslu á einka- heimilum og dagvistarstofnunum sé frekar hægt aö beina yngri Framhald á 14. siðu Munið ársfjórðungsfund Rauðsokkahreyfingarinnar , í Sokkholti, Skólavörðustíg 12, fimmtudaginn 4. október kl. 20.30 £i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.