Þjóðviljinn - 29.09.1979, Qupperneq 11
Laugardagur 29. september 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
íþróttir @ íþróttir
■ Umsjón: Ingólfur Hannesson
Við teflum fram
miög sterku liði
Llnumaðurinn snjalli úr Haukum,
Andrés Kristjánsson, er einn
máttarstólpa landsliðsins 21 árs
og yngri.
segir Jóhann Ingi
landsliðseinvaldur um
landslið 21 árs og yngri, sem
tekur þátt í heimsmeistara-
keppni í næsta máni mánuði
Heimsmeistarakeppni í
handknattleik fyrir leik-
menn 21 árs og yngri verð-
ur haldin í Danmörku og
Svíþjóð 23. okt. til 2. nóv.
n.k. i keppninni verða 24
lönd og er Island þeirra á
meðal.
Viö lendum i riðli með
Rússlandi, Vestur-Þýskalandi,
Portúgal, Hollandi og Saudi-
Arabiu, og mun keppnin i
riðlinum fara öll fram i Dan-
mörku, nánar tiltekiö á ýmsum
stöðum á Sjálandi. Hætt er við að
róðurinn verði nokkuö þungur
fyrir okkar menn þvi a.m.k.
Rússar og Vestur-Þjóöverjar eru
öngvir aukvisar i handboltanum.
Landsliðsþjálfarinn Jóhann
Ingi Gunnarsson hefur valið 16
leikmenn til þess að keppa fyrir
íslands hönd, og eru þeir eftir-
taldir:
Alfreð Gislason, KA.
Andrés Kristjánsson, Haukum
Arsæll Hafsteinsson, l.R.
AtliHilmarsson, Fram
Birgir Jóhannsson, Fram
Brynjar Kvaran Val
Friðrik Þorbjörnsson, K.R.
Guðmundur Magnússon, F.H.
Guðmundur Þórðarson, í.R.
Kristján Arason F.H.
Sigmar Þröstur óskarsson, Þór
Sigurður Gunnarsson, Vikingi
Sigurður Sveinsson, Þrótti
Stefán Halldórsson, Val
Theodór Guöfinnsson Fram
Ólafur Guðjónsson, Haukum
Sú breyting verður þó liklega á
þessum hóp, að Guðmundur
Þórðarson IR fellur út vegna
meiösla, en ekki er afráðið hver
tekur sæti hans.
Strákarnir hafa æft af miklum
krafti i allt sumar og koma þvi
mjög vel undirbúnir til leiks. Þeir
þurfa einnig að standa i að afla
fjár til ferðarinnar, einkum með
þvi að selja miöa i svokölluðu
spjaldahappdrætti. Handknatt-
leiksunnendur ættu að taka vel á
móti strákunum með það i huga
aö margt smátt gerir eitt stórt.
Jafnt hjá Ármanni og ÍR
Tveir leikir voru á Reykjavlk-
urmótinu I handbolta i gærkvöldi.
1 fyrri leiknum geröi Armann
jafntefli við 1. deildarlið IR og
komu þau úrslit nokkuð á óvart.
IR-ingarnir höfðu undirtökin I
leiknum lengst af og voru með
þetta 2-4 mörk i forskot. Undir
lokin voru þeir 3 mörkum yfir, 14-
11, en góður endasprettur
Armenninganna færöi þeim jafn-
tefli, 15-15.
I seinni leiknum áttust við ný-
liöarnir i 1. deild, KR og Fram.
Vesturbæingarnir leiddu lengst af
i fyrri hálfleiknum og voru yfir I
hálfleik 10-9. Lokatölur urðu siðan
19-17 fyrir KR.
Cosmos
tapaði
Hið stjörnum prýdda banda-
riska knattspyrnulið Cosmos er
nú á keppnisferöalagi i Asiu og i
gærdag kepptu þeir við landslið
Suður-Kóreu. Kóreumenn sigruðu
1-0 og var markið skorað skömmu
fyrir leikslok.
Sagt var að Cosmos hafi aðeins
leikið á hálfum hraða og þvl tap-
að.Þeir hafi haft yfirburði i þreki
og tækni, en slikt er vist ekki nóg
til þess að sigra.
Valur-IA i
í dag
1 dag kl. 14 munu Valur og
1A enn leiöa saman hesta
sina til þess að reyna að fá úr
þvi skoriö hvort liöið hafnar i
2. sæti 1. deildar. Liðin léku
um siöustu helgi og þá tókst
hvorugu liöinu að skora, en
Valsmenn voru öllu skárri I
þeim leik.
Nú sýndu Skagamenn stór-
góðan leik á móti Barcelona
svo að búast má við hörku-
viðureign I dag. Verði jafnt
eftir framlengingu mun fara
fram vitaspyrnukeppni.
Bjarni Bessason átti ágætan leik i gærkvöldi þegar Armann og'lR erðu
jafntefB.
Iþróttir um helgina
Handknattleikur
A morgun, sunnudag, verður
keppni fram haldiö 1 meistara-
flokki á Reykjavikurmótinu og
eru eftirtaldir leikir á dagskrá:
Valur-Arm., A-riðill, kl. 13.30
Vik.-KR, B-riöill, kl. 14.45
Þróttur-IR, A-riðill, kl. 16.00
Fylkir-Fram,B-riðill, kl. 17.15
Þá veröur Reykjanesmótiö að
Varmá kl. 14 og i Hafnarfirði kl.
16.
Knattspyrna
1 dag kl. 14 leika Valur og IA
öðru sinni um réttinn til þess að
taka þátt i UEFA-keppninni. Lið-
in shildu jöfn um siðustu helgi, 0-
0.
Körfuknattleikur
Þriðja umferð Reykjavikur-
mótsins hefst kl. 14 I Hagaskólan-
um I dag og leika þá KR og 1S.
Siöan leika Valur og Armann og
loks Fram og 1R. A morgun
sunnudag verða eftirtaldir leikir:
Armann-ÍS, Valur-IR og KR-
Fram.
Sjö fluttir á slysadeild
eftir umferðarslys í gœr
Talsvert var um árekstra og
slys I umferðinni I Reykjavfk I
gær. Haröur árekstur tveggja
bila varð á EUiðavogi við
Langholtsveg. ókumenn
beggja bifreiðanna voru fluttir
á slysadeild Borgarspitalans
og var annar þeirra lagður inn
á spitalann. Areksturinn varð
rétt fyrir kl. 1 I gærdag.
Bifhjóli var ekið á kyrrstæö-
an bókabil I Sæviöarsundi á
þriðja timanum I gær, og var
ökumaður bifhjólsins fluttur á
slysadeild með talsverð
meiðsli á fótum.
Þrir bilar lentu I harkaleg-
um árekstri i Lækjargötu rétt
fyrir kl. 6 siödegis I gær. Þrir
menn voru fluttir á slysadeild,
en meiðsli þeirra reyndust
smávægileg.
Þá var ekið á litla stúlku kl.
16.25 á Hafnarfjaröarvegi við
Litlu Hlið. Hún var flutt til
rannsóknar á slysadeildina,
en fékk að fara fljótlega heim.
— eös.
Úttekt gerð á heyforðanum fyrir
norðan og austan
Vegna óþurrkanna I sumar
hefur verið skipuð á vegum
landbúnaöarráöuneytisins
nefnd til aö gera úttekt á heyja
foröa hjá bændum norðan-
lands og austan.
Nefndin er skipuð af þeim
Hákoni Sigurgrimssyni i land-
búnaðarráöuneytinu, Helga
Jónassyni Grænavatni og
Aöalbirni Benediktssyni ráðu-
naut á Hvammstanga. Á
svæöinu frá Hrútafirði til N-
Múlasýslu mun nefndin gera
bráðabirgðakönnun á þvi hvað
komið er af heyjum til aö vita
hvernig ástandiö er. Fundir
verða haldnir meö oddvitum
og ráðunautum á Norður- og
Noröausturlandi, sá fyrsti á
Egilsstöðum sunnudaginn 30.
sept.
Einhver heyskapur er enn i
gangi noröanlands en heyið
orðið lélegt. Eins og komið
hefur fram I Þjóðviljanum.er
ljóst, aö bændur á þessu svæöi
þurfa að fækka gripum hjá
sér, þvi litið er aflögu af heyj-
um sunnanlands, að þvi er Há-
kon Sigurösson tjáði Þjóðvilj-
anum þegar haft var samband
við hann. Hann bætti viö, að
nefndin myndi hafa hönd 1
bagga með hve miklu yröi
fækkað og hvernig.
Nefndin stefnir aö þvi aö
skila áliti til rikisstjórnar-
innar fyrir miöjan október-
mánuð. SR
9,2% hœkkun skiptaverðs
Samkomulag náðist á fundi
yfirnefndar Verðlagsráðs
sjávarútvegsins um nýtt fisk-
verð á fundi þess i gær. Veröiö
gildir frá 1. október til ársloka
og felur I sér 9,2% hækkun
skiptaverðs til sjómanna.
Forsenda fyrir þessari á-
kvöröun er, aö oliugjald til
fiskiskipa, sem veriö hefur
15% veröi 9% frá 1. október,
jafnframt þvi sem 3% oliu-
gjald, sem komiö hefur til
skipta, verði fellt inn I fisk-
veröið. Þetta hefur 1 för meö
sér að hráefniskostnaöur fisk-
vinnslunnar hækkar um 7%.
Verðuppbót á ufsa og karfa er
óbreytt.
Verðið er miöaö viö þá
stærðarflokkun, sem gilt
hefur. Verðlagsráöið getur þó
ákveðið að taka upp aðra
stærðarflokkun, þannig aö
fiskur veröi verölagður eftir
þyngd i stað lengdar frá og
með 1. nóvember 1979, enda
feli sú flokkunarbreyting ekki
i sér verðbreytingu, þegar á
heildina er litið miöað við árs-
afla.
Frá og með 15. nóvember
1979 er heimilt aö segja verð-
inu upp meö viku fyrirvara, ef
oliuverö til fiskiskipa fer veru-
lega fram úr þvi verði, sem
ætlað er að gildi i októberbyrj-
un.
I yfirnefndinni áttu sæti:
Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóö-
hagsstofnunar, sem var odda-
maður, Kristján Ragnarsson
og Ingólfur Ingólfsson af hálfu
seljenda og Eyjólfur lsfeld
Eyjólfsson og Benedikt Jóns-
son af hálfu kaupenda.
Hlutaskipti og laun sjómanna
Sjávarútvegsráðherra hefur
aö höfðu samráöi við forystu-
menn samtaka sjómanna og
útvegsmanna ákveðið að
skipa nefnd til þess að athuga
tilhögun hlutaskipta og launa-
kjör á fiskiskipum.
1 nefndina hefur ráöherra
skipað eftirtalda menn: Eirlk
Tómasson, framkvæmda-
stjóra, Ingólf S. Ingólfsson,
forseta F.F.S.I., Kristján
Ragnarsson, form. L.I.ú.
Óskar Vigfússon, formann
S.I., Pétur Sigurösson, form.
Alþ.samb. Vestfjaröa, Sigfinn
Karlsson, form. Alþ.samb.1
Austurlands, Vilhelm Þor-
steinsson, framkvæmdastjóra
og Jón Sigurðsson, þjóðhags-
stjóra, sem jafnframt er for-
maður nefndarinnar.
Verðlaunagarður á Seltjarnarnesi
Fegrunar- og náttúruvernd-
arnefnd Seltjarnarness hefur
veitt viðurkenningu fyrir feg-
ursta garöinn á Seltjarnarnesi
1979.
Fyrir valinu varð garðurinn
að Sævargörðum 6, eigendur
hjónin Sigrún ólafsdóttir - og
Hilmar Guðmundsson. Enn-
fremur var veitt viöurkenning
fyrir lóðina við fjölbýlishúsin
nr. 2 — 8 við Tjarnarból vegna
sérlega góðs skipulags á lóð,
þar sem tillit er tekið til þarfa
barna.
Nefndin mun i vetur og
næsta vor taka upp leiðbein-
ingaþjónustu við húseigendur
bæði varöandi skipulag garða
og plötuval. 1 fegrunar- og
náttúruverndarnefnd Sel-
tjarnarness eiga sæti: Finn-
bogi Gislason, Barðaströnd 3,
formaður. Björn Jónsson,
Skjólabraut 39 og Stefán Berg-
mann, Tjarnarbóli 14.
Norrœnt ungtemplaranámskeið
Nú standa yfir námskeið á
vegum tslenskra Ungtempl-
ara, I.U.T., þar sem félags-
mönnum er gefinn kostur á
fræðslu um félagsstörf og um
ýmsar hliðar áfengismáia.
Lokið er fjórum námskeiö-
um af sex, en meöal þess sem
fjallað er um eru heilbrigöis-
vandamál tengd áfengis-
neyslu, löggjöf og stefna yfir-
valda I þessum málum og
kynnt eru samtök áhuga-
manna sem berjast gegn á-
fengi á einn eða annan hátt.
Fyrirlesarar eru á annan tug
talsins, m.a. læknar og lög-
fræðingar.
Að loknum þessum nám-
skeiöum verður nú I lok sept-
ember haldið námskeið i
Munaðarnesi á vegum
norræna ungtemplarasam-
bandsins, NORDGU. Þar
verða fulltrúar frá öllum
norðurlöndunum, en flestir frá
Islandi.