Þjóðviljinn - 13.10.1979, Blaðsíða 13
Laugárdagur 13. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Rafn Hafnfjörö á Kjarvalsstööum í fyrradag — Ljósm. Jón
„Med opin augu”
Ljósmyndasýning að Kjarvalsstöðum
1 gær opnaöi Rafn Hafnfjörö
sýninguna „Meö opin augu" aö
Kjarvalsstööum. Sýningin veröur
opin kl. 2—10 alla daga til sunnu-
dagsins 21. október.
I sýningunni eru 220 litljós-
myndir, teknar á ýmsum stööum
á landinu. Meöal þeirra eru
myndir, sem Rafn tók i vinnu-
stofu meistara Kjarvals, og sýna
þær vinnustofuna einsog hún var
þegar málarinn yfirgaf hana i
siðasta sinn. Sagöi Rafn, aö þessi
vínnustofa væri nú hvergi til
nema á þessum myndum.
Rafn Hafnfjörö var einn af fjór-
um ljósmyndurum, sem héldu
timamótasýningu i Bogasalnum
áriö 1961. Hann geröi einnig bak-
grunnssvið islensku deildarinnar
á heimssýningunni i Montreal
1967. Myndir hans hafa viöa veriö
sýndar og birtar, bæði nér heima
og erlendis. — ih
Hjálmar
Þorsteinsson
sýnir á Akranesi
Hjálmar Þorsteinsson opnar i
dag málverkasýningu i bókasafni
Akraness kl. 13. Á sýningunni eru
40 myndverk unnin i oliu, vatnslit
og oliukrit. Verkin eru flest til
sölu.
Þetta er fjóröa einkasýning
Hjálmars Þorsteinssonar. Hann
hefur sýnt tvisvar á Akranesi,
einu sinni á Akureyriog tekið þátt
i sýningu Amble Kommune vina-
bæjar Akraness i Noregi.
Sýning Hjálmars i bókasafni
Akraness er opin frá 2 til 10 um
helgar og frá 6 til 10 á kvöldin
virka daga. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 21. október.
— ekh.
Hjálmar Þorsteinsson opnar nd
fjóröu einkasýningu sina.
Sýning á
Magnds Höröur Kristinsson
opnar I dag sina fyrstu einkasýn-
ingu á I.oftinu viö Skólavöröustig.
A sýningunni eru átján myndir,
vatnsiitamyndir og ein blýants-
teikning.
Magnds Höröur er ungur Reyk-
vikingur. Hann hefur lært mynd-
list hjá Hring Jóhannessyni og í
Myndlistar- og handiöaskóla Is-
lands. Sem stendur er hann viö
Loftinu
nám i Myndlistarskólanum i
Reykjavik. Myndir Magnúsar
Haröar eru flestar andlistsmynd-
ir, en einnig eru nokkrar lands-
lagsmyndir á sýningunni.
Loftiö er opiö á venjulegum
verslunartíma virka daga. A
föstudögum er opiö kl. 10-12 og
2-6, og á sunnudögum kl. 2-6.
Sýningin veröur opin i hálfan
mánuð.
um
helgina
Tónllst í
Stúdenta-
kjallaranum
Sunnudagskvöldiö 14.
október leikur 9 manna
hljómsveit frumsamiö efni i
Stúdentakjallaranum. Hana
skipa Þorgeir RUnar
Kjartansson (tenor saxó-
fón), Asdis Valdimarsdóttir
(vióla), Hjalti Gislason
(sópransaxófón, kornet),
Völundur Óskarsson (alt-
saxófón), Eirikur Baldurs-
son (selló), Bergþóra Jóns-
dóttir (fiöla), Steingrimur
Eyfjörð Guðmundsson
(kontrabassi), Björn Karls-
son (ásláttur) og Jóhanna V.
Þórhallsdóttir (fiðla, rödd,
tréspil).
Myndlistar-
sýning
Nú stendur yfir i Stúdenta-
kjaliaranum sýning á verk-
um Margrétar Jónsdóttur,
Steingri'ms Eyfjörö Krist-
mundssonar, Friöriks Þórs
Friðrikssonar og Bjarna
Þórarinssonar. Sýningin var
upphaflega sett upp i S:t
Petri galleriinu i Lundi i
Sviþjóö sl. vetur á vegum
Galleri Suðurgötu 7.
Funda-og menningar-
máianefnd Stúdentaráös.
Perusala
1 dag munu félagar i
Lionsklúbbi Garöa- og
Bessastaðahrepps ganga i
hús og bjóða ljósaperur til
kaups. Allur ágóöi af sölunni
rennur i llknarsjóö klúbbs-
ins.
Verkefni undanfarinna ára
hafa veriö margskonar. T.d.
hafa veriö gefnar bækur til
skólabókasafns Bjarna-
staðaskóla, skólakór Garöa-
bæjarhefur verið styrkturtil
starfa, kvikmyndir gefnar til
Vistheimilsins aö Vifilsstöö-
um, o.fl.
Hundasýning
A morgun veröur haldin
hundasýning aö Varmá i
Mosfellssveit. Dómari verö-
ur L.C. James, frægur
dómari og hundaræktandi.
Til mikils er aö vinna fyrir
hundana. Þeir sem fá
einkunnina frábær fá rauöan
borða i hálsbandiö, mjög
góöirfrá bláan, og góöirgul-
an. Þeir sem eru bara sæmi-
iega góöir fá engan borða.
Einnig verðurraðaö upp i 1.,
2. og 3. sæti fyrir hvert kyn,
og fá þeir hundar eftir röö
rauöa, bláa, gula eða græna
slaufu eöa rósettu. Allir
hundarnir fá skriflegan dóm
og besti hundur hverrar teg-
undar fær auk þess verð-
launapening og e.t.v. eitt-
hvaöfleira. Að lokum keppa
svo bestu hundar allra teg-
unda um titilinn „Besti
hundur sýningarinnar”.
Fleira veröur til skemmt-
unar á sýningunni, t.d. munu
vel þjálfaöir hundar sýna
listir sinar.
— ih
Leikfclag Akureyrar:
Galdrakarlinn í Oz
1 dag, laugardag kl. 17 veröur
fyrsta frumsýning Leikfélags
Akureyrar á þessu leikari. Þaö er
hiö kunna barnaleikrit
GALDRAKARLINN t OZ sem
John Harryson setti i leikritsbún-
ing eftir sögu L.Frank Baum.
Sönglögin úr verkinu kannast
margir við og eru þau eftir
Haroíd Arlen.
GALDRAKARLINN 1 OZ var
sýndur i Þjóðleikhusinu fyrir
þrettán árum við miklar vinsæld-
ir. Einnig muna margir eflaust
eftir kvikmyndinni meö Judy
Garland I hlutverki Dóróteu, en
hún hlaut heimsfrægð fyrir leik
sinn og söng i þvi, og vinsælast
varö lagiö „Somewhere Over the
Rainbow.”
Þess má geta aö gerður hefur
verið nýr söngleikur Ur þessu vin-
sæla verki og hefur hann gengið á
Broadway i mörg ár og nú siöast
kvikmyndaöur meö Diana Ross i
aöalhlutverki.
Gefst nú foreldrum og jafnvel
afa ogömmu tækifæri tii að rifja
upp fyrri kynni si'n af Galdra-
karlinum og fara meö börnin i
ferðalag meö Dóróteu og vinum
hennar á leiðinni til Oz, sem er
fyrir ofan regnbogann.
Isýningu Leikfélags Akureyrar
fer Sólveig Halldórsdóttir með
hlutverk Dóroteu, vinina þrjá
leika Þráinn Karlsson (Fugla-
hræöan), Viðar Eggertsson
(Pjáturkarlinn) og Theodór
Júliusson (Ljóniö). Svanhlildur
Jóhannesdóttir leikur góöu norn-
ina, en Sigurveig Jónsdóttir
vondu nornina. Með hlutverk
Galdrakarlsins fer Bjarni Stein-
grimsson.en Mariu leikur Sunna
Borg. Þau Bjarni og Sunna eru
nýráöin á fastan samning hjá
L.A. Flestir leikaranna fara meö
fleiri en eitt hlutverk hver og
stjórna einnig leikbrúöum sem
notaöar eu i sýningunni.
Leikstjóri er einn af yngri
leikurum hússins, Gestur E.
Jónasson, oger þetta fyrsta skipti
sem hann leikstýrir hjá L.A.
LeikmyndgerirRagnar Lár oger
þetta frumraun hans sem leik-
tjaldateiknara. Lýsingu annast
Ingvar Björnsson, nýráöinn
ljósameistari viö Leikhúsiö á
Akureyri. Þýöinguna gerði Hulda
Valtýsdóttir og söngtexta þýddi
Kristján frá Djúpalæk.
Karl Jónatansson, Ingimar Ey-
dal og Hannes Arason annast
hljóöfæraleik, en hljómsveitin
skipar stóran sess i sýningunni,
þar sem söngvar eru fjölmargir.
Frumsýning er sem fyrr segir
á laugardag kl. 5 og önnur og
þriðja sýning á sunnudag kl. 2 og
5 .
L.A. æfir nú af kappi næsta
verkefni sem er nýtt islenskt leik-
rit FYRSTA ONGSTRÆTI TIL
HÆGRI eftir örn Bjarnaosn,
leikstjóri er Þórunn Siguröardótt-
ir. Leikmynd gerir Sigurjón Jó-
hannsson. Frumsýning er fyrir-
huguð i byrjun nóvember.
Flóamarkadur FEF
Félag cinstæöra foreldra held
ur sinn árlega flóamarkaö um
helgina, laugardag og sunnudag
13. og 14. oktðber og hefst kl. :
báöa dagana. Markaöurinn verö
ur nú I húsnæöi FEF i Skeijanes
6, en þar tckur senn til starfa
neyöarhúsnæöi fyrir einstæöa
foreldra og börn sem i tima
bundnum kröggum eiga.
A flóamarkaðnum veröur fjöl-
breyttúrvalaf öllum mögulegum
varningi, fatnaður nánast á alla
þjóðina, bæöi nýr og notaður, þar
veröa búsáhöld, silfurmunir, gler
og skraut hvers konar, teppi,
sjónvörp, gömul baökör, eldavél-
ar og vaskar, matvara og hrein-
lætisvara, lukkupakkar og ótal
margt annað. Einnig má nefna aö
platti FEF sem er gefinn út i til-
efni barnaárs og tiu ára afmælis
félagsins verður seldur á
markaönum.
Þann 29. október heldur Félag
einstæðra foreldra svo aöalfund
sinn, þanntiunda ogveröur ýmis-
legt gert til hátiðabrigöa vegna
afmælisins. Auk aöalfundarstarfa
veröa skemmtiatriöi og happ-
drætti og veglegar hnallþórur
bornar fram i tilefni afmælisins.
Um þær sömu mundirkemur Ut
vandaö afmælisrit FEF sem hef-
ur aö geyma greinar um starf
félagsins, kveöjur ýmissa aöila
sem stutt hafa þaö, skreytt mörg-
um myndum og fleira efni er i rit-
inu sem veröur sent skuldlausum
félögum þeim aö kostnaöarlausu
og væntanlega nýjum félögum til
kynningar á starfi FEF.
Loks má geta þess i sambandi
við f lóamarkaöinn að strætisvagn
nr.5 staönæmist rétt viö Skelja-
neshúsið.
Norrœna menningarvikan:
Tónleikar um helgina
Norrænu menningarvikunni,
sem stendur yfir i Norræna hús-
inu, lýkur annaö kvöld. Um helg-
ina veröa tvennir tónleikar i hús-
inu.
1 kvöld kl. 20.30 syngja Else
Paaske (alt) og Erland Hage-
gaard (tenór) og Fridrich GQrtler
leikur á pianó. A dagskrá eru
verk eftir Schumann, Bertii
Hagegaard, Sjöberg, Sibelius,
Mahler og Purcell.
Annað kvöld eru svo lokatón-
leikarnir. Þá verðaflutt verk eftir
Jón Nordal. Flytjendur eru Guö-
ný Guðmundsdóttir, Halidór
Haraldsson, Kammersveit Rvik-
ur undir stjórn Páls P. Pálssonar
og Hamrahliðarkórinn, stjórn-
andi Þorgeröur Ingólfsdóttir.