Þjóðviljinn - 19.10.1979, Qupperneq 9
8 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Fösftudagur 19. október 1979
Fö^tudagur 19. október 1979 WÓÐVILJINN — SIÐA 9
Nú þarf eimngar-
afl gegn íhaldi
Skorað á launa-
menn að
sameinast um
Alþýðubandalagið
Undanfarna daga hafa lands-
menn oröiö vitni aö merkilegri
leiksýningu. Hér hefur veriö
settur upp pólitfskur leikþáttur
undir stjórn Geirs Hallgrimsson-
ar, formanns Sjálfstæöisflokks-
ins. Hann stýrir brúöunum á
sviöinu; brúöurnar eru 6
þingmenn Alþýöuflokksins, þrir
þeirra nýir I ráöherrastólum, þeir
þrir þingmenn Alþýöuflokksins
sem haröast böröust gegn
fráfarandi rikisstjórn. Þaö er
táknrænt og sláandi aö einmitt
þessir menn skyldu hafa valist til
þess aö gegna ráöherrastörfum I
leikbrúöustjórn Geirs Hallgrims-
sonar en þetta eru sömu mennirn-
ir og fluttu á Alþingi á s.l. vetri
hinar undarlegustu tillögur, m.a.
um vantraust á fráfarandi rikis-
stjórn og einn þeirra var svo illa
haldinn af þvi aö vera bendlaöur
viö þá rikisstjórn aö hann undi
ekki nema fáeina daga I
forsetastóli i Efri deild Alþingis,
eins og frægt varö. Landsmenn
munu hins vegar ekki láta þessa
leikbrúöustjórn villa sér sýn,
vegna þess aö hér er komin á
laggirnar 1 raun pólitisk
samstjórn Sjálfstæöisflokksins og
Alþýöuflokksins* hér er komin
stjórn sem hefur þaö hlutverk aö
koma á kosningum, svo ihaldiö
geti bætt viö sig þannig aö unnt
veröi eftir kosningar aö mynda
ennþá afdráttarlausari ihalds-
stjórn en hér hefur nokkru sinni
setiö.
Stœrri skári
í takinu
Viö munum þaö, þegar á svo-
kölluöum viöreisnarárum aö 6. til
7. hver félagsmaöur alþýöusam-
takanna gekk atvinnulaus,
þúsundir landsmanna voru land-
flótta. Kaupmáttur launa var um
30% rýrari en nú og þannig mætti
lengi telja.
Nú ætla hinsvegar Ihaldsöflin i
landinu aö taka enn stærri skára
fyrir en áöur. 1 skjóli baráttunnar
gegn veröbolgunni er ætlunin nú
aö gripa til harövitugri
afturhaldsaögeröa en nokkru
sinni fyrr. Þaö var athyglisvert
aö Geir Hallgrimsson minntist
ekki á stefnu Sjálfstæöisflokksins,
en var þeim mun glenntari i rang-
færslum á stefnu Alþýöubanda-
lagsins. En stefna Sjálfstæöis-
flokksins hefur veriö birt i plaggi
siöastliöinn vetur sem nefndist
„Endurreisn i anda frjáls-
hyggju”. Þar kemur fram aö ætl-
unin er aö færa tekjuskiptinguna
niöur á stig viöreisnaráranna og
þar er lögö áhersla á ýmis mjög
alvarleg meginatriöi sem viö
skulum muna eftir nú þegar I
upphafi kosningabaráttunnar.
íhaldsstefnan
1 fyrsta iagi er þaö ætlunin aö
fyrirtæki eigi aö fá aö leggja fé i
skattfrjálsa varasjóöi og aö þeim
veröi færöir aftur þeir fjármunir
sem fráfarandi rikisstjórn hirti af
fyrirtækjunum upp á 10 til 15
miljaröa króna á ári.
I ööru Jagi er þaö ætlun Sjálf-
stæöisflokksins aö breyta vinnu-
löggjöfinni og setja verkalýös-
hreyfingunni þrengri skoröur viö
starfsemi hennar, jafnvel I sjálfa
stjórnarskrá landsins.
I þriöja lagi er þaö ætlun Sjálf-
stæöisflokksins aö heimila fyrir-
tækjum takmarkalausar erlendar
lántökur.
Svavar Gestsson.
1 fjóröa lagi kom þaö fram i
stefnuyfirlýsingu Sjálfstæöis-
flokksins s.l. vetur aö öll verö-
lagning i landinu, af hvaöa tagi
sem hún er, eigi aö vera
eftirlitslaus og vextir eigi aö
ráöast af eftirspurn eftir lánsfé.
I fimmta lagi kemur fram i
þessari stefnuyfirlýsingu aö
óbeinir skattar og niöurgreiöslur
hverfi út úr visitölu.
Þessi stefna er einhver
afdráttarlausasta afturhalds-
stefna sem birst hefur á Islandi
um margra áratuga skeiö.
Baráttan gegn þessari stefnu,
mun ekki aöeins snúast um kaup-
iö sjálft i þrengstu merkinu,
heldur um lifskjörin I heild, þau
kjörsem viö til þessa höfum taliö
sjálfsögö, lifskjör sem birtast
okkur I heilbrigöisþjónustu,
menntakerfi og hvers konar
félagslegri þjónustu.
Thatcherisminn
Einn af forvigismönnum Sjálf-
stæöisflokksins rökstuddi þessa
stefnu s.I. vetur meö þvi aö hér á
landi væri ekki framfara þörf, þvi
aö almennum heilbrigöismálum
væri hér þegar skipaö á hinn full-
komnasta hátt, og viö heföum hér
I landinu eitt háþróaöasta
tryggingakerfi sem þekktist.
„Menntakerfi þjóöarinnar er
mjög háþróaö”, sagöi þessi
forvigismaöur Sjálfstæöisflokks-
ins, og „hverjum þegni er
tryggöur aögangur aö hinni
fullkomnustu menntun, án tillits
til efnahags og afkomu”. „Listir
og bókmenntir standa hjá okkur
meö blóma”, sagöi þingmaöur-
inn. „Hér á Islandi er um aö ræöa
fullkomnasta réttaröryggi og
persónufrelsi og þaö er fortaks-
laust tryggt,” segir þessi leiötogi
Sjálfstæöisflokksins.
A þessum sviöum er meö öör-
um oröum komiö hiö alfullkomna
þjóöfélag á Islandi og þar er eng-
in þörf á aö bæta viö. En raunar
er rökstuöningur þessa forystu-
manns Sjálfstæöisflokksins meö
þessum hætti fyrst fremst settur
-fram til þess aö undirbyggja þaö
aö unnt sé aö skera niöur þá
félagslegu þjónustu sem I þessum
þáttum samfélagsins kemur
fram. Hér er þaö sem sé boöaö,
sem Margaret Thatcher, járn-
frúin, er aö koma i framkvæmd I
Bretlandi, aö skera niöur alla
þessa þjónustu miskunnarlaust,
hverskonar samneyslu, af hvaöa
tagi sem hún er. Hér er sem sagt
ætlun Sjálfstæöisflokksins aö
ráöast gegn lifskjörunum i heild.
Ræða Svavars
Gestssonar
á Alþingi
þingrofsdaginn
Erlend stóriðja
Jafnframt þessari alhliöa árás
á lifskjörin I landinu, sem ég hef
hér lýst, er þaö ætlun Sjálfstæöis-
flokksins aö taka upp sömu stefnu
og fylgt var á veiöreisnarárunum
aö þvi er varöar atvinnu- og efna-
hagsmál I heild. Sú stefna birtist
á viöreisnarárunum meö þvi aö
atvinnuvegir landsmanna sjálfra
voru látnir grotna niöur.
1 staö þess aö byggja upp
innlenda atvinnuvegi kaus ihaldiö
á þeim árum aö efla mjög erlenda
stóriöju. Þaö er athyglisvert aö
einmitt nú, þessa sömu daga og
ihaldsstjórnin er aö taka viö, þá
færast þeir menn i aukana sem
boöa stórfellda erlenda stóriöju
hér i landinu eins og Friörik
Sófusson. Þaö eru sömu mennirn-
ir og ráöast gegn hverskonar
framförum i Islenskum atvinnu-
vegum og hafa allan timann frá
þvi aö fráfarandi rikisstjórn var
mynduö s.l. sumar barist gegn
tilraunum okkar til þess aö knýja
þar fram frámfarastefnu sem
gæti skilaö landsmönnum betri
lifskjörum heldur en veriö hafa.
Aronskan
Þaö er einnig ákaflega skýrt
merki um þaö hvaöa öfl eru hér á
feröinni aö sama daginn og rikis-
stjórn Olafs Jóhannessonar baöst
lausnar lagöi núverandi
hæstvirtur forsætisráöherra fram
á Alþingi skýrslu sem gerir ráö
fyrir þvi aö Bandarlkjamenn
veröi látnir kosta hér tilteknar
framkvæmdir I samgöngumáíum
upp á marga miljaröa króna.
Hér er meö öörum oröum komin
Aronskan holdi klædd. Aronskan
sem allir flokkar hafa til þessa
þóst vilja sverja af sér, einnig
Sjálf stæöisflokkurinn.
Yfirlýsing hæstvirts forsætis-
ráöherra um Aronskuna er
einskonar fæöingarvottorö þeirr-
ar nýju rikisstjórnar sem hann
hefur nú komiö til valda á tslandi.
Hætta til hœgri
Ihaldsöflin, sem nú hafa komiö
mönnum fyrir I stjórnarráöinu,
hafa haft i frammi ærandi söng
um veröbólgu og efnahagsvanda.
Ég tel aö baráttan gegn veröbólg-
unni sé, ásamt baráttu fyrir
kaupmætti launa og fullri at-
vinnu, forgangsmál. En rauna-
söngurinn má ekki veröa til þess
aö viö gleymum hinum fjölmörgu
jákvæöu þáttum i efnahagsmál-
um okkar. Ég nefni til dæmis aö
gjaldeyrisstaöan var i júlilok
jákvæö um 86 milj. bandarikja-
dala en var neikvæö um 15.2 milj.
bandarikjadala i lok júnimánaöar
1978. Batinn I gjaldeyrisstööunni
var þvi á eina valdaári fráfarandi
rikisstjórnar um 38 miljaröa isl.
króna. Ég vil einnig geta þess aö
sparifé hefur aukist um 58,6% á
sama tima og veröbólga veriö
42%. A þessum tima hefur taxta-
kaup verkamanna einnig hækkaö
um 42%. Hér er komin á laggirn-
ar hægri stjórn, þaö er hætta til
hægri, og þaö er sókn ihaldsins
sem viö veröum aö stööva.
Sameinaö er nú Ihaldiö og
Vinnuveitendasamband Islands
og Alþýöuflokkurinn er kominn i
þær tröllahendur aö undanskild-
um fáeinum mönnum I forystuliöi
verkalýöshreyfingarinnar sem
harma og fordæma þaö hlutskipti
sem Alþýöuflokksforustan hefur
■kosiö sér. Viö vitum þaö af
reynslunni aö Framsóknarflokk-
urinn megnar ekkert i baráttunni
gegn ihaldinu. Þaö þekkjum viö
frá siöustu næstliönum fjórum ár-
um rikisstjórnar Geirs
Hallgrimssonar. Gegn þessum
öflum sameinuöum stendur
verkalýöshreyfingin og hennar
flokkur. Viö þurfum aö skapa
sameinaö afl gegn ihaldi, viö
þurfum aö reisa eins sterkan
Framhald á bls. 13
Kosningabaráttan í Danmörku
1. grein
Þegar danskir kjósendur
ganga að kjörborðinu 23.
október næstkomandi, eru
tvö og hálft ár liðin frá síð-
ustu kosningum. Eins og
fram hefur komið, rofnaði
stjórnarsamstarf krata og
Venstre eftir eitt ár, þegar
flokkarnir náðu ekki sam-
komulagi um efnahagsað-
gerðir. Flokkarnir voru að
mestu sammála um niður-
skurð ríkisútgjalda og
skerðingu launa, svo og að
bæta verkafólki upp kjara-
skerðinguna með hlutdeild
í gróða fyrirtækja. Venstre
vildi hins vegar einungis að
semja mætti um slíka hlut-
deild á hverjum vinnustað
fyrir sig, en kratar vildu að
hluti verðmætasköpunnar-
innar rynni í sjóð, sem Al-
þýðusambandið ráðstafaði
til fjárfestinga í atvinnu-
lífinu.
Danska ríkiö hefur stöövaö vöxt atvinnuleysis á þessu ári — meö þvi aö gefa atvinnuleysingjum yfir
sextugt kost á aö gerast ellilffeyrisþegar.
í kviksyndi
auðmagnsins
Atyinnuleysi
og greiðslu-
halli eru
meginefni
kosninganna
I raun var þvi deilt um þaö,
hvort riki og verkalýöshreyfing
fengju aukin áhrif á þróun at-
vinnulifs.
Kosningabaráttunni og bak-
grunni hennar veröa gerö skil I
nokkrum Þjóöviljagreinum á
næstu dögum. Sagt veröur frá
stjórnmálaflokkunum, stefnu
þeirra, deilumálum og sam-
starfsmöguleikum, en aö þessu
sinni mun ég leitast viö aö gera
grein fyrir dönskum „efnahags-
vanda” og helstu skýringum og
tillögum um iækningaaöferöir,
sem boöiö hefur veriö upp á. Þótt
deilt sé um orkumál, veruna 1
Efnahagsbandalaginu og fleira
o-c-o Arbejdsloshed i procent at arbeidsstyrken
----- Betalmgsbalanceoverskud t procent at bruttonationalproduktet
A Danmark
-5 ■■
10
Holiand
1974 1975 1976 1977 1978 1979
- O—O—0-0-
1974 1975 1976 1977 1978 1979
Tyskland
A Belgien
1974 1975 1976 1977 1978 1979
__ o—o —o- o— <>— o
A Frankrig
1974 1975 ’976 1977 1978 1979
A England
-5
-10 -
1974 1975 1976 1977 1978 1979
1974 1975 1976 1977 1978 1979
skyggir „efnahagsvandinn” á aílt annaö I þessari kosningabaráttu. Atvinnuleysi og halli 5 i Itahen i , EF-total
á greiðslu jöfnuði
Yfirstandandi auömagns- -5 ' -5 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1974 1975 1976 1977 1978 1979
kreppa hefur bitnaö harkalegar á -10 -10
Danmörku, en flestum öörum
löndum. Frá 1974 hefur atvinnu-
leysi vaxiö úr 2% I 8-10%, svo aö
u.þ.b. 200 þúsund manns ganga nú
atvinnulausir.
Asamt atvinnuleysinu er
greiöslujöfnuöur notaöur sem
visbending um efnahagsástandiö.
Þar hefur Danmörk búiö viö halla
I mörg ár, og frá 1974 hefur hann
veriö 2-5% af vergum þjóöartekj-
um. Þetta þýöir m.a. aö skulda-
söfnun erlendis fer vaxandi og af-
borganir og vextir af lánum til út-
landa veröa stærri og stærri liöur
i þjóöhagsreikningum.
Hagfræöingar rikisvaldsins
benda á, aö Danmörk er eitt af ör-
Atvinnuleysi og greiösluhalli i nokkrum Evrópulöndum. Efri lfnan sýn-
ir hlutfail atvinnuleysingja af heildarmannafla. Neöri linan sýnir
greiöslujöfnuö á þann hátt aö hallinn er reiknaöur sem hundraöshluti af
vergri þjóöarframleiöslu. Hvergi er staöan jafn slæm og I Danmörku.
fáum löndum, sem búa bæöi viö
mikiö atvinnuleysi og mikinn
greiösluhalla. Þvi draga þeir þá
ályktun, aö „efnahagsástandiö er
sérstaklega slæmt i Danmörku”.
Kjaraskerðing er eina
ráð„vitringanna"
Borgaralegum hagfræöingum
er ekki tamt aö gefa miklar skýr-
Gestur Guðmundsson
ingar á auömagnskreppunni. 1
þeirra augum er hún nánast I ætt
viö vindinn, skuldinni er skellt á
„ytri aöstæöur” s.s. hækkun oliu-
verös. Danskir hagfræöingar láta
sér þvl nægja aö gefa skýringu á
þvi, hvers vegna kreppan er sér-
staklega djúp i Danmörku.
Hér I Danmörku er starfandi
efnahagsráö, meö aöild vinnu-
veitenda, alþýöusamtaka, rikis
og fleiri aöila. Formenn ráösins
eru helstu efnahagsráögjafar
rikisstjórna, og almennt nefndir
„vitringarnir” („vismændene ”).
Þeir gefa þá spakvitru skýringu á
„hinu sérstaklega slæma efna-
hagsástandi Danmerkur”, aö
framleiöslukostnaöur sé of mikill
og samkeppnisaöstaöa á heims-
markaöi þvi slæm.
„Vitringarnir” benda á þær
leiöir til úrbóta aö auka fram-
leiöni I atvinnulifinu, einkum út-
flutningsgreinum, og lækka kaup
verkafólks, Kreppulyf þau sem
þeir gefa lyfseöla á, beinast þó
nær eingöngu aö siöarnefnda at-
riöinu. Þeir hafa um árabil veriö
talsmenn fyrir „indkomstpoli-
tik”, sem merkir i raun aö þingiö
bannar launahækkanir. Þaö hefur
veriö gert nokkrum sinnum siö-
ustu 15 ár, og þess háttar laga-
setning hefur veriö i gildi mest-
alla núverandi kreppu. Lyfiö hef-
ur hins vegar ekki verkaö sem aö
var stefnt. Svonefnt „launaskriö”
hefur aukist, en til þess eru taldar
alls konar hækkanir utan kjara-
samninga, s.s. á einstökum
vinnustööum. „Launaskriöiö”
hefur veriö rakiö til þess, aö ein-
stakir starfshópar hafi óeölilega
góöa markaösaöstööu, jafnvel
einokun. Til aö hamla gegn þvi
hefur rikiö gripiö til aögeröa á
vinnumarkaöi og I verkmenntun.
T.d. eru fleiri menntaöir til starf-
anna eöa mörgum greinum iön-
máms er slegiö saman, svo aö
samkeppni eykst meöal vinnu-
aflsins. En þrátt fyrir allt þetta
hafa launahækkanir ávallt fariö
fram úr áætlunum, og þaö er aö
mati „vitringanna” skýringin á
þvi, aö kreppan hefur sist minnk-
aö.
í mai I vor sendu „vitringarn-
ir” frá sér skýrslu þar sem þeir
veltu fyrir sér leiöum til aö bæta
samkeppnisaöstööu dansks at-
vinnulifs. Þeir telja aö launa-
stöövun sé nauösynleg enn um
sinn og auk þess veröi aö gripa til
fleiri aögeröa. Annars vegar
mæla þeir meö beinum rekstrar-
styrkjum, einkum til útflutnings-
atvinnuvega. Hins vegar stinga
þeir upp á gengisfellingu. Þeir
viöurkenna aö þetta séu einungis
tæki til aö flytja verömæti frá
launþegum til atvinnurekenda, en
leiöirnar eru ekki jafn augljósar
og tilfinnanlegar, svo aö
„vitringarnir” búast viö þvi aö
þær mæti minni mótspyrnu en
beinar kjaraskeröingar.
Stjórnmálamenn hafa tekiö .
gengisfellingahugmyndunum fá-
lega, en þó látiö gengiö siga tölu-
vert. Nú eru „vitringarnir” hins
vegar aö ganga frá nýrri skýrslu,
og er vitaö aö þar draga þeir mun
dekkri mynd af efnahagslifinu en
þeir hafa gert undanfarin miss-
eri. Þeir telja, aö veröi ekkert aö
gert, muni atvinnuleysi stórauk-
ast á næstu árum og vaxandi halli
veröi á greiöslujöfnuöi. Nú liggja
þeir undir feldi aö setja saman
tillögur, sem stefni aö þvi aö
draga úr vandanum og séu um
leiö pólitiskt framkvæmanlegar.
Þessar tillögur veröa ekki settar
fram fyrr en eftir kosningar.
Breytt uppbygging
atvinnulífs
Ekki fallast allir á kenningar
„vitringanna”, aö of há laun hafi
skapaö danskan efnahagsvanda.
Alþýöusambandiö hefur á sinum
snærum hagfræöinga og aöra sér-
fræöinga I „Arbejderbevægelsens
Erhvervsraad” (AE), og þeir
gefa aörar skýringar á „efna-
hagsvandanum”:
AE telur aö meginvandinn stafi
af óheppilegri uppbyggingu at-
vinnulifs. Allt of mikiö sé af fyrir-
tækjum, sem framleiöa á úreltan
hátt, og tækniþróun sé of hæg. Til-
lögur þeirra miöast annars vegar
viö aö tryggja fulla atvinnu og
hins vegar vilja þeir gerbreyta
gerö atvinnulffsins.
— Takmarka þurfi innflutning.
— Þaö veröi aö veita
útflutningsiönaöi stuöning til aö
auka framleiöni og framleiöslu
(vitringarnir” hafa fallist á
þennan hluta tillagnanna).
— Koma þurfi á „efnahagslýö-
ræöi”, þannig aö verkalýöshreyf-
ingin fái i sinn hlut hluta fram-
leiösluverömætisins. Sá hluti
veröi lagöur i sjóö, sem variö
veröi til fjárfestinga og til aö
styöja viö bakiö á nýjungum I
framleiöslu.
Verkalýöshreyfingin hefur
haldiö fram þessari stefnu, en
sósialdemókratar hafa ávallt gert
samninga viö borgaraflokka um
kreppuráöstafanir, sem eru mun
meira I ætt viö tillögur „vitring-
anna”. Eftir vinslitin viö Venstre
hafa kratar hins vegar lýst yfir
afdráttarlausum stuöningi viö
kreppulausnir AE og heitiö þvi aö
hrinda hluta þeirra i framkvæmd,
komistþeir i stjórnaraöstööu eftir
kosningar.
Vinstri sinnaöir hagfræöingar
hafa meö sér félagsskapinn
„Socialistiske Okonomer”, sem
hefur haft sig töluvert i frammi I
efnahagsumræöu siöustu ára.
Stefna þeirra er I megindráttum
lik stefnu AE, nema þeir krefjast
þess aö enn frekar veröi gengiö á
auömagnsgróöann I þvi skyni aö
tryggja fulla atvinnu. Þeir halda
þvi fram aö hægt sé aö bæta sam-
keppnisaöstööu dansks atvinnu-
lifs, en tryggja samtimis fulla at-
vinnu og kjarabætur. Sósialisku
flokkarnir þrir, Sósialiski þjóöar-
flokkurinn, Kommúnistaflokkur-
inn og Vinstrisósialistar, byggja
kreppustefnu sina allir aö miklu
leyti á Sósialisku hagfræöingun-
um, þótt mundur sé á þvi hvaöa
hröfur eru byggöar á þeirri
stefnu.
Afstaða marxista
Þótt Sósialisku hagfræöingarn-
ir kenni sig viö sósialismann, eru
hagfræöikenningar þeirra ekki i
anda Marx, heldur fremur þeirra
Ricardos og Keynes. Hins vegar
hafa marxistar birt úttektir á
danskri kreppu. 1 staö þess aö
einbllna á sérdanska þætti henn-
ar, skýra þeir hana út frá al-
mennri kreppukenningu Marx. Sú
kenning sýnir fram á, aö i rás
auömagsnupphleöslunnar vex
fastafjármagn auömagnsins, en
hinn verömætaskapandi þáttur
leggi ávallt hald sitt á stærri og
stærri hluta þessarar verömæta-
sköpunar, byggist sú gróöasköp-
un á ört vaxandi fastafjármun-
um. Stööugt vaxandi framleiöslu-
bákn og óbreytt vinnumagn hljóta
aö lokum aö birtast i mynd fall-
andi gróöahlutfalls. Þar aö kem-
ur aö gróöahlutfalliö hefur falliö
Framhald á bls. 13
krifar frá Kaupmaitnahöfit
Erfiðast að
finna réttan
stíl
Atli Heimir Sveinsson hefur
samiö tónlist viö sýningu LR á Of-
vitanum eftir Þórberg Þóröarson,
sem Kjartan Ragnarsson hefur
fært I leikbúning. Viö hittum Atla
Heimi aö máli niöri i Iönó aö lok-
inni æfingu á þriöjudaginn var.
— Þetta er sýning, sem leggst
voöalega vel i mig, — sagöi Atli,
— og ég held hún veröi skemmti-
leg. Min þátttaka i henni byrjaöi
þannig, aö ég fékk handrit hjá
Kjartani og tók þaö meö mér f
feröalag til Grikklands, þar sem
ég gluggaöi i þaö.
Ofvitinn er ein af þessum bók-
um sem okkur hefur öllum þótt
vænt um. Þetta er skritin og fal-
leg saga um ungan mann, saga
sem ég held aö allir geti fundiö
sjálfa sig I. Vandamál söguhetj-
unnar hafa einhverntima veriö
afar mikilvæg i lifi okkar allra.
Svo er þaö náttúrulega þetta
glitrandi málfar hans Þórbergs —
hvaö hann formúlerar sinar hugs-
anir meistaralega! Þaö er gaman
aö hlusta á þessa gullfallegu is-
lensku, þar sem rétt orö eru á
réttum stööum — þennan hárná-
kvæma stil, sem einkennir Þór-
berg.
I Ofvitanum endursegir Þór-
bergur samtöl, sem áttu sér staö
löngu áöur en hann skrifar sög-
una, og skýtur inn athugasemd-
um frá liöandi stund. Þetta leysir
Kjartan á mjög fallegan hátt, aö
minu mati, meö þvi aö hafa tvo
Þórberga. Yfirleitt notar hann
bókina mikiö, þarna eru langir
kaflar teknir alveg oröréttir.
Svo er þaö tónlistin. Þaö er
mikil tónlist I bókinni sjálfri.
Hjálpræöisherinri kemur t.d.
mikiö viö sögu, meö sina músik.
Auk þess skjótum viö inn visum
sem Þórbergur orti og birtust i
Eddu hans.
Viö völdum þá leiö, sem okkur
fannst eölilegust: aö nota tónlist
Hjálpræöishersins óbreytta. Þaö
kom i ljós aö tveir leikaranna
kunna á hljóöfæri sem henta mjög
vel: Jón Sigurbjörnsson spilar á
takkaharmóniku og Ólafur Orn
Thoroddsen á gitar. Svo erum viö
meö eina Hjálpræöishers-
trommu. Þessi tónlist finnst okk-
ur gefa mjög vel blæ þessara ára,
og þaö var engin ástæöa til aö
breyta henni.
Lögin sem ég geröi viö visurnar
komu svo einsog af sjálfu sér.
Þetta er aldamótaslagarinn, tón-
list þeirra tlma þegar heimurinn
var ennþá góöur. Þórbergur raul-
aöi þessar visur sjálfur, einsog
skáld gera mjög gjarna, viö ein-
hverja húsganga, eöa kannski
hefur hann spunniö eitthvaö
upppúr sér. Lögin þurftu aö
hljóma einsog þau heföu alltaf
veriö til, en samt þurfti aö vera I
þeim eitthvaö persónulegt, ein-
hver Þórbergur, þú skilur.
Nú stendur Atli upp og gengur
aö pianóinu til aö sýna hvaö hann
á viö. Hann leikur og raular lagiö
„Esjan er yndisfögur”.
— Sjáöu, þaö er alltaf eitthvaö
sem brýtur upp stemminguna,
alltaf eitthvaö sett inn i alda-
mótaslagarann sem ekki passar
þar. Svona var Þórbergur.
Atlileikur „Ég er mikiö mæöu-
grey” — sko, þetta er einhvers-
konar raul. — Og næst kemur lag-
iö „Dags lit ég deyjandi roöa”.
— Þórbergur litur til þessara
Atli Heimir
Sveinsson,
tónskáld
liönu ára af afskaplega mikilli
hlýju. Þetta er ákveöin nostalgia,
eöa fortiöarþrá. Þessi ár koma
ekki aftur, heimurinn er ööru visi
I dag. Hjá Þórbergi veröur þetta
aö lýriskum stemmingum og
grallaraskap i bland.
Ég kompóneraöi fleiri söngva
en þá sem viö notum I sýning-
unni, og kannski bæti ég ein-
hverntima viö þaö og geri úr þvi
litla visnasvitu um Þórberg. En
tónlistin mátti ekki vera meiri i
sýningunni, annars heföi þetta
oröiö of mikiö musical.
Þaö sem er erfiöast viö aö
semja tónlist fyrir leikhús er aö
finna réttan stil, ef hann finnst
ekki er alveg sama hve tónlistin
er góö, hún dugar ekki samt.
I Ofvitanum flytjum viö tón-
listina bæöi af tónbandi og beint
af senunni. Stundum blöndum viö
þessu saman og þetta gripur hvaö
inn I annaö. En viö reynum alltaf
aö láta tónlistina hljóma sem eöli
legan hluta af sýningunni. Engar
flóknar útsetningar. Tónlistin er
einföld á sama hátt og leiktjöldin.
Þaö eru orö Þórbergs, sem bera
sýninguna uppi.
— ih.
Lýrískar
stemmingar og
grallaraskapur
í bland