Þjóðviljinn - 03.11.1979, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 03.11.1979, Blaðsíða 4
4 StÐA —'ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. nóvember 1979 UOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýös- hreyfingar og þjóðfrelsis tJtgefandi: Otgófufélag Þjó&viljans Framkvcmdastjóri: Eiöur Bergmann RkUtjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. FrétUstjóri: Vilborg Raröardóttir Umajónarmaóur Sunnudagsblaós: Ingólfur Margeirsson. Kekstrarstjóri: Olfar Þormóösson Augiýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóftir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón FriÖriks- son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Jón Asgeir SigurÖsson iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Jón Ölafsson Otlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson Handtita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason Auglýsingar: Sigriöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson. Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir. Afgreiösla: Einar Guöjónsson, Guömundur Steinsson, Kristín Péturs- dóttir. Sfmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Sigrún BárÖardóttir Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Otkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson. Ritstjórn, afgreiösia og augiýsingar: Siöumúia 6. Reykjavrk.slmi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf. Landsráöstefna herstöðva- andstœöinga • f dag hefst landsráðstefna herstöðvaandstæðinga. Ráðstefnan sem haldin var í fyrra var mjög í skugga þess áfalls fyrir samtök herstöðvaandstæðinga að þá var í fyrsta sinn mynduð ríkisstjórn sem taldist á vinstri væng alþingis sem ekki gaf nein fyrirheit um brottför hersins. Meðal annars vegna verri stöðu á alþingi var á þeirri ráðstefnu mikið rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um herstöðvamálið og samþykkt tiliaga um að setja slíka atkvæðagreiðslu á oddinn. Um það efni voru þó skiptar skoðanir og er ekki hægt að tala um að þeirri samþykkt hafi verið fylgt eftir. En samtökin hafa látið að sér kveða með ýmsum hætti t.d. með myndarlegri menningarviku sem tengd var þrjátíu ára af mæli þeirra tíðinda að Island var dregið inn í Nató, og svo með mót- mælaaðgerðum ogfundahöldum sem mönnum eru enn í fersku minni. • Oft er þess getið í ræðu og riti að baráttan gegn her- setunni gangi seint. Hún hefur þekkt bæði sigra og ósigra. Sá ósigur sem er verstur er einmitt sá sem á var minnst hér aðofan: aðherstöðvamáliðhefurfærst neðar á dagskrá en það áður var hjá of mörgu fólki, sem í raun er andvígt hersetunni. Sá árangur sem náðst hef ur verð- ur ekki auðveldlega mældur í áþreifanlegum stærðum. En það má þó færa sterkar líkur á því, að ef þessari bar- áttu hefði ekki verið sinnt af stórum hópum manna, þá væri Island nú flækt miklu rækilegar en áður í víg- búnaðarkapphlaupið, umsvif hersins væru meiri og margþættari. • En ékki er þar með sagt, að jafnvel sá takmarkaði árangur baráttunnar sem felst í einskonar óbreyttu ástandi sé tryggður. Við kynntumst nú á því þingi sem einna skemmst hef ur setið nýjum tíðindum úr sögu þess fyrirbæris sem nefnt hefur verið aronskan. Það er átt við þann hugsunarhátt að gera herstöðvar að beinni tekjulind, einskonar aukafiskistofni til að gera út á. Benedikt Gröndal utanríkisráðherra hafði slegið pen- inga7ekki aðeins til að aðskilja farþegaf lug og herflug í Kef lavík, heldur og til að greiða verulegan hluta þess kostnaðar sem byggingu íslenskrar f lugstöðvar fylgir — samkvæmt þeirri undarlegu formúlu sem gerir ráð f yrir því að herinn geti haft neyðarafnot af þeim hluta slíks húss sem ekki verður sýnilegur þegar að er komið. Slíkri formúlohafði áður verið hafnað af Bandarikjamönnum 1977 — og höfum við vitnað nú fyrir skemmstu í herf ræð- inga sem töldu þá mesta óráð að sletta ekki í (slendinga peningum — vegna þess að nú þyrfti að koma upp nýjum radarstöðvum á norðanverðu Islandi. Aronskan er ekki aðeins sá ormur sem nagar sjálfsvirðingu og þann vilja að standa á eigin fótum — hún opnar í leiðinni dyr fyrir nýjum umsvifum hersins, meiri og háskalegri aðild að hinu geðbilaða vígbúnaðarkapphlaupi sem ekkert lát er á. • Landsráðstefnan mun þurfa að f jalla um mál sem þessi. Hún mun og fá svip af nálægð kosninga, eins og segir í ágætri grein af síðu herstöðvaandstæðinga hér í blaðinu í vikunni: • ‘„Fjölsótt, athafnasöm og samstillt landsráðstefna . besta og varanlegasta framlag okkar til kosningabar- a tunnar. Ekki af því að hún fleyti einum né neinum inn á þing, heldur af því að hún verður væntanlegum al- þingismönnum áminning um að herstöðvamálið er ekki gleymt, og engum alþingismanni verður þolað að gleyma því. Það er enn sem f yrr stórmál íslenskra stjórnmála og verður það uns yfir lýkur." Lúftvlk Glœsilegur viöskilnaöur Þeir AlþýBubandalagsmenn i Austurlandskjördæmi hafa tek- ið sér góðan tíma aB ákveBa framboB sitt.enda mikiB i húfi. LúBvIk Jósepsson hafBi fyrir alllöngu gert upp hug sinn og ákveöiB aB vera ekki i framboBi lengur. Enda þótt siBasta kjörtfmabil hafi veriö styttra en flesta grunaBi er ákvörBun Lúöviks fyrir margra hluta sak- ir skiljanleg. t siöustu kosning- um skilaöi hann AlþýBubanda- laginu á Austurlandi sem stærsta stjórnmálaflokki i kjördæminu og sat á slnu einnig sinn stóra þátt I velgengni flokksins á Austurlandi fyrir einu og hálfu ári. Konur og búskapur AlþýBubandalagið fékk þrjá þingmenn á Austurlandi siöast og var úr vöndu aö ráöa hver skipa ætti þaö sæti. t fyrstu komu þar einkum til greina tvær konur, Þorbjörg Arnórs- dóttir, Hala, Suöursveit, og Agústa Þorkelsdóttir, Refstaö, Vopnafiröi, en þótt hart væri eftir þeim gengiö töldu þær sig þurfa aö velja milli þingmennsku og búskapar, og völdu hiö siBarnefnda. Þær skipa nú fjóröa og fimmta sæti listans og ættu ef vel gengur aö koma viB sögu næsta Alþingis sem varamenn. Leynivopnið En Alþýöubandalagsmenn á Austurlandi áttu i sinum fórum leynivopn sem teflt var fram i lokin. Þriöja sætiö á listanum tekur Sveinn á Egilsstööum, 31 árs verkfræöingur hjá Egils- staöahreppi. Sveinn er sonur Jóns Egils Sveinssonar og Mögnu Gunnarsdóttur, en þau eru abilar aö félagsbúinu á. EgilsstöBum ásamt Ingimar fööurbróöur Sveins. Þar starfar einnig Gunnar bróöir hans. Afi Sveins og alnafni er hinn lands- kunni búhöldur Sveinn Jónsson á Egilsstööum sem enn er i fullu fjöri, kominn vel á niræöisaldur. Sveinn eldri var sem kunnugt Þorbjörg Agústa Guftjón siöasta þingi sem fyrsti þingmaöur Austurlands. Þaö var glæsilegur endapunktur á löngum þingmennskuferli. Góöir eftirmenn Lúövik þarf heldur ekki á þvi aö halda likt og Ólafur Jóhann- esson i Reykjavik aö skýla og fela eftirmenn sina meö þvi aö tróna efst á listanum. Helgi Seljan sem tekur nú sæti Lúöviks á G-listanum nýtur almennra og mikilla vinsælda á Austurlandi- og átti engu minni hlut i sigri Alþýöubandalagsins i kjördæminu við siöustu kosn- ingar en Lúövík. Þá hefur Hjörleifur Guttormsson styrkt stööu sina mjög meö frammi- stööu sinni á ráöherrastóli en þar vöktu vinnubrögö hans og skipulagsgáfa þjóöarathygli. Þessir eiginleikar Hjörleifs áttu er frambjóöandi fyrir Sjálf- stæöisflokkinn I Noröur-Múla- sýslu um langt árabil, liklega frá 1937 til 1959, er flokks- forystan syöra kippti undan hon- um framboössætinu i sama mund og möguieiki opnaöist til þingsætis meö breyttri kjördæmaskipan. Táknrœnt fyrir straumana Sveinn yngri stundaöi verk- fræöinám I Glasgow og var siöan viö verkfræöistörf um tveggja ára skeið I Stavanger i Noregi, þar sem hann haföi eftirlit meö stórframkvæmdum. Kona Sveins er Jóhanna Illuga- dóttir Guömundssonar skip- stjóra f Hafnarfirði, sem var framkvæmdastjóri Bæjarút- geröarinnar og baráttumaður I röðum sósialista um langt skeiö. Þau eiga þrjú börn. Þann tíma sem Sveinn hefur veriö verkfræöingur Egils- staöahrepps hefur hann vakiö á sér athygli fyrir dugnaö og atorku í starfi sem engan raunar undrar sem þekkir til ættmenna hans. Alþýðubanda- lagsmenn á Austurlandi eru ánægöir mjög meö það aö hann skuli skipa þriöja sæti G-listans, og til þess er tekiö að hann mun nú eini Héraösbúinn sem möguleika hefur á þingsæti viö komandi kosningar. Þaö er svo táknrænt fyrir þaö hvert straumar liggja i pólitík- inni á Austurlandi aö þessi ungi maöur, sonarsonur Sveins eldra á Egilsstööum, skuli nú vera kominn i framlinu á vegum Alþýöubandalagsins þar eystra. Milliflokkahjal Þegar forystumenn milli- flokka fara aö tala um þaö aö Andrés I „hægri og vinstri” séu úrelt hugtök, „hugmyndafræðin sé dauö” og annaö þviumlfkt er þaö segin saga aö dauöinn er kominn I farangurinn. Einn þeirra manna sem enn gerir glögg skil milli hægri og vinstri er Andrés Kristjánsson, sá mikli málsnillingur og kunn- áttumaöur um Framsóknar- flokkinn. I grein I Nýjum Þjóömálum bendir hann meöal annars á aö Framsóknarmenn gætu margt lært af kosninga- visitölu sinni sföustu fjóra áratugina. Framsóknarflokkur- inn gæti semsagt tryggt viðgang sinn mun betur en verið hefur með þvi ab gera skil á vinstri og hægri, og koma sér þannig af braut hægrirásandi milliflokks: Góö byrjun „Atkvæöavisitala Fram- sóknarflokksins siöustu fjóra áratugina er merkileg kosn- ingahagfræöi. il hvert skipti sem flokkurinn hefur veriö I ihaldssamvinnu, hefur fylgi hans hrapaö niöur i 19—20% atkvæöa, en eftir hverja vinstri stjórn sem hann hefur átt aðild aö hækkaöi fylgi hans aftur I 27—29%. Eftir siðustu ihalds- þjónustu keyröi þó um þverbak, þvi aö þá lækkaöi fylgiö i 16.9% og varö hiö minnsta I allri lifs- sögu flokksins.” Andrés lætur þá frómu ósk i ljós aö vonandi læri Framsóknarflokkurinn eitthvaö af þessari kosningahagfræöi meö svo augljósri kosningavisi- tölu sem vlsar honum beina leiö til staðfestu á vinstri væng stjórnmálanna. Klippari getur bætt þvi viö aö forystumenn Framsóknarflokksins heföu gott af þvi aö fara á námskeið hjá forvigismönnum Samtaka frjálslyndra og vinstri manna I aögreiningu hægri og vinstri stefnu. Þaö væri góö byrjun. — ekh — áb

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.