Þjóðviljinn - 03.11.1979, Side 11
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardágur 3. nóvember 1979
Laugardagur 3. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
FATLAÐ FOLK, ONYTT AUÐLIND
tJt varpserindi Magnúsar
Kjartanssonar fyrrverandi ráö-
herra sl. miðvikudagskvöld vakti
mikla athygli og --Varð hann
góðfúslega við þeirri heiðni Þjóö-
viljans að erindið yrði birt I
blaðinu i heild. Fyrrsagnir og
millifyrirsagnir eru blaðsins:
Góðir áheyrendur.
Ég dvaldist i Danmörku i
sumar um nokkurra mánaða
skeið. Erindi mitt var að bera
saman lög, reglugerðir og reglur
um málefni fatlaðra i Danmörku
annarsvegar og hér heima hins-
vegar, en löggjöf okkar og reglur
um þau efni hafa verið sniðnar
eftir dönskum fyrirmyndum,
venjulegast festar i lög hérlendis
um svipað leyti og Danir töldu
þær úreltar. Ég hafði náið sam-
band við heildarsamtök fatlaðra i
Danmörku og styrktarsamtök
fatlaðra, einnig fékk ég að sitja
fundi stjórnskipaðrar nefndar sem
hafði þaö verkefni aö leggja á
ráöinum þátttiacu Dana i alþjóöa-
ári fatlaöra 1981, aögerðir innan-
; lands i Danmörku og hlut Dana I
alþjóðlegri baráttu fyrir jafnrétti
fatlaðra hvarvetna á heims-
kringlunni.
25% á móti 13.5%
Ég varð mjög margs vlsari við
þessa könnun mina en ætla ekki
aötiunda það í einstökum atriðum
hér. Ein tala n ægir raunar tál þess
að varpa ljósi á ástandiö. Á
undanförnum árum hafa Danir
variö til félagsmála i heild um
tuttugu ogfimm hundraðshlutum
af vergri þjóöarframleiðslu á
markaðsviröi, en viö Islendingar
13.5 hundraöshlutum. Við er-
um rétt rúmlega hálfdrættingur
á þessu sviöi, eins og raunar'
flestum öörum. Svipuðu máli
gegnir um framlög til þess að
stuðla aö endurhæfingu og jafn-
rétti fatlaðra, nema þar eru hlut-
föllin trúlega enn óhagstæðari
Islensku samfélagi vegna þess aö
i Danmörku eru til margir gildir
einkasjóöir ætlaðir fötluðum og
hafa ekki enn farið forgörðum i
óöaverðbólgu. Sérhyggjumenn
Danaveldis kvarta og kveina
undan því að fólk sé að kikna
undan þeirri byrði sem á það sé
lögð vegna fatlaðra. Sami
volæöistónninn heyrist einnig hjá
islenskum hálfdrættingum jafn-
vel á óliklegustu stöðum, aö
þjóöin sé að sligast undan heil-
brigöisþjónustu og almanna-
tryggingakerfi. Fyrir nokkrum
árum boöaði kunnur stjórnmála-
leiötogi þá kenningu aö enginn
skyldi lagður á sjúkrahús nema
hann gæti borgaö matinn sinn
sjálfur, hinir mættu drepast
drottni slnum. Þegar fjárlög voru
afgreidd i fyrra fyrir þetta fjár-
hagsár voru felld niður framlög
almannatrygginga til þess að
gera þunguöum konum kleift aö
fara til tannlæknis, einnig þar
skyldi efnahagurinn ráöa og þær
snauöari tyggja matinn sinn meö
geifhim einum. Égvarðþess ekki
var að nokkur alþingismaður sæi
ástæöu til að gera athugasemd
við þessa breytingu. 1 Danmörku
standa almannatryggingar undir
öllum tannlækningakostnaöi að
verulegu leyti, og þar hefur rétt-
urinn ekki veriö skertur heldur
aukinn. Mikill fjöldi fólks hefur
hringti mig á undanförnum árum
og greint mér frá þvi að
Tryggingastofnun ríkisins hamist
. viö að lækka örorkumat á fötluðu
fólki sem hefur reynt aö Uöra ofan
af fyrir sér meö starfi þrátt fyrir
fötlunina, fatlaöir eiga aö sitja Uti
i horni og halda sér saman. 1
Danmörku eru framkvæmd laga-
ákvæöi um forgangsrétt fatlaðra
til starfa að ööru jöfnu á vegum
rikis og sveitarfélaga. Hérlendis
hafa hliðstæð lagaákvæði verið
dauður bókstafur i áratug, brotin
af öllum félagsmálaráðherrum
sem setið hafa. I borgarstjórn
Reykjavikur var þaö formlega
samþykkt af meirihluta nýlega að
þessi lög skyldu brotin. Mann-
réttindaákvæði islenskra laga
eiga greinilega ekki að ná til
okkar sem fótluð erum.
Stéttbundið pen-
ingamat á manns-
lífum
Margir íslenskir stjórnmáia-
menn horfa fránum sjónum til
fjarlægra staöa á hnettinum og
fella haröa dóma um mann-
réttindabrot, og þaö er vel. En
þeir koma ekki auga á þau mann-
réttindisem brotineruá fötluðum
á tslandi. Þeir ættu að minnast
þess sem Matteus guöspjalla-
maður hef,ur eftir meistara
sinum.
þannig metinn á rúmar átta milj-
ónir króna á núviröi, svo að ég
noti málfar hagfræöinga. Ég hef
bréf upp á þaö frá Trygginga-
stofnun rlkisins að ég sé aöeins
. fjóröungur úr manni og verögildi
mitt I krónum taliö ætti þá aö
vera um tvær miljónir króna eða
ámóta upphæð og ráöherra fær
fyrir störf sin i háifan annan
mánuð. vift þetta almenna mat
bætist siðan upphæö sem stéttar-
félög semja um i vinnudeilum við
atvinnurekendur. Einnig þar eru
mannsllf metin til peninga, hand-
leggur er verðlagöur, fótleggur
upphæðir svara á svokölluöu
núgildi og efast um að nokkur
tölva geti reiknað það I þeirri
hringavitleysu peningamála sem
einkennir islenskt þjóðfélag. Hitt
finnst mér afarfróölegt, aö sá
látni sem metinn var til tiu
þúsunda króna var eiginkona,
verögildi hennar var talið aðeins
þritugasti hluti af verðgildi karl-
kyns vélastjóra. Hæstiréttur
hefur einnig metið til fjár hvers-
kyns fatíanir. TH ér listi um mat
pessa æosta dómstóls þjóöarinnar
árin 1950-1964, á verðgildi háls-
iiðar, hryggjarliöar, blööru, á
Jafnréttisganga fatlaðra gerði mörgum Ijóst hve fjöldi hreyfihamlaöra er mikill,en sjá verður til þess
að sá góði hugur sem fötluðum var sýndur þá komi einnig fram I verki.
„En hvi sér þú f lisina i auga
bróður þins, en tekur ekki eftir
bjálkanum i auga þinu ... Hræsn-
ari, drag fyrst bjálkann út Ur,
auga þinu, og þá muntu s já vel til
aðdraga út flisina Urauga bróður
þins.”
sömuleiðis, sjón, heyrn, ilman
smekkur og tilfinning. En þetta
mat er stéttbundið, verögildi
manna i peningum fer eftir þvi
hversu hátt þeir standa i þjóð-
félagsstiganum margfræga.
Smánarleg afkoma fatlaös
fólks, langstœrsta félags-
lega bölið á íslandi
SU undarlega þróun hefur gerst
hér á tslandi á undanförnum ára-
tugum að reynt er aö meta ailt til
peninga og ákeföin hefur oröið
þeim mun magnaðri sem pening-
arnir hafa glataö verðgildi sinu
örar. Við þegnarnir erum einnig
metnir til fjár. Efmaöur á réttum
aldri fellur frá fær makinn bætur
frá Tryggingastofnun rikisins,
sem nema 85.379 krónum á
mánuöi I átta ár, og iviö meira ef
börneru á framfæri. Sé miðað viö
barnlaus hjón er einstaklingurinn
Lifið sjálft metið
til fjár
Ég hef I fórum minum yfirlit
um hæstaréttardóma um mann-
gildi reiknað I peningum á
árunum 1950 til 1964 sýna að
manngildi er reiknað á ákaflega
mismunandi hátt eftir þjóöfélags-
stöðu, peningagildi mannlífs var
á þeim árum metiö frá 10 þúsund
króna til 300þúsunda: mér er um
megn aö áætla hverju þessar
þarmi, ökkla, kjálkabroti, glóðar-
auga, rifjabroti, nefbroti o.s.frv.
undirliðirnir eru 58. Allir eru
þessir dómar stéttbundnir og
kynbundnir, verkamenn fá miklu
minni bætur en flugmenn vegna
sama áfalls, konur minna en
karlar. Um þetta væri hægt aö
flytja langt mál, hvergi birtis
fáránleiki peningaþjóöfélagsins
jafn skýrt og I þessum tilraunum
til þess aö meta til fjár það sem
ómetanlegt er, lifið sjálft.
Fatlaðir ekki
taldir með
Ég læt mér þó nægja að þessu
sinni aö benda á, aö þaö er fram-
færsluviðhorfiö eitt sem enn er
notaöá Islandi til þess að meta lif
og dauöa-, það eitt skiptir máli að
enginn deyi úr bráðahungri og
þar með er upptaliö. Ekkert tillit
er tekiö til þeirra stórfelldu
umskipta sem orðiö hafa á sviði
læknisvisinda undanfarna ára-
tugi, eða nánartiltekið frá siöustu
heimsstyrjöld þegar lögð var
áhersla á að þeir sem höföu
fatlast af styr jaldarvöldum
kæmust sem fyrst á vigvöllinn
aftur. Éghitti ifyrral New York
helsta upphafsmann nútimalegra
endurhæfingarlækninga, Howard
A.Rusk, og hann gaf mér sjálfs
ævisögu sina, en þar gerir hann
grein fyrir þvi að afskipti hans af
fötlunarmálum hófust þannig að
bandariska herstjórnin bað hann
að kanna hvernig væri með sem
skjótustum hætti unnt að koma !
fötluöu fólki út á vigvöllinn aftur.
Þessari starfsemi var sem betur
fer haldiðáfram að striði loknu og
hún hefur leitt til gerbyltingar á ,
getu fatlaðra til þess aö lifa
sæmandi lifi, þó þróunin á sviði
geðfötlunar hafi enn sem komið
er ekki veriö jafn ör. Fyrst ég
minntist á New York get ég bætt
þvi við að ég var um þær mundir
einn af fulltrúum Alþingis
Islendinga á Allsherjarþingi SÞ.
Ég átta öi m ig f ljótlega á þvi að ég
var eini fulltrúinn af fjölmörgum
þúsúndum frá gjörvöllu mann-
kynisem varðað nota hjólastól til
þess aö komast leiðar minnar.
Fatlaðir eru greinilega ekki taldir
hluti af mannkyninu, þótt fjöldi
þeirra i heiminum öllum sé
nálega jafn mikill og fjöldi Kln-
verja.
Fjórðungur úr
manni
Ég minntist áðan á þá áráttu að
meta lif manna og heilsu til pen-
inga. Vissulega er það mikils
virði að hafa i sig og á, kjör fatl-
aöraerusmánarleg og fara sifellt
rýrnandi á timum óöaverðbólgu.
Þaö er ekki reiknuö út nein visi-
tala um kjör okkar sem fötluö
erum, þótt afkoma okkar sé allt
önnur en hinnar viöfrægu visi-
tölufjölskyldu. Ég skal nefna eitt
dæmi um þetta. Ég hef veriö
úrskurðaður f jórðungur úr manni
og samkvæmt þvi fæ ég lifeyri á
mánuöi um 60-70 þúsundir króna.
Ég þarf ekki á tekjutryggingu aö
halda vegna þess að ég fæ hálf
þingmannseftirlaun I örorku-
bætur, þó ekki ókeypis bensin eða .
ókeypis sima, eins og fyrrverandi
starfefélagar mfnir hafa. Ég fór
um daginn og lét fylla geyminn á
bilnum af bensini. Ég sá þá að
örorkubæturnar minar frá
tryggingunum hrukku til þess aö
fylla geyminn þrisvar í mánuði. A
sama tima I fyrra nægðu þær til
þess að fylla geyminn sex
sinnum. Lifskjör min gagnvart
bensini hafa þannig verið skert
um helming og er þó bensin lífs-
nauðsyn fyrir mig ef ég á ekki aö
Iáta mérnægjaaösitjaiitií horni.
Meira en helmingur upp-
hæðarinnar rennur I rikissjóö,
það er litið á fötlun sem forsendu
skattheimtu. Sérhver áheyrenda
minna geturrif jað upp I huganum
fjölmörg hliðstæö dæmi.
Beethoven var
heyrnarlaus
En þótt tekjur okkar séu mikil-
vægt atriði þá er krónugildi
þeirra ekki lykillinn til að leysa
vanda okkar til frambúðar.
Versta vandamál okkar er það að
mannréttindi okkar eru takmörk-
uð I þeim mun rikara mæli sem
fötlun okkar er alvarlegri. Tökum
samgöngur sem dæmi, og litum á
þær frá sjónarmiði fatlaðs manns
I hjólastóli, þvi það er sjónarhorn
sem ég þekki best af eigin raun.
Enginn fatlaður bundinn við
hjólastól getur af eigin ramleik
ferðast með flugvél, farþega-
skipi, langferðabifreið eða
strætisvagni þar sem þeir eru. A
hliöstæðan hátt getur fatlaður i
hjólastóli ekki notað skólakerfiö
af eigin rammleik, hvorki i
grunnskólum, framhaldsskólum
né Háskóla Islands. Mér var sagt
frá þvi ekki alls fyrir löngu að lyft
an i Háskólabyggingunni heföi
veriö biluð I meira en ár, án þess
að stjórnarvöldum heföi þótt
taka þvi að gera við hana. Ég
hygg að enginn almennur
vinnustaður á Islandi sé
þannig hannaður að fatl-
aöur maöur i hjólastól geti
starfaö þar. Enginn fatlaöur
maður i hjólastóli getur af eigin
rammleik komist inn I anddyri
Alþingishússins hvað þá lengra.
Enginn fatlaður maður í hjóla-
stóli getur af eigin rammleik far-
ið á fund ráðherra i stjórnarráös-
húsunum, hvað þá flutt sig yfir I
ráðherrastól. Enginn fatlaöur
maður i hjólastóli getur heimsótt
: forseta Islands af eigin ramm-
j leik, hvorki á Bessastööum né I
forsetaskrifstofunni I elsta tukt-
húsinu I Reykjavík hvað þá sest I
; forsetastól. Einhverjum kann aö
; virðast það tilætlunarsemi aö tala
Um að fatlaður maður i hjólastóli
gæti orðiö forseti, en einn merk-
asti stjórnmálamaður þessarar
aldar Roosewelt Bandarikja-
forseti gat ekki flutt sig um set
nema hann væri borinn eöa hon-
um ekið i hjólastóli. Honum tókst
þetta vegna þess að hann var ekki
aðeins gáfaður og atorkusamur,
heldur og vellauðugur og gat
greitt mönnum kaup til þess að
hjálpa honum aö bæta upp fötlun-
ina. Roosewelt er lýsandi for-
dæmi, og fordæmin eru mjög
mörg. Beethoven var heyrnar-
laus með öllu þegar hann samdi
niundu hjómkviðuna með óðnum
til gleðinnar og stjórnaði hljóm-
sveitinni meira að segja. Ýmsir
. mestu snillingar mannkynssög-
unnar hafa vistast á geösjúkra-
íhjúsum mörg ár ævi sinnar. Fötl-
un er ekkert mat á hæfileikum
manna, hæfileikar þeirra geta
verið jafn miklir og annarra, ef
þeir fá jafnrétti. Ég nefni enn eitt
dæmi: Halldór Rafnar lög-
fræðingur öryrkjabandalagsins
hefur bæði þekkingu og andlega
burði til þess að vera hæsta-
réttardómari, en hann gæti það
ékki vegna þess að lagasöfn og
dómar og aðrar heimildir hafa
ekki verið gefnar út á blindraletri
eða á annan hátt sem honum
kæmi aö gagni.
Fatlað fólk er
auðlind
j Yrði það ekki afar dýrt að gera
lallar þessar breytingar i þágu
fatlaðra? spyrja peningahyggju-
menn. bvi er öfugt farið. Fatlaö
fólk á Islandi er auðlind sem að-
eins er nýtt að mjög takmörkuðu
leyti, við erum engu ómerkari
auðlind en þorskarnir i sjónum,
fallvötnin og varaorkan. Ef okkur
gæfist tækifæri til, myndum við á
skömmum tima greiða allan þann
aukakostnaö sem hlytist af þvi aö
tryggja okkur jafnrétti i þjóö-
félaginu og siðan myndi vinna
okkar auka þjóöarframleiðslu og
þjóöartekjur i allra þágu. Viö er-
um ekki að biðja um neitt, við er-
sér ljóst að fjöldi fatlaöra á
tslandi væri svona mikill, og sáu
þeir þó'aðeins litiö brot. I sam-
bandi við gönguna uröum viö
hvarvetna vör við góðvild og
hlýju, en þvi miður hrökkva þeir
ágætu eiginleikar skammt ef
þeim er ekki fylgt eftir I verki.
Allir gleymdu
fötluðum
Viö erum öll afar gleymin. Hér
á dögunum dó siðasta löggjafar-
samkundan okkar úr bráökveddu
á barnsaldri og þvi fylgdu enda-
iausar útfararræður i hljððvarpi
og sjónvarpi i 6-7 klukkutima. Ég
fylgdist nákvæmlega með öllum
þessum umræðum, hlustaöi á
hverja einustu ræðu. Þessari
einkennilegu háttsemi minni olli
ekki aöeins almennur áhugi á
þjóðmálum. Ég var haldinn illum
grun þegar umræðurnar hófust,
og sá grunur var orðinn að stað-
reynd þegar þeim lauk. Ræðu-
mennirnir allir voru til skiptis
hvassyrtir og faguryrtir, þeir lof-
uðu þjóðfélagshópnum öllu
fögru hver frá sinum sjónarhóli,
en þó var eitt sem skorti hjá
öllum. Þaö var aðeins einn ræöu-
maður sem mundi eftir þvi að til
væri fatlað fólk á Islandi, og
talaöi um það i liknartóni. Það
var ekki einn einasti ræöumaður
sem mundi eftir þvi að skert
mannréttindi og smánarleg af-
koma fatlaðs fólks eru lang-
stærsta félagslega bölið á Islandi.
Ekki einn einasti af þessum gal-
vösku leiðtogum stjórnmála-
flokkanna virtist hafa hugmynd
um réttleysi og kjör okkar sem
fötluð erum.
Með þessum orðum er ég ekki
fyrstog fremst að ráðast á stjórnr
málaflokkana og leiötoga þeirra.
Ég er að gagnrýna okkur sjálf.
Við erum samkvæmt gamaili
hefð hógvær og af hjarta litillát.
Það geta verið góðir eiginleikar,
en þeir eiga ekki við i sambandi
við stjórnmálabaráttu. Við höfum
kosningarétt á Islandi, 20-30 þús-
undir fatlaðra manna, og á
alþingi hafa setið einir tiu menn i
öllum flokkum sem hafa verið
kjörnir með atkvæðum okkar en
þeir vita ekki að þeir eru fulltrúar
okkar vegna þess að við þegjum.
Ætli meirihluti alþingismanna sé
ekki kjörinn af kjósendum sem
eru fatlaöir, nánum aðstandend-
um þeirra, vinum og kunningjum,
en meirihluti Alþingis veit þetta
ekki, vegna þess að við hegðum
okkur eins og mýs undir fjala-
ketti.
Ariö 1980 veröur að vera
ár fjörugra umræðna og
réttindabaráttu fatlaöra um
land allt, en áriö 1981 ár
framkvæmda
um að bjóða fram hæfileika okkar
og getu til þess að treysta sam-
félag okkar. En samfélagiö gerir
sér ákaflega óljósa hugmynd um
það að við séum yfirleitt til.
Við vöktum mjög myndarlega
athygli á tilveru okkar með jafn-
réttisgöngunni i fyrra og fengum
þvi þegar I stað framgengt að
búið er að gera Kjarvalsstaði aö-
gengilega fötluðum ásamt nauð-
synlegri salernisþjónustu og
tveir fulltrúar fatlaðra tóku þátt I
störfum til þess aö semja reglu-
gerð með byggingalögunum nýju.
Hitt var ekki minna virði að þetta
framtak okkar vakti alþjóöarat-
hygli; dagana eftir gönguna
hringdi siminn hjá mér látlaust
og viðbrögð allra viömælenda
minna voru hin sömu: takmarka-
laus undrun á þeim mikla fjölda
fatlaöra sem þeir sáu i göngunni
menn sögöust alls ekki hafa gert
Breytum afstöðunni
Það hefur alla tið veriö brýnt að
viö breyttum þessari afstöðu en
aldrei hefur það verið jafn aug-
ljós nauösyn og nú þegar fram-
undan er alþjóöaár fatlaðra sem
SÞ hafa kveðið á um 1981 og hefst
að rúmu ári liönu. Við þurfum að
tryggja þaö að stjórnmála-
flokkarnir allir móti stefnu sem
hrundið verði I framkvæmd á ári
fatlaðra og þá stefnu verða
stjórnmálaflokkarnir aö móta
fyrir kosningarnar nú i desem-
berbyrjun, þvi að þá verða kjörn-
ir þeir menn sem taka ákvarðanir
um aðgerðir opinberra stjórn-
valda a ári fatlaöra. Um ástandiö
eins og það er nú má taka fjár-
lagafrumvarpið nýja. Tillögur
endurhæfingarráðs um
óhjákvæmilega fjármuni voru
skornar niður við trog, án þess að
Magnús Kjartansson: Fatlaðir
eru ekki að biðja um neitt.heldur
eru þeir að bjóða fram þá starfs-
orku sem þjóðfélagið nýtir ekki i
dag.
Útvarpserindi
Magnásar
Kjartans-
sonar fyrr-
verandi
ráöherra
nokkur þingflokkur hafi séð
ástæöu til þess að mótmæla.
Félagsmálaráðherra hefur ekki
enn komið þvi i verk að fela nefnd
að skipuleggja tilhögunina á ári
fatlaðra á Islandi af hálfu stjórn-
valda, og á þvi sviöi er tsland trú-
lega endemi allra rikja heims.
Meðan ég dvaldist i Danmörku I
sumar fékk ég að taka þátt I fund-
um dönsku nefndarinnar sem
fjallar um þessi mál, eins og eg
nefndi i upphafi. Hún hefur þegar
skilaö af sér störfum. en um ára-
mót tekur við landsstjórn skipuð
fulltrúum allra samtaka fatlaöra
i Danmörku og framkvæmda-
stjórn sem hún velur og á m.a. að
fjalla um niðurstöður nefndarinn-
ar stjórnskipuðu. Samtök fatlaös
fólks é Islandi munu ekki fá i hend
urnar tillögur frá neinni stjórn-
skipaðri nefnd, en engu að siður
verða öll samtök fatlaöra að
kjósa landsnefnd fyrir næstu ára-
mót, sú landsnefnd verður siöan
að velja sér framkvæmdastjórn
og ráöa að minnsta kosti einn
framkvæmdastjóra sem hafi alla
þræði i höndum sinum og tryggi
ötult starf I öllum landshlutum.
Arið 1980 verður. að vera ár
fjörugra umræðna og réttinda-
baráttu um land allt, en árið 1981
ár framkvæmda.
Framkvœmdir 1981
Viö skulum láta framkvæmdina
á ári barnsins hérlendis verða
okkur viti til varnaðar. Hér hafa
verið haldnar fagrar ræöur birst
hafa ljúfar greinar i blöðum, i
Reykjavik hefur verið haldin
fróðleg og skemmtileg sýning. og
nú er verið að vara börn við
vimugjöfum. En þetta er allt og
sumt, hér hefur ekkert verið gert
nema þá helst það aö Alþingi
Islendinga hefur verið breytt i
sandkassa.
Ef við viljum að áriö 1981 verði
ár athafna, veröum við að taka
virkan þátt I þeirri kosninga -
baráttu sem nú er hafin, þvi að nú
verða kosnir þeir alþingismenn
sem eiga að gegna störfum árið
1981 og velja þá ráöherra sem þá
eiga að starfa i stjórnarráði. Viö
skulum vekja athygli alþingis-
frambjóöenda og flokka á þvi, að
við fatlaöir höfum vald til þess að
hefja menn og lægja i kosningum,
og að við erum staðráðin i aö
beita þvi valdi. Viö skulum fylgj-
ast gaumgæfilega með þvi hverju
flokkar og frambjóöendur lofa
fyrir kosningar, og jafn vendilega
með þvi hverjar efndirnar veröa
aö kosningum loknum. Við bein-
um athygli okkar ekki að nein-
um einum flokki öörum fremur,
von okkar er sú að þeir vinni allir
sameiginlega að jafnrétti
fatlaðra: ekki veitir af að til séu
vettvangar sem sameini þessa
sundurlyndu þjóð.
Verið þið sæl.
Nú gengur vetur I garð
og þá verður mörgum
ibúum höfuðborgar-
svæðisins og nágranna-
byggða hugsað til skiða-
og útivistarsvæðisins i
Bláfjöllum. Eflaust
munu fjölmargir, ungir
sem aldnir, sækja
viðtalldagsins
Þjónustumið-
stöð rísi
í Bláfjöllum
þangað heilsubót og
rjóða vanga i vetur sem
endranær. Aðsókn að
Bláfjallasvæðinu hefur
aukist hröðum skrefum
á undanförnum árum.
— Bláfjallanefnd hefúr lagt til
við sveitarfélögin sem að henni
standa að hún fái aö hefja bygg-
ingu á svokallaðri þjónustumið-
stöð, sagði Stefán Kristjánsson
iþróttaf ulltrúi Reykjavikur-
twrgar og formaður Bláfjalla-
nefndar I viðtali viö Þjóöviljann i
gær.
Þetta er um 600 fermetra bygg-
ing, sem þarnaer fyrirhuguð. Þar
verður salernisaöstaða, veitinga-
aðstaða fyrir léttar veitingar og
pláss fyrir fólk til að borða nestiö
sitt og aðsetur fyrir starfsfólk.
Nefndin lagöi til að veittar yrðu
til þjónustumiöstöðvarinnar á
næsta ári 120 miljónir króna, en
taliö er að fullfrágengin muni
byggingin kosta um 200 miljónir.
Þetta er nú stærsta verkefniö
sem er á döfinni hjá okkur. Við
stefnum einnig að þvi að lýsa
gönguspor, þannig að fólk geti
gengið svolitið fyrr. Það eru
margir sem koma seinnipartinn
og æfa sig i upplýstum brekk-
unum. Við höfum hinsvegar ekki
upplýst spor.en langar til að gera
það.
Metaðsókn I fyrra.
— Hefur aðsóknin ekki aukist
jafnt og þétt?
— Jú, og I fyrra var algjör met-
aösókn, enda kom stóra lyftan þá,
sem gjörbreytti allri aðstöðu.
Svo má gjarna nefna eitt, sem
ekki er þýöingarminna en annað.
Þaö er vegurinn. I honum hefur
verið unnið töluvert I sumar.
Hann hefur veriö hækkaöur á
löngum köflum og settur I hann
ágætur ofániburöur. Það þarf
samt að gera meira átak i þessum
vegi sem kominn er, en auk þess
er þegar komið inn á vegaáætlun
rikisins nokkurt framlag til þess
að framlengja þennan veg niöur I
Kaldársel, þannig að þá yrði
kominn hringvegur. En við höfum
ekki fengiö þessar tillögur sam-
þykktar ennþá, enda stendur það
ekki til fyrr en um leið og fjár-
hagsáætlanir sveitarfélaganna
verða gerðar.
— Hvaða sveitarfélög standa að
Bláf jallanefnd?
— Þaö eru Reykjavik,
Kópavogur, Seltjarnarnes,
Garðabær, Hafnarfjörður, Kefla-
vik og Selvogshreppur.
— Hvernig hefur fjárhags-
afkoman verið?
— Ég tel að afkoman hafi veriö
mjög góð i fyrra. Sveitarfélögin
þurfa að likindum aö borga um 20
miljónir með þessum rekstri.
Viðhald hefur verið mjög gott á
öllu þarna og allt er i fullkomnu
ásigkomulagi núna. Við eyddum
allmiklum peningum i að endur-
nýja mótora o.fl. Sveitarfélögin
greiða kostnaöinn I samræmi við
Ibúafjölda og Reykjavik borgar
68% hans.
— Hvaða aðstaða er fyrir hendi
I Bláfjöllum?
— Sveitarfélögin reka stóru
stólalyftuna, sem er mjög
afkastamikil, tvær fullkomnar
dráttarlyftur og eina ófull-
komnari. Loks er þarna ein
Stefán
Kristjánsson,
formaöur Blá-
fjallanefndar
heimasmiðuð barnalyfta, sem
gengur ókeypis fyrirkrakkana.
Svo er þarna hús, sem Reykja-
vikurborg á ein. Það er 100
fermetra sumarhús, sem snaraö
var upp til bráöabirgöa. I þvi húsi
höfúm viö bækistöð. Svo var
keypt sérstakt hús meö nokkrum
salernum. I sumar var byggð 90
ferm. skemma til að geyma I
troðarann, snjósleöa og annað og
þar er lika vinnuaðstaða.
Þrjú Iþróttafélög hafa lika
starfeemi þarna. Eitt þeirra,
Armann, á ágæta lyftu og auk
þess minni lyftur. Fram og
Breiöablik eru þarna lika með
frekar öfullkomnar lyftur, en
töluveröan rekstur.
— Hverær hófst þetta samstarf
sveitarfélaganna?
— Það byr jaöi 1973, en Keflavik
og Garöabær gengu inn i
samstarfið siðar.
800.000 ferðir.
— Hafið þið nokkrar tölur um
aðsókn að svæðinu?
— Nei, en giskað hefur verið á
milli 5 og 10 þúsund manns á
einum degi, þegar flest er. Við
seldum um 800þúsund feröir með
okkar lyftum I fyrravetur, fyrir
utan árskort.
A þeim dögum, þegar flest er,
er allt aö springa i þessu litla
húsiokkar. Okkur þykirlika erfitt
ogdýrtaðþurfaaöaka starfefólki
á milli á hverju kvöldi þegar
unniö er til kl. að verða ellefu á
kvöldin og þarf að byrja aftur
næsta morgun. -eös.
Algjörmetaösókn
í fyrravetur, enda
gjörbreytt
aöstaöa meö
stóru lyftunni