Þjóðviljinn - 03.11.1979, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 03.11.1979, Blaðsíða 15
Laugardagur 3. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 í^] íþróttir (f) íþróttir Klíþróttirg B ^U Umsjón: Ingólfur Hannesson V ^ B t' J Atll og Sigurlás til FC Brugge I Belgíu Atli Eövaldsson Allt bendir nú til þess að landsliðsmennirnir í knattspyrnu Atli Eð- valdsson, Val og Sigurlás Þorleifsson, Víkingi haldi til Belgíu innan skamms í boði belgíska 1. deildar- liðsins FC Brugge. „Þaö var hringt hingaö austur á Laugarvatn s.l. miövikudag frá Belgiu og eftir þvi sem mér skilst var óskaö eftir þvi aö viö Lási færum til Belgiu i boöi FC Brugge. Þaö var þó ekkert af- ráöiö hvort eöa hvenær viö fær- um þangaö, en þaö kemur vænt- anlega I ljós á næstu dögum,” sagöi Atli Eövaldsson i gærkvöldi þegar Þjv. haföi samband viö hann austur á Laugarvatn þar sem hann stundar nám viö iþrótta- kennaraskóla íslands. Ekki tókst aö ná taliaf Sigurlási Þor- leifssyni til þess aö fá enn frek- ari staöfestingu á boöi hins belgiska knattspyrnufélags. Eftir þvi sem blaöiö kemst næst hafa Atli og Sigurlás verið lengi undir smásjá Brugge og hefur félagiö boöiö þeim i a.m.k. 5daga til Belgiu til þess aö lita á aöstæöur hjá félaginu og e.t.v. skrifa undir atvinnumanna- samning. Atli Eövaldsson hefur nii I nokkur ár verið einn af máttar- stólpum Vals og islenska lands- liösins. Þaö hefur raunar vakiö furöu knattspyrnuáhugamanna aö hann skuli ekki vera fyrir löngu kominn út i atvinnu- mennsku. 1 sumar hefur hann átt nokkuð misjafna leiki, en veriö hreint frábær þegar hon- um hefur tekist best upp eins og t.d. á móti Vestur-Þjóðverjum. Sigurlás Þorleifsson hefur lengst af leikið meö IBV, en hélt til meginlandsins i vor og leik- ur nú meö Vikingum. Þá var hann fastur maöur i landsliöinu i sumar og þótti frammistaða hans þar lofa góöu. Sigurlás varö markakóngur i ár. Sigurlás Þorleifsson Iþróttir um helgina íslandsmótið i blaki hefst i dag Islandsmótið i blaki hefst meö pomp og pragt i dag. A Laugarvatni leika kl. 15 íslandsmeistarar UMFL og nýliöarnir i 1. deild, Vikingur. Vikingarnir sigruöu Laugdæli mjög óvænt á afmælismóti Þróttar um siðustu helgi og ætla sér vafalitið sigur i dag, en þaö veröur þeim vafalitið þungur róöur. 1 Glerárskóla á Akureyri leika kl. 15 UMSE og IS og að þeim leik loknum KA og IMA 12. deild. A morgun eru 3 leikir á dagskránni i iþróttahúsi Hagaskólans. Kl. 19 leika Vikingur og UBK i 1. deild kvenna. A eftir þeim leik eigast viö Vikingur og Þróttur i 1. deild karla og loks leika Fram og UBK i 2. deild. UMF'N og Fram leika i úrvalsdeildinni Einungis einn leikur er á dagskrá úrvalsdeildarinnar i körfubolta um helgina. Suður i Njarðvik leika heimamenn gegn Frömurum og hefst viöureign þeirra kl. 14 i dag. Bæöi þessi liö hafa leikiö undir þvi sem kalla má eölilegri getu i fyrstu tveimur umferöum mótsins og hyggja auðvitað á sigur i dag. Stórleikur verður i 1. deildinni I dag þegar Armann og IBK eigast viö, þvi getspakir menn spá þvi aö þessi liö muni berjast um sigurinn i deildinni. 11. deild kvenna leika i dag á Akureyri IMA og KR. Asgeir hand boltamaður Innanhússknattspyrnumót i Höllinni A morgun gengst knattspyrnudeild Þrottar fyrir innanhússknatt- spyrnumóti i Laugardalshöllinni i tilefni af 30 ára afmæli félagsins 5. ágúst s.l. Keppnin hefst kl. 14 og lýkur um 22.30. Leikið veröur i tveimur riðlum og verða 5 lið i hvorum þeirra. Sigurvegarar úr riölunum leika siöan um glæsilegan verölaunagrip. öll bestu knattspyrnulið landsins verða á meðal þátttakenda þ.á.m Þróttur, FH, Valur, IBK, Fram, KR, Vikingur, Haukarog Fylkir. 1 bráöskemmtilegu blaöi, Mjölni, sem Þórsarar I Eyjum gefa út, er minnst á aö Asgeir Sigurvinsson hafi þótt efnilegur handknattleiksleikmaður fyrir nokkrum árum. Þá lék hann I 3. deild meö Þór. Spurningin er sú hvort hann snúi sér aö handbolt- anum þegar hann kemur alkom- inn til Eyja. FH efnir til Hallsteinsdags Sunnudaginn 4. nóv. n.k. mun Fimleikafélag Hafnarf jaröar heiðra minningu Hallsteins Hinrikssonar. Eins og allir full- orönir Hafnfiröingar vita, var hann'aöalfrumkvööull aö stofnun Fimleikafélags Hafnarfjaröar og Hallsteinn Hinriksson fyrir starf sitt oft nefndur „faðir FH”. Hallsteinn Hinriksson kom hingað til Hafnarfjarðar, ungur aö árum aö loknu námi viö Iþróttakennaraháskólann i Kaup- mannahöfn. Fyrirrennarar hans hér i Firöinum voru engir auk- visar þar sem voru þeir Bjarni Bjarnason, siöar alþingismaður og skólastjóri aö Laugarvatni og Valdimar Sveinbjörnsson, sem kynnti handknattleik fyrstur manna á Islandi. Báöir uröu þessir menn þjóökunnir hver á sina vfsu. A þeirra tima visu 1921-1929 voru Iþróttalegar aðstæður góöar hér I Hafnarfiröi og iþróttaáhugi mikill. Hallsteinn Hinriksson vann allan sinn starfealdur hér viö menntastofnanir bæjarins viö iþróttakennslu, þess vegna veröa ómæld þau áhrif, sem hann haföi á uppvaxandi kynslóöir þessa bæjar á starfsferli sinum. Hæst mun þó bera starf hans sem stofnanda og frumherja Fimleikafélags Hafnarf jaröar, sem hann stofnaöi ásamt 10 ungum sveinum hinn 15. okt. Stjórn Fimleikafélags Hafnar- fjaröar hefur ákveöið aö Hallsteinsdagur skuli haldinn og er þetta I fyrsta skipti, sem sú ákvörðun kemur ti 1 framkvæmda. Vonar stjórn FH aö Hafnfiröingar taki þátt I þess- um hátiöahöldum. FH-ingar munu jafnan minnast Hallsteins Hinrikssonar, sem frumherja félags sins. Störf hans fyrir FH fóru eingöngu fram i fristundum og af eldlegum áhuga og þrótti þráttfyrir aö hann væri um árabil eini iþróttakennarinn viö skólana i Hafnarfiröi. Þar af leiöir aö FH-ingar geta vart eign- aö sér minningu hans einir, svo viötæk og áhrifamikil voru störf hans aö iþróttamálefnum bæjar- ins. Hiö þróttmikla iþróttastarf i dag má aö verulegu leyti rekja til starfs Hallsteins Hinrikssonar. Dagskrá Hallsteinsdagsins 1979 veröur þannig: Kl. 14:00 Knattspyrna — Yngstu FH-ingar. Kl. 14:30 Handknattleikur — 5.fl. karla. Kl. 15:00 Knattspyrna — 3. fl. karla. 15:20 Kvennaknattspyrna — Meistaraflokkur. Kl. 15:40 Handknattleikur 3. fl. kvenna. Kl. 16:10 Lyftingar og Frjáls- iþróttir. Kl. 17:10 Knattspyrna 5. fl. karla. 17:30 Gaflarar. 17:50 Knattspyrna — Meistara- flokkur karla. 18:10 Knattspyrna. Kl. 18:30 Handknattleikur — Meistaraflokkur karla. Sérstök athygli er vakin á keppni I lyftingum, þar sem um er aö ræða fyrsta mótiö i þeirri iþróttagrein sem fer fram i Hafnarfiröi. Lírukóngarnir af stað A næsta ári veröur itölskum knattspyrnufélögum leyft aö fá til liðs viö sig erlenda knattspyrnu- menn, en bann hefur veriö viö slikum innflutningi i nokkur ár. Þar sem itölsku félögin hafa yfir digrum sjóöum aö ráöa hefur vestur-þýski landsliösþjálfarinn Jupp Derwall fariö fram á aö landsliösmenn hans fái langtima- samninga viö félög sin. Hann er hræddur um aö annars flykkist þeir til Italiu, i fangiö á lirukóng- unum. j Hraðaupphlaup | eru þeirra jsterkasta vopn I ■ I ■ I ■ I B I ■ I B I B I ■ I ■ I B I B I t blaðinu i gær sögöum viö stuttlega frá sænska handbolta- liðinu Heim, sem veröur mótherji Vikings i Evrópukeppninni i 1. umferö. Þar var getiö 2ja sigra liösins i keppnum nú i haust. Nú höfum viö fengiö enn gleggri upplýsingar um liö þetta og ber þeim öllum saman um aö Heim sé eitt af 3 bestu handboltaliöum Sviþjóöar i dag. Fyrrum formaður sænska handknattleikssambandsins hefur spáð Heim 2. sætinu i Alsvenskan (sænska 1. deildin) i vetur og sömu sögu er að segja um marga aðra aöila, sem sænska handknatt- leikstimaritið Handboll hefur leitað til, Heim er i 1.-3. sæti alls staðar. Heim hefur sigrað 5 sinnum i Alsvenskan, 1955, 1959, 1960, 1962 og 1976. Mikill uppgangur er nú hjá félaginu. Ráöinn var nýr þjálfari i fyrravetur, Stir „Julle” Johanson og hann hefur gert ótrúlegustu hluti með liðið. Eftir siöasta keppnistimabil töluöu sænsku blööin vart um annaö en „super-Heim” og spáöu þeim miklum frama á næstu árum. I liöi IK Heim er valinn maður i hverju rúmi, en einn stendur þar nokkuö uppúr. Það er markvöröurinn Claes Hellgren, sem talinn er einn fremsti markvöröur Svia i dag. Sóknarleiknum stjórnar Ingemar Anderson og þykir hann meö eindæmum út- sjónarsamur leikmaður. Helsta vopn Heim eru hraða- upphlaupin og beita þeir þvi vopni óspart. Þar hittir nú andskotinn ömmu sina, þvi islensku vikingarir hafa veriö þekktir fyrir annað en aö leika rólegan handbolta. I Einn besti leikmaöur IK Heim, Thomas Augustsson, sem einnig ' er fastamaöur I landsliöi Svia.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.