Þjóðviljinn - 08.11.1979, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 08.11.1979, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. nóvember 1979 PIOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis (Jtgefandi: Otgáfufélag ÞjóBviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann RiUtjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttaatjóri: Vilborg Haröardóttir Umajónarmaóur Sunnudagsblaðs: Ingólfur Margeirsson. Rekstrarstjóri: Olfar Þormóösson Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéðinsson Afgreióslustjóri: Valþór Hlööversson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón Friðriks- son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Jón Asgeir Sigurðsson Iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Jón Ólafsson Otlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Sœvar Guöbjörnsson Handiita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason Auglýsingar: Sigrlöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir. Afgreiösla: Einar Guöjónsson, Guðmundur Steinsson, Kristín Péturs- dóttir. Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlður Kristjónsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir Húsmóöir: Jóna Sigurðardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Otkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Slöumúla 6, Reykjavfk.slmi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf. Ránfuglinn skerpir klóna • ( ræðu Svavars Gestssonar á félagsfundi Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík vék hann að því að íhalds- f lokkarnir hefðu gef ið svo hástemmd loforð um að vinna bug á verðbólgunni að þeir væru að heita má dæmdir til þess að taka á þeim málum með hvaða ráðum sem er. Við þekkjum þau fIjótvirkustu: Allsherjarsamdráttur á öllum sviöum, niöurskurður á framlögum til félagslegra framkvæmda, niöurskuröur á launum og samdráttur I atvinnustarfsemi. • Forboði um þá allsherjarárás á lífskjörin sem í undirbúningi er hjá íhaldsf lokkunum eru einkar hrein- skilin ummæli Sverris Hermannssonar í blaðagrein: „Augljóslega veröur nú um i.ríð aö strengja klóna til hins ýtrasta.", segirSverrir.„Þaö veröur ekki gert án þess aö komi viö neinn. Þaö verður því aðeins gert aö þaö komi mikið viö alla. óþarfa eyðslu þarf aö uppræta. Bein- skera veröur niöur alla fjárfestingu svo braki í hverju tré". • Þegar ránfuglinn skerpir klóna f heyranda hljóði með þessum hætti er eðlilegt að Alþýðubandalagið leggi áherslu á markmið sem eiga að geta sameinað alla launamenn í baráttunni gegn íhaldinu í landinu. I áður- nefndri ræðu Svavars komu fram eftirfarandi níu áhersluatriði: • I fyrsta lagi leggur Alþýöubandalagiö áherslu á að varðveita og bæta þau lífskjör sem knúin hafa verið fram af verkalýðshreyfingunni og f lokki hennar á undarv förnum áratugum. • I ööru lagi vill Alþýöubandalagiö bæta félagslega þjónustu með því að flytja f jármuni frá þeim sem hafa rakað saman gróða og safnað eignum í óðaverðbólgu liðinna ára til þeirra f jölmörgu sem búa við ójöfnuð og kröpp kjör. • I þriðja lagi vill Alþýöublaöið tryggja hér menningarlegra þjóðfélag með vaxandi framlögum til samneyslu og menningarmála og með því að standa vörð um frelsi menntakerfisins gegn yfirvofandi ofsóknum hægri aflanna. • I f jóröa lagi leggur Alþýöubandalagiö áherslu á að breyta tekjuskiptingunni í þjóðfélaginu. Verðbólgu- kóngarnir eiga að borga baráttuna gegn verðbólgunni,en ekki láglaunafólk. • I fimmta lagi telur Alþýðubandalagið að heyja verði alhliða baráttu gegn verðbólgunni, tekjuskerðingar- og arðránsáhrifum hennar. Ekki síster sú barátta mikilvæg vegna þess að óðaverðbólgan er menningarf jandsamleg og treður manngildið í svaðið meðan peningagildinu er lyft á stall. • I sjötta lagi vill Alþýöubandalagið efla íslenskt atvinnulíf og tryggja framgang islenskrar atvinnu- stefnu. Islensku þjóðfrelsi er einmitt hætta búin nú/ þegar þær raddir gerast æ háværari að taka verði inn f landiðerlend stórfyrirtæki fremur en að ef la íslenskt at- vinnulíf. • I sjöunda lagi leggur Alþýöubandalagiö ríka áherslu áaðtekin verði upp virk f járfestingarstjórn sem hluti af samræmdum áætlunarbúskap, til þess að hafa hemil á vitlausri f járfestingu, peningaþenslu og öðrum þáttum efnahagsmála. Fækkun banka, vátryggingarfélaga, olíufélaga og heildsala er meðal þess sem vinna verður skipulega að til þess að draga úr kostnaði við yfirbygginguna í samfélaginu. • I áttunda lagi leggur Alþýöubandalagiö til að mótuð verði til langs tfma íslensk orkustefna sem miði að því að tryggja landsmönnum innlent eldsneyti og sjálfstæði í orkumálum andspænis orkukreppunni sem gengur yf ir. • I níunda lagi mun Alþýöubandalagiö freista þess að skapa víðtæka þjóðarsamstöðu um að gerð verði áætlun um brottför hersins og úrsögn úr NATÓ. • Þessari stefnu teflir Alþýðubandalagið fram gegn yfirlýsingum Sjálfstæðisflokksins um að nú skerpi ránfuglinn klóna og ætli sér að koma verulega við hag allra, einnig þeirra lægst launuðu, aldraðra og öryrkja. Ætlun Sjálfstæðisflokksins er jafnframt að skera alla f járfestingu í landinu niður í bein. Eins og fram kemur í yfirlýsingu kommisars Framkvæmdastofnunar er það ætlun Sjálfstæðisflokksins að nota ríkisbáknið og embættismannakerfiðtil þess að knýja fram ný málalok í íslenski þjóðfélagsbaráttu. Alþýöubandaiagiö eitt getur sameinaö launamenn til baráttu gegn þessari íhalds- stefnu. — ekh. Stúdentar og ! ríkisstjórnir Þvl hefur mikiö veriö haldiö á _ lofti I hægriblööum aö vinstri- | stjórn hafi annaöhvort ekkert ■ gert eöa illt eitt — og á þetta líka I viö um menntamál. 1 nýút- J komnum Neista er nýr formaö- ■ ur stúdentaráös, Þorgeir Páls- I son, spuröur einmitt um þetta: 5 „Hefur fall „vinstri stjórnar- I innar” einhver áhrif á fram- ■ gang hagsmunamála stúdenta, I hvab um lánamálin?” * Þorgeir svarar: „Jú, þaö setur eflaust strik I I reikninginn. Tiltölulega hag- ! stætt námslánafrumvarp, sem | samiö var s.l. vetur, átti aö ■ leggja fram um leiö og þing | kæmi saman og ætluöu náms- , menn aö fylgja þvi fast eftir. Nú ■ er þaö hins vegar svo gott sem I komiö I ruslakörfuna þvl eins og J horfur eru núna þá má ekki | beint búast viö þvl aö næsta ■ rlkisstjórn veröi neitt áfjáö I aö I taka þaö upp, þaö kostar jú út- , gjöld. En hér er um þaö stórt ■ hagsmunamál aö ræöa aö I námsmenn munu ekki gefast Z upp þó svo aö einhver stjórn | falli, aö vlsu veröa möguleik- ■ arnir minni.” R.............. Vinstristúdentar eru manna óllklegastir til aö fara meö lof um stjórnir eöa einstaka ráö- herra, Ragnar Arnalds ekki heldur — þeim mun ánægju- legra er aö sjá talsmenn þeirra sneiöa hjá þeirri hættu, aö neita — i nafni gagnrýninnar sem alltaf er vökul — aö gera greinarmun á pólitlskum öflum I landinu og athöfnum þeirra. Hœgri sveifla? Þorgeir Pálsson er einnig spuröur um svonefnda hægri sveiflu. Hann segir sem svo, aö vissulega gangi bæöi félagsleg deyfö yfir skólana og viss hægrisveifla — en samt hafi hún ekki náö inn I Háskólann enn. Fylgi vinstri manna hefur veriö nokkuö traust I þau sjö ár sem þeir hafa fariö þar meö meiri- hluta. Um Háskólann segir Þorgeir: „Þar eru menn dæmd- ir af verkunum og þar er þvl ekkert aö óttast i bili”. Eiturormar Sjónvarpsþættirnir „Véla- brögö I Washington” hafa vakiö mikla athygli, enda eru þeir fagmannlega geröir. Ýmsa galla má llka á þeim finna. Morgunblaðiö hefur bersýnilega haft nokkrar áhyggjur af þvl, aö þættirnir gæfu dapurlega mynd af bandarisku stjórnmálallfi, sem hefur I vaxandi mæli oröiö einskonar fyrirmynd Islenskum prófkjörsköppum. Eöa eins og vikuritiö Newsweek sagöi um þætti þessa, sem þræða all ýtar- lega stjórnartlö Nixons og hans kumpána: „Lýsingar á þvl sem gerðist I skrifstofu forsetans jöfnuöust á viö þaö aö fylgjast meö fundi æösta ráös yfirmanna Maflunn- ar. Þaö sagöi aö þaö sem kæmi fram I dagsljósiö væri siöferöi- I legur ruslahaugur, þar sem allt væri morandi I eiturormum og nöðrum.” Söm var þín gerðin Blaðinu finnst sem meira en nóg sé aö gert. Þaö hefur fundiö langa grein sem þaö birtir I gær til aö draga úr álitshnekki sem bandarlskt stjórnmálallf veröur fyrir I sllkum myndaflokki. Þar er geröur samanburöur á kvik- mynd og raunveruleikasem allur er I þá veru, aö kvikmýnda- menn hafi heldur hnykkt á og logiö sumu til. Margar þær staö- hæfingar eru þess eölis aö erfitt veröur aö sannprófa. Til dæmis segir aö sé enga „sönnun aö finna fyrir þvl aö John F. Kennedy hafi nokkru sinni fyr- irskipaö pólitlskt morö erlendis eins og haldið er fram I þætt- inum”. Þaö má vera aö ekki sé unnt aö sanna sllkt einmitt á Kennedy (eöa hliöstæöu hans I þáttunum). En þarna er þess aö gæta, aö þaö er heldur ekki „lygi” aö setja þetta mál inn I þessa leiknu mynd. CIA hefur I raun og veru fengist viö aö koma þjóöhöföingum sem Bandarlkjunum voru ekki aö skapi út úr heiminum. Meö mis- jöfnum árangri þó. Söm var þln geröin, sagöi kerlingin. — áb Ný imðnefnd Samtaka herstöðvaandstæðinga hefur störf Herstöðvaandstæð- ingar hafa kosið sér nýj- an formann, auk gjald- kera og ritara. Nýskipuð miðnefnd Samtaka her- stöðvaandstæðinga, sem kosin var á iandsráð- stefnunni um siðustu helgi, valdi á fyrsta fundi sl. þriðjudags- kvöld þrjá menn úr sin- um hópi i þessi embætti. Formaður veröur Sveinn Rúnar Hauksson læknir, gjaldkeri Jón Asgeir Sigurösson blaöamaöur og ritari Einar ólafsson skáld. Á fundi miönefndar Samtaka her- stöðvaandstæöinga var ákveöiö aö gangast fyrir kappræöufund- um um herstöövamáliö meö hlið- sjón af alþingiskosningunum I desemberbyrjun. Einnig veröa öllum flokkum sem bjóöa fram, sendar spurningar varöandi af- stööu til herstöövanna og NATO. Samtök herstöövaandstæöinga hyggjast á næstunni hefja öflugt starf I verkalýöshreyfingunni og mebal námsfólks. Verbur I þvi skyni efnt til leshringja, haldnir kappræöu- og kynningarfundir og gefnir út upplýsingabæklingar. Miönefnd Samtaka herstööva- andstæöinga skipa 12 aöalmenn og 12 varamenn. Skrifstofa sam- takanna er aö Tryggvagötu 10 I Reykjavik, hún er opin virka daga klukkan 4 til 6 eftir hádegi, og slminn er 17966. Sveinn Rúnar Hauksson, formaö- ur Samtaka herstöövaandstæö- inga.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.