Þjóðviljinn - 24.11.1979, Side 5
Laugardagur 24. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Þaö var hatur mitt á fasismanum
sem geröi mig aö njósnara fyrir
So vétrikin, sagöi Anthony Blunt á
blaöamannafundi sem hann hélt
nvlega.
Ég lét hrifast af þvi andriimsiofti
sem rikti i Cambridge-háskólan-
um á fjóröa áratugnum. Siöan
var þaöskyiduræknin sem olli þvi
aö ég hélt áfram.
Eftir 1945 hætti ég aö senda Rtíss-
um upplýsingar. Þá var ég beöinn
um aö fara til Sovétrikjanna, en
ég neitaöi.
Ariö 1945 sneri ég mér aftur aö
visindastörfum og sama ár verö
ég yfirmaöur fyrir listasafn
konungsins.
Njósnir, vextir og lýðrœði
Margrét Thatcher forsætisráö-
herra Bretiands „afhjápaöi” ný-
lega breska aöalsmanninn og list-
fræöinginn sir Anthony Blunt sem
njósnara So vétrikjanna . Hann
haföi fyrir heimsstyrjöldina siö-
ari svipast um eftir efnilegum
ungum mönnum I háskólanum
þar sem hann kenndi og ráöiö þá i
þjónustu Sovétrikjanna. Allir
njósnuöu þeir svo á striösárunum
og fram á sjötta áratuginn, þegar
allt komst upp. Böndin bárust
einnig aö Blunt, en þaö var ekki
fyrr en áriö 1964 aö hann játaöi
gegn þvf aö veröa ekki saksóttur.
Af ýmsum ástæöum þykir þetta
mál hið merkilegasta enda sam-
einar þaö allt sem breskir rit-
stjórar telja efni i striösleturs-
fréttir: njósnir, kynvillu og
bresku hiröina. Vart er hægt aö
hugsa sér meira spennandi mál
fyrir breska blaöalesendur. Svo
veita lika s ögur af n jósnahneyksl-
inu mikla sem Burgess, MacLean
og Philby áttu þátt i, auk sir
Anthony Blunt, breskri alþýöu
upplyftingu i drungalegu skamm-
degi bresks þjóölifs.
En þaö eru tveir fletir á þessu
máli sem verter aö velta yfir sér:
Margrét Thatcher segir aö öllum
forsætisráöherrum sem fóru á
undan henni eftir 1964, hafi veriö
kunnugt um játningu sir Anthony
Blunt. Hversvegna þögöu þeir, og
þaö sem er athyglisveröara —
hversvegna sagöi Margrét
Thatcher frá öllu, einmitt ntína?
Hin spurningin varðar leyndar-
reglur og opinn aögang aö upp-
lýsingum stjórnvalda og veröur
fjallaö um hana I slöari hlutá
þessara skrifa.
Vextir og njósnir
Fyrir tveim dögum hækkuöu
vextir af húsbyggingalánum i
Bretlandi úr 11,75 prósentum í 15
prósent. Englandsbanki haföi
hækkaö lágmarksvexti I 17
prósent, en vegna þess hve marg-
ir Bretar þurfa aö reiöa sig á hús-
byggingalán,kemur hin gifurlega
hækkun vaxta af þeim niöur á
miljónum manna. Til aö bæta
gráu ofan á svart, spáöi breska
fjármálaráðuneytiö i vikunni aö
þjóöarframleiöslan muni dragast
saman á næsta ári og aö verö-
bólgan muni veröa 14 prósent, en
hún var 17,2 prósent i október s.l.
I lesendabréfi i breska dagblaö-
inu Teh Guardians.l. mánudag er
fjallaöum „afhjúpun” Margrétar
Thatcher á njósnaranum Blunt,
og vaxtahækkun Englandsbanka.
Lesandinn spyr hvorum veröi
munaö eftir, Margréti Thatcher
eöa breska fjármálaráöherran-
um sir Geoffrey Howes, sem af-
hjúpaöi vaxtahækkunaráformin.
Lesandinn kemst aö þeirri niöur-
stööu aö þegar upp veröi staöiö,
muni fjármálaráöherrann skráö-
ur á spjöld sögunnar sem besti
vinur hinnar marxísku öreiga-
byltingar.
Efnahgsstefna bresku rikis-
stjórnarinnar, sem hefur banda-
riska hagf ræöinginn Milton
Friedman fyrir æösta postula,
leiðir augsýnilega til kreppu-
ástands. Sumir spá þvi aö efna-
hagshruniö I Þýskalandi á þriöja
áratugnum og sú þróun sem nú á
sér staö í Bretlandi séu um margt
keimlik fyrirbæri.
Engu minni spámaöur en
Wílliam Keagan, sérfræðingur
breska dagblaösins The
Observer, segir s.l. sunnudag aö
breska rikisstjórnin hafi visvit-
andi sagt frá Blunt-málinu og
vaxtahækkuninni á sama tima.
Njósnarinn haföi legiö i dvala i 15
ár, og hann var skyndilega ræstur
fram á sjónarsviöiö, til þess aö
leiöa athyglina frá efnahagslegri
matröö landsins, segir William
Keagan.
Ekki er þetta ótrúleg kenning
hjá Keagan.en þótthann kunni aö
hafa rétt fyrir sér, segja viöbrögö
breskra fjölmiðla og þingflokka
einnig ýmislegt. Þessir aöilar
kasta öllu frá sér og sökkva sér i
njósnamál, sem i raun og veru
var búiö og afgreitt fyrir a.m.k.
15 árum.
Upplýsingar og lýðræði
Viövikjandi Blunt-málinu eru
hvorki efnahagsmálin né sniöug-
heit Thatcher-stjórnarinnar
meinatriöi. Skriöan fór nefnilega
af staö i byrjun nóvembermánaö-
ar, þegar út kom bókin „The
Climateof Treason” eftir Andrew
Boyle. Þar segir hann frá þeim
„anda landráöa” sem sveif yfir
vinstrisinnuöum háskólaborgur-
um á fjóröa áratugnum. Boyle
upplýsir einnig aö i bandariskum
njósnaskjölum hafi hann fundiö
nafniö á ,,f jóröa manninum” eins
og Blunt var nefndur þegar mest
var rætt um áöurnefnt njósna-
hneyksli á sjötta áratugnum.
skýring
Reyndar nefnir Boyle ekki nafn
Blunt, til þess aö komast hjá
málaferlum.
Kjarni málsins er sá, aö þaö
heföi aldrei veriö ljóstraö upp um
Blunt, ef fruinvarp þaö um birt-
ingu leyndarskjala sem breska
rikisstjórninhefur lagt fyrir þing-
iö, væri oröiö aö lögum. I saman-
buröi viö öll önnur
Vestur-Evrópuriki fer i Bretlandi
fram mjög ströng ritskoðun á
fréttum sem taliö er aö gætu
skaöaö hagsmuni landsins. Þeir
sem fylgjast meö skrifum
breskradagblaöa, vita aö þau eru
svo til dauöhreinsuö af öllum frá-
sögum um hneyksli sem varöa
opinber stjórnvöld, og sérstak-
lega bresku leyniþjónustuna.
I nafni frelsis komust breskir
ihaldsmenn i rikisstjórn i vor. Nú
ætlar þessi rikisstjórn aö stór-
auka þau höft, sem þegar eru á
frjálsu upplýsingastreymi. 1
áöurnefndu frumvarpi veröur
m.a. ákvæöi um að þaö sé með
afturvirkandi gildi hægt aö gera
skjöl og upplýsingar aö rikis-
leyndarmálum.
Hinn þekkti njósnasöguhöfund-
ur John le Carre lætur lesendum
sinum skiljast aö allar leyndar-
reglur og ritskoöun þjóni fyrst og
fremst þeim tilgangi aö vernda
rikisstjórnir gegn opinberri um-
ræöu og vel upplýstri stjórnar-
andstööu. Hann segir aö leyni-
ráakkiö ráöist aöallega af þessum
tilgangi en vernd gegn forvitni
annarra rikja sé þessum rikis-
stjórnum slöur mikilvæg.
Leyndarmálafrumvarp bresku
rikisstjórnarinnar stefnir einmitt
1 þessa átt.
Þar afhjúpar breska Ihalds-
stjórnin yfirgengilega vantrú á
lýöræöinu.
— jás
BARÁTTUFUNDUR
Alþýðubandalagsins í Reykjavík í Káskólabíói fimmtudagskvöld 29. nóv. kl. 21.00
islenski blásarakvintettinn.
Mezzoforte
Stutt ávörp flytja:
„Erindi” ljóð eftir Þórarin Eldjárn:
tslenski blásarakvintettinn leikur:
Hauströkkrið yfir mér:
Hljómsveitin MEZZOFORTE
og EllenKristjánsdóttir:
Hljómsveitina skipa:
Kjartan Ragnarsson:
Alvörumál þjóðarinnar:
Lúðrasveit verkalýðsins:
Fundarstjóri:
Svavar Gestsson
Guömundur J. Guömundsson
ólafur Ragnar Grimsson
Guörún Helgadóttir
Guörún Hallgrimsdóttir
Siguröur Magnússon
Erlingur Gislason leikari ies,
tónllstarfvaf eftir Kari Sighvatsson.
Siguröur Ingvi Snorrason, klarinett
Manuela Wiesler, flauta
Kristján Þ. Stcphensen, óbó
Stefán Þ. Stephensen, horn
Hafsteinn Guömundsson, fagott
óskar Halldórsson les nýort Ijóö
Snorra Hjartarsonar.
syngja og leika ný lög eftir
Magnús Eiriksson, Gunnar Þóröarson,
Eyþór Gunnarsson og Friö rik Karisson.
Friörik Kárisson, Eyþór Gunnarsson,
Jóhann Asmundsson, Gunnlaugur Briem
og Björn Thorarensen.
syngur eigin lög og Ijóö.
Lelkararnir Guörún Asmundsdóttir,
Hjalti Rögnvaldsson, Karl Guömundsson og
Þórhallur Sigurösson fiytja
ieikur undir stjórn Ellerts Karlssonar
Jón 'Múli Arnason.
Svavar
Guömundur J. Guörún
Guörún Hall, Siguröur