Þjóðviljinn - 24.11.1979, Blaðsíða 13
Laugardagur 24. nóvember 1979 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 13
Sigurður A. Magnússon
Arni Bergmann
Mál og menning:
Bókmenntakynning
í Norræna
A morgun sunnudag, kl. 4. e.h.
efnir Mál og menning til bók-
menntakynningar i Norræna hús-
inu og verður þar lesið úr nýút-
komnum bókum.
Sigurður A. Magnilsson les úr
bók sinni Undir kalstjörnu, Arni
Bergmann úr Miðvikudögum i
Moskvu, Þorgeir Þorgeirsson úr
þýðingu sinni á t morgunkulinu
eftir William Heinesen og Andrés
Orgeltón-
leikar í
Kristskirkju
t dag kl. 17.30 heldur tónskáldið
Harold Clayton orgeltónleika i
Kristskirkju, Landakoti.
Harold Clayton hefur fjórum
sinnum áður leikið af fingrum
fram fyrir landann sitt sérstæða
afbrigði af nútimatónlist með sl-
gildu Ivafi. Hann hefur áður hald-
iö tónleika I Norræna húsinu, Fé-
lagsstofnun stúdenta og I ýmsum
tónlistarskólum.
Orgeltónleikar sem þessir eru I
hæsta máta óvenjulegt fyrirbæri,
og eru menningarsveltir lands-
menn hvattir til að koma, hlusta
og leggja frá sér gleraugun.
húsinu
Indriðason úr verðlaunabókinni
Lykiabarn. Ennfremur verður
lesið úr ljóðabókinni Hauströkkr-
ið yfir mér eftir Snorra Hjartar-
son, Fyrir sunnanþriðju bók end-
urminninga Tryggva Emilsson-
ar, og Næstsiöasta dag ársins,
skáldsögu Normu E. Samúels-
dóttur.
öllum er heimill aðgangur.
Aögangseyrir er kr. 1.500.-, og
eru miðar seldir við innganginn.
Jólasveinar í
Leikbrúðulandi
Jólaleikrit Leikbrúðulands,
„Jólasveinar einn og átta” verð-
ur sýnt á morgun kl. 3 að Fri-
kirkjuvegi 11. Þetta er fimmta
árið I röð, sem Leikbrúöuland
sýnir þetta vinsæla leikrit.
„Jólasveinar einn og átta” er
byggt á kvæði Jóhannesar úr
Kötlum, og var upphaflega samið
fyrir leikferö til Bandarikjanna
fyrir fimm árum. Siðan hafa jóla-
sveinarnir gert vlðreist bæði inn-
an lands og utan, fyrst fóru þeir
tvisvar til Bandarikjanna, siðan
til Luxemburgar og þar að auki
hafa þeir komið viða fram.i ná-
grenni Reykjavikur.
Jón Hjartarson samdi leikritiö
og sá um leikstjórn. Ýmsir þekkt-
ir leikarar hafa léö þeim raddir
sinar. Tveir ungir tónlistarmenn
þeir Siguröli Geirsson og Freyr
Sigurjónsson sáu um útsetningu
og flutning á tónlist. Brúöur eru
géröar i Leikbrúðulandi.
Sýningar verða fjórar að þessu
sinni, kl. 3 á sunnudögum til jóla.
Miðasalan að Frikirkjuvegi 11 er
opnuð kl. 1 sýningardagana og
svarað i sima Æskulýðsráðs,
15937, á sama tima.
I vetur hefur Leikbrúðuland
sýnt rússneska brúöuleikritið
Gauksklukkuna, og verður það
tekið til sýninga á ný eftir ára-
mótin, en I vor er ætlunin að sýna
nýtt brúðuleikrit.
Verð aðgöngumiöa i Leikbrúðu-
landi er nú kr. 1500.-
Vökustaurar
þinga um öryggi
Ráðstefna um öryggismál
verður haldin I dag á vegum
Vökufélags lýöræðissinnaöra stú-
denta, og hefst hún kl. 10 f.h.. A
ráöstefnu þessari verður rætt um
Helsinkisáttmálann, aðdraganda
hans og efndir og þátt Norður-
landanna i varöveislu friöar I
Evrópu. Frummælendur á ráö-
stefnu þessari verða Ragnhildur
Helgadóttir, sem mun ræða um
samstarf Norðurlandanna á sviöi
öryggismála Björn Bjarnason,
sem mun fjalla um hlutverk
Norðurlandanna I varðveislu friö-
ar I Evrópun og Ólafur Egilsson,
sem hann mun ræða um aödrag-
anda og efndir Helsinkisáttmál-
ans.
A ráöstefnunni verða tiu er-
lendir gestir frá öllum Noröur-
löndunum. Þeir eru fulltrúar
NKSU, en þaö eru samtök lýöræö-
issinnaöra stúdenta á Noröur-
löndum og er Vaka aöili að þeim
samtökum.
Ráðstefnan verður haldin I
stofu 308, Lögbergi, Háskóla ts-
lands.
(Fréttatilky nning).
FÍB fundur með
stjórnmálamönnum:
Stefnan I
vegamálum
Almennur fundur bifreiðaeig-
enda með fulltrúum stjórnmáia-
flokkanna veröur haldinn að Hót-
el Borg, laugardaginn 24. nóv.
n.k. kl. 14.00., en þar mun verða
gerögrein fyrir stefnu flokkanna I
vegamálum og skattamálum um-
feröarinnar.
Tekjur rikisins af umferðinni
árið 1978 voru tæpir 32 miljarðar,
en einungis 9.3 miljaröar af þeirri
upphæö voru notaðir til vega-
mála, þannig aö 22.5 miljarðar
hafa veriö notaðir i annað en
vegaframkvæmdir, segir I frétta-
tilk. frá FtB.
Bent er á, aö nú fær rfkissjóöur
kr. 196.20 af veröi hvers bensin-
litra er bifreiöaeigendur kaupa.
Alögur rikisins eru sjálfvirkar,
þannig að hver sú hækkun sem
veröur á bensini frá Sovét getur
orðið þreföld úr dælu á Islandi.
framhald á bls. 17
Sigurður
Örn
og
Bragi í
Norræna
húsinu:
Sigurður örn við mynd slna „Opnun sýninga I noröur- og suðursal”.
Ljósm. Jón.
Bragi Asgeirsson við mynd slna „Húsmóðir”. Ljósm. Jón.
Möppudýrin, börnin og ástin ....
t kjallara Norræna hússins
sýna um þessar mundir
myndlistarmennirnir Bragi
Asgeirsson og Sigurður örn
Brynjólfsson myndverk sfn. t
raun eru þetta tvær sjálfstæöar
sýningar og segja þeir félagar að
samsýning þeirra hafi komið til
fyrir einstaka tilviijun — „likt og
fljótandi á f jöl”, en þó ýja þeir að
þvi aö forlögin hafi ráöið hér
nokkru um.
Myndlistþeirra félaga og tækni
er eins ólik og hugsanlegt er.
Sigurður örn Brynjólfsson sýnir
nú I fyrsta sinn safn mynda sinna,
en hann hefur tekiö þátt I
samsýningum heima og erlendis,
og hlaut m.a. 7. verölaun á heims
sýningu teiknara „Cartoon ’77”
en þar sýndu 647 teiknarar frá 52
löndum. Sigurður er fæddur 1947 i
Reykjavik og stundaöi nám i aug-
lýsingadeild Myndlista- og hand-
(ðaskóla Islands 1964—1968. Hann
hlaut hollenskan námsstyrk og
stundaði frjálst listnám i
Rotterdam 1969-,70 en hefur siðan
unnið á auglýsingastofum og
sjálfstætt sem auglýsingateikn-
ari. Sigurður hefur vakið athygli
fyrir hnittnar skopteikningar og
myndasaga hans um Bisa og
Krimma sem birtist á sinum tima
ásiðum Dagblaðsins er vel kunn.
A sýningunni i Norræna húsinu
eru nokkrar myndir frá skólaár-
um Siguröar, en fiestar eru
myndirnar gerðar á þessu ári.
Hann á 70 myndir á sýningunni og
er meðal þeirra að finna seríu um
klerka, sem berheitið „Prestarn-
ir gera það lika”. Þá gefur þar
einnig að lita möppudýrin frægu,
sem Sigurður hefur teiknað i
eiturgrænum lit á leiö til vinnu
sinnar hjá kerfisköllunum. Hver
mynd er full af ótal smáatriöum
sem maður verður aö gefa sér
góðan tima til að melta, en þeir
sem hafa gaman af teiknimynd-
um og kýminni þjóöfélagsádeilu
munu eflaust skemmta sér kon-
unglega yfir húmor Siguröar og
ekki siður dást að leikni hans meö
pennann.
Braga Asgeirsson er óþarft að
kynna enda hefurhann haldiö ótal
sýningar á verkum sinum og hlot-
ið viðurkenningu hér heima og
erlendis fyrir myndlist sina.
Bragi hóf nám i Myndlista- og
handiöaskóla tslands árið sem
Sigurður Orn er fæddur, og var
fyrsú kennari hans þegar hann
siöar hóf nám við sama skóla og
er hér kominn forlagaþátturinn
fyrrnefndi. Bragi tileinkar sina
sýningu barnaárinu og hefur
hann gert sérstaka myndröð
helgaða börnum og leikjum
þeirra. Þar gefur m.a. að lita
fjölda litrikra fiðrilda, sem steypt
eru I plast, en vinnuaðferðinni
hefur maður m.a. kynnst i aug-
lýsingum sjónvarpsins um
Grundig litsjónvarpstæki. Að
venju eru þessar nýju myndir
Braga e.k. relief og blandast I
myndinni brúkshlutir, ljósmyndir
og málverk. En á sýningunni er
einnig safn eldri mynda, allt frá
sjötta áratugnum, sem Bragi hef-
ur gert um „mannlifiö — ástina
ogbörnin”,en þaö erueinkunnar-
orð þessarar sýningar hans.
Ótindur blaöamaöur hafði
gaman af þessum gömlu mynd-
um sem hann hefur ekki séð áður
sem vonlegt er.
Sýning þeirra félaga stendur til
kosninga og er opin frá kl. 14—22
alla daga.
— AI