Þjóðviljinn - 24.11.1979, Side 17
Laugardagur 24. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
Kapprætt
Framhald af bls. 6
áttan væri hluti af stéttabar-
áttunni, þar sem það hefði úti-
lokað konur úr öðrum flokkum
frá starfi innan hreyfingar-
innar. Hún taldi að róttækar
konur hefðu nóg að gera innan
flokkanna. 1 ræðu sinni itrekaði
hún skoðanir þær á Rauðsokka-
hreyfingunni sem fram komu i
grein sem birtist i siöustu viku á
siðum Þjóðviljans.
Næst á eftir henni kom
Guðrún Hallgrimsdóttir og bar
fundinum kveðju frá nöfnu sinni
Helgadóttur sem ekki komst á
fundinn. Siðan svaraði hún ræðu
Birnu Þórðardóttur og sagði að
hún hefði átt að sýna i verki að
hún berðist fyrir jafnrétti. Siðan
fjallaði Guðrún um að það væri
engu likara en að öll kvenna-
barátta væri þvi marki brennd
að það sé unnið eins og ekkert
hafi gerst sem hofri i framfara-
átt. Vék hún að stórmerku starfi
sem Svava Jakobsdóttir hafði
unnið á þingi, máli sinu til
stuðnings, en bætti þvi við að
Rauðsokkahreyfingin hafi ekk-
ert verið betri með þetta þegar
hún fór i gang 1970, og Guðrún
var virk i hreyfingunni. Þvi þá
vildi gleymast það braut-
ryðjendastarf sem konur á borð
við Margréti Sigurðardóttur
höfðu þegar unnið. Guðrun lagði
áherslu á að konur þyrftu að
beita sér á þingi sem utan þess,
þær þyrftu bæði að þrýsta á
framkvæmdir og vera i aðstöðu
til þess að framkvæma.
Hvað er
framundan?
A eftir Guðrúnu komu þrjár
framsóknarkonur i ræðustólinn
og þæfðu spurningu Hildar
Jónsdótturum afstöðu gagnvart
mati á störfum bændakvenna.
Kom litið athyglisvert fram i
þeirra ræðum nema þá helst að
Þrúður Helgadóttirlýsti þvi yfir
að hún hefði ekki gengið i
Rauðsokkahreyfinguna vegna
þess, að þá hefði hún fengið á sig
kommúnistastimpil!
Næst kom Guðrún Kristins-
dóttir og svaraöi framkomnum
ræðum og spurði Guðrúnu
Hallgrimsdóttur um það hvað
væri framundan. Skoraði hún
siðan á frambjóðendur sem
væru nærstaddir að svara þvi
hvað þær hygðust gera til þess
að berjast fyrir jafnrétti innan
sinna flokka. Þær gætu svarað
þessari spurningu á opinberum
vettvangi.
Hér hefur verið stiklað á
stóru. Margt fleira athyglisvert
kom fram á fundinum, og fleiri
tóku til máls en hér hefur verið
sagt frá. Sökum plássleysis á
siðunni verður þetta að nægja.
Fundurinn var að flestra mati
hinn gagnlegasti, enda margar
skoðanir viðraðar.
—eg
Halldór P,
Framhald af bls. 16
og hefja þar fiskirækt. Það
mundi ekki siður koma til góða
en hömlur á veiði. Þetta má
bara ekki dragast úr hömlu.
Einnig þyrfti að fækka sel og
bjargfugli, sem er stór
skaðvaldur i fiski og uppeldi
hans. Við verðum að hjálpa
náttúrunni á öllum sviðum,
gjalda henni það,sem hún gefur
okkur. Lífið á ekki að vera
svindl. Það er hægt að beita þvi
á ýmsum sviðum, en enginn
þarf að hugsa sér að snúa á
tilveruna. Það munu menn
sannfærast um þegar til
annarra hnatta kemur. Og
kannski er eitthvaö til f þvi, að
seint sé að iðrast eftir dauðann?
Halldór Pétursson.
húsbyggjcndur
ylurinn er
" göóur
Atgreiðum einangrunarplast a
Stor-Reykjavikursvsðið Ira
manudegi —— fostudags
Afhendum voruna á byggingarstað,
viðskiptamonnum að kostnaðai
lausu. Hagkvæmt verð og
gieiðsluskilmálar
við flestra hæfi.
Borgarplaú M
Bors»meu “"■» J 7170
Akureyri:
Vetrarstarf her-
stöð vaandstæðinga
Herstöðvaandstæðingar á
Akureyri hyggjast nU hefja
vetrarstarfsemi sina af fullum
krafti.
Fyrsti fundur vetrarins verður
haldinn þriðjudaginn 27. nóvem-
ber kl. 8 i húsi verklýðsfélagsins
Einingar, Þingvallastræti 14. A
fundinum verður kosið I stjórn
Akureyrardeildar SHA og
vetrarstarfið rætt. Einnig er
ætlunin að útbúa á fundinum
spurningar sem lagðar veröa
fyrir frambjóðendur á framboðs-
fundi i Borgarbió 29. nóvember.
Sagðar verða fréttir frá Lands-
ráðstefnunni og eitthvert
skemmtiefni verður á boðstólum.
Helstu verkefni vetrarins verða
fnAf lll f linHíl’ í f OTV fj C1 -
um við leshring sem Samtök her-
stöðvaandstæðinga ætla aö gang-
ast fyrir og einnig er stefnt að
baráttufundi 30. mars n.k.
Fundurinn er öllum opinn og
eru allir þeir sem vilja ljá mál-
Staðnum lið hvattir til að mæta,
hvar svo sem i flokki þeir kunna
að standa.
Kjaramál
Framhald af bls. 9
flokkurinn myndi stuðja okkur,
en það hefur reyndar komið fram
nú i kosningaumræðunum að
Framsóknarflokkurinn hefur
engan áhuga á að koma hernum
burt. Það hefur aldrei verið
brýnna en einmitt nú að hefja
öfluga baráttu gegn þessu vig-
hreiðri á Keflavikurflugvelli og
Alþýðubandalagið getur ekki
farið i rikisstjórn nema þetta mál
verði sett á oddinn strax i
upphafi” sagði Svavar.
Ýmis fleiri mál voru rædd þar
til skólabjallan kallaði kennarana
inn i skólastofurnar.
Að lokum sagði Svavar:
,,Við verðum að sameina fólk
gegn kjaraskerðingarstefnu
Sjálfstæðisflokksins. Og aðeins
Alþýðubandalagið er það afl sem
launamenn geta treyst.
ÞS
Stefna
Framhald af bls.13
Þvi sé timabært aö tolla bensin
eins og dieseloliu eða með magn-
tolli. Hækkun bensinverös frá
áramótum er 95.03% en hækkun á
meðaltimakaupi iðnverkamanns
er 28.75%.
FÍB lýsir furðu sinni á þeim
vinnubrögðum, að núverandi rik-
isstjórn ætli að skera niður fram-
lög til vegamála um 2.5 miljaröa
á næsta ári, sem þýði 57% niöur-
skurð á nýbyggingum vega, og
telur bestu leiðina til jafnvægis i
byggð landsins góða vegi, en á
þeim byggi heilu héruðin afkomu
sina og aðdrætti.
Raunveruleiki
Framhald af bls. 3
an Gunnarsson fyrrverandi for-
maður Heimdallar og miðstjórn-
armaður I Sjálfstæðisflokknum.
Hann mætti á fundinn i Osló og
sendi Morgunblaðinu frétt af hon-
um, en sumt af þvi sem hann seg-
ir I sinni frétt er af viðræðunum
sem áttu sér stað I heimahúsi eft-
ir fundinn.
Mannréttindamál
— Var ekki minnst á kjörskrár-
deilumál SÍNE og Alþýðubanda-
lagsins á fundunum?
— Þaökom aðeins upp i Osló.og
ég held að mér hafi tekist aö eyöa
þeim misskilningi að Alþýðu-
bandalagið kærði einungis ein-
hverja valda menn inn á kjör-
skrá. Kjarni málsins er sá, að það
er mannréttindaatriði fyrir I
námsmenn erlendis, að tryggt sé |
að þeir séu á kjörskrá og geti i
þannig notaö sér kosningarétt
sinn.
— Hvað viltu segja um fréttir
Morgunbiaðsins af fundinum i
Osló?
— Ég hef litiö um hana að
segja, nema það, aö I þeim felast
ákveðnar rangtúlkanir sem mað-
ur nennir ekki að elta ólar við.
Það er svo út af fyrir sig töluvert
merkileg pólitík hjá Mogganum,
að annan daginn heldur blaðið þvi
fram að i Alþýðubandalaginu séu
eintómir rauðliðar eða Moskvu-
agentar, en hinn daginn að I-
halds- eða hægriöfl séu þar alls-
ráðandi, hvað svo sem átt er við
með þvi. Varðandi það sem
Morgunblaðið hefur eftir mér um
Framsóknarmenn i Alþýðu-
bandalaginu, þá hefur það við rök
að styðjast að þvi leyti til, að
stjórnmálaþróunin á undanförn-
um árum hefur valdiö þvi aö æ
fleiri félagshyggjumenn og her-
stöðvaandstæöingar, sem verið
hafa i Framsóknarflokknum,
hafa komist að raun um aö sá
flokkur er ekki liklegur til neinna
afreka á þeim vegum og hafa þvi
réttilega gengið til liös við Al-
þýðubandalagiö.
— Hver er svo helsti árangur af
þessum fundum?
— Ég held að árangur ferðar-
innar sé fyrst og fremst i þvi fólg-
inn, að á þessum fundum komu
fram ýmsar upplýsingar sem
námsmenn erlendis hafa þurft á
að halda, og ekki siöur að þarna
gafst tækifæri fyrir róttæk öfl aö
ræöa þau mikilvægu mál, hvernig
menn gætu best stuðlað að fram-
gangi sinna hugsjóna og pólitlsku
viöhorfa og staöiö gegn framrás
borgaraaflanna á íslandi.
— eös
Rætt við Svavar
Framhald af bls. 1
Hokksins, enda er þaö eina leiðin
til þess að sporna gegn þeirri
valdatöku afturhaldsins i landinu
sem ella eryfirvofandi. Skrifstofa
okkar hér i Reykjavik að Skip-
holti 7, svo og að Grettisgötu 3,
hafa nægileg verkefni að vinna að
og alltaf er þörf fyrir sjálfboða-
liða til starfa. Kosningarnar eru
nú á erfiðum tima þannig að
undirbúningsstarfið krefst meiri
nákvæmni i skipulagningu en oft-
ast áður.
— Hvað um skoðanakönnun
Visis?
— 1 fyrra vann Sjálfstæðis-
flokkurinn stórsigur i skoðana-
könnun VIsis fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar — viku eft-
ir könnunina tapaði hann
kosningunum. Ef þessi könnun nú
er ámóta spásögn megum við vel
við una, en þá var okkur spáð 2
borgarfulltrúum en fengum 5.
Hitt er engu að siður ljóst að þaö
kostar þrotlaust starf að ná
árangri. Færi svo illa aö
kosningaúrslitin yrðu i llkingu við
könnun Visis væri stórfelld hætta
framundan fyrir lifskjör lands-
manna i bráð og þjóöfrelsið i
lengd. Eina vörnin gegn árásum
afturhaldsins er alefling Alþýðu-
bandalagsins — eina flokksins
sem fyrir og eftir kosningar berst
gegn þvi afturhaldi sem nú boðar
leiftursókn gegn lifskjörum.
Þessar tölur VIsis eiga þvi að
verða okkur öllum brýning til
starfa. — ekh
Vardberg
Framhald af bls.Í3
arinnar i baráttunni gegn hernum
og NATO. Samtökin fallast á að
halda kappræðufund með Varð-
berg eftir áramótin, en þau
fallast hins vegar ekki á þær rök-
semdir, að hermálið sé ekki
kosningamál. Samtök herstöðva-
andstæðinga vilja leggja málið i
dóm þjóðarinnar og fá lýöræðis-
legan úrskurð hennar, i þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Þangaö til slik at-
kvæðagreiðsla fer fram, munu
samtökin berjast óhikaö og án til-
lits til verðskuldaðs ótta Varð-
bergsmanna og annarra við úr-
skurð þjóðarinnar, fyrir mark-
miðum slnum: Afnám erlendra
herstöðva á Islandi og að Island
skipti sér i hóp hlutlausra þjóða,
utan hernaðarbandalaga.
Reykjavik 22. nóvember 1979.
Fy rir hönd M iðnef ndar
Samtaka herstöðvaandstæðinga
Þorsteinn Marelsson
Við verðum að passa uppá, að hann Rauð- Sérðu Palli, ánni lýkur með fossi. Hvernig f Já, árnar eru ágætar, alltaf skeður eitthvað skemmti
höfði litli sökkvi sér ekki svo I spilið, aö ósköpunum förum við nú aö? legt á þeim. Höldum nú fund og ræðum hvernie eiei að
hann gleymi þvl að hann á að safna — Við höfum prófaö svona áður, Kalli, og sigla upp fossa, Palli! 8 8
hnetum! það gekk bara vel. Viö hljótum þvi að
— Já, og hann er örugglega betri i þvl en bjarga okkur einu sinni enn!
i spilum!