Þjóðviljinn - 24.11.1979, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 24.11.1979, Qupperneq 19
Laugardagur 24. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19 Byggingarvinna í Albaniu. I útvarpinu á morgun verður dagskrá um Albaniu. Dagskrá um A morgun, sunnudag, verftur i útvarpinu Dagskrá um Albaniu i umsjón þeirra Hrafns E. Jónssonar og Þorvalds Þorvaldssonar. Lesarar auk þeirra verða leik- ararnir Guðmundur Magnússon og Guftrún Gisladóttir. Þeir Hrafn og Þorvaldur feröuðust um Albaniu s.l. sumar, fóru vitt og breitt um landiö og tóku m ,a. viötöl, sem. notuö eru i dagskránni. Aö sögn Hrafns hefst dagskráin á stuttu sögulegu yfirliti. Inn i þaö er fléttað bókmenntum, og er t.d. lesiö úr rlmum af Skanderbeg Epírótakappa, sem ortar voru hér norður i landi áriö 1822. Skanderbeg þessi var mikill kappi, og ýmsir telja aö hann hafi átt einna stærstan þátt i aö halda Tyrkjum frá Evrópu á sinum tima. Þá verður sagt frá nútimalifi I Albaniu, og fjallaö sérstaklega um stööu konunnar þar i landi. Viötöl eru viö fólk i verksmiöju og á jaröskjálftasvæði. Einnig veröur lesiö úr nútimabók- menntum Albana. Utvarp kl. 15.00 Albania er litiö land, sem hefur staðið sig stórkostlega I þvi aö viðhalda sjálfstæöi sinu — sagöi Hrafn, — og standa á eigin fótum, þótt aö hafi kostað þá mikiö. T.d. eru þeir I verslunarbanni bæöi hjá Rússum og Kinverjum. Þeir eru að byggja upp sinn sósial- isma, og i dagskránni segjum við frá þvi. — ih Diddú I frystihúsi. Or þættinum „Einbjörn”, sem Spilverkið er meft I sjónvarpinu i kvöid. Spilverkið á skjánum I kvöld er á dagskrá sjón- varpsins músikþátturinn Ein- björn, sem Spilverk þjóðanna sér um. I þættinum segir frá hjónunum Linu Dröfn og Valda skafara og syni þeirra, táningnum Einbirni. Spilverkið lýsir lifi þessarar fjölskyldu, sem er nýflutt á Reykjavikursvæöið úr sjávar- sCk Sjónvarp kl. 20.45 plássi úti á landi. Dagskrár- gerö annaöist Þráinn Bertels- son. Islenskar barnabækur Uppá siðkastið hefur óvenju mikið veriö rætt um islenskar barnabækur. Margir hafa af þvi þungar áhyggjur, að fjöl- þjóðlega samprentið svokall- aða sé að ganga af islenskum barnabókum dauðum. Þaö er vissulega ömurlegt til þess aö vita, að nýjum islenskum barnabókum fer hlutfallslega fækkandi ár frá ári, á sama tíma og barbapöbbum, tinnum og lukkulákum og skrýplum rignir yfir okkur. Silja Aðalsteinsdóttir fjallar um íslenskar barnabækur i útvarpsþætti i kvöid. Hún kvaðst ætla að taka fyrir nýút- komnar bækur, en þar at eru tvær endurútgáfur. I þættinum veröur stutt viðtal við verölaunahöfundinn Andrés Indriöason og lesiö úr bók hans, „Lyklabörn”. Utvarp kl. 20.30 Lesarar ásamt Silju veröa Gunnar Rafn Guömundsson og Sif Gunnarsdóttir. — ih Hringiö i síma 8 13 33 kl 9-5 alla virka daga eða skrifið Þjóðviljanum Síðumúla 6, 105 Reykjavík. frá lesendum Stökur úr dreifbýlinu Margrét Guöjónsdóttir, Dalsmynni i Eyja- hreppi, hefur sent okkur þessar stökur „sem rödd úr dreifbýlinu” einsog hún orðar þaö i bréfi sinu. Lúðvík Alþýðubandalagsmenn trúa á Lúðvik, en hvernig fer þegar hann er allur? Er Lúftvlk hleypur heljarbrú við hinsta klukkuslagið iftka tekur andatrú Alþýðubandalagið. Vinstri stjórnin sáluga Þjóðarskútu saltan sjó sigldi I ölduróti áhöfnin hans Óla Jó illvlg henti grjóti. Illt er að sökkva I úfinn sjó þaft á að sjá hver bjálfi aldrei haggast Óli Jó þó allt sé á reiftiskjálfi. Landsbyggðin Kosningarnar á aö vinna, ýmsir treysta snilli sinni en malbiksþingmenn mega finna muninn úti á landsbyggðinni. Þó fái þeir mokstursfyrirgreiftslu og forréttindi i ýmsum myndum, þá er ekki æpt um eyðslu, en iðnin ljós, á gömlum syndum. Framboðsraunir thaldsstjórnir öll við munum ekki eru þær mér aft skapi meft leiftursókn gegn Hfskjörunum lenda þær I stóru tapi. Enginn býst við ást og friði eitruft pólitik að verki ráfta ekki eigin lifti L.S.D. er þeirra merki. A Norðurlandi eystra er ekki mikift sofift Ihaldsstefnan brjóstaber býftur nú fram klofið. Hvar er Geir med hattinn? Félagar I Sósialistafélagi Fjöl- brautaskólans I Breiftholti hafa sent eftirfarandi „ÓSK TIL ÞJÓÐVILJANS”: Viö viljum fá aftur litlu mynd- ina af honum Geir Hallgríms- syni — þessa meö hattinn, sem viö höfum nú ekki séö lengi lengi. Okkur þótti þessi mynd nefnilega alltaf svo vel viö- eigandi. Hvaö eruö þiö búin aö gera viö Geir meö hattinn? Fyrirspurn til Benedikts Undirritaöur vill gjarnan vita hvort eftirtaldir einstaklingar hafi verið ráönir i tiö siðustu rikisstjórnar og hvort þaö sé rétt að: Jón Armann Hfeöinsson fyrr- verandi útgeröarmaöur fram- bjóöandi Alþýðuflokksins hafi veriö ráöinn i sumar sem leiö hjá Siglingamálastofnun rfkis- ins sem deildarstjóri eöa fulltrúi i 23. launaflokk BSRB? Var gengiö fram hjá starfsmönnum sem heföu veriö fullhæfir i starf Jóns og eru enn I t.d. 16. launa- flokki, eftir rúmlega tveggja áratuga starf. Valgeröur Bjarnadóttir dómsmálaráöherrafrú hafi veriö ráöin í Sjávarútvegsráöu- neytið skömmu eftir aö rfkis- stjórn Óláfs Jóhannessonar tók viö völdum og fariö úr ágætis atvinnu hjá Flugleiöum h.f.? Siguröur Jónsson fyrrverandi forstjóri hjá Breiöholti h.f. hafi hafnaö i embætti hjá Trygg- ingastofnun rikisins? Myndaöi verkalýöshreyfingin þe^sa rikisstjórn til þess aö út- vega þessu fólki góöan staö i lif- inu? Var þaö kannski bara til- viljun aö þetta fólk lenti i ráöu- neytum sem kratar ráöa yfir? Meö stéttarkveöju, verka- maöur i Dagsbrún. Bryrija Benediktsdóttir, leikari og leikstjóri, var á myndinni I gær.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.