Þjóðviljinn - 24.11.1979, Síða 20

Þjóðviljinn - 24.11.1979, Síða 20
DJOÐVIIIINN Laugardagur 24. nóvember 1979 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga. kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Litan þess tima er hægt aö ná i blaðamenn og aóra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaðaprent 81348. 81333 Kvöldsími er 81348 Fjölmennur fundur i Félagi áhugamanna um fiskirœkt: Einróma á móti erlendri ásælni Á fjölmennum fundi I Félagi áhugamanna um fiskirækt, sem haldinn var I fyrrakvöld, var samþykktnæreinróma tillaga frá Jakobi Hafstein um að aldrei kæmi til mála, að e'riendir rlkis- borgarar eða fyrirtæki eignuðust hluta I fiskeldisstöðvum hér á landi. Aðeins þrfr greiddu at- kvæði gegn tillögu Jakobs. Meö tillögunni var einnig sam- þykkt áskorun til allra væntanlegra alþingismanna um aö efla Fiskiræktarsjóö um a.m.k. einn miljarö. ,,Það verður aö gera til þess aö slá á svona hluti, sem hafa veriö í deiglunni,” Samþykkt aö stofna samtök laxfisk- framleiðenda sagði Jakob Hafstein i samtali viö Þjóöviljann i gær. „Viö erum aö byrja á þessari atvinnugrein,” sagöi Jakob. „Viö eigum fullt af ungum og efnileg- um fiskiræktarfræöingum, vatna- fiskalíffræöingum og fiskeldis- fræðingum sem vantar starf og það þarf að fullnýta þessa menn. Þetta eru viðsýnir, ungir og kraftmiklir menn og ákaflega áhugasamir, en þeir hafa bara ekki nóg aö gera. Þeir eru settir inn á kontóra hjá Hafrannsókn- astofnun og handónýtri Veiöi- málastofnun, sem aldrei hefur beitt sér fyrir neinum nýjungum eöa framtaki i þessum málum.” A fundinum var einnig sam- þykkt tillaga frá Siguröi St. Helgasyni um stofnun samtaka laxfiskframleiöenda. Tveimur kunnum Sjálfstæöis- mönnum var boöiö á fundinn, Jakob Hafstein bar upp tillöguna. Eyjólfi Konráði Jónssyni og Jónasi Bjarnasyni, sem átti aö hafa framsögu um fjármögnun fiskeldisstöðva. Hvorugur þeirra sá sér fært aö mæta og kenndu báöir um kosningaönnum. — eös Þeir stóla á Óla i Firðinum: Aðeins leitað til eins arkitekts Ægir Sigurgeirsson. Meirihlutinn gekk þvert á samþykkt bæjarstjórnar,” segir Ægir Sigurgeirsson bæjarfulitrui i Hafnarfirði n I framhaldi af fréttinni i blaðinu f gær, þar sem sagt var frá þvi að bæjarstjórn Hafnar- fjarðar hefði falið einum arkitekt Vísir sýnir fram á fylgisaukningu Sjálfstæöisflokksins: að teikna 45 raðhús f Hvömmum i Hafnarfirði, hafði Þjóðviijinn tal af Ægi Sigurgeirssyni bæjarfull- trúa Alþýðubandalagsins Hafnarfiröi. i Leiðandi spurningar t gær var birt skoðanakönnun Vfsis um fylgi stjórnmálaflokk- anna. Af þeim sem spurðir voru gáfu 65% upp afstöðu til einhvers flokkanna og skiptast þannig I prósentuvfs: Alþýöuflokkur 15%, Framsóknarflokkur 20%, Sjálf- stæðisflokkur 44%, Alþýðubanda- lag 17% og aðrir listar 2%. Skv. könnuninni eru 19% óákveðnir en 11% neituðu aö svara. Spurt var 7 spurninga og var form þeirra og uppröðun mjög leiöandi. Fyrst var spurt: „Kaust þú ein- hvern af aðildarflokkum rikis- stjórnar ólafs Jóhannessonar I siöustu alþingiskosningum?” Þarna er veriö aö búa til stjórnar- andstööu viö stjórn sem löngu er farin frá. Eins heföi veriö hægt aö spyrja t.d.: Kaust þú annan rikis- stjórnarflokk Geirs Hallgrims- sonar i siöustu kosningum? Siöan eftir aö búiö er aö nefna Ólaf Jó- hannesson á nafn er spurt hvern þú viljir fá sem forsætisráöherra og siöasta spurningin er um þaö hvern flokk þú mundir kjósa nú. Þannig er spyrjandinn búinn aö eiga langar samræöur viö þann spuröa áöur en aö meginatriöinu kemur en i slfkum samtölum þarf mjög litiö til aö spyrjandinn veröi leiðandi á einhvern hátt. Hætt er viö aö sérfræöingar i gerö skoöanakannana gætu ekki skrifaö undir slik vinnubrögö. Visir túlkar ofangreindar tölur á þann veg, aö Sjálfstæöis- flokkurinn bæti viö sig 6-7 þing- mönnum, Framsóknarflokkurinn 2 þingmönnum en Alþýöubanda- lagið tapi 4 mönnum og Alþýöu- flokkurinn 5. Þessi túlkun er þó mjög vafasöm þar sem ekki er tekiö tillit til úrslita i einstökum kjördæmum, misvægi atkvæöa og uppbótaþingsæta. Reynslan af fyrri skoöanakönn- unum Visis sýnir aö þær geta veriö mjög ónákvæmar og stund- um eins og hugur eigenda blaös- ins. Viku fyrir borgarstjórnar- kosningar i fyrra geröi blaöiö t.d. eina slika og skv. henni átti Sjálf- stæöisflokkurinn aö fá 11 fulltrúa (fékk 7) Alþýöubandalagiö 2 full- trúa (fékk 5), Alþýöuflokkurinn 2 fulltrúa (fékk 2) og Framsóknar- flokkurinn engan (fékk 1). —GFr G-listinn hvetur stuðningsmenn sína til að láta skrá sig til aksturs kjördagana 2. og 3. des. n.k. Fyrirsjáanlegt er, að meiri þörf er á bílum en áður, vegna árstímans. Gera þarf ráð fyrir að bifreiðarnar verði útbúnar til aksturs í snjó og hálku. Skráið ykkur tímanlega í símum: 28118, 28364, 28365 og 17500. Bifreiðar I óskast til aksturs á kjördag G-LISTINN * Ægir sagöi, aö á fundi bæjar- stjórnar þann 26. júni sl. heföi veriösamþykkt tillaga þessefnis, aö Hafnarfjaröarbær 'léti gera teikningar af raöhúsum viö Kiausturhvamm og Tungu- hvamm til aö leggja fyrir bygg- ingarnefnd. Jafnframt heföi bæjarstjóra veriö faliö aö leita eftir samningum um teiknun viö arkitekta eöa aöra, sem rétt hafa til aö teikna hús. „Bæjarráö samþykkti siöan I september aö gera samning viö Óla Þóröarson arkitekt um teikningu húsanna,” sagöi Ægir. „Þegar um máliö var fjallaö I bæjarráöi, en þar er ég áheyrnar- fulltrúi, spuröi ég bæjarstjóra til hvaöa aðila hafi verið leitaö varö- andi teikningu húsanna. Bæjar- ; stjóri upplýsti að aöeins heföi veriö leitaö til óla Þóröarsonar um teikningar. Þessá málsmeö- ferö gagnrýndi ég I bæjarráöi og einnig i grein I blaöi okkar i Hafnarfiröi, Vegamótum, sem út kom í september. Meö öörum oröum var sam- þykkt aö leita eftir samningum um teikningu húsanna. Meiri- hlutinn leitaöi aöeins tileins arki- tekts og aörir möguleikar voru ekki athugaöir. Þannig gekk meirihlutinn þvert á samþykkt bæjarstjórnar meö þvi aö leita aöeins til eins aöila um teikningar. Þessi vinnubrögö ihaldsins og óháöra borgara eru verulega ámælisverö. Ég tel aö þaö komi fram, aö bæjarráösmaöur Alþýöuflokksins geröi ekki at- hugasemd viö þessa málsferð.” Ægir sagöist ekki meö þessu veraaö leggja neinn dóm á þenn- an tiltekna arkitekt sem slikan, heldur aöeinsaö gagnrýna vinnu- brögö meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjaröar. — eös V erkalýðsf élögin í Eyjum: Fjórföld afmælis- hátíð A miðvikudaginn hefst i Vestmannaeyjum fjórföid afmælishátið verkalýðs: félaganna og Alþýðuhússins þar og stendur hún fram á sunnudag. Margt verður um aö vera meðan á hátiðinni stendur en þungamiöjan verður ráðstefnan „Verka- fólk I sjávarútvegi”. Ráöstefnan veröur haldin dagana 28. og 29. nóvember i samvinnu viö Menningar- og fræðslusamband alþýöu og meö þátttöku fulltrúa frá ASl, VMSt og SSl auk ann- arra ráöstefnugesta. I Akógeshúsinu veröur opnuð sýning alþýðumálara úr Vestmannaeyjum og i Byggðasafninu ljósmynda- sýning sem helguö veröur sögu verkalýösbaráttunnar i Eyjum og störfum verka- fólks til sjós og lands. A mat- stofum Fiskiöjunnar og Vinnslustöövarinnar veröa sett upp málverk úr eigu Listasafns alþýðu. Þá mun Alþýðuleikhúsiö setja upp Blómarósir Olafs Hauks Sfmonarsonar og einnig veröur hátiöarfundur, baráttuskemmtun afmælis- samsæti og almennt kaffiboö auk dansleikja. —GFr Efnahagsstríð: / T • lramr neita að greiða erlendar skuldir Teheran 23. nóv. Bani-Sadr, efnahagsmála- ráðherra trans, tUkynnti I dag. að Iran mundi ekki greiða erlendar skuldir sinar. Sagði hann á bæna- fundi við háskólann i Teheran: Við .munum ekki greiða þessar skuldir, sem ræningjar hafa safnaö. Bani-Sadr sagði, aö I fyrstu heföu þessar skuldir veriö taldar nema um 800 miljónum dollara, en nú væru þær metnar á um fimmtán miljarða dollara, Sú upphæö kemur mjög á óvart. Byltingarstjórnin haföi fyrirlöngu lýst þvi yfir, aö hún myndi ekki viröa neinar skuldbindingar sem keásarastjórnin haföi gert vegna hergagnakaupa, og þykir mönnum erfitt aö koma skuldum Irans upp i 15 miljarða nema að þeir samningar séu þá taldir með. Ráðherrann geröi engan greinarmun á bandarisku skuldareigendum og öörum, en yfirlýsing hans er talin svar viö þeirri ráöstöfun Bandarikjastjórnar að frysta innistæður írans I bandariskum bönkum. Dregið í Happdrætti Þjóðviljans 1. des. — Gerið skil

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.