Þjóðviljinn - 07.12.1979, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 07.12.1979, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Köstudagur 7. desember 1979 Frá aöalfundi Landverndar. Séö yfir hluta af fundarsalnum. Aðaliundur Landverndar: Þörf er á aðgát og þekkingu Aöalfundur landverndar, sem þegar hefur veriö getiö um hér i blaðinu og haldinn var að Loft- leiðahótelinu 24. nóv. sl., sam- þvkkt ýmsar merkar ályktanir, scm ástæða er til aö komi fyrir al- menningssjónir. Verða þær rakt- ar hér á eftir. Oliurannsóknir Aðalfundurinn beindi þvi til stjórnvalda að gaumgæfilega verði fylgst með oliurannsóknum á vegum grænlenskra og danskra aðila við Austur-Grænland, enda er augljóst, að við oliuvinnslu á þessum slóðum geta orðið alvar- leg slys, og m.a. valdið alvarlegri mengun á islensku hafsvæði og ströndum landsins. Bent skal á að aðstæður til oliu- vinnslu við Austur-Grænlands eru mjög erfiðar og hættulegar vegna mikils isreks. Aðalfundur Landverndar beinir þvi til stjórnvalda að umræður um þessi mál verði teknar upp i norrænu samstarfi og sjónarmið Islendinga skýrð þar rækilega. Umhverfismál Aðalfundurinn beindi þvi til viðkomandi stjórnvalda, að frumvarpum umhverfismál, sem dagaði uppi á Alþingi sl. vor, verði tekið á dagskrá á ný og af- greitt sem lög, enda löngu brýnt að umhverfismál komist undir eitt ráðuneyti svo að unnt sé að vinna að þessum málum á skipu- legri hátt en nú er. ,,Ár trésins” Aðalfundurinn vakti athygli landsmanna á þvi stóra átaki i trjá- og skógrækt, sem fyrir dyr- um stendur á árinu 1980 — ,,ári trésins”. Mikilvægt er, að al- menningur takiþáttl þessu starfi og styðji þetta átak. N áttúru v erndarlög Aöalfundurinn beindi því til viðkomandi stjórnvalda að end- urskoðun náttúruverndarlaga verði hraðað, enda brýn nauðsyn að m.a. umferðarréttur almenn- ings um afrétti og úthaga verði bættur, svo og að ákvæði um efn- isnám og jarðrask verði skýrari. A fundinum flutti Gylfi Már Guð- bergsson erindi um gróöurkorta- gerö og notkun gervitungla og loftmynda. Fræðsla um náttúruvernd Aðalfundurinn beindi þeim til- mælum til menntamálaráðuneyt- isins að tekin verði upp I skólum landsins aukin fræðsla um gróð- ur- og náttúruvernd, en jafnframt stuðlað að heilbrigðu útilífi æskufólks. Margar skemmtilegustu og beittustu greinar og ræður Magnúsar Kjartans- sonar frá siðustu þremur áratugum. Ómetanleg heimild um stjórnmálasögu eftir strið og pólitiska hugsun og ritsnilld eins helsta forustumanns íslenskra sósial- ista. Mál og menning 1^1 Þorleifur Einarsson skyggnist i plöggin hjá þeim Karli Eirikssyni og Inga Tryggvasyni. Og þarna ræðast þeir við bræðurnir Haukur og Páll Hafstaö. — Mynd- ir* Svanhilrlnr Æ Stefán Bergmann ræddi viöfangsefni og framtiöarverkefni Landvernd- ar. Fækkun hrossa Aðalfundurinn vakti athygli á fjölgun hrossa, sem orðið hefur undanfarin ár. Fundurinn beinir þvi til hestamanna og hrossa- ræktenda og fækka hrossum, þannig að nytjalitil hross hverfi úr högum. Skorað er á BUnaðar- félag Islands og sveitastjórnir að hlutast til um, að ætlað sé nægi- legt fóður fyrir hross og annan búfénað, sem settur er á vetur. Förum gætilega Aðalfundurinn taldi ástæðu til að gæta fyllstu varkárni, þegar rætt er um fækkun eða Utrýmingu dýrategunda, sem keppa við manninn um llfsins gæði eða gera á annann hátt einhvern miska. Slikar framkvæmdir má ekki undir neinum kringumstæðum gera án undangenginna gaum- gæfilegra athugana og rann- sókna. — mhg. 1 dag áritar Haralds bók sina, .jdagshetjan i Bókabúð Máls og menningar frá klukkan 15-18. öll framlög fyrir áritanir renna óskipt í Málfrelstssjóð

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.