Þjóðviljinn - 29.01.1980, Page 11
l>riðjudagur 29. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
iþróttir I7m íþróttir 7*j íþróttir
, / > R Umsjón: Ingólfur Hanncssun V ' J ■
Hér hefur einn Akureyringurinn snúiö laglega á Reykvikinga einu sinni sem oftar. Sunnanmcnn hafa möguleika á aö hefna ófaranna
þegar liöin mætastfyrir noröan ílok næsta mánaöar. —Mynd: —eik.
Akureyringar sleipir
Sigruðu Reykvíkinga örugglega í ísknattleik 13:7
Undirritaöur hefur ekki
lengi séö jafn fjörugan og
skemmtilegan iþróttakappleik
og á laugardaginn þegar hann
brá sér út á gamla Melavöllinn
til þess aö horfa á Akureyringa
og Reykvíkinga etja kappi i ís-
knattleik. Akur eyr ingar nir
hafa lengi stundaö þessa iþrótt
af kappi og til þessa leiks komu
þeir greinilega mjög vel undir-
búnir og fóru meö sigur af
hólmi, 13-7.
Þegar þessi lið hafa áttst viö
hafa Norðanmenn yfirleitt bor-
ið hærri hlut, en i fyrravetur
komu Reykvikingar mjög á
óvart og sigruðu. Akureyring
arnir höföu þvi harma að hefna
þegar liðin mættust á Melavell-
inum. Þeir sigruðu i fyrstu lot-
unni 5-2, einnig i miðlotunni með
sama mun og staðan 10-4. Sið-
asta lotan endaði með jafntefli
3-3 og lokastaðan þvi 13-7 fyrir
Akureyringa.
Mörk Norðanmanna skor-
uðu: Sigurður Haraldsson 4,
Skúli Agústsson 4, Sigurður
Baldvinsson 2, örn Indriöason
1, Baldur Grétarsson 1 og Jón
Björnsson 1.
Fyrir Reykjavik skoruðu:
Atli Helgason 3, Rúnar Steins-
son 2, Helgi Helgason 1 og
Smári Baldursson 1. — IngH
Bjarni
tapaði
óvænt
Þau óvæntu úrslit uröu á
fyrri hluta Afmælismóts Judo-
sambandsins um helgina að
Bjarni Friöriksson tapaöi
mjög óvænt fyrir litt þekktum
judomanni, óskari Knudsen,
Armanni og viö þaö skaust Sig-
urður Hauksson, UMFK upp
fyrir Bjarna og sigraði i
þyngsta flokknum.
Keppt var i 5 þyngdarflokk-
um á Afmælismótinu og urðu
úrslit þessi:
Yfir 86 kg.
l.Sigurður Hauksson UMFK.
2. Bjarni Friðriksson Árm.
3. Kolbeinn Gislason Arm.
71-78 kg.
1. Halldór Guðbjörnsson JFR
2. Ómar Sigurðsson UMFK
3. Niels Hermannsson Arm.
67-71 kg.
1. Gunnar GuðmundssonUMFK
2. Hilmar Jóns s on Ar m
3. Steinþór Skúlason JFR
60-65 kg.
1. Jóhannes Haraldsson UMFG
2. Rúnar Guðjónsson JFR
3. Hilmar Bjarnason Arm.
Undir 60 kg
1. Gunnar Jóhannesson UMFG
2. Halldór Jónasson Arm.
3.Sigurjón Hansson Arm.
Valur í kröppum dansi
Rétt náði að merja ÍR eftir framlengdan leik> 105-100
Það má meö sanni segja að
úrvalsdeildarllö Vals i körfu-
knattlcik sé furöulegt liö. A
sunnudaginn léku þeir gegn 1R
og stefndu i stórsigur, þegar allt
I einu, eins og hendi væri veifaö,
leikur liðsins hrundi algjörlega
og tR-ingum tókst aö jafna. 1
f r a m I en gi ng un n i sýndu
Valsararnir aftur yfirburöi og
Pétur Pétursson og
félagar hjá Feyenoord
fengu heldur betur á nas-
irnar þegar þeir fengu
PSV Eindhoven i heim-
sókná laugardaginn. PSV
sigraði 3-0 og við þennan
ósigur missti Feyenoord
af 2. sæti hollensku
deildarkeppninnar. Þeir
eru með 27 stig, en Ajax
sigruöu nokkuö örugglega
105-100.
Leikurinn var jafn rétt i upp-
hafi 6-6, en siðan náði Valur
undirtökunum og jókst munur-
inn jafnt og þétt 19-6 (13 stig
Vals i röð), 25-20,37-24 og 47-32. t
leikhléi hafði Valur 14 stig yfir
56-42. Valsmenn léku fyrri hálf-
leikinn sérlega vel, hirtu flest
er efst með 32 stig og
siðan er AZ 67 með 28 stig.
I belgisku knattspyrnunni
sigraði Lokeren i sinum leik og
er enn i efsta sæti. Arnór Guð-
johnsen meiddist I leiknum og
varð að fara útaf. Standard
sigraði einnig i sinum leik.
Lokeren er efst með 32 stig,
FC Brugge er með 29 stig og
Standard með 27 stig.
fráköstin,skemmtilegar sóknar-
fléttur gengu upp og þeir beittu
hraðaupphlaupum með góðum
árangri.
Yfirburðir Vals héldu áfram
að aukast í upphafi seinni hálf-
leiks, 64-46 og 67-47. Héldi áfram
sem horföi myndu Valsmenn
skora a.m.k. 115 stig. IR-ingum
tókst að minnka muninn litil-
lega næstu min., 81-64. Þá var
eins og allt hrykki i baklás hjá
Val og á sama tima gekk 1R allt
i haginn. IR-ingarnir beittu
pressuvörn með þeim árangri
að þeir skoruðu 15 stig i röð,
81-79. Þegar 3 min voru til leiks-
loka var jafnt 83-83 og eftir það
var jafnræði með liðunum, 87-87
og loks 89-89. Nú þurfti fram-
lengingu til þess að úrslit fengj-
ust.
Til þess að gera langa sögu
stutta höfðu Valsararnir undir-
tökin allan timann i framleng-
ingunni ogsigruðu verðskuldað,
105-100.
IR-ingarnir voru eins og börn
i Valsklónum framanaf þessum
leik. Hinsvegar eru þeir þekktir
fyrir annað en aö gefast upp og
mikil baráttustemning hljóp i
liðsmenn undir lok leiksins. Var
þaðekkihvað sistaðþakka Sig-
mari Karlss., en innákoma hans
virkaði sem vi'taminsprauta
á aðra leikmenn, enda Sigmar
baráttuglaöur leikmaður. Ljós-
asti punktur ÍR i þessum leik
var hve ungur nýliði Sigurður
Bjarnason skilaði hlutverki sinu
með mikilli prýði. Þar er á ferð-
Framhald á bls. 13
Týrar grátt leiknir
Fjórir leikir voru i 2. deild
handboltans um helgina. Týr
tapaöi fyrir Armanni 17-20 og
fyrir Fylkismönnum 20-23 og
eru Týrararnir þar meö úr
baráttunni um 1. deildarsætiö.
Þórarar frá frá Eyjum
héldu til Akureyrar. Þeir biöu
lægri hlut fyrir KA 18-27 og fyr-
ir Þór, Ak. 27-31.
Þá sigraði Þór, Ak. Grinda-
vik i 1. deild kvenna 28-13.
Feyenoord fékk
herfilega útreið
Enska
knatt-j
spyrnan
Liverpool
sigraði
loksins
4. unifcrö ensku bikar-
keppninnar för fram s.l.
laugardag. Hæst bar leik
Liverpool og Nottingham
Forést á heimavelli þeirra
siöarnefndu, City Ground.
Þessi liö hafa leikiö 11 sinn-
um á siöustu 3 keppnistima-
bilum og aöeins 1 smni haföi
Liverpool tekist aö sigra. A
iaugardaginn nældu þeir sér
i annan sigur, 2-0.
Liverpool hafði undirtökin
i leiknum lengst af og það
kom þvi ekki svo ýkja á
óvart þegar Daglish skoraði
á 31. min. I seinni hálfleikn-
um skoraði siðan McDer-
mott úr vítaspyrnu eftir að
Needham hafði handleikið
knöttinn innan vitateigs, 2-0.
Arsenal sigraði Brighton
af öryggi á Highbury 2-0 og
voru það Sammy Nelson og
Brian Talbott sem mörkin
skoruðu. Sigur Blackburn
gegn Coventry kom mjög á
óvart, en Blackburn leikur i
3. deild. Markið sem réði úr-
slitum skoraði Crawford, en
aðalmaður Blackburn er
hinn kunni kappi Duncan
McKanzie,sem lék áður með
Leeds, Everton, Anderlecht,
Chelsea o.fl. liðum.
Þá eru þaö úrslitin I hinum
I61eikjum 4.umferöarinnar:
Arsenal-Bright 2-0
Birmingh-Middlesb. 2-1
Blackb.-Covent. 1-0
Bolton-Halifax 2-0
Brist. C-Ipswich 1-2
Bury-Burnley 1-0
Cambr.-Aston V. 1-1
Carlisle-Wrexh. 0-0
Chester-Millwall 2-0
Evert.-Wigan 3-0
Nottm.F.-Liverp. 0-2
Orient-West Ham 2-3
Swansea-Reading 4-1
Swind.-Tottenh. 0-0
Watford-Harlow 4-3
Wolves-Norwich 1-1
Birmingham lék mjög vel
gegn Middlesbro og sigraði
verðskuldað. Mörk Birming-
ham skoruðu Gemill og
Berchin, en fyrir Boro skor-
aöi á lokaminútum leiksins
Hodgson. Strákarnir hans
George Kirby hjá Halifax
áttu aldreimöguleika gegn 1.
deildarliði Bolton. Greaves
og Whatmore skoruðu mörk-
in.
— IngH
Trevor Francis og félagar
hja Nottingham Forest áttu
aldrei möguleika i leiknum
gegn Liverpool.
/*v
w