Þjóðviljinn - 02.02.1980, Síða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. febrúar 1980
AF LOGUM
Ég var á leiklistarþingi um daginn, svona til
að ræða stöðu og tilgang listarinnar í landinu,
tala gáfulega um hlutina, reifa, rannsaka og
komastað niðurstöðum, í hópvinnu að sænskri
fyrirmynd. Ég var í hópi sex, og fyrir eitt-
hvertslys álpaðist lítill lagabálkur uppí hend-
urnar á mér undir yfirskriftinni „Lög um
Þjóðleikhús”.
Ég hafði að vísu áður bæði borið og barið
þetta fyrirbrigði augum, en þá ekki fattað að
þetta er brandarahefti svona eins og Húddí-
bras, Líf, Samúel, og íslensk fyndni.
Þetta kom mér í ógurlega gott skap og ég
sökkti mér niður í fræðin á meðan aðrir voru
að reyna að komast til botns í því hver væri
hornsteinn listarinnar í landinu.
Ég sá f Ijótlega að í stórum dráttum er þess-
um lögum alls ekki framfylgt og raunar ekki
hægt, að því er mér fávísum virðist, vegna
þess að valdhafarnir í landinu fást ekki til
þess að fara eftir því sem þeir hafa sjálfir
lögleitt. Hér er um að ræða lagagreinar um
mannaráðningar, aukið húsrými, hvað skuli
flutt í leikhúsinu, sameiginlega leikmuna-
vörslu, svo nokkuð sé nefnt. Þá eru flestar
lagagreinarnar kryddaðar gamalkunnum
fyrirvörum eins og t.d. „eftir því sem aðstæð-
ur leyfa... eftir því sem við verður komið....
eftir því sem unnt er.... svo fljótt sem verða
má”, o.s.frv.
Þjóðleikhúsfrumvarpið var afgreitt sem lög
í fyrra eftir miklar vangaveltur ogfæðingar-
hríðir og var við smíði þess lítið tillit tekið til
ábendinga þeirra sem verða að teljast sér-
fróðir um leikhúsmál á landi hér. En látum
það nú vera. Er það ekki lágmarkskrafa að
viðeigandi ráðuneyti sjái til þess að hægt sé að
fylgja því sem hið háa Alþingi hefur gert að
landslögum?
Jæja, sem þetta plagg — Lög um Þjóð-
leikhús — var að velkjast þarna á milli hand-
anna á mér fór ég að hugleiða hvort það væri í
raun og veru nokkur vandi að vera lagasmið-
ur, og í beinu framhaldi af því ákvað ég að
byrja að æfa mig til vonar og vara, ef ég nú
sakir vinsælda lenti á þingi. Verkef nið, sem ég
ákvaðaðtaka fyrir,— að semja frumvarp um
dýragarð þjóðarinnar, Þjóðdýragarðinn, og sá
f Ijótlega að ekki þyrfti að breyta Þjóðleikhús-
lögunum ýkja mikiðtil að nýtt snilldarverk liti
dagsins Ijós
Frumvarp til laga um Þjóðdýragarð
1. gr.
Þjóðdýragarðurinn er eign íslensku þjóðar-
innar.
2. gr.
Eftir því sem við verður komið, skal svo f Ijótt
sem verða má freista þess, eftir því sem að-
stæður leyfa, að haf a íslensk dýr í dýragarðin-
um og að meðferð dýranna verði, þegar við
verður komið, til fyrirmyndar.
3. gr.
Aðalhlutverk Þjóðdýragarðsins er að vera
dýragarður fyrir börn og fullorðna.
4. gr.
Klaufdýr í garðinum heyra undir
landbúnaðarráðuneytið, hófdýr undir dóms-
og kirkjumálaráðuneytið, en lagardýr félags-
málaráðuneytið.
5. gr.
Um allar meiri háttar ákvarðanir skal f jallað,
þegar við verður komið, eftir því sem ástæður
ieyfa, af þeim sem teljast að dómi sérfróðra
hafa staðgóða þekkingu, að mati dómbærra
manna hverju sinni.
6. gr.
Að dýragarðinum skal ráða í eftirtaídar
stöður: Garðvörður, gjaldkeri, 2 dýravinir og
læknir, 2 gegningamenn, 2 hirðar, 12 ráðu-
nautar, 4 dýrasamfélagsfræðingar og einn
froskmaður, sem jaf nf ramt svari í síma fyrst
um sinn. Þó skal, þegar ástæður leyfa, með
nægum fyrirvara, eftir því sem við verður
komið og svo fljótt sem verða má, ráða sér-
staka skrifstofustúlku til símavörslu og ann-
arra íhlaupaverka.
7. gr.
Eigi skal ráða í þessar stöður, né framfylgja
framangreindum lagagreinum, fyrr en að-
stæður leyfa að dómi f jármálaráðuneytisins.
8. gr.
Lög þessi öðlast, ef við verður komið, gildi,
svo f Ijótt sem auðið er eftir því sem aðstæður
leyfa og við verður komið. Kunni einhver önn-
ur lög eða stjórnarskrárákvæði að brjóta í bága
við þessi lög, þá falla þau sjalfkrafa úr gildi.
Eða eins og þingmaðurinn sagði, þegar hann
fylgdi frumvarpinu úr hlaði:
Alfarið við útaf því
ályktanir drögum;
sláum bara úr og í
svo ekkert verði að lögum.
Flosi.
Frumvarp um jöfnun húsahitunarkostnaöar:
Gódar undirtektir
þingmanna
Sú skoðun að gera þurfi
róttækar ráðstafanir til að
jafna húsahitunarkostnað
landsmanna hefur fengið
góðar undirtektir þing-
manna í umræðum um
málið á Alþingi síðustu
daga. Umræður þessar
hafa staðið í sambandi við
frumvarp sem f jórir þing-
menn, þeir Þorvaldur
Garðar Krist jánsson,
Tómas Árnason, Stefán
Jónsson og Eiður Guðna-
son, hafa lagt fram á
Alþingi um auknar niður-
greiðslur á olíu til upphit-
unarhúsa. Einsog kunnugt
er þá hefur hin gífurlega
verðhækkun á olíu komið
harðast niður á þeim
f jórðungi þjóðarinnar sem
kyndir hús sín með gasolíu,
og er upphitunarkostnaður
þessa fólks orðinn óbæri-
legur.
Allir þingmenn sem til máls
hafa tekið, hafa lagt á þaö
áherslu aö hér sé um aö ræöa
mikiö réttlætis- og sanngirnis-
mál. Frumvarpiö feli þó aöeins I
sér bráöabirgöaráöstöfun, þvi
brýnt sé aö tryggja þær fram-
kvæmdir f orkumálum lands-
manna er stuöli aö þvl aö olfan
veröi leyst af hólmi sem orku-
gjafi til húshitunar.
Vantar ákvæöi um f járöfl-
un
Fyrsti flutningsmaöur frum-
varpsins, Þorvaldur Garöar,
mælti fyrir frumvarpinu
sföastliöinn mánudag, en auk
hans hafa tekiö til máls Tómas
Arnason, Sighvatur Björgvins-
son, Helgi Seljan, Eiöur Guöna-
son og Geir Gunnarsson, hafa
þeir allir lýst stuöningi viö þá
stefnu aö brýnt sé aö jafna húsa-
hitunar kos tnaö landsmanna.
Geir, Tómas og Sighvatur töldu
þaö þó mikinn galla á frumvarp-
inu aö ekki skuli vera bent á fjár-
öflunarleiöir I sjálfu frumvarp-
inu til aö koma til móts viö þann
mikla kostnaö sem auknar
niöurgreiöslur fela f sér, eöa
rúma 8 miljarða. Geir Gunnars-
son sagöist undra sig mjög á þvi
aö fyrrverandi fjármálaráö-
herra Tómas Arnason og núv.
Hin gifurlega otiuveröshækkun
hefur komiö haröast niöur á þeim
fjóröungi þjóöarinnar sem býr á
stööum eins og Neskaupstaö, þar
sem menn þurfa aö kynda hús sin
meö gasoliu.
formaður fjárveitinganefndar
Eiöur Guönason, skyldu leggja
fram frumvarp um stóraukin
útgjöld rikissjóðs án þess aö
minnast á þaö einu oröi I
frumvarpinu eöa greinargerö
þess hvernig afla ætti þessa
fjármagns.
Ýmsar hugmyndir voru rædd-
ar um hugsanlega fjármagnsöfl-
un, svo sem orkujöfnunargjald,
beint framlag úr rikissjóöi og
sértakur orkuskattur. Fjár-
málaráöherra boöaöiiaö bráö-
lega yröi þingflokknum kynntir
ýmsir valkostir er miöa aö jöfn-
um húsahitunarkostnaöar og
jafnframt bent á leiöir til aö afla
fjármagns til slfkra aögerða.
Tillaga
um
virðis-
aukaskatt
Vantar þó
ákvœöi
umfjármögnun
Bikisstjórnin hefur lagt fram á
Alþingi þingsályktunartillögu um
viröisaukaskatt. Tillagan hljóöar
svo:
„Alþingi ályktar aö fela rfkis-
stjórninni aö hefja nú þegar
undirbúning aö upptöku viröis-
aukaskatts er komi i staö sölu-
skatts á síöasta stigi viöskipta og
leggist á alla vöru og þjónustu.
Undirbúningur málsins miöist
viö, aö frumv. til laga um viröis-
aukaskatt veröi lagt fyrir Alþingi
þegar á næsta hausti og stefnt
veröi aö þvi aö frumv. nái af-
greiöslu á þvi þingi þannig aö 1.
janúar 1982 leysi viröisaukaskatt-
ur núverandi söluskatt af hólmi.”
Aöaleinkenni viröisaukaskatts
er aö skatturinn leggst aöeins
einu sinni á sama verömæti,
hversu oft sem þaö gengur milli
viöskiptastiga. I greinargerö meö
tillögunni kemur fram aö undan-
þágur frá söluskatti eru orönar
þaö vfötækar aö söluskatturinn
hefur breytt um eöli frá þvi aö
vera almennur neysluskattur yfir
I aö vera sérskattur á munaöar-
vöru. Segir I greinargeröinni aö
ákvöröun um upptöku viröis-
aukaskatts þurfi þvi nauösyn-
lega aö fylgja ákvöröun um aö
vikka skattskyldusviðiö aö þessu
leyti og fella niöur allar undan-
I Þágur. þ-m>
Frumvarp um Lífeyrissjóð sjómanna:
Full verdtrygging
lífeyris
Þingmenn úr öllum flokkum
hafa lagt fram á Aiþingi laga-
frumvarp er kveöur á um fulla
verðtryggingu allra elli-, örorku-
og makalffeyris greiös lna Lif-
eyrissjóös sjómanna frá ársbyrj-
un 1980 til ársloka 1984. Vegna
þessa munu útgjöld sjóösins auk-
ast mjög á árinu 1980 og áætla aö
lifeyrisgreiöslur nemi á þvi ári
330 miljónum króna meö fullri
verötryggingu iifeyris.
í greinargerö kemur fram aö
ekki er gert ráö fyrir auknum
tekjum sjóösins til aö mæta út-
gjaldaaukningu sem full verö-
trygging hefur I för meö sér. Bent
er á aö þó aö lifeyrisgreiöslur fari
vaxandi þá veröi þær enn um
langt skeiö tiltölulega lágar I
hlutfalli viö iögjaldatekjur, og hin
breyttu verötryggingarákvæöi
munu þvi ekki hafa veruleg áhrif
á fjárhagsstööu sjóösins næstu ár.
Flutningsmenn frumvarpsins
eru Pétur Sigurösson,
Guömundur G. Þórarinsson,
Garöar Sigurösson og Jóhanna
Siguröard.
Þm.