Þjóðviljinn - 15.02.1980, Qupperneq 16
DJOÐVILIINN
Föstudagur 15. febrúar 1980.
ABalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81257 og
81285, afgreiðsla 81527 og Blaðaprent 81348.
U 81333
Kvöldsfml
er 81348
Mér ber skylda til
þess að vera á móti
þessari hraðbraut
segir Nanna
Hermannsson
borgarminja
vöröur
Vegur milli Arbæjarhverfis
og Breiðholts sem tæki tillit til
safnsins væri allt annað heldur
en hraðbraut fyrir 17 þúsund
bila á sólarhring. Ég held aö
fólk 'geri sér ekki grein fyrir
hversu gifurlegt mannvirki er
hér um að ræða, sagði Nanna
Hermannsson forstöðumaður
Arbæjarsafnsins í viðtali við
Þjóðviljann út af umtalaðri
brúargerð og hraðbrautarlagn-
ingu Höfðabakkans.
Mér sem forstöðumanni Ar-
bæjarsafns ber skylda til að
vera á móti þessum fram-
kvæmdum, sagði Nanna. Frá
Nanna Hermannsson: Ég held
að fólk geri sér ekki grein fyrir
hversu gífurlegt mannvirki er
hér um að ræða.
þessari hraðbraut kæmu læti,
mengun og ekki sist lýsing frá
ljósastaurum sem köstuðu birtu
inn á safnsvæðið. Við erum að
reyna að búa til stemningu og i-
mynd gamalla hverfa og þetta
yrði til þess að eyðileggja hana.
Þar að auki mundi þetta
mannvirki skera safnið frá Ar-
bæjarhverfinu, en safnið ætti
ekki sist að vera það sem ein-
kennir þetta hverfi frá öörum
hverfum. Við finnum það strax i
góðviðri undanfarinna daga að
krakkarnir úr Árbæjarhverfi
streyma yfir til okkar. Ég held
að ibúar hverfisins hugsi sér
gott til glóðarinnar að fá teng-
ingu við Breiðholt en ekki þó i
formi hraðbrautar sem erfitt
væri að komast upp á eins og
hér er um að ræða.
Eins og hraðbrautin var hugs-
uð fyrir þremur árum verður
hún i 17—19 metra fjarlægð frá
verkstæði Arbæjarsafns, i
þriggja metra hæð með fláa nið-
ur að safnsvæðinu, en mér eru
ekki kunnugar nýjustu hug-
myndir um lagningu hennar.
Arbæjarsafnið er á góðu svæði
og býður upp á mikla vaxtar-
Framhald á bls. 13
Guðrún Jónsdóttir forstööumaöur Þróunarstofnunar:
Rétt að bíða
með Höfða-
bakkann
Ég tel ekki rétt að setja
Höfðabakka og byggingu brúar
yfir Elliðaárdalinn á
framkvæmdaáætlun þetta árið
vegna þeirra mörgu breytinga
sem gerðar hafa verið á vega-
kerfinu á þessum slóðum frá þvi
sem aðalskipulagið gerir ráð
fyrir. Það þarf að athuga málið
betur, sagði Guðrún Jónsdóttir
forstöðumaður Þróunarstofn-
unar Reykjavikur i samtali við
Þjóðviljann i gær.
Eins og þessi vegarlagning og
brúin er hugsuð tel ég hana
frekar til tjóns vegna alls
umhverfisins, og fremur væri
ráðlegt að ráðist verði i Ofan-
byggðarveginn jafnframt þvi
sem kannað verði hvort einhver
minniháttartenging milli
Arbæjarhverfis og Breiðholts
kæmi ekki jafnt til greina.
— QFR
Guðrún Jónsdóttir: Ráðlegra að
fara I Ofanbyggðarveg jafn-
framt þvi sem kannað verðú
hvort einhver minniháttarteng-
ing milli Arbæjarhverfis og
Breiðholts komi til greina.
Sparnaöur fyrir bíleigendur vegna lagningar
Höföabakkavegar:
360 milj. kr.
Þórður Þorbjarnarson: Vegur-
inn er hannaður með 17 þúsund
bila umferö á sólarhring fyrir
augum.
segir Þóröur
Þorbjarnarson
borgar-
verkfræöingur
Höföabakkinn mun fyrst og
fremst gegna þvi hlutverki að
dæla umferð úr Breiðholti yfir I
atvinnusvæðin á Ártúnshöfða og
Borgarmýri og I öðru lagi frá
Kópavogi og sunnan af Nesjum
með tengingu við Reykjanes-
veg. Miðað við 5000 bila umferð
á sólarhring og 100 kr. kostnaö
fyrir hvern bileiganda á km
hefur verið reiknað út að sparn-
aðurinn veröi 360 miljónir króna
á ári fyrir bileigendur vegna
þessa vegar sagði Þórður
Þorbjarnarson borgarverk-
fræöingur i samtali við Þjóövilj-
ann I gær.
Þórður sagði að ráðgert væri
á ári
að tvær akreinar verði i báðar
áttir og brúin verði aðeins lægri
en stiflan á Elliðaánum. Gert er
ráð fyrir göngubraut og hesta-
braut undir brúnni. Hann sagði
að Höfðabakkinn yrði i 40 metra
fjarlægð frá húsum i Arbæjar-
safni þar sem hún verður næst
en meiningin væri að grafa veg-
inn þarna niður og byggja
hljóðeinangrandi garð milli
safnsins og vegarins.
Reiknað er með 17 þúspnd bila
umferð um Höfðabakka áriö
1995 og er þá miðað við að Foss-
vogsbraut verði ekki lögð.
t skipulagi er gert ráð fyrir að
um Ofanbyggðarveg fari 2000
bilar árið 1995. Þá sagði Þórður
að fallið hefði verið frá þvi aö
byggja hraðbrautir meðfram
Elliðaánum, en þá gegn þvi að
árnar yrðu brúaðar á 1 til 2
stöðum. Taldi hann að ekki
þyrftu að verða mikil náttúru-
spjöll vegna Höfðabakkavegar-
ins. — GFr
Sölvi Bjarnason BA 65 við bryggju á Akranesi.
Heimahöfnin Tálknafjörður
Fiskar fyrir
Bflddælínga
Nýsmíöi frá
Þorgeiri og
Ellert Akranesi
S.l. íöstudag var hleypt af
stokkunum nýju fiskiskipi hjá
Þorgeir & Ellert h.f.' Akranesi.
Eigandi skipsins er Tálkni h.f. I
Tálknafirði, en aðaihiuthafar i
þvi fyrirtæki eru Arsæll Egilsson
skipstjóri og Bjarni Andrésson
framkvæmdastjóri. Jóhanna
Guðmundsdóttir eiginkona Ar-
sæls gaf skipinu nafnið Sölvi
Bjarnason BA-65.
Að sögn Ársæls Egilssonar, sem
verður annar tveggja skipstjóra á
Sölva verður skipið gert út frá
Bfldudal, samkvæmt samningi
sem gerður hefur verið til sex ára
við Fiskvinnsluna h.f. Heimahöfn
skipsins er þó Tálknafjörður.
Sigurður Brynjólfsson frá
Keflavik verður skipstjóri á móti
Arsæli, en stýrimenn verða Jón
Þórðarson, Bildudal og Niels
Arsælsson Tálknafirði.
Sölvi Bjarnason BA 65 er byggt
sem skuttogskip til veiða með
botn- og flotvörpu, en jafnframt
útbúið til veiða með nót. Aðalmál
eru: Mesta léngd 46,68 m, breidd
9 m og dýpt að efra þilfari 6,40 m.
Farmrými er fyrir um það bil 200
tonn af isuðum fiski i kössum eða
750 tonn af loðnu en skipið m^elist
404,5 brúttó rúmlestir. ABalvel er
af Wickmann gerð og sérstaklega
Framhald á bls. 13
Utflutningsbætur
búvara:
2.6 míljarðar
í skuld
Þrátt fyrir þá venju, að
greiðslur á útflutningsbótum á
búvörur hæfust ekki siðar en um
áramót, hafði engin króna verið
greidd i þessu skyni þegar núver-
andi ríkisstjórn tók við hinn 8.
febrúar sl.. Þá námu reikningar,
sem hrannast höfðu upp hjá
Framleiðsluráði, 2.6 miijörðum
kr.
Nú hefur verið samið um það
við fjármálaráöuneytið að þessir
reikningar verði greiddir i áföng-
um á næstu vikum, og hefur
fyrsta greiðslan þegar farið fram,
upplýsti Pálmi Jónsson landbún-
aðarráðherra á Búnaðarþingi i
gær. — mhg
3ja miljarða lántaka
A siðasta verðlagsári skorti ná-
lega 3 1/2 miljarð til þess að út-
flutningsuppbætur nægðu á út-
fluttar landbúnaðarafuröir.
1 ræðu Pálma Jónssonar land-
búnaðarráðherra við upphaf Bún-
aðarþings i gær kom fram, að rik-
isstjórnin hefur nú ákveðið að
flytja sérstakt frumvarp um
þetta mál. Þar verður gert ráð
lyrir þvi, að framreiðsluráð taki
lán, er nemi 3000 miljónum kr.
Annist rikissjóður endurgreiðslu
lánsins, greiðslu vaxta, verðbóta
og annars kostnaðar. Stefnt er að
þvi að unnt verði að afgreiða
þetta fé til afurðasölufyrirtækj-
anna áður en þau loka reikning-
um sinum við uppgjör fyrir sl. ár.
— mhg.
Uppsagnir á
Hótel Borg
Oánægja meöal starfsfólks
Umdanfarið hafa 13 manns af
um 60 manna starfsliði Hótel
Borgar fengið uppsagnarbréf og
veit Þjóðviljinn til þess að nokk-
urrar óánægju gætir meðal
starfsfólksins með það hvernig að
úppsögnunum er staðið.
Margt af þvi fólki sem nú hefur
verið sagt upp er á áttræðis- og
niræðisaldri en svo er annað sem
ekki hefur fengið skýringar aðrar
en þær að um endurskipulagningu
á rekstrinum sé að ræða. Tvennt
af þvi starfsfólki sem Þjóðviljinn
hefur rætt um telur að skýringuna
á uppsögn þess sé að finna i þvi að
það hafi leitað til stéttarfélags
sins til þess að ná rétti sinum i
launamálum en það sé illa þolað
af stjórnendum hótelsins.
Þjóðviljinn ræddi við Vestarr
Lúðviksson skrifstofustjóra Hótel
Borgar og sagði hann að þessar
uppsagnir væru vegna sparnað-
arráðstafana svo að hótelið geti
dafnað áfram. en i sumum til-
fellum væri um að ræða tilfærslur
milli starfa innan hótelsins og
ekki væri loku fyrir það skotið að
sumir yrðu endurráðnir. — GFr