Þjóðviljinn - 16.02.1980, Qupperneq 3
Laugardagur 16. febrúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 3
Höfdabakkahradbraut og brú yfir Ellidaár:
Umdeild
framkvæmd
Á fimmtudaginn kemur verður borgarstjórnar-
fundur þar sem fjallað verður um það hvort svo-
kallaður Höfðabakkavegur verður settur inn á
framkvæmdaáætlun næsta árs eða ekki. Þessi
framkvæmd með volduga brú yfir Elliðaárnar er
mjög umdeild og þess skal getið að borgarverk-
fræðingur skipaði á sinum tima nefnd, sem kölluð er
þjóðveganefnd, til að fjalla m.a. um þetta mál.
Nefndin hefur skilað áliti og er meirihluti hennar á
móti þessum framkvæmdum,en engu að siður legg-
ur borgarverkfræðingur kapp á að hafist verði
handa. Hefur hann gengið svo langt að leggja ekki
skýrslu nefndarinnar fyrir fund framkvæmda-
nefndar er málið var tekið fyrir.
A sínum tima var aðalhönn-
unarforsenda hraðbrautar um
Höfðabakka ásamt voldugri brU
yfir Elliðaár sú að hún ásamt
framhaldi i Fossvogsbraut og
Hliðarfæti tæki við töluveröum
umferðarþunga af Miklubraut-
inni og var þá gert ráð fyrir
nýrri byggð á Úlfarsfellssvæð-
inu. Þessi hraðbraut hefði orðið
um tveim kilómetrum lengri en
Miklabrautin og var þvi lagt
kapp á að hún yrði af mjög há-
um gæðaflokki til þess að laða
bilaumferð á hana.
Nú eru margar af forsendum
hraðbrautar um Höfðabakka úr
sögunni. Fossvogsbraut verður
ekki lögð i bráð og íbúar Breið-
holts hafa lagst gegn þvi að
brautin yrði tengd Breiðholts-
braut með vegi i brekkunni milli
Neðra- og Efra-Breiðholts sem
er vinsæll útivistarstaður fyrir
krakka.
Ef vegurinn verður ekki lagð-
ur i þessari brekku, sem allt út-
lit er fyrir leggst þvi aukinn um-
ferðarþungi yfir á Vesturbergið
sem nú er tiltölulega róleg húsa-
gata. Aður en Hólatengingin
kom var geysimikil umferð um
Vesturbergið eða um 8000 bilar
að sunnanverðu en 5000 bilar að
norðanverðu. Voru ibúar þar af-
ar óánægðir með hana. Nú er
umferðin þar komin niður i 2800
bila á sólarhring og að auki hef-
ur gatan verið þrengd til að
draga úr hraöa á henni. Um leið
og Höfðabakkinn verður lagður
er búist við þvi að umferð um
Vesturberg aukist um 20% og ár-
ið 1995 þegar bilaumferð um
Höfðabakka verður orðin 17
þúsund bilar á sólarhring verð-
ur umferð um Vesturberg orðin
6800 bllar. Þá er komið hálfgert
hraðbrautarsnið á þá götu og ill-
mögulegt að hafa innkeyrslur
beint af henni inn á einstakar
lóðir eins og nú er við raðhúsin
þar.
Brúin yfir Elliðaár yrði ekk-
ert smásmiði. Gilbreiddin er 160
metrar og gert er ráð fyrir að
brúin verði 80 metrar á lengd en
afgangurinn verði fylltur upp.
Að sunnanverðu verður fylling-
in þvi 4-5 metra há. Þetta raskar
að sjálfsögðu mjög umhverfinu.
Af heildarumferð Breiðhylt-
inga færi 7% um þessa brú og
styttist leið þeirra um 2 km eða
úr 4.5 km yfir I Artúnshöfða i 2.5
km. Þeir yrðu þvi 3 minútur á
leiðinni I stað 5 minútna áður.
Þess skal getið I þessu sam-
bandi að meöalvegalengd Reyk-
vikinga sem þeir þurfa aö fara I
vinnu mun vera yfir 4.5. km.
1 þjóðviljanum I gær voru rak-
in rök Nönnu Hermannsson for-
stöðumanns Árbæjarsafns sem
er eindregið á móti þessum
framkvæmdum, en svo virðist
einnig vera um ibúa Árbæjar-
hverfis og Breiðholts eins og
samtöl hér á slðunni bera vott
um. Spurningin er þvi hvort
ekki væri réttara að ráðast i
svokallaöan Ofanbyggðarveg
Hér keinur hin nýja fjögurra ak-
reina brú til með að koma yfir og
sleikja mörk Árbæjarsafns og
einangra það frá Arbæjarhverf-
inu. (Ljósm.: gel)
fyrir ofan Breiðholt og yfir
Elliöaár upp undir Elliðavatni
og láta nægja góða göngubrú
milli Arbæjarhverfis og
Breiðholts.
Vesturberg er núna tiltöluiega róleg húsagata með innkeyrslum beint
inn á hverja lóð. Með Höfðabakkahraðbrautinni kæmi stóraukinn um-
ferðarþungi á þessa götu,og þrengingu hennar sem sést i fjarska yrði
— GFr að afnema. (Ljósm.: gel)
Almenn
andstaða
Ef hraðbraut verður lögð um
Höfðabakka með tilheyrandi
brú yfir Elliðaár rétt fyrir neð-
an stlfluna koma þessar fram-
kvæmdir að öilum likindum til
með að auka umferð um Ibúðar-
hverfi Breiðholts auk þess að
skera Árbæjarsafnið frá
Arbæjarhverfinu. Þjóðvilja-
menn bönkuðu upp á i nokkrum
húsum við Vesturberg, þar sem
umferðarþunginn mun senni-
lega vaxa mjög, og við Ystabæ I
Arbæjarhverfi sem liggur næst
hraðbrautinni ef af gerð hennar
verður. Allir sem talað var við
voru andvlgir þessum fram-
kvæmdum,en það vakti þó sér-
taka athygli að fæstir virtust
hafa minnstu hugmynd um hvað
til stæði þó að komiö sé að
ákvörðun I borgarstjórn.
Fyrir utan Vesturberg 127
hittum við að máli Bertu Braga-
dóttur og sagði hún að flestir
Ibúar götunnar legðust örugg-
lega gegn þvi að umferð um
hana yrði aukin. Sjálf sagðist
hún vera mjög óhress yfir
slikri þróun og sagöist muna
það ástand sem var áður en
Neðra-Breiöholt var tengt Hóla-
hverfinu, en þá var umferðar-
þunginn geysilegur um Vestur-
berg. Upphaflega átti að vera
sérstök húsagata meðfram rað-
húsunum vestanvert við Vestur-
berg en slðan var horfið frá þvi
og nú eru innkeyrslur beint frá
götunni að hverju húsi. Þetta
fyrirkomulag gengur hins vegar
ekki ef stóraukinn gegnumakst-
ur yröi I gegnum Vesturberg.
Þá hringdum við á annað hús I
Vesturberginu og kom til dyra
Jóhanna Haraldsdóttir. Hún
sagði að gatan væri ákaflega
barnmörg og foreldrar kærðu
sig örugglega ekki um aukna
umferö um götuna. Sérstakar
þrenginar hefðu lika átt að
þjóna þvi markmiöi að hægja
umferðina en sjálfsagt yrði að
taka þær af ef umferðarþunginn
Berta Bragadóttir: Ég yrði ákaf-
lega óhress með aukna umferð
um Vesturberg.
á eftir að stóraukast. Hitt er
annaö mál, sagöi Jóhanna, að
ekki er nema ein leið úr Breið-
holti yfir i Arbæjarhverfi og
þegar farið er út úr bænum og
þurfa Breiðhyltingar að taka á
sig stóran krók til að komast
þangað. Úr þessu þyrfti aö
bæta.
1 Ystabæ 1 kom til dyra Þór-
hallur Steinarsson og sagðist
hann vera andvigur hrað-
brautarlagningu milli Arbæjar-
safns og Árbæjarhverfis. Hér er
ákaflega rólegt og notalegt
hverfien hraöbraut mundi gjör-
samlega rjúfa þá kyrrð, auk
þess að skera safniö frá hverf-
inu. sagöi hann.
Jóhanna Ha raldsdóttir :
Foreldrar kæra sig örugglega
ekki um að auka umferð um
götuna.
Þórhallur Steinarsson: Hrað-
braut mundi gjörsamlega rjúfa
þá kyrrð sem hér er.
Frúin að Ystabæ 3 kom til
dyra en vildi ekki láta nafns sins
getið né láta taka mynd af sér.
Hún sagðist vera búin að búa I
þessu húsi I 7-8 ár og allan tim-
ann litist illa á hraðbraut yfir
Elliðaár fyrir neðan stiflu. Mér
er meinilla við að eyðileggja Ar-
bæjarsafn sem er einhver dýr-
mætasti staður sem Reykvik-
ingar eiga og að auki hefur verið
gert ráð fyrir gróðursvæði á
Bæjarhálsi sem m.a. er ætlaö
fyrir Arbæjarhverfið. Hita-
veitustokkurinn er eiginlega há-
punktur þessa fallega svæðis.
Eftir honum er ákaflega gaman
að ganga en hann erins og
reyndar friðhelgi svæöisins alls
yrði rofin með þessum
framkvæmdum, sagöi frúin.
Ég tel aö allt Elliðaársvæðið
með sinum laxveiðum eigi að
friöa og tengja saman með
gangstigum. Þaö yröi ekki aö-
eins Breiðholtsbúar sem not-
færðu sér hina nýju hraðbraut
heldur öll Suðurnes og þá færu
100 þúsund manns i gegn. Um
helgar færi öll umferð af þess-
um svæðum austur, vestur og
norður um þennan veg,auk ann-
arra flutninga.
Frúin I Ystabæ 3 sagði að lok-
um aö alls ekki mætti rjúfa frið-
helgi Arbæjarsafnsins með
þessari framkvæmd. Betra væri
þá að brúa árnar ofar. — GFr