Þjóðviljinn - 16.02.1980, Síða 12

Þjóðviljinn - 16.02.1980, Síða 12
12 StÐA — ÞJ6ÐVILJINN Laugardagur 16. febrúar 1980. sHák Umsjón: Helgi ólafsson Fléttu- meistar- inn Tal Það er ekki að ósekju að Mik- hael Tal hefur verið nefndur mesti flækjumeistari allra tima. A ferli sfnum hefur hann teflt aragrúa skáka þar sem fórnir og læti eru sett á oddinn. Hver hans stórkostlega fórnarskák um dagana er, verður ómögulegt að segja. Ein sem örugglega kemst næst þvi var tefld á millisvæða- mótinu i Amsterdam 1964. Tal hafði svart, og andstæðingur hans var Ungverjinn Lajos Portisch: Hvftt: Portisch Svart: Tal Kóngsindversk vörn 1. d4-Rf6 8. Hel-He8 2. c4-g6 9. Db3-Rc6 3. g3-Bg7 10. d5-Ra5 4. Bg2-0-0 11. Da4-b6 5. Rf3-d6 12. Rd2-Bd7 6. Rc3-Bg4 13. Dc2-c6 7. 0-0-DcS 14. b4-Rxc4!? (Einkennandi fyrir Tal á þessum árum. Að hræra upp i stöðunni með mannsfórnum var hans lif og yndi. En þetta er einungis byrjun- in.) 15. Rxc4-cxd5 16. Ra3-d5! 17. Bxa8-Dxa8 (Upphafið. Tal er hrók undir, en teflir framhaldið engu aö siður eins og ekkert hafi i skorist.) 18. Rcb5-Hc8 21. Rxd4-Dd5 19. Ddl-Re4 22. Be3 20. f3-a6 (Hér var taliö betra að leika 22. Bb2 eöa 22. Rac2. Auðvitað finnast bestu leikirnir i slikum stöðum ekki fyrr en eftir á.) 22. ...-Hc3 23. Rdc2-Df5 24. g4-De6 25. Bd4-h5! 26. Bxg7-hxg4 27. Rd4 (Hér gat hvitur unnið með 27. Bxc3 sem svartur svarar best með 27.-g3.Vinningsleiðin er vandrötuð og Portisch var auk þess I æðisgengnu timahraki.) 27. ...-Dc5 28. fxd4-Dxe4 (Hvitur er hrók og tveimur mönn- um yfir. Það dugir þó eigi til vinn- ings.) 29. Kf3-De3+ 32. Dcl-gxf3! 30. Khl-Bc6 33. Dxc6 31. Hfl-Hxa3 (Eftir 33. Dxe3 ratar hvitur i taphættu eftir 33. — fxe2+ 34. Kgl exfl (D)+ 35. Hxfl Hxe3 o.s.frv.) 33. ...-Dxe2 34. Hgl-Kxg7 (Svartur er nú aðeins hrók undir og með sæg af peðum fyrir. Portisch þarf að halda vel á spöðunum til að halda jöfnu.) 35. Hael-Dd2 38. Hdl-De2 36. Hdl-De2 39. Hdel 37. Hdel-Dd2 — Jafntefli. Hvilik skák* Bifreiðastjórafélagið Sleipnir Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudagskvöld- ið 18. febrúar n.k. i Iðnaðarmannahúsinu, Hallveigarstig 1, og hefst kl. 20.00 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lagabreytingar 3. Önnur mál Áriðandi að mæta vel og stundvislega. F.h. Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis, ALÞÝÐUSAMBAND Islands Lögtök Eftir kröfu tollstjórans i Reykjavik og að undangengnum úrskurði verða lögtök lát- in fram fara án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð rikissjóðs að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi, svo og söluskatti af skemmtunum, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti fyrir okt., nóv. og des. 1979, svo og nýálögðum viðbótum við söluskatt, lesta-, vita- og skoðunar- gjöldum af skipum fyrir árið 1979, skoðunargjaldi og vátryggingaiðgjaldi ökumanna fyrir árið 1979, gjaidföllnum þungaskatti af disilbifreiðum samkvæmt ökumælum, almennum og sérstökum út- flutningsgjöldum, aflatryggingasjóðs- gjöldum, svo og tryggingaiðgjöldum af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum. Borgarfógetaembættið i Reykjavik 13. febrúar 1980 ■ Frá Akureyri Myndlistarskólinn á Akureyri verdi dagskóli Að undanförnu hefur staðið yfir innritun i Myndlistarskóia Akureyrar. Nokkur nýmæli eru þar á ferð svo sem námskeið i quilting, (kúta-og vattsaumur), svo og leturgerð. Kennd verður og nútfmamálun, nýlist, lista- saga og fagurfræði. Hingað til hefur skóiahaldið farið fram i formi námskeiða en að hausti er hugmyndin að hefja dagskóla þar sem kennt verður 48 stundir i viku. Að sögn Helga Vilberg, skóla- stjóra er tilgangur skólans sá að veita nemendum alhliða undirbúningsmenntun fyrir al- Hlynur Sjötta og þar með siðasta tbl Hlyns barst okkur fyrii skemmstu. Þar skrifar Katrin Maris- dóttir forystugreinina Aukin samvinnufræðsla. Ég hef alltaf verið að leika mér, nefnist við- tal Guðmundar R. Jóhannsson- ar við Svavar Guðmundsson, en teikningar með viðtalinu hefur Arni Elfar gert af mikilli „kúnst”. Rætt er við Pétur Kristjónsson um samtök og starfsemi samvinnustarfs- manna á Norðurlöndum. Guð- bjartur össurarson segir frá og sendir myndir af árshátið Starfsmannafélags Kaupfélags Austur-Skaftfellinga. Guð- mundur R. Jóhannsson á þarna frásögn af siöustu ferð Sunnu. Myndaopna er frá árshátið Starfsmannafélags Kaupfélags Rangæinga á Hvolsvelli og loks er I ritinu Ársskýrsla Nemenda- sambands Samvinnuskólans. —mhg Umsjón: Magnús H. Gíslason mennan myndlistarskóla og að undirbúa nemendur undir nám i sérdeildum Myndlistar- og handiðaskóla tslands. Forskól- inn verður sniðinn eftir þvi, sem tiðkast við þann skóla og hefur þegar hlotið viðurkenningu nans. Inntökupróf i forskólann fara fram i vor og kemur þá prófdómarifrá M.H.I. og dæmir úrlausnir, enda verða þar gerð- ar sömu kröfur og til inngöngu i forskóla M.H.l. Myndlistarskólinn á Akureyri er einkaskóli, rekinn á sama grundvelli og Myndlistarskólinn i Reykjavik. Samt er mikill munur á þvi hvernig rikið býr að þessum skólum um fjár- framlög. Fyrir þetta starfsár fékk Myndlistarskólinn á Akur- eyri aðeins 197 þús. kr. framlag úr rikissjóði fyrir þetta starfsár meðan Reykjavikurskólinn fékk tæpar tvær miljónir. Kennara skortir Akureyrarskólann ekki en aftur á móti fjármuni. Skóla- stjóri hefur ritað fjárveitinga- nefnd bréf þar sem gerð er grein fyrir fyrirætlunum skólans og fjárþörf en um undirtektir er ekki vitað. Helgi Vilberg skólastjóri telur að nokkurs misskilnings gæti hjá fólki um myndlistarnám. Yfirleitt álitur fólk, að slikt nám miðist einvörðungu við listmál- un en hún er þó aðeins litill hluti námsins. Myndlistarskólar út- skrifa fólk með fjölbreytta menntun svo sem hönnuði ýmiss konar og ætti að vera skilningur á sliku i iðnaðarbæ eins og Akureyri. Aftur á móti verða allir að taka sama fornám en það er einmitt slikt nám, sem Myndlistarskólinn á Akureyri vill bjóða. En þótt litið sé fram- hjá hinu margvislega hagnýta gildi námsins þá er myndmennt aðeins einn þáttur i almennri menntun, jafn mikilvægur og bókmenntir, tónlist eða hvað annað, sem flokkast undir listir. —mhg Geirfuglinn Eftirfarandi visa fannst á förnum vegi norður i Tungusveit i Skagafitði i sl. viku: Falliö hefur foringinn, frækna liðið brotið. Grætur enginn Geirfuglinn, sem Gunnar hefur skotið. Smábátaeigendur í Keflavik og Njarðvík Stofna meö sér félag Hinn 27. jan. sl. var stofnað i Keflavlk Félag smábátaeigenda I Keflavlk og Njarðvik, Að þvi er formaður hins nýstofnaða félags, Július Högnason, hefur látið uppi við Suðurnesjatfðindi er tilgangur þess öðru fremur sá að vinna að bættri aðstöðu fyrir bátana I Landshöfninni Kefla- vlk-Njarðvik, þannig að þeir liggi ekki undir stöðugum skemmdum ef eitthvað verulegt er að veðri, en það hefur þrá- faldlega hent. Auk þess hafa smábátarnir oröið að færa sig stað úr stað til þess að rýma fyrir stærri skipunum. Þarna er um mikil verðmæti að ræða fyrir eigend- ur þvi margir bátanna kosta þetta frá 6-8 miljónum kr. A fundinum gengu 39 menn I félagið og komust þó færri á fundinn en vildu. Telur Július liklegt að þeir gangi i félagið á næstunni og gæti þá svo farið að ekki yrðu færri en um 60 manns i félaginu. Július Högnason sagði að á fundinum hefði verið samþykkt að hver félagsmaður gæfi 4 dagsverk og kæmi félagið til með að telja 60 manns þá væru þetta 240 dagsverk. Ætti þess einhvern stað að sjá og vonandi þægju hafnaryfirvöld þetta boð. Margir smábátaeigendurnir stunda róðrana fyrst og fremst i fristundum slnum. Sumir eru þó stöðugt að i tvo til þrjá mánuði að sumrinu. Flestir eru bátarnir frá 1 1/2 til 6 tonn. Auk Júliusar Högnasonar skipa stjórn félagsins þeir Magnús Ingimundarson, vara- form., Pétur Jóhannsson, gjald- keri, Vilberg Guðmundsson, rit- ari og Meinard Nilsen með- stjórnandi. Varastjórn: Einar Gunnarsson, Valdimar Axels- son og Asmundur Sigurðsson. —mhg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.