Þjóðviljinn - 26.02.1980, Síða 15
f m n «/ l
« i ( i *
i N
Þriöjudagur 26. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Áður fyrr á árunum
I morgunútvarpinu i dag er
þáttur Agústu Björnsdóttur,
,,Áöur fyrr á árunum” á dag-
skrá.
— Efni þáttarins, sagBi
AgUsta, — eru tvær frásagnir
um vetrarferöir. Sú fyrri er
um sleöaferö, sem farin var
1918 úr Laxárdal i Suöur-Þing-
eyjarsýslu til Svalbaröseyrar.
Sú frásögn er eftur Gunnlaug
Gunnarsson i Kasthvammi.
Hildur Hermóösdóttir les.
Seinni frásögnin er úr ævi-
sögu Arna prófasts Þórarins-
Útvarp
kl. 10.25
sonar, um vetrarferö austur i
sýslur fyrir siöustu aldamót.
Guöni Kolbeinsson les.
Þá fá hlustendur aö heyra
Lissý á Halldórsstööum
syngja „Home, Sweet Home”,
og Arnesingakórinn syngja
nokkur lög, — sagöi Agústa aö
lokum.
k — ih
Coca-Cola hin
eyöandi tíska
vorra daga
Eftirfarandi grein fundum viö i
Hollefni og heilsurækt, timariti
Heilsuhringsins, 1. tbl. 2. árg.
(september 1979):
Maurice Strong er maöurinn
sem stóö fyrir umhverfisráö-
stefnunni i Stokkhólmi 1972 og sá
sem ef til veröur næsti forsætis-
ráðherra Kanada eftir Trudeau.
Hann er enginn meöalmaöur,
hvorki i opinberu eöa einkalffi
Hann hefur kjark til aö hafa
skoöanir og segja þær, sérstak-
lega þegar honum þykir eitthvaö
fara miöur.
Hann kom meö óvænta gagn-
rýni á Coca Cola sem var svo
mögnuö aö viö kipptumst viö.
Megum viö örugglega hafa þetta
eftir þér? ,,0f course” skrifiö þaö
Ineö stórum stöfum. Þaö er sann-
leikur.
Þaö var nánast tilviljun aö viö
komum inn á Coca Cola og
matarvenjur unglinga i dag.
— Coca Cola er lifshættulegt,
vegna þess aö þaö er oröin tiska.
Coca Cola tlskan er einmitt hiö
neikvæöa kennimerki um neyslu-
venjur. Þaö er tiska sem gengur
út á sjálfeeyöileggingu
Þaö er ótrúlegt aö svona geysi-
öflugtfyrirtæki meö þennan stóra
alþjóölega markaö (Coca Cola er
fáanlegt i eyöimörkinni, i frum-
skóginum,nú i Sovétrikjunum og
fyrsta varan sem er á bóöstólum
I Kina frá Bandarikjunum) meö
vitund og vilja leggur i sölu á
framleiöslu éem er svo eyöi-
leggjandi. Hugsum okkur ef hægt
væri að snúa þessari þróun og
nota allt fjármagniö til aö selja
heilsuvöru sem væri mannkyninu
til gagns. Þaö er raunverulega
algjört hneyksli aö svo mikiö
skuli vera gert til aö rifa niöur i
staö þess aö byggja upp.
Coca Cola er oröiö svona hættu-
legt vegna þess aö þaö fellur inn i
venjur, þaö er einfaldlega oröiö
tiska („Allt gengur betur meö
Coca Cola” —þó hiö gagnstæöa sé
sannleikanum nær) og hún leiöir
til sjálfseyöileggingar.
Coca Cola er verra en brennivin
og bjór og tóbak. Litil börn — já,
jafnvel kornabörn byrja meö
Coca Cola og venjur byrja aö
myndast — matarvenjur — sem
eru gagnstæðar öllu sem heitiö
getur ,,heilsuverndandi” og eru
niöurbrjótandi, og þetta undir-
strikar Maurice Strong meö
þunga.
Coca Cola er rétt og slétt eyöi-
leggjandi — hiö gagnstæöa viö aö
byggja upp og viöhalda — It is
terrible absolutely terrible!
Þaö ætti aö nota nákvæmlega
sömu aöferöir fyrir heilsuvörur —
þaö væri mannkyninu til góös —
en ekki til niöurrifs á öllu sem er
jákvætt. Þaö er ekkert —
nákvæmlega ekkert jákvætt viö
Coca Cola.
Viö vonum aöeins aö margir
lesi þessi orö og leggi þau á minn-
ið. S jálf höfum viö oft oröiö hrædd
og hrygg yfir öllum þessum
glansauglýsingum hvar sem er.
Liflegt heilbrigt fólk á lysti-
snekkiu eöa I einhveriu tóm-
stundagamani eöa iþróttum.
„Allt gengur betur meö Coca
Cola”. Hvaö i ósköpunum gengur
betúr meö Coca Cola? Hvar eru
neytendasamtökin? Hver getur
sannaö aö allt gangi betur meö
Coca Cola? Hins vetar er hægt aö
sanna aö þaö gengur verr.Þaö er
sannaö aö unglingar I mörgum
löndum veröa stööugt verr á sig
komnir, feitir, uppblástnir, slapp-
ir og sljóir meö fjölda sjúkdóma
sem herja á yngri og yngri. Þetta
á rót sina aö rekja aö miklu leyti
til matarvenja sem fyrir þúsundir
unglinga er aöallega franskar
kartöflur, pylsur, tómatsósa og
Cola. Þetta veröur aö taka enda.
En til aö svo geti oröiö þarf aö
hefjast handa.
Stytt úr Vi og Várt.
S.H.
Hvað finnst þér?
Viðtal við karlprest
1 Fréttabréfi biskupsstofu, 2.
tbl. þessa árs, birtist eftirfar-
andi viötal, þýtt úr timaritinu
Vár kirke.
Séra Jón Jónsson hefur veriö
skipaöur prestur i söfnuöi okk-
ar. Af þvi tilefni haföi safnaöar-
blaöiö viötal viö hann.
Er nokkur sérstök forsenda I
Bibliunni, séra Jón?
Biblian segir bæöi frá kven-
kyns spámönnum og
predikurum sem og karlkyns.
Þaö er þessvegna ekkert hik á
mér aö gerast prestur, þótt ég
sé karlmaöur.
Þaö voru nú konur sem
boöuöu fyrstar undirstööu krist-
innar trúar, nefnilega aö Jesú er
upprisinn. Oftlega kenndi Jesú
konuin guöfræöi, eins og Marlu
systur Mörtu og samversku
konunni.
Jú, en Jesú átti nú lika karl-
kyns lærisveina og kenndi þeim
einnig.
Er ekki erfitt fyrir karl aö
stunda prestsstörf? Yfirleitt eru
miklu fleiri konur en karlar sem
starfa i söfnuöum og sækja
kirkju. Þætti þeim þaö ekki
framandi aö hljóta þjónustu af
karlpresti?
Ja, þaö eru nú karlar i
söfnuöum lika. En liklega ætti
karlprestur aö foröast aö vera i
einmenningsprestakalli til aö
ekki skapist óþarfa vandamál.
Þaö er staöreynd aö konur eru
sáiarlega sterkari en karlar.
Geta karlar almennt ráöiö viö
svo krefjandi starf sem prests-
starfiö er? Eöa felur þaö I sér aö
hann eigikonu sem getur gengiö
I starfiö meö honum?
Nú, karlprestar geta varla
vænst þess aö eiginkonurnar
vinni starf þeirra meö þeim.
Þær hafa oftast eigin starfi aö
sinna. Hinsvegar getur maöur
vænst þess að konurnar taki lika
þátt i húsverkum og barnaupp-
eldi á sama hátt og karlar.
Reyndarværi mjög æskilegt aö
karlprestar gætu fengiö hálft
starf meðan börnin eru minni.
Rannsóknir sýna aö feöur
almennt tala aöeins nokkrar
minútur á dag viö börn sin innan
skólaaldurs. Þetta kemur
sérlega illa út hjá prestum sem
eru feöur, þar sem starfstimi
þeirra er óreglulegur og
gjarnan á kvöldin.
Þau gildi sem kristin trú
ieggur áherzlu á — miskunn-
semi, hjálpsemi, , mildi,
umhyggja, elskusemi eru meöal
hinna svonefndu „mjúku” gilda
og þau hafa einkennt llfsviöhorf
kvenna á öllum öldum. Er þaö
mögulegt fyrir karlmenn aö
halda þessum giidum I heiöri á
viöundandi hátt?
Þaö er satt aö þessi gildi eru
miölæg I fagnaöarerindinu. En
söfnuöir þurfa lika ákveöni og
reglu og þar er nú styrkur karl-
mannsins.
Mun karlprestum ekki þykja
óþægilegt aö klæöast hinni hefö-
bundnu kvenfllk, kjólnum, sem
prestshempan er I rauninni?
Ja, viö vildum sjálfsagt fá
nútimalegri búnaö. En ég held
ekki aö fólk bregöist svo illa
viö aösjá karlprest I kjól. Konur
hafa nú lengi gengiö i slöbuxum.
Hér I samfélaginu er fátt
kvenna I opinberum nefndum,
nema helzt i kirkjunni. Þaö eru
t.d. sóknarnefndir sem einvörö-
ungu eru skipaöar konum. Er
kirkjan aö ýta karimönnum til
hliöar?
Siöustu ár hefur mikiö veriö
rætt um stööu konunnar I
kirkjunni, fjöldi bóka og greina
hafa veriö skrifaöar um þaö
efni. Þaö skal játaö aö maöur
finnur fyrir misræmi hvaö þaö
snertir. Boöskapur kirkjunnar
felur I sér jafnrétti fyrir Guöi,
og þvl er eölilegt aö sem fyrst
hefjist guöfræöileg vinna og
ábyrg umræöa um stööu karla I
kirkjunni.
Vetrarolypiuleikamir í Lake Placid:
Svig
kvenna
á dag-
skránni
í kvöld
Svipmyndir frá Vetrar-'
oly mpiuleikunum I Lake
Placid veröa á dagskrá sjón-
varpsins ki. 2055 I kvöld. Sýnd-
ar veröa myndir af svigkeppni
kvenna, en þar sigraöi Hanni
Wenzel frá smáríkinu
Liechtenstein.
Steinunn Sæmundsdóttir,
Reykjavík var meöal
keppenda I sviginu. Hún
keyrðimjögvel 1 fyrri feröinni
og hafnaöi I 19. sæti. 1 seinni
umferöinni varö hún fyrir þvi
óláni aö keyra út úr brautinni
og þar meö var hún úr leik.
Um sýningar sjónvarpsins á
myndum frá Vetrarolymplu-
leikunum er gott eitt aö segja,
en mikili ósköp er slæmt aö
skærunum skuli ekki hafa
veriö beitt aö gagni. Viö höf-
Sjónvarp
kl. 20.55
um gaman af þvl aö sjá þá
bestu, en þaö er litiö
spennandi aö sjá sklöakappa I
40. sæti renna sér niöur braut-
ina, nema hann sé islenskur,
auövitaö.
Kjartan
og Hannes
Hólmsteinn
ögmundur Jónasson hefur
umsjón meö sjónvarpsþættin-
. um Umheimurinn I kvöld.
— í fyrsta lagi veröur fjallað
um Miö-Ameríku, — sagöi
ögmundur, — en þar hefur
sem kunnugt er veriö heitt i
kolunum aö undanförnu. Ég
mun ræða viö Sigurö Hjartar-
son, sem er sérfróöur um
málefni þessara landa, og
einnig mun Margrét Bjarna-
son, formaöur Islandsdeildar
Amnesty International, segja
frá mannréttindabrotum þar.
— 1 öðru lagi mun ég fjalla
litillega um Iran og þær breyt-
ingar sem þar hafa oröið upp á
siðkastið. Einsog i framhaldi
af þvi mun ég svo fá tvo menn
I sjónvarpssal til aö ræöa viö
mig um þau sjónarmiö, sem
menn leggja til grundvallar
Sjónvarp
kl. 22.30
þegar þeir meta og dæma
rikisstjórnir og málefni. Fyrr-
verandi Iranskeisari sagöi I
sjónvarpsviötali, sem sýnt var
hér fyrir skömmu, aö á
Vesturlöndum hefðu menn
dæmt hans stjórnarfar eftir
vestrænum sjónarmiðum, en
hinsvegar væri stjórn
K’nomeinis dæmd út frá öörum
forsendum, þ.e. hún væri
metin sem stjórn Asiurlkis.
Þetta og margt fleira veröa
útgangspunktarnir i
umræðunum, en þeir tveir
menn sem ætla aö ræöa þetta
eru Kjartan ólafsson.fyrrver-
andi alþingismaður, og
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son, — sagði ögmundur aö
lokum.
Ekki er að efa að mörgum
mun þykja spennandi aö sjá
þessa tvo, Kjartan og Hannes,
leiða saman hesta sina i
sjónvarpssal.
-ih.
Köttur á köldu bllþaki, gæti þessi mynd heitiö. Ljósm. -eik-.
Kjartan ólafsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson leiöa saman
hesta slna I sjónvarpsþættinum Umheimurinn I kvöld.