Þjóðviljinn - 07.03.1980, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. mars 1980
Haukur Már Haraldsson, rítstjóri:
Þokunni lyft
Reykjavík, 5. mars 1980.
Hr. ritstjóri.
Meðfylgjandi grein er
skrifuö með birtingu I
Morgunblaðinu í huga, enda
til komin vegna efnis i þvi
blaöi 22. febrúar sl.
Morgunblaöinu var afhent
þessi grein þriðjudaginn 26.
febniar og mér þá sagt aö
hún myndi að llkindum
birtast I iaugardagsblaðinu
þar á eftir, þ.e. 1. mars.
Greinin hefur ekki enn
birst í Morgunblaöinu, þótt
ég hafi hins vegar verið full-
vissaður um að hún muni
birtast þar, — spurningin sé
aðeins hvenær, þar sem
lengd hennar vefjist talsvert
fyrir ráðamönnum þar. Ég
tel hins vegar að gildi
greinarinnar rýrni ef birting j
hennar biður miklu lengur og
vil þvi fara fram á að þér
birtið hana i blaði yöar.
Virðingarfyllst,
Haukur Már Haraldsson
ritstjóri Vinnunnar.
Merkilegar
yfirlýsingar
Þann 12. desember 1978 var
Pedro Quevedo myrtur. Quevedo
var gjaldkeri I stjórn verkalýös-
félagsins viö Coca Cola verk-
smiöjuna i Guatemala City,
Embotelladora Guatemalteca.
Samhliöa þessu morði voru 23
verkamenn við verksmiöjuna
fangelsaöir á fölskum forsendum,
og margir starfsfélagar þeirra
fengu hótun um liflát ef þeir ekki
undirrituöu skjai sem beint skyldi
gegn stjórn verkalýösfélagsins.
Þessari hótun var dreift heim til
verkafólksins, þannig að nöfn
þess og heimilisföng hljóta aö
hafa veriö fengin hjá starfs-
mannahaldi verksmiðjunnar.
Liölega mánuöi eftir aö þetta
áttisér stað, þann 16. janúar 1979,
gengu tveir menn úr sérstakri
deild lögreglunnar, Pelotan
Modelo, inn á verksmiðjusvæöi
kókverksmiöjunnar, án þess að
reyna á nokkurn hátt aö fela er-
indi sitt. Þeir gerðu tilraun til aö
ræna Israel Marquez formanni
verkalýösfélagsins á staðnum, en
honum tókst að komast undan i
bifreið og sakaöi ekki þótt skot-
hríðin frá mönnunum tveimur
dyndi yfir bifreiðina og gluggar
hennar væru sundurskotnir.
Þann 24. janúar var bifreiöa-
stjóri nokkur drepinn i ibúöarhúsi
Marquez, og var þar bersýnilega
um mistök að ræða. Morðingjarn-
ir héidu aö þarna væri Marquez
sjálfur á ferðinni.
Þann 5. april þetta sama ár var
Manuel Lopez Balan myrtur, en
hann hafði veriö álitinn einna lik-
legastur eftirmaður Israels Mar-
quez i formannsstóli verkalýðs-
félagsins. Balan var rænt þegar
hann var að aka út kóki I Guate-
mala City og fannst likami hans
nokkru siðar. Hann bar augljós
merki um pyntingar.
Eftir þetta morö á Balan flýðu
30 verkalýðsleiðtogar í Guate-
mala land og margir hafa sagt
stöðum sinum viö kókverksmiðj-
una lausum. Israel Marquez var
meöal þeirra sem flýöu land.
Hann komst inn á aöalfund hlut-
hafa í Coca Cola samsteypunni i
Atlanta, Bandarfkjunum, I mai
1979 og baö ráöamenn þar aö
gripa i taumana svo ofsóknum
gegn verkafólki I verksmiöjunni I
Guatemala linnti. Þessari mála-
leitan var visaö á bug af sam-
komunni.
1 ljósi þess sem hér að framan
er frá sagt, er býsna forvitnilegt
aö lesa plagg sem virðist vera
einhvers konar yfirlýsing Vlfils-
fells h.f., framleiðanda Coka Cola
á íslandi. Plagg þetta birtist I
Morgunblaðinu 22. febrúar s.l. og
er nánast birt sem innlegg Péturs
Björnssonar framkvæmdastjóra
Vífilsfells I mjög svo takmarkaö-
ar umræöur um málið á sömu
siðu.
Upphaf þessa plaggs sýnir
strax á hvaða strengi skal slegið:
„Vegna þess að sænskt (leturbr.
min, HMH) verkalýðsfélag i mat-
vælaiðnaði reis upp skyndilega og
heimtaöi aö Coca Cola I Sviþjóð
yrði sniðgengið þangað til Coca
Cola félagið heföi tekið fram-
leiðsluleyfið af verksmiðju i
Guatemala og hvatti um leið al-
þjóðleg samtök verkafólks viö
matvælaiðnaö að styöja viö bak
sér, þá viljum við koma á fram-
færi yfirlýsingu frá Coca Cola
félaginu I Atlanta um þetta mál,
og einnig vegna þess að hingað
eru komin bréf um þetta efni til
Iöju og fleiri félaga.”
Burtséö frá þvi aö þessi setning
er hin ágætasta öndunaræfing, er
með henni reynt á svarthöfðskan
hátt að læða þvi inn hjá lesendum
að þau læti sem oröið hafa um
heim allan vegna Coca Cola I
Guatemala séu upprunnin hjá
Svium og þess vegna ekki mark-
tæk. Tryggir lesendur Morgun-
blaösins vita jú vel að Svíar eru
vont fólk, — gott ef ekki kommún-
istar.
Plagg framkvæmdastjórans
heldur áfram: „Þykir okkur rétt
að skýring þessi komi núna, eink-
um vegna þess að fregn þessi er
forsendulaus og auk þess ár slöan
farandfrétt þessi fór um Vestur-
lönd en hefur legiö niðri vegna
ónógrar forsendu og sanninda um
þetta óljósa mál. Við vitum aö
margir aöilar og hópar eru ávallt
reiðubúnir aö dæma strax, þó
enginn fótur sé liggjandi fyrir
söguburöum.”
Þetta er óneitanlega hraustlega
mælt, sérstaklega miöað viö þá
staðreynd aö þegar I mars 1977
hóf IUF (alþjóðasamtök starfs-
fólks I matvælaframleiðslu) til-
raunir sinar til að fá verkalýðs-
félag starfsfólks i kókverksmiöj-
unni I Guatemala viöurkennt.
Þann dag var sent skeyti þess
efnis til Lucians Smith, formanns
hlutafélagsins Coca Cola, og
Johns Trotter eiganda verksmiðj-
unnar I Guatemala City. Slöan
hefur þetta mál verið I gangi af
háifu Alþjóöasambandsins en
farið smáharðnandi eftir þvl sem
á tímann hefur liöið, vegna fram-
komu stjórnar verksmiöjunnar.
Þaö kann vel að vera, að mál
þetta sé allt fremur óljóst og
þokuhulið i augum Péturs Björns-
sonar og þeirra sem rikjum ráða
hjá Vlfilsfelli. En ég get fullvissað
hann um að það er kristaltært i
augum þeirra sem haft hafa fyrir
þvi aö kynna sér málsatvik. Þaö
hefur Pétur ekki gert, eins og
andsvör hans I fjölmiölum bera
meö sér, heldur ber hann fyrir sig
yfirlýsingu frá Coca Cola Com-
pany i Atlanta og birtir hana I
Morgunbiaðinu I beinu framhaldi
af plaggi þvi sem vitnaö er til hér
aö framan.
Litum á þessa bandarisku yfir-
lýsingu:
Þar segir I upphafi frá þvi aö
beiðni hafi komið frá IUF um aö
úthýsa Coca Cola af markaði og
sé sú beiöni „algjörlega órétt-
lætanleg”. Segir slðan frá for-
sendum þessarar beiðni, þe. að
„fyrirtækið Embotelladora
Guatemala... hafi gerst sekt um
ofbeldi gagnvart starfsmönnum
sinum”, en þrátt fyrir rannsókn á
vegum Coca Cola Company hafi
ekki tekist að afla haldbærra
sannana, og IUF hafi „ofan á allt
annað visað á bug tillögum Coca
Cola fyrirtækisins I Atlanta um aö
taka umkvörtunina beint til fyrir-
tækisins I Guatemala.”
Þessu næst er I yfirlýsingunni
lögð á þaö áhersla að verksmiöj-
an I Guatemala sé sjálfstætt
fyrirtæki án nokkurra skipulags-
legra tengsla við Coca Cola I
Atlanta. Þannig er reynt að gefa I
skyn aö þeir I Atlanta geti ekkert
gert I málinu, það sé þeim óviö-
komandi.
Rannsókn Coca Cola Company,
sem fyrr er getiö, er sögö hafa
byggst upp á „fjölda viötala I
mörgum löndum við þá aöila sem
þóttust (leturbr. min HMH) búa
yfir sönnunargögnum sem
tengdu verksmiöjustjórnina viö
ofbeldisverkin. Samhliða þessu
var haft náið samstarf við rétta
opinbera aðila (leturbr. min,
HMH).
Þrátt fyrir þessar rannsóknir
tókst ekki að afla sönnunargagna
frá fyrstuhendium sannleiksgildi
ákærunnar, né heldur ná i ábyrga
skjalfestingu um ofbeldisverkin.
Þaö er einnig mjög mikilvægt að
gera sér ljóst að hin réttu og lög-
legu yfirvöld i Guatemalarlki
hafa hvorki borið fram ákærur I
þessu máli né þvl stður dæmt
nokkurn aðila fyrir ábyrgð á of-
beldisverkum.” (leturbr. min
HMH).
Lokst segir i yfirlýsingunni frá
Atlanta að „sumir hópar” hafi
þrýst á að Coca Cola fyrirtækið
rifti samningum við verksmiðj-
una á framleiöski á Coca Cola og
byggja kröfur slnar á þeirri
óraunhæfu (leturbr. min, HMH)
Nokkur orð vegna
yfirlýsinga
Vífilfells hf og
Coca Cola
Company i
Atlanta um ástand
mála i kókverk-
smiðjunni i
Guatemala
forsendu að stjórn verksmiðjunn-
ar I Guatemala City sé ábyrg
fyrir ofbeldisverkunum.”
„Að lokum. Ef einhverjar hald-
bærar sannanir liggja fyrir
tengdar þessum staðhæfingum —
þá viljum við fá aö vita um þær,
segir Coca Cola fyrirtækið” segir
i lok þessarar makalausu yfirlýs-
ingar frá Coca Cola I Atlanta, sem
birt er sem einhver stórisannleik-
ur I Morgunblaðinu s.l. föstudag.
Gangur mála í
Guatemala
Hver skyldu svo vera málsatvik
1 þvi „óljósa” máli sem Pétur
Björnsson talar um. Lftum á:
Coca Cola hefur veriö framleitt
i Guatemala slðan árið 1939.
Verksmiðjan stækkaði við sam-
runa við aðra verksmiöju árið
1956og framleiöir slðan auk kóks-
ins drykki eins og 7-up, Ginger
Ale og Grapette, sem er grape-
fruit-drykkur. Um leið og verk-
smiöjan stækkaöi tók John
Trotter við fyrirtækinu sem aðal-
eigandi og stjórnandi. Trotter er
lögfræðingur frá Houston i Texas,
alræmdur andstæöingur allrar
verkalýðshreyfingar og al-
menningssamtaka yfirhöfuð, ná-
inn vinur þeirra herforingja sem
ráða rikjum i Guatemala og m.a.
þekktur fyrir að vera félagi i hinu
fasistiska John Birch Society I
heimalandi sinu.
Segja má að eftir valdarán
hersins I Guatemala árið 1954 hafi
ömurlegt ástand rikt I landinu,
þarsem almenningur hefur veriö
kúgaöur af herforingjastjórnum
og litt eða ekki þorað að hafast að.
En árið 1975 má segja aö verka-
. lýöshreyfingin hafi byrjað aö
endurskipuleggja sig og þeir sem
einna mestum árangri náöu voru
einmitt starfsmenn Embotella-
dora Guatemalteca, — fram-
leiösluaðila Coca Cola I landinu.
Eftir að hafa átt I launadeilu við
fyrirtækið tókst verkafólkinu að
stofna verkalýösfélag, sem
meirihluti starfsfólksins gekk f.
Þetta félag var jafnvel viöur-
kennt lagaiega, enda þótt dóm-
stólar I Guatemala reyni með öll-
um tiltækum ráöum aö komast
hjá þvi aö viðurkenna verkaiýös-
samtök.
Fyrirtækiö reyndi strax I upphafi-
að koma I veg fyrir að þetta
verkalýösfélag gæti starfað, og
beitti til þess hótunum um at-
vinnuleysi og mútum, auk þess
sem ófélagsbundið vinnuafl var
flutt til verksmiðjunnar frá öör-
um landshlutum.
1 marsmánuöi 1975 kallaöi
verksmiðjustjórinn á lögreglulið
til að stöðva setuverkfall. Arang-
urinn varö 13 alvarlega slasaðir
verkamenn. Fjórtán verkamenn
voru fangelsaðir og 152 reknir úr
starfi.
1 aprll sama ár lýsti John Trott-
er þvl yfir, aö hann myndi aldrei
viðurkenna verkalýðsfélag I sinni
verksmiðju. Fulltrúar ríkis-
stjórnarinnar, verksmiðju-
stjórnarinnar og verkafólksins
áttu slðan saman nokkra fundi og
fyrirtækið neyddist til að endur-
ráða verkamennina 152 sem
reknir höfðu verið mánuöi fyrr.
Viöræður héldu slðan áfram um
vinnuaöstööu og launamál, en
með takmörkuöum árangri.
Fyrirtækinu var jafnframt skipt
upp I 13 aöskildar einingar, i til-
raun til að tvistra þannig félags-
mönnum verkalýösfélagsins og
lama starfsemi þess. Það tókst
ekki.
1 mars 1977 tókst tveimur
félagsmönnum verkalýðsfélags-
ins að komast undan, þegar gerð
var tilraun til aö myrða þá. Þetta
voru þeir Angel Villeda Moscoso
og Oscar Humberto Sarti. Þetta
reyndist vera byrjunin á lang-
varandi tilraunum til að myröa
þá sem voru I forystu fyrir verka-
fólkinu I kókverksmiðjunni. Að
minnsta kosti tvær þessara til-
rauna hafa heppnast, eins og sést
á upphafi þessarar greinar.
Þeir Moscoso og Sarti upplýstu,
að starfsmannahald fyrirtækisins
hefði haft I hótunum við þá og
reynt að fá þá þannig til að hætta
að skipuleggja verkafólkið I sam-
tök.
Slðar á þessu sama ári urðu
tveir lögfræöingar samtaka
verkafólks Luis Alberto Lopez
Sanchez og Guillermo Monzon-
Paz, fyrir morðtilraun, en sluppu
hættulega særðir. I júllmánuði
tókst tilræðismönnum hins vegar
betur. Þá voru lögfræðingarnir
Mario Lopez Larrave og Jorge
Alfonso Lobo Duban myrtir, en
þeir störfuöu báðir fyrir verka-
lýössamtacin CNT, sem starfs-
menn kókverksmiðjunnar eiga
aöild að.
En þrátt fyrir þá hættu sem
verkamennirnir lögðu sig aug-
ljóslega I, héldu þeir baráttusinni
áfram og tókst aö knýja fram
launahækkun I árslok 1977. Þá
hafði starf verkalýösfélagsins
veriö svo árangursrikt, að 94%
starfsmanna voru félagar þar I.
I desember 1978 hófst enn ein
hryðjuverkaaldan gegn starfs-
mönnum fyrirtækisins. Þann 12.
var Pedro Quevedo myrtur, eins
og sagt er frá I upphafi þessarar
greinar. Það er eftirtektarvert i
sambandi við þetta morö, að
strax að morgni þessa dags
umkringdu verksmiðjuna sér-
stakir öryggisverðir, tilkallaöir
af stjórn fyrirtækisins. Um
miðjan dag var svo Quevedo
myrtur.
I inngangi þessarar greinar er
svo sagt frá þvi næsta sem
gerðist, tilrauninni til að ræna
Israel Marquez, morðinu á
bllstjóranum Manuel Antonio
Moscoso Zaldafia, leigjanda 1
húsi Marquez, og loks morðinu á
Manuel Lopez Balan, nánum
samstarfsmanni og líklegum
eftirmanni Marquez i forystu
verkalýösfélagsins. Balan hafði
þá aöeins verið tvo daga i vinnu,
eftir aö hann særðist þegar gerð
var önnur tilraun til að myrða
hann. Balan fannst skorinn á háls
ásamt likum fjögurra óþekktra
fórnardýra. öll likin báru merki
um ótal hnlfsstungur og önnur
merki pyntinga.
Þvi má einnig skjóta hér að að
daginn áður en tilraun var gerð til
að ræða Israel Marquez, 15.
janúar 1979, óku vopnaöir og
óeinkennisklæddir menn allan
daginn á mótorhjólum umhverfis
verksmiðjuna. Bersýnilega að-
vörun til starfsmanna.
A siðasta ári reyndi John Trott-
er nýja aöferð til að ná sér niðri á
verkalýösfélaginu. Hann beitti
sér fyrir stofnun „guls” félags,
Asociacion de Empleados de
EGSA (EGSA: Embottelladora
Guatemalteca SA.), til mótvægis
gegn gamla félaginu, Sindicato de
Trabajadores de Embotelladora
Guatemalteca. Þessi nýi félags-
skapur skyldi fjármagnast þann-
ig aö félagsmenn skyldu greiða
5% af launum sínum og atvinnu-
rekandinn samsvarandi
upphæð á móti. Félagsllf margs
konar fór fram fyrir félagsmenn
eingöngu og þeim stóð til boða
sérstök lánafyrirgreiðsla. Þeir
sem réðust til starfa hjá fyrirtæk-
inu eftir aö þetta „guia” félag
haföi veriö stofnað, neyddust til
aö ganga I þaö. En þrátt fyrir
þessar þvingunaraðferðir berast
nú þær fréttir frá Guatemala að
félagsmönnum I „gula” félaginu
fari fækkandi.
Lokaorö
Þessi skrif eru orðin æöi miklu
lengri en þeim var ætlað að vera i
upphafi, en ég taldi nauðsynlegt
aö reyna að gefa einhverja mynd
af gangi mála i Guatemala, sér-
staklega vegna þeirrar full-
yröingar sem fram kemur i
plaggi Vifilsfells hf., að hér sé
aðeins um að ræða sænskt
upphlaup. Ég þykist hafa sýnt
fram á að svo sé ekki. Þær um-
ræður og hótanir um sölubann á
Coca Cola viöa um heim eru þvert
á móti varnaraögerðir vegna þess
verkafólks sem starfar við kók-
verksmiðjuna i Guatemala, til aö
tryggja þvi þau sjálfsögöu
mannréttindi að fá að stofna
v verkalýðsfélag sem sjái um að
Framhald á bls. 13
Föstudagur 7. mars 1980 ÞJÓÐV'ILJINN — SIÐA 9
Ragnar Amalds um skattlagninguna í_ sumar:
Óvissa um tekjur ríkissjóös
Núna i sumar verður i fyrsta sinn lagt á sam- inga, endurmat eigna og gerbreyttar fyrningaregl-
kvæmt nýjum skattalögum, sem undirbúin voru af ur og um leið skattlagning verðbólguhagnaðar.
rikisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks og Eftir að lögin voru samþykkt vorið 1978 hafa kom-
samþykkt vorið 1978. Með lögum þessum var að ið i ljós margskonar vankantar á lögunum og ný-
ýmsu leyti komið til móts við margháttaða gagn- lega hefur Alþingi afgreitt 64 breytingartillögur til
rýni sem Alþýðubandalagsmenn hafa borið fram á að sniða af lögunum verstu agnúana. Þó er talið vist
það tekjuskattskerfi sem i gildi hefur verið. Lögin að endurskoða þurfi ýmis ákvæði laganna i ljósi
tóku gildi 1. janúar 1979, en koma fyrst til fram- reynslunnar af framkvæmd þeirra.
kvæmda við álagningu i sumar. Ragnar Arnaids fjármálaráðherra hefur látið
hafa eftir sér að hér væri um hálfgerða tilrauna-
1 þessum nýju skattalögum felast mjög róttækar starfsemi að ræða. Til þess að fræðast aðeins nánar
breytingar á þeim skattlagningarreglum sem gilt um þessi mál ræddi Þjóðviljinn nýlega við fjár-
hafa hingað til og má þar til nefna sérsköttun hjóna, málaráðherra og fyrsta spurningin til hans var sú
aðlögun tekjuhugtaksins að verðbólgunni, aðskilnað hvort ekki væri full sterkt til orða tekið að kalla nýju
reksturs einstaklinga frá öðrum tekjum einstakl- skattalögin tilraunastarfsemi.
r
Ohjákvœmilegt getur orðið að
endurskoða skattalögin i ijósi reynsl-
unnar af framkvæmd þeirra
Skattketfið prófað
á 20. hverjum
launþega
„Nei, það er vissulega tilrauna-
starfsemi” sagöi Ragnar „þegar
veriö er að taka upp nýtt skatta-
kerfi, sem enginn veit með vissu
hvernig kemur út I raun.
Þó er rétt að taka það fram, að
menn vita miklu meira um álagn-
ingu á launafólk en fyrirtækin.
Þaö liggur fyrir úrtak byggt á
skattaframtölum 20. hvers fram-
teljanda, sem tölva var fóðruð á
og þannig var unnt að prófa
skattakerfið hvaö almennt
launafólk varöar. Skekkjan á ekki
að geta veriö mjög mikil, en getur
þó orðið allt aö 5%. Þessu mætti
likja við skoöanakönnun hjá Dag-
blaöinu eða VIsi. Óvissan er mikil
en þó er þetta miklu vandaöri og
fullkomnari könnun, þar sem úr-
takiö nær yfir 5000 manns. A
grundvelli þessarar athugunar
liggur ljóst fyrir að vissir hópar
t.d. hjón þar sem bæöi hafa mikl-
ar tekjur fá stóraukna skatta
samkvæmt þessu kerfi, en jafn-
framt er ljóst að einstaklingar
koma almennt út með lægri
skatta en áður. Þessir auknu
skattar á útivinnandi hjón er það
gjald sem menngreiöa fyrir að fá
sérsköttun hjónq.
Skattlagning
fyrirtœkjanna er
tilraunastarfsemi
Máliö er hins vegar miklu
flóknara og óvissan meiri þegar
kemur að atvinnurekstrinum. Þá
er virkilega hægt að tala um til-
raunastarfsemi. Ekki er við neitt
úrtak aö styöjast og þvl gætu nið-
urstööur orðið óvæntar, ekki slst
hvað varöar tekjur rlkissjóðs.
Nauösynlegt hefði verið aö tölvu-
færa bókhald 100-200 fyrirtækja af
ýmsum stærðum og gerðum og
láta tölvuna leggja á I samræmi
viö lögin til aö sjá hvernig álagn-
ingin kæmi úr. En þetta var ekki
gert og þvl er vissulega álagning-
in I sumar tilraunaálagning.”
Sérsköttun hjóna
hefði verið hyggi
legri i áföngum .
Þú sagðir áðan að nýju skatta-
lögin myndu hækka skatta hjóna I
þeim tilvikum að konan hefði
unnið úti. Er þá ekki hætta á að
þessi sérsköttun hjóna leiöi til
þess að það dragi úr þátttöku
kvenna i atvinnullfinu?
„Jú. Það er ljóst að þessi breyt-
ing kemur hart við marga. Hún
getur hugsanlega orðið til þess að
draga úr þátttöku kvenna i at-
vinnulífinu. Hyggilegra heföi ver-
iö aö afnema þennan 50% frádrátt
útivinnandi kvenna I nokkrum á-
föngum.”
En kemur þá ekki til greina að
breyta skattalögunum núna og
stiga þetta skref varðandi sér-
sköttun hjóna i áföngum?
„Þaö héföi verið hægt aö stlga
þetta stóra skref I áföngum þegar
lögin voru afgreidd fyrir tveimur
árum, og þaö heföi jafnvel mátt
breyta þessu I fyrra. En enginn
lagöi það til og það var ekki gert.
Héöan af er hins vegar vonlaust
með öllu að fara út I þá umbylt-
ingu á skattalögunum sem þessi
breyting þýddi. Við yrðum að
framlengja framtalsfrest veru-
lega og hanna og senda út ný
framtalseyðublöð. Við erum
orönir nógu seinir með afgreiðslu
skattamálsins þótt við förum ekki
að tefja málið i marga mánuöi
enn. Nú er aöeins eftir að ganga
frá skattstiganum, og það er til-
tölulega einfalt mál. Frumvarp
um skattstiga verður lagt fram á
Alþingi þegar þing kemur saman
að nýju.”
Ekki hœgt að
fresta framkvœmd
skattalaganna
Þú sagöir áðan aö óljóst væri
hvaða áhrif skattaiögin hefðu á
afkomu fyrirtækjanna og um leið
væri all mikil óvissa rikjandi
varöandi tekjur rlkissjóðs vegna
skattlagningar þessara sömu fyr-
irtækja. Kom ekki til greina að
fresta framkvæmd skattalag-
anna?
„Jú. Þegar ég kom i fjármála-
ráöuneytið var mér strax ljóst af
viðræðum við ýmsa kunnáttu-
menn að talsverð áhætta fylgdi
þvi aö leggja á skatta I sumar án
frekari undirbúnings Sumir lögðu
þaö jafnvel til að lagt yröi enn
einu sinni á samkvæmt gamla
kerfinu, en samhliöa yröi gerö til-
raun meö nýja kerfið til saman-
buröar. En þegar nánar er að gáð
er fullkomlega ljóst að útilokaö er
héöan af að byggja á öðrum
skattalögum en þeim sem nú eru I
gildi. Það verður ekki aftur snúið,
eftir að þessi lög hafa verið I gildi
i tvö ár og fjölmargir aðilar hafa
gert fjárhagslegar ráðstafanir i
samræmi viö lögin. Að hverfa nú
frá framkvæmd þessara laga
myndi skapa óþolandi réttaró-
vissu og flókin málaferli.
Einstaklingar
koma almennt
út meö lægri
skatta en áður
„Tekjum hefur verið skotiö
undan skatti f stórum stfl bæði
með löglegum og óiögiegum
hætti. Ég álit að löglegu leiðirnar
verði nú færri en áður, en sjálf-
sagt þarf að hreinsa betur til.”
Sennilega verður ekki komist
hjá ýmsum vandræðum, en svona
hafa nú málin forklúðrast I kjöl-
far stjórnarslita og þingrofs á slð-
ast liönu hausti og það er ekki
annaö að gera en að horfast I
augu við veruleikann eins og hann
er.
A
Ohjákvæmilegt
að taka lögin til
endurskoðunar
Viö umræöur um skattamálin á
Alþingi um miöjan febrúar gaf ég
þá yfirlýsingu, að óhjákvæmilegt
yröi að taka lögin til endurskoö-
unar i ljósi reynslunnar af fram-
kvæmd þeirra og þá ekki slst á-
kvæöin um skattlagningu fyrir-
tækja. Einnig lýsti ég þvi yfir að
ef þessi nýju tekjuskattslög
kynnu að skila rlkinu verulega
miklu meiri tekjum en gert verð-
ur ráö fyrir viö ákvörðun skatt-
stiga og afgreiöslu fjárlagafrum-
varps eða tekjurnar verða tals-
vert minni en gert er ráö fyrir, þá
getur oröiö óhjákvæmilegt aö
lækka álagningu eða bæta viö á-
lagningu, eftir þvl hvernig nýja
skattakerfiö kemur út I raun.”
Við afgreiðsiu skattalaganna
vorið 1978 sagðir þú að fyrningar-
hlutföllin væru óeölilega há og að
skatthlutfall félaga væri óhæfi-
lega lágt. Þú taldir sem sagt að
atvinnureksturinn myndi sleppa
óeðlilega vel frá skattlagningu
miðað við lögin eins og þau voru
samþykkt 1978. Hefur tekist að fá
þetta lagfært?
Skattlagning
atvinnurekstrarins
lagfœrð
„Við Alþýöubandalagsmenn
greiddum ekki atkvæði með sam-
þykkt skattalagafrumvarpsins
1978 þrátt fyrir ýmsa augljósa
kosti frumvarpsins. Ég taldi þá
aö þessi nýju skattalög hllföu fyr-
irtækjunum um of, fyrningarhlut-
föll væru of há og skatthlutföll fé-
laga of lág. Hvort tveggja hefur
nú veriö lagfært með samkomu-
lagi allra flokka.
Það fer ekki milli mála, að
þrátt fyrir vissa galla marka
skattalögin framfaraspor og með
þeim er einmitt gengið til móts
viö þau sjónarmiö sem við héld-
um fram hér áöur fyrr.
Rekstur einstakl-
inga aðskilinn ffá
öðrum tekjum
í fyrsta lagi er verið aö aöskilja
rekstur einstaklinga frá öðrum
tekjum, þannig að menn geti ekki
notað bókfært tap á rekstri sem er
á þeirra nafni til að lækka tekjur
sinar úr öðrum áttum, eins og
menn hafa óspart gert. Þetta er
einmitt atriöi sem ég lagði mikla
áherslu á i tillögum sem ég flutti
á Alþingi I mörg ár.
Útgerðarbrask
stöðvað
1 ööru lagi er fyrningarreglum
gerbreytt, afskriftir verulega
lækkaðar og miðaðar við almenn-
an endingartima eigna. Hins veg-
ar eru afskriftirnar reiknaðar af
endurmetnu raunvirði eins og
eðlilegt er. Aöur gátu menn t.d.
leyft sér að kaupa skip og fyrna
allt að 90% á fjórum árum. Þann-
ig héldu þeir sér skattlitlum eða
skattlausum meöan á þvi stóö.
Slöan seldu þeir skipið og keyptu
annaö og gátu þá farið að fyrna á
nýjan leik.
Þá má lika nefna atriði sem ég
gagnrýndi mikiðá sinum tima, en
þaö var að menn fengju að fyrna
þann hiuta eignar sem þeir hefðu
ekki sjálfir kostað heldur fengið
með lánum. 1 nýju lögunum er
allt reiknaö upp I fullum takti við
veröbólguna og veröbólguhagn-
aðurlnn skattlagður.”
Bœtt innheimta
söluskatts i
undirbúningi
Að lokum Ragnar. Duga þessar
breytingar á skattalögum til að
koma I veg fyrir skattsvik?
„Tekjum hefur veriö skotið
undan skatti I stórum stil bæði
með löglegum og ólöglegum
hætti. Ég álít aö löglegu leiöirn-
ar verði nú færri en áður, en sjálf-
sagt þarf að hreinsa betur til.
Þessi nýju skattalög fjalla hins
vegar litið um skattaeftirlitiö, en
Framhald á bls. 13
Skattar hjóna þar
sem eiginkonan
vinnur úti hækka