Þjóðviljinn - 03.04.1980, Síða 6

Þjóðviljinn - 03.04.1980, Síða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. aprll 1980 Auglýsing frá Menntamálaráði íslands um styrkveitingar árið 1980 Samkvæmt fjárveitingu á fjárlögum verða á árinu veittir eftirfarandi styrkir úr Menningarsjóði íslands: Útgáfa tónverka Til útgáfu Islenskra tónverka verBur veittur styrkur aö upphæö kr. 1.000.000-. Umsóknum skulu fylgja upplýsing- ar um tónverk þau sem áformaö er aö gefa út. Dvalarstyrkir listamanna Veittir verBa 8 styrkir aB upphæB kr. 500.000.- hver. Styrk- ir þessir eru ætlaöir listamönnum sem hyggjast dveljast erlendis um a.m.k. tveggja mánaBa skeiB og vinna þar aö listgrein sinni. Umsóknum skulu fylgja sem nákvæmastar upplýsingar um fyrirhugaöa dvöl. Þeir sem ekki hafa fengiö samskonar styrk frá MenntamálaráBi slöastliöin 5 ár ganga aB ööru jöfnu fyrir viö úthlutun. Styrkir til fræðimanna Styrkir þessir eru til stuönings þeim sem stunda fræBistörf og náttúrufræöirannsóknir. Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um þau fræöiverkefni sem unniö er aö. Umsóknir um framangreinda styrki skulu hafa borist MenntamálaráBi Skálholtsstlg 7, Reykjavik, fyrir 28. april næstkomandi. Nauösynlegt er aö nafnnúmer umsækjenda fylgi umsókninni. Umsóknareyöublöö liggja frammi á skrifstofu Menn- ingarsjóös aö Skálholtsstlg 7 I Reykjavlk. Blaðberar athugið! Rukkunarheftin eru tilbúin á afgreiðslu blaðsins. Vinsamlega sækið þau strax, svo skil geti farið fram sem fyrst. DIOÐVIUINN Siðumúia 6, simi 81333. Auglýsing frá ríkis- skattstjóra um framtalsfresti Ákveðið hefur verið að framlengja áður auglýstan frest einstaklinga, sem hafa með höndum atvinnurekstur eða sjálf- stæða starfsemi, frá 15. apríl til og með 30. april 1980. Reykjavik 2. april 1980, Rikisskattstjóri. SKÚLÍ ALEXANDERSSON: Vinnuaðstaða og kjör í sjávarútvegi verði bætt í síðustu viku kom til umræðu þingsályktunar- tillaga sem Stefán Guðmundsson og Alexander Stefánsson flytja um aukna nýtingu í fiskvinnslu. Felur tillagan i sér að gerð verði könnun á því hvernig best megi ná hámarksnýtingu þess sjávarafla sem á land kemur. Við umræður um tillöguna lýsti Skúli Alexandersson yfir stuðn- ingi við efni tillögunnar. Hér á eftir verða birtir kaflar úr ræðu Skúla við þetta tækifæri. í byrjun ræðu sinnar ræddi Skúli nokkuð um framleiðni i atvinnurekstri og sagði: Framfarir í sjávarútvegi. ,,A siöustu árum hefur veriö á þaö bent að framleiðni I atvinnu- rekstri okkar væri mjög lág, bæöi i sjávarútvegi og öörum atvinnu- greinum. 1 stjórnarmyndunar- viðræðum fyrir og eftir siöustu áramót voru tillögur Alþýöu- bandalagsins um aukna fram- leiðni atvinnuveganna sem leiö til viðnáms gegn veröbólgu mjög til umræðu. Nú er komin rlkisstjórn sem Alþýðubandalagiö er aöili aö og þótt sú stjórn hafi ekki markaö stefnu i þessu máli eins ákveðiö og við sumir hverjir heföum óskað má þó við þá stefnu- mörkun una, ef við hana veröur staðið, og sjálfsagt er engin ástæða til þess að svo verði ekki gert. Sjálfsagt má rekja það til ýmissa þátta og ástæðna, aö framleiöni i islenskum atvinnu- rekstri er ekki góö. Framfarir á þessu sviöi hjá sjávarútveginum og úrvinnslugreinum hans hafa verið miklar á undanförnum árum. Þaðer t.d. líklegt að hvergi við N-Atlantshaf sé jafnlítill vinnulaunakostnaöur á hverja veröeiningu fisks komna frá veiðiskipi og hér á landi. Við erum með stóran hluta af fiski- skipaflota okkar vel búinn og næstum þvi með þjálfaðan og valinn mann i hverju skipsrúmi. Ýmsar fræðikenningar hafa samt verið uppi um óhagkvæmni islenska fiskiflotans. Þær kenningar hef ég aldrei heyrt rödstuddar með samanburði við fiskveiðiflota og nýtingu flota Gólfdúkur 01 Nú bjóðum við fjölbreytt úrval af gólfdúk- um frá DOMCO á ótrúlega hagstæðu verði. Einnig fjöldi annarra gólfdúka. Ótal litir og munstur - margir verðflokkar. Byggingavörudeild Jón Loftsson hf. f"l'l Q Hringbraut 121 Simi 10600 Skúli Alexandersson annarra fiskveiðiþjóöa. Ég er þó ekki I neinum vafa um aö auka megi framleiðni fiskiflotans enn nokkuð og þó sérstaklega i sambandi við meöferð afla og jafnvel með ódýrari oliu eða minni oliueyðslu. Hitt er ljóst, að ef halda á áfram þeirri óheilla- stefnu,að stööva endurnýjun á uppbyggingu fiskiflotans eins og gert hefur veriö nú aö undan- förnu, er stutt i þaö aö islenski þingsiá fiskiflotinn dragist aftur úr og veröi þá innan tiöar engin leið önnur en að taka eitt stóra stökkiö I uppbyggingu flotans eins og hér hefur áður verið gert.” Illa búið að fiskvinnslu- fyrirtækjum. Þótt segja megi þaö um stóra hluta fiskiflotans, aö hann sýni og geti sýnt góöa framleiöni, er öfugu farið um fiskvinnslu- fyrirtækin. Allt of stór hluti þeirra er vanbúinn til þess að geta sýnt góða nýtingu og framleiðni. Viö uppbyggingu fiskvinnslustöövar skammtar hinn ábyrgi fjármála- stjóri bankanna aðgeröir. Hafi verið byggður góöur vinnslu- staður og frost- eöa birgða- geymsla er eins vist aö ekki fáist fjármagn fyrir hráefnismóttökur. Undirstaða góðrar framleiðni og nýtingar er gott starfsfólk. Fisk- vinnslan byggist að nokkrum hluta á þvi fólki, sem nú ber heitiö farandverkafólk, en hefur ekki veriö flokkað á neitt sérstakt nafn I Islenskum fiskiönaði fyrr en núna á allra siðustu mánuðum. Það er þvi höfuðatriðið að fisk- verkunarstöðvar geti boðið upp á góða aðstöðu i verbúðum. Sums- staðar er þessi aðstaða i góöu lagi, víða ekki. Mér er kunnugt um stað, þar sem sveitarstjórn, fiskverkendur og útvegsmenn með stuðningi verkalýðsfélags höföu komiö sér saman um bygg- ingu verbúöa með sæmilega félags- og mötuneytisaöstööu. Bankastjórar væntanlegs viðsiptabanka svo og stjórn Fisk- veiðasjóðs neitaöi um lánsfé vegna þessara framkvæmda végna þess aö þessi framkvæmd væri of fin og rökstuðningurinn sem þeir höfðu var sá, að hér væri ekki verið að byggja yfir verka- fólk, hér Væri verið aö byggja feröamannahótel. Spurningin um þaö, af hverju þeir álitu að feröafólk á skemmtireisu þyrfti að hafa betri aöbúnað en fiskvinnslufólk og sjómenn,svöruöu þeir meö þvi aö neita enn ákveðnar um lán til slikrar þjónustuby ggingar. Afleiðing neitunarinnar er sú, að hvert atvinnufyrirtæki á þessum stað fyrir sig hefur orðiö aö veröa sér úti um aöstöðu fyrir sitt verkafólk, aðstöðu sem er marg- falt verri aö gæöum og stundum varla boðleg feröafólki hvaö þð þvi fólki, sem jafnan vinnur erfiöan og langan vinnudag. Kostnaöurinn er margfalt á við það fjármagn sem hefði þurft til þess aö byggja verbúöina. Neitun bankastjóranna hefur valdið þvi, aö fyrirtækin hafa minna fjármagn til bættrar hagræöingar og um leiö eru likur fyrir þvi og reyndar vissa, aö fyrirtækin hafa minna fjármagn til bættrar hag- ræöingar,og um leiö eru likur fyrir þvi og reyndar vissa, aö fyrirtækin halda ekki eins góðu starfsliöi að sinum fyrirtækjum.” , Kvótaskipting verði athuguð Siöast i ræðu sinni fjallaöi Skúli nokkuð um stjórnun fiskveiöa og sagöi m.a.: „ÞaÓ veröur nú æ fleirum ljóst, aö sú bannstefna eða timabila- aðferö, sem notuö hefur verið til aö stjórna veiðum,hefur svo aug-. ljósa galla að leita veröur annarra aöferða i þessu efni. Skoðanir manna i þessum efnum eru breytilegar og að sumu leyti fer þetta eftir landshlutum og veiöisvæðum, hvaö menn telja best i þessum efnum. Ég hef verið andvigur þeirri stefnu er felur i sér kvótakerfi, en nú þegar ókostir bannstefnunnar fara aö sýna sig m.a. með þvi að allur fiskveiðiflotinn stöðvast um lengri tima meö tilheyrandi atvinnuleysi i fiskvinnslustöövum tel ég rétt, aö mjög komi til athugunar hvort kvótaskipting sé ekki framkvæmanleg meö bestu manna stjórnun og þar sem tekiö yröi fullt tillit til séraöstæöna á ýmsan hátt. Sú leið sem nú er farin, aö hver og einn skipstjóri keppist við aö ná sem mestu þar til að banninu kemur og fiskvinnslustöövarnar neyta allra bragða til að koma aflanum undan, leiðir til lélegrar nýtingar á aflanum. Til þess að ná hámarksnýtingu á þeim sjávarafla sem á land kemur, eins og sú tillaga sem hér er til umræðu gerir ráö fyrir aö kannaöar verði leiöir til, tel ég aö nauösynlegt sé að fyrst og fremst veröi kannaðar leiðir til úrbóta á eftirfarandi þáttum: 1. Vinnuaöstaöa og kjör þess fólks er vinnur aö sjávarútveg veröi stórlega bætt. 2. Lánafyrirgreiöslur til fisk- vinnslustööva veröi stórlega auknar. 3. Aukiö eftirlit veröi meö gæöi þess afla, er aö landi berst, og meöferö hans I fiskvinnslu- stöövunum. 4. Tekin veröi upp ný stefna i sambandi viö fiskveiöitakmark- anir og stefnt aö meiri jöfnun afla og stjórnun, sem samræmir veiöar og vinnslu.” -þm. Kosningar á Alþingi A fundi sameinaös Alþingis i gær voru kosnlr yfirskoöunar- menn ríkisreikninga og stjórn at- vinnuleysistryggingarsjóös. Yfirskoöunarmenn rikisreikn- inga voru kjörnir Jón Snæbjörns- son, Baldur öskarsson og Halldór Blöndal. 1 stjórn atvinnuleysistrygging- arsjóðs voru kjörnir sem aðal- menn Pétur Sigurösson alþingis- maður, Daviö ólafsson hús- gagnabólstrari, Eðvarö Sigurðs- son formaöur Dagsbrúnar og Jón Ingimarsson skrifstofustjóri. Varamenn voru kjörnir Axel Jónsson fyrrv. alþingismaöur, Hákon Hákonarson vélvirki, Benedikt Daviösson formaður Sambands byggingarmanna og Ragna Bergmann verkakona. —þm

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.