Þjóðviljinn - 03.04.1980, Side 19

Þjóðviljinn - 03.04.1980, Side 19
Fimmtudagur 3. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA.19 ! PÁSKAMYNDIR KVIKMYNDAHÚSANNA Sú gamla hefð að sýna sérstakar jóla- og páska- myndir i bíóunum i Reykjavík er enn við lýði, þótt varla verði sagt um þær myndir sem við fáum að sjá um þessa páska séu mikið frábrugðnar þvi sem venjulega er boðið upp á i þessum bióum. Heyrst hefur að bióstjórunum þyki páskarnir ekki mikil vertið, enda nota margir Reykvikingar páskaleyfið til annars en að fara i bíó. En hvað um það, hér verð- ur greint frá páskamyndunum. Meira Graffiti I Laugarásbió. Brúðurin og foreldrarnir I páska- mynd Nýja bfös. Nýja bió: Brúðkaup (A Wedding) Hér er komin mynd eftir Robert Altman, þann sem geröi „MASH”, „Nashville”, „Þrjár konur” og fleiri frægar myndir. Brúðkauper sögö vera „ómót- stæöilega fyndin” lýsing á banda- Tónabió: Hefnd bleika pardusins rísku brúökaupi. Leikaralistinn er langur og þar er hver silkihúf- an uppaf annarri: Mia Farrow, Lillian Gish, Nina van Pallandt, Vittorio Gassman, Desi Arnaz, Geraldine Chaplin, Viveca Lind- fors, Amy Stryker osfrv.. Altman hefur fengiö orö fyrir aö gera snjallar en svolltiö ruglingslegar ádeilumyndir um bandariskt þjóðfélag. Hér tekur hann fyrir tvær fjölskyldur inn- flytjenda, aöra Italska og hina Irska, sem eru I þann veginn aö bindast traustum böndum. Brúð- kaupsveislunni er lýst og þeirri lýsingu fylgir mikiö niöurrif goö- sagna. Gagnrýnendur hafa sagt aö þessi mynd skilji kannski ekki eins mikiö eftir og fyrri myndir Altmans (Brúökaup er frá 1978) en allt um þaö sé hún hin besta skemmtun. (Revcnge of the Pink Panther) Enn ein gamanmyndin I þess- um vinsæla flokki um leynilög- reglumanninn Clouseau, ööru nafni Peter Sellers. Leikstjóri er Blake Edwards. Lögga þessi á þaö til aö lenda I hinum furöuleg- ustu ævintýrum og hefur mikiö yndi af aö dulbúast. Grlnið er græskulaust og hláturinn ósvik- inn. Austurbæjarbió: Hooper Veiöiferöin íslenska gengur enn vel I Austurbæjarblói, og ekki er alveg vist hvort hún verður látin þoka fyrir þessari mynd fyrir páska. En Hooper veröur semsé sýnd næst á eftir Veiöiferöinni. Þetta er dæmigerö Burt Reyn- olds-mynd og fjallar um mann sem hefur þaö aö atvinnu aö vera staögengil leikara I glæfralegum atriöum kvikmynda. „Þrlhyrningamyndin” Hannoverstræti eftir Hyams I Stjörnubló. Stjörnubió: Hannoverstrœti (Hannover Street) Bandarlsk stórmynd eftir Peter Hyams er páskamynd Stjörnu- blós. Myndin gerist I London á ár- um seinni heimsstyrjaldarinnar, og segir frá bandarlskum liösfor- ingja sem hittir stúlku og veröur ástfanginn. Hún er þvl miöur gift breskum njósnara, miklum ööl- ingsmanni. Þetta er „þrlhyrn- ingsmynd”. I aöalhlutverkunum þremur eru Harrison Ford, Lesley Anne Down og Christopher Plummer. Regnboginn Full Cirkle 1 Regnboganum er ekki lögö áhersla á ab vera meö sérstakar páskamyndir. Hinsvegar hefjast þar I páskavikunni sýningar á bresk-kanadískri mynd, sem heitir á ensku Full Circle. Aöal- hlutverkiö er leikið af Miu Farr- ow, en aörir leikarar eru m.a. Keir Dullea, Tom Conti og Jill Bennett. Leikstjóri er Richard Loncraine. Myndin er tekin I London, og er henni lýst sem hryllingsmynd I stil við „Rose- mary’s Baby”. Brakandi tröppur, gömul og dularfull hús, og morö I stórum stíl. Spenna og hryllingur, fyrir þá sem hafa ánægju af slíku. Sýningar I leikhúsunum verða á sklrdag og annan I páskum. ÞJóÐLEIKHÚSIÐer meö sýn- ingu á Óvitunum hennar Guðrún- ar kl. 15 á skirdag, og slöan veröa Sumargestir settirá svið kl. 20.00 um kvöldið. A annan I páskum verður 73. sýning á Stundarfriöi Guðmundar Steinssonar. IÐNó lætur Ofvitann skina nú yfir páskahelgina. Hann verður færður á fjalirnar á skirdags- kvöld og einnig á annan i páskum og hefjast báöar sýningarnar stundvislega kl. 20.00. LEIKFÉLAG AKUREYRAR verður með sýningu á leikriti Jökuls Jakobssonar Herbergi 213 á skirdagskvöld. ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ OG LEIKFÉLAG KÓPAVOGS taka sér fri yfir páskahelgina. Gamla bíó: Á hverfanda hveli (Gone With the Wind) Gamla bló dreguf upp úr pússi sinu gamla mynd sem margir telja slgilda. A hverfanda hveli var gerö áriö 1939, en heldur enn vinsældum sínum. Victor Fleming stjórnaöi myndinni, sem er byggö á frægri sögu um amerlska borgarastrlöiö eftir Margaret Mitchell. Myndin hlaut 8 Óskarsverðlaun árið 1939. Aðal- hlutverkin eru leikin af Vivian Leigh, Clark Gable, Leslie Howard og Olivia de Havilland. Laugarásbió: Meira Graffiti (The Party’s Over) Páskamynd Laugarásblós státar af islenskri leikkonu i einu hlutverkanna: önnu Björnsdótt- ur. Þetta er svokölluö „nostalgiu- mynd” sem gerist á árunum 1964—1968, og f jallar um ungt fólk I Bandarikjunum. Anna leikur Is- lenskan skiptinema, sem kann ekkert I ensku og verður að tjá sig meö handapati. Víetnam-strlöiö er byrjaö og kemur viö sögu, inn á milli hraö- aksturskeppna og marijuana- reykinga. Leikstjóri er B.W.L. Norton og er hann jafnframt höfundur handritsins. t sýningar- skránni er tekið fram að I mynd- inni séu leiknar um 40 vinsælar plötur, svo ekki ætti tónlistina aö vanta. Kate Lynch og Bill Murray I aðal- hlutverkum ærslamyndarinnar Meatballs. Háskólabió: Kjötbollur (Meatballs) „Ný, ærslafull, sprenghlægileg litmynd frá Paramount” segir I sýningarskránni frá Háskólablói. Aöstandendur myndarinnar eru flestir kanadlskir og hún er tekin I Kanada. Leikstjóri er Ivan Reit- man, og aöalhlutverkiö er leikiö af Bill Murray, sem mun vera heimsfrægur I Bandaríkjunum sem sjónvarpsleikari. Myndin gerist I sumarbúöum, þar sem 600 krakkar una sér viö körfuboltaleik og ýmiskonar prakkarastrik I sumarleyfinu. Þaö má þvi búast viö aö yngri kynslóöin fjölmenni I Háskólablói I páskafríinu. LEIKHÚSIN fólk komið út Fólk kemur út vikulega — kostar aðeins 600 krónur. Efnið er fréttnæmt, fersktog létt. Fjallar aðeins um fólk. Fólk í sjónvarpi, kvikmyndum, í starfi, að leik, í listum. Fáðu þér eintak af Fólki. Áskriftarsfmar 82300 og 82302 FRJÁLST FRAMTAK HF. frtoe^rrætI - ’®s£aiid ■mwkn

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.