Þjóðviljinn - 03.04.1980, Síða 19
Fimmtudagur 3. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA.19
!
PÁSKAMYNDIR KVIKMYNDAHÚSANNA
Sú gamla hefð að sýna sérstakar jóla- og páska-
myndir i bíóunum i Reykjavík er enn við lýði, þótt
varla verði sagt um þær myndir sem við fáum að
sjá um þessa páska séu mikið frábrugðnar þvi sem
venjulega er boðið upp á i þessum bióum. Heyrst
hefur að bióstjórunum þyki páskarnir ekki mikil
vertið, enda nota margir Reykvikingar páskaleyfið
til annars en að fara i bíó. En hvað um það, hér verð-
ur greint frá páskamyndunum.
Meira Graffiti I Laugarásbió.
Brúðurin og foreldrarnir I páska-
mynd Nýja bfös.
Nýja bió:
Brúðkaup
(A Wedding)
Hér er komin mynd eftir Robert
Altman, þann sem geröi
„MASH”, „Nashville”, „Þrjár
konur” og fleiri frægar myndir.
Brúðkauper sögö vera „ómót-
stæöilega fyndin” lýsing á banda-
Tónabió:
Hefnd bleika
pardusins
rísku brúökaupi. Leikaralistinn
er langur og þar er hver silkihúf-
an uppaf annarri: Mia Farrow,
Lillian Gish, Nina van Pallandt,
Vittorio Gassman, Desi Arnaz,
Geraldine Chaplin, Viveca Lind-
fors, Amy Stryker osfrv..
Altman hefur fengiö orö fyrir
aö gera snjallar en svolltiö
ruglingslegar ádeilumyndir um
bandariskt þjóðfélag. Hér tekur
hann fyrir tvær fjölskyldur inn-
flytjenda, aöra Italska og hina
Irska, sem eru I þann veginn aö
bindast traustum böndum. Brúð-
kaupsveislunni er lýst og þeirri
lýsingu fylgir mikiö niöurrif goö-
sagna. Gagnrýnendur hafa sagt
aö þessi mynd skilji kannski ekki
eins mikiö eftir og fyrri myndir
Altmans (Brúökaup er frá 1978)
en allt um þaö sé hún hin besta
skemmtun.
(Revcnge of the Pink Panther)
Enn ein gamanmyndin I þess-
um vinsæla flokki um leynilög-
reglumanninn Clouseau, ööru
nafni Peter Sellers. Leikstjóri er
Blake Edwards. Lögga þessi á
þaö til aö lenda I hinum furöuleg-
ustu ævintýrum og hefur mikiö
yndi af aö dulbúast. Grlnið er
græskulaust og hláturinn ósvik-
inn.
Austurbæjarbió:
Hooper
Veiöiferöin íslenska gengur enn
vel I Austurbæjarblói, og ekki er
alveg vist hvort hún verður látin
þoka fyrir þessari mynd fyrir
páska. En Hooper veröur semsé
sýnd næst á eftir Veiöiferöinni.
Þetta er dæmigerö Burt Reyn-
olds-mynd og fjallar um mann
sem hefur þaö aö atvinnu aö vera
staögengil leikara I glæfralegum
atriöum kvikmynda.
„Þrlhyrningamyndin”
Hannoverstræti eftir Hyams I
Stjörnubló.
Stjörnubió:
Hannoverstrœti
(Hannover Street)
Bandarlsk stórmynd eftir Peter
Hyams er páskamynd Stjörnu-
blós. Myndin gerist I London á ár-
um seinni heimsstyrjaldarinnar,
og segir frá bandarlskum liösfor-
ingja sem hittir stúlku og veröur
ástfanginn. Hún er þvl miöur gift
breskum njósnara, miklum ööl-
ingsmanni. Þetta er „þrlhyrn-
ingsmynd”. I aöalhlutverkunum
þremur eru Harrison Ford,
Lesley Anne Down og Christopher
Plummer.
Regnboginn
Full Cirkle
1 Regnboganum er ekki lögö
áhersla á ab vera meö sérstakar
páskamyndir. Hinsvegar hefjast
þar I páskavikunni sýningar á
bresk-kanadískri mynd, sem
heitir á ensku Full Circle. Aöal-
hlutverkiö er leikið af Miu Farr-
ow, en aörir leikarar eru m.a.
Keir Dullea, Tom Conti og Jill
Bennett. Leikstjóri er Richard
Loncraine. Myndin er tekin I
London, og er henni lýst sem
hryllingsmynd I stil við „Rose-
mary’s Baby”. Brakandi tröppur,
gömul og dularfull hús, og morö I
stórum stíl. Spenna og hryllingur,
fyrir þá sem hafa ánægju af slíku.
Sýningar I leikhúsunum verða á
sklrdag og annan I páskum.
ÞJóÐLEIKHÚSIÐer meö sýn-
ingu á Óvitunum hennar Guðrún-
ar kl. 15 á skirdag, og slöan veröa
Sumargestir settirá svið kl. 20.00
um kvöldið.
A annan I páskum verður 73.
sýning á Stundarfriöi Guðmundar
Steinssonar.
IÐNó lætur Ofvitann skina nú
yfir páskahelgina. Hann verður
færður á fjalirnar á skirdags-
kvöld og einnig á annan i páskum
og hefjast báöar sýningarnar
stundvislega kl. 20.00.
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
verður með sýningu á leikriti
Jökuls Jakobssonar Herbergi 213
á skirdagskvöld.
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ OG
LEIKFÉLAG KÓPAVOGS taka
sér fri yfir páskahelgina.
Gamla bíó:
Á hverfanda hveli
(Gone With the Wind)
Gamla bló dreguf upp úr pússi
sinu gamla mynd sem margir
telja slgilda. A hverfanda hveli
var gerö áriö 1939, en heldur enn
vinsældum sínum. Victor
Fleming stjórnaöi myndinni,
sem er byggö á frægri sögu um
amerlska borgarastrlöiö eftir
Margaret Mitchell. Myndin hlaut
8 Óskarsverðlaun árið 1939. Aðal-
hlutverkin eru leikin af Vivian
Leigh, Clark Gable, Leslie
Howard og Olivia de Havilland.
Laugarásbió:
Meira Graffiti
(The Party’s Over)
Páskamynd Laugarásblós
státar af islenskri leikkonu i einu
hlutverkanna: önnu Björnsdótt-
ur. Þetta er svokölluö „nostalgiu-
mynd” sem gerist á árunum
1964—1968, og f jallar um ungt fólk
I Bandarikjunum. Anna leikur Is-
lenskan skiptinema, sem kann
ekkert I ensku og verður að tjá sig
meö handapati.
Víetnam-strlöiö er byrjaö og
kemur viö sögu, inn á milli hraö-
aksturskeppna og marijuana-
reykinga. Leikstjóri er B.W.L.
Norton og er hann jafnframt
höfundur handritsins. t sýningar-
skránni er tekið fram að I mynd-
inni séu leiknar um 40 vinsælar
plötur, svo ekki ætti tónlistina aö
vanta.
Kate Lynch og Bill Murray I aðal-
hlutverkum ærslamyndarinnar
Meatballs.
Háskólabió:
Kjötbollur
(Meatballs)
„Ný, ærslafull, sprenghlægileg
litmynd frá Paramount” segir I
sýningarskránni frá Háskólablói.
Aöstandendur myndarinnar eru
flestir kanadlskir og hún er tekin I
Kanada. Leikstjóri er Ivan Reit-
man, og aöalhlutverkiö er leikiö
af Bill Murray, sem mun vera
heimsfrægur I Bandaríkjunum
sem sjónvarpsleikari.
Myndin gerist I sumarbúöum,
þar sem 600 krakkar una sér viö
körfuboltaleik og ýmiskonar
prakkarastrik I sumarleyfinu.
Þaö má þvi búast viö aö yngri
kynslóöin fjölmenni I Háskólablói
I páskafríinu.
LEIKHÚSIN
fólk
komið út
Fólk kemur út vikulega — kostar aðeins 600 krónur. Efnið er fréttnæmt,
fersktog létt. Fjallar aðeins um fólk. Fólk í sjónvarpi, kvikmyndum, í starfi,
að leik, í listum.
Fáðu þér eintak af Fólki.
Áskriftarsfmar 82300 og 82302
FRJÁLST FRAMTAK HF.
frtoe^rrætI
- ’®s£aiid
■mwkn