Þjóðviljinn - 02.07.1980, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 02.07.1980, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 2. júli 1980. DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs hreyfingar og þjódfrelsis útgefandi: tJtgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann Rltstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan ölafsson Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir. Auglýsingastjóri: Þorgeir Olafsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaós: Þórunn Siguröardóttir Rekstrarstjóri: Olfar Þormóösson Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson Blaöamenn: Álfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón Friöriks- son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson. Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon. iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Ellsson Handrita- og prófarkaiestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Safnvöröur:Eyjólfur Arnason. Auglýsingar: Sigrföur Hanna Sigurbjörnsdóttir. Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir. Afgreiösla:KristIn Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára Siguröardóttir. Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir. Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Otkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson. Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar: Sföumúla 6, Reykjavík, sfmi 8 13 33. Prentun : Blaöaþrent hf. Nútímakom sem þorir • Ljóst er að kjör Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta íslands hefur vakið heimsathygli. Hún er fyrsta konan sem kjörin er þjóðhöfðingi f almennum kosning- um. Væntanlega spinnast af þessum atburði miklar vangaveltur og skrif I heimspressunni um stöðu kvenna og möguleika þeirra til jafnréttis á við karlmenn. • Hér heima er um það rætt hvernig þetta geti hafa gerst. I kosningabaráttunni riðluðust f lokksbönd og eng- um stjórnmálaf lokki dettur í hug að eigna sér sigurveg- arann sérstaklega. Sigur Vigdísar Finnbogadóttur er spunninn úr mörgum þráðum. Fyrst og f remst var orðið og menningarlegur bakhjarl hennar beittasta vopn. Sjálfstæðismálin höfðu sitt að segja og afstaða kvenna til framboðs Vigdfsar sem áfanga I jafnréttisátt reið baggamuninn. • AAeðframbjóðendur, formenn stjórnmálaflokka, dagblöðin og margir fleiri hafa af miklum drengskap hvatt þjóðina til þess að standa einhuga að baki nýkjörn- um forseta enda þótt m jótt haf i verið á munum I k jörinu. Hin f jölmenna hylling á mánudagskvöldið við heimili Vigdlsar sýndi vel að þjóðin er reiðubúin til þess að hlýða því kalli. 0 Eina hjáróma röddin sem heyrst hefur er I frétta- skeyti f réttaritara Reuters á fslandi, þar sem gerð er til- rauntil þessað merkja forseta fslands stjórnmálahreyf- ingu sósialista. Ástæðulaus eru einnig varnaðarorð AAorgunblaðsins um nauðsyn þess að ekki verði reynt að draga forsetann nýkjörna í pólitfskan dilk nema ef vera kynni að blaðið sé sjálft að gera það með sínum sérstæða hætti. • Það er að vísu engum vafa undirorpið hvar hjarta hreyf ingar vinstri manna og sósíalista sló heitast I þess- um kosningum. Það breytir engu um það að Vigdís Finn- bogadóttir er búin þeim kostum sem munu gera hana að forseta allrar þjóðarinnar. I störfum sínum mun hún leitast viðað vera samnefnari þess besta sem við öll eig- um sameiginlegt, líkt og dr. Kristján Eldjárn. • AAargir hafa lagt orð í belg I aðfara kosninganna. Auður Styrkársdóttir minnir á það í Þjóðviljanum að talsvert haf i borið á úrtöluröddum — forsetinn sé bara topp og skrautfígura og því skipti engu hver vermi stól- inn. Þótt kona sitji I embættinu breyti það engu — kon- ur almennt sitji eftir jafn slyppar og snauðar. En Auður bendir á það að táknmálið er eitt áhrifamesta uppeldis- tæki sem til er og vissulega skipti það máli hvert táknið sé. „Hvað ungur nemur, gamall temur, segir máltækið, og mikið vildi ég óska að fleiri konur hefðu verið áber- andi toppfígúrur þegar ég var að alast upp." • Á kosningaf undi á Akureyri sagði Svanhildur Björg- vinsdóttir frá því að dóttir sín tólf ára vildi kjósa Vigdísi en mætti ekki. „En ég mundi ekki kjósa þig, mamma, þótt þú færir í framboð", hafði hún sagt. „Af því að Vig- dís þorði þegar enginn annar þorði, en þú þorir bara af því aö hún þorði." • Svanhildur Halldórsdóttir kosningastjóri Vigdísar segir í viðtali að kjör hennar sé hvatning til þess að konur láti ekki deigan síga heldur gangi ótrauðar fram í bar- áttunni. „Kjör Vigdisar vekur óneitanlega mikla athygli á því út um heim hversu víðsýnt og fordómalaust þjóðfé- lag viö byggjum, en það ætti jafnframt að hvetja okkur til að líta í eigin barm og herða okkur til að gera betur." • Ummæli af þessu tagi sýna betur en flest annað hvaða þýðingu forsetakjörið mun hafa. AAargir hafa leitt að því getum að nú sé árangur kvennaverkfallsins 1975 fyrst að koma fram í dagsljósið. Næsta skrefið gæti ver- ið ný sókn kvenna inn á Alþingi og í sveitarstjórnir. í slíkum stofnunum þarf að vera sveit kvenna ef vel á að vera því þar er ótrúlega erf itt að vera einn á báti fyrir kvenmann. Það liggur hinsvegar í eðli forsetaembættis- ins að forsetinn situr einn á sínum hefðarstóli. Þaðan mun kona tala til þjóöarinnar næsta kjörtímabil á því táknmáli sem vísar veginn til framtíöarinnar. Nútíma- kona sem greiða mun konum götuna til jafnréttis. —ekh. klrippt Upplyfting Forsetakosningarnar eru jafnan mikil upplyfting þjóöinni og vitanlega eru stuBningsmenn sigurvegarans hinir hressustu sem vonlegt er. ÞaB bendir lika flest til þess, aB þeir sem aBra frambjóBendur studdu muni ná sér tiltölulega fljótt eftir von- brigBin og jafnvel gera aB sinni ánægju þá staBreynd aB kona er á íslandi kosin til forseta og hafa slík tiBindi ekki gerst áBur i heiminum. Sögur verBa margar sagBar Ur þessari kosningabaráttu, sannar og lognar, vísnasmiBir hafa átt annrfkt og mörg til- dragelsi verBa önnur út af for- setakjöri. 1 framhaldi af þvi, aB jafnréttisþátturinn varB all- sterkur i málflutningi manna er kannski ekki Ur vegi, aB klippari segi eina lifsreynslusögu af sjálfum sér á kjördag. Hann fór nefnilega I sina sóknarkirkju á sunnudags- morgni, öörum þræBi vegna for- vitni um þaB hvaB presti þykir brýnast aB taka fram á degi sem þessum. Og prédikunin varB meB þeim hætti, aB þaB er fyllsta ástæBa til aB nema staB- ar viB hana stundarkorn. j Hæna og hani Sóknarprestur, SigurBur • Haukur GuBjónsson, hóf máls á I því, aB tala um drykkjuskap I hortugheit og skemmdarfýsn I unglinga. Þau vandamál vildi ■ hann rekja til þess, aB konur Iværu ekki lengur á sinum staB á heimilunum til aB vernda ung- viBiB og ala þaB upp. Prestur- ■ inn vildi I orBi viBurkenna jafn- L_______________________ réttissjónarmiB, rétt kvenna til verka og þar fram eftir götum. En i næstu orBum var hann far- inn aB mótmæla ákaft þeirri samfélagsþróun sem hefur komiB miklum fjölda kvenna Ut i atvinnulifiB; I þeirri þróun sá hann forsendur fyrir hnignun heimilanna, glfurlegum ung- lingavandamáium og þar fram eftir götum. Hann vildi bersýni- lega snúa þessari þróun viB — Hvorki prófgráBur né þaB sem i launaumslögum er, sagBi hann, getur komiB I staBinn fyrir gott uppeldi uppvaxandi kynslóBar. Hann tók þann sérkennilega pól f hæBina, aB lýsa auknum um- svifum kvenna i þjóBfélaginu á þannveg, aB viB værum, karlar, sekir um aB reyna aB gera konur aB körlum. ÞaB þótti sr. SigurBi Hauki bersýnilega andstætt náttUru og siBgæöi. Vangaveltur sinarum þessi mál dró hann svo saman i þessa sérstæBu setn- ingu (ívitnaB eftir minni): „Hæna sem vill verBa hani spill- ir varpinu.” Afturhvarf til fortíðar Þau viBhorf sem komu fram I prédikuninni eru vissulega til I þjóBfélaginu, og menn geta ver- iB viB þvi bUnir, aB þau séu viBr- uB öBru hvoru, hvort sem væri af prédikunarstól eBa öBrum vettvangi. Og þá liggur beint viB, aB menn andmæli þeim. ÞaB sýnist t.d. ekki vænlegt til árangurs, aB svara vandamál- um uppeldis meB þvi aB boBa afturhvarf til fyrri tima, og fegra fortiBina fyrir sér um leiB. FortiBin verBur ekki endur- heimt i þessum efnum: heim- n ilisstörf eru ekki hin sömu I I tæknivæddri borg og þau voru á | sveitabæjum eBa sjávarpláss- • um, fjölskyldustærB er önnur, I almenn menntun hefur gjör- I breytt mörgum viBhorfum, og | svo mætti áfram telja. Ef aB ■ menn hafa áhuga á aB foreldrar I gefi börnum meira af tima sin- I um og umhyggju en nú, þurfa | menn aB hafa hugann viB annaB « en aB snúa hjóli sögunnar viB. I Hér er spurt um Islenskan I vinnutlma, um dagvistunarmál I og svo þaB, aB feBur losi sig viB • ýmsa fordóma aö þvi er varöar I hlutverk þeirra I uppeldi. Allt I þetta þekkja menn mætavel af I umræöu siöustu ára. Skammsýni Málflutningur eins og sá sem I heyra mátti I Langholtskirkju á I sunnudaginn var, sýnist og I furBu skammsýnn þegar spurt * er um ýmsar þær konur sem I heima sitja og viröast hafa allan I heimsins tima til aö sinna I margnefndu uppeldishlutverki. ■ Tökum dæmi af miöstéttarkon- I um bandariskum, vel stæöum | og afar kirkjuræknum húsfreyj- um einbýlishúsahverfanna; ekki höfum viö til þessa haft , spumir af þvi, aB þeim takist I öörum betur aB glima viB J alkóhólisma táninga og önnur J skyld vandamál. Smekkleysa En semsagt: kirkjunnar | menn hafa aB sjálfsögöu rétt til , þess, sem aörir, a& svara ýms- ■ um vandamálum dagsins meB I þvl aB visa á fegraöa fortiöar- I mynd. ÞaB er liklegt, aB slikt , háttalag sé skammgóöur ■ vermir, en þeir um þaB. Hitt var I svo öllu lakara, aö þær þungu | áherslur sem prestur lagBi á , meintar neikvæöar siöferBi- • legar afleiBingar af þvi, aö J konur hafa haslaö sér völl meö I nýjum hætti i þjóöfélaginu, I hlutu aö hljóma þennan um- 1 rædda sunnudag sem tilræöi viB J þá konu sem var sama dag aB I keppa viö þrjá aöra frambjóö- I endur um forsetaembætti. ÞaB J getur hugsast, aö þaö hafi ekki . veriB bein ætlun prestsins, en I hver sem á slika ræöu hlýöir | getur varla annaö en ályktaö • sem svo, aB hér sé fariö meö litt I dulbúinn áróöur á kjördag. Hliðstæður j í Róm ! Þetta atvik minnir klippara á I kosningar á ltaliu 1976. Skoö- I anakannanir bentu þá til veru- ■ legrar vinstrisveiflu I stjórn- I málum og jafnvel þáttaskila i I Itölskum stjórnmálum. A kjör- I dag leit undirritaöur útsendari * ÞjóBviljans m.a. viö I nokkrum I kirkjum Rómar og hvarvetna I var aö finna svipuö stef: prestar I komu þvi aö meö einum eBa 1 öörum hætti, aö menn ættu ekki I aö breyta til (m.ö.o. halda I tryggö viB hinn stóra flokk • Kristilegra demókrata); þeir J vöruöu, leynt og ljóst, viö I vinstriflokkunum og „röngum” I skilningi þeirra á frelsi. Vinstri- * menn sem ég hitti aB máli virt- J ust ekki kippa sér neitt upp viB [ þetta, þeir voru sliku alvanir. | En satt a& segja varö mér bilt ' viö undir reiöilestri I Langholts- J kirkju á kjördag um „hænu sem | þykist vera hani”, eBa reynir aö | vera þaö. Skyldi slikur boö- J skapur hafa hljómaö viöar i J kirkjum landsins þennan eftir- | minnilega dag? áb. J •9 skorrið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.