Þjóðviljinn - 04.07.1980, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. júll 1980.
LÁNASJÓÐUR
ÍSLENSKRA
NÁMSMANNA
UMSÓKNARFRESTUR
NÁMSLÁNA
Umsóknarfrestur um HAUSTLÁN vetur-
inn 1980—81 er til 15. júli n.k.
Áæltað er að afgreiðsla lánanna hefjist,
fyrir námsmenn erlendis 1. okt. 1980
fyrir námsmenn á Islandi 1. nóv. 1980.
Umósknareyðublöð fást á skrifstofu sjóðs-
ins að Laugavegi 77, afgreiðslutimi er frá
1-^1 eh. Simi 25011.
Reykjavík, 3.7. 1980.
Lánasjóður isl. námsmanna.
Leninisminn
er kominn út!
Grundvallarrit um
flokkskenningar Lenins.
Fæst í Bóksölu stúdenta og
hjá Fylkingunni/
Laugavegi 53 A.
Fylkingin.
Sumarferð Alþýðubandalagsins í Norður-
landskjördæmi vestra.
Breiðafjarðareyjar
Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi
vestra fer í sumarferð í Breiðaf jarðareyjar
helgina 25,-27. júll n.k.
Fólksf lutningabílar leggja af stað frá Sauðár-
króki föstudaginn 25. júlí kl. 16.00. Frá
Blönduósi kl. 17.30 og frá Hvammstanga kl.
18.30 og verður ekið rakleitt til Stykkishólms
þar sem slegið verður upp tjöldum yfir nótt-
ina.
Kl. 10.00 á laugardagsmorgun verður farið
með flóabátnum Baldri út I eyjar og fyrst
skoðaðar Suðureyjar, en síðan komið til Flat-
eyjar þar sem slegið verður upp tjöldum,
kyntur varðeldur og haldin kvöldvaka á
laugardagskvöldið.
Á sunnudeginum verður haldið aftur til
Stykkishólms með Baldri og þaðan heim I
kjördæmið.
Félagar eru beðnir um að tilkynna þátttöku
sem allra fyrst til einhvers neðantaldra sem
gefa allar upplýsingar:
Sauðárkrókur:
Hulda Sigurbjörnsdóttir,
Skagfirðingabraut 37, s: 5289
Sigluf jörður:
Júlíus Júlíusson,
Túngata 43, s: 71429
Skagaströnd:
Eðvald Hallgrímsson,
Fellsbraut 1, s: h:4685, v: 4750
Blönduós:
Sturla Þórðarson,
Urðarbraut 22, s: h: 4357, v: 4356
Hvammstangi:
Eyjólfur R. Eyjólfsson,
Strandgötu 7, s: 1384
Orn Guðjónsson,
Hvammstangabraut 23, s: 1467.
Evita látin. Gyða Kristinsdóttir og Guöbergur Garðarsson — Ljósm. EUa
Evita sýnd á Sögu
Dansarnir eru aöalatriöið I
uppfærslu Dansflokks JSB og
Hljómsveitar Birgis Gunnlaugs-
sonar á Evitu, söng- og dansverki
um sögu Evu Peron I Argentfnu.
Verkiö hefur nú veriö tekiö til
sýninga á Hótel Sögu, en var
frumsýnt á Akureyri I maí.
Fyrsta sýning i Súlnasal Sögu
var á laugardagskvöld sl. og var
ákaft fagnaö af áhorfendum.
Framvegis veröa sýningar einu
sinni í viku, á sunnudagskvöld-
um.
Dansarar Ur Dansflokki JSB og
nemendur Ur Jassballettskóla
Báru bera sýninguna uppi, titil-
hlutverkiö dansar Gyöa Kristins-
dóttir, Guöbergur Garöarsson er I
hlutverkiPerons, en Birgir Gunn-
laugsson syngur hlutverk Che
Guevara, sem er sögumaöur.
Lögin eru eftir A.L.Webber, Ut-
sett af ólafi Gauki, textar eftir
Birgi Gunnlaugsson og dansar
eftir Báru MagnUsdóttur.
Sýningin er einskonar útdráttur
Ur dans- og söngleiknum um
Evitu, sem sýndur hefur veriö
m.a. I London viö mikla hrifn-
ingu, en Leikfélag Reykjavikur
mun hafa tryggt sér sýningar-
réttinn á leiknum I heild. Sýningin
skiptist I átta atriöi, sem rekja
æviferil Evu Peron frá þvi aö hún
er unglingar framaö andláti
hennar 33ja ára og er Utförin
lokaatriöiö.
1 tilefni sýningarinnar býöur
Hótel Saga kvöldveröargestum
upp á argentinskan mat sýn-
ingarkvöldin, og er tekiö á móti
boröapöntunum á föstudögum, en
sýningin sjálf hefst.kl. 9 á sunnu-
dagskvöldum. — vií
In memorian
Hallur Hallsson
Skjdtt hefur sól brugöiö sumri
þvi séö hef ég fljúga
fannhvftan svaninn Ur sveitum
til sóllanda fegri.
Svo kvaö Jónas Hallgrimsson þá
er hann frétti andlát Bjarna
skálds Thorarensens, og okkur
sem best þekktum Hall Hallsson
tannlækni er nú llkt innan brjósts
viö sviplegt fráfall hans. Sá er
þetta ritar kynntist Halli ellefu
ára gömlum I fyrsta bekk Gagn-
fræöaskóla Reykvikinga. Leiö
ekki á löngu áöuren ég var oröinn
heimagangur hjá honum á heim-
iliforeldra hans, Halls tannlæknis
Hallssonar og Amallu SkUla-
dóttur. Ég átti þá ekki heima hér I
bæ og fór svo aö ég varö heima-
maöur hjá þeim Halli um árabil.
Aö loknu stúdentsprófi voriö 1937
var Hallur viö nám I læknadeild
Háskóla tslands einn vetur, en
hélt siöan utan til aö læra tann-
lækningar I Kaupmannahöfn. Ég
hef grun um aö hann heföi helst
kosiö aö lesa bókmenntafræöi eöa
leggja stund á tónlist, — hann var
þá þegar vlölesinn og auk þess
góöur pianóleikari — en hann
vissi aöfööur hans var áhugamál
aö hann læröi tannlækningar, og
hann virti hann svo mikils — og
aö veröleikum—aö þaö mun
hafa ráöiö.
Stríösárin I Danmörku voru
honum og öörum löndum merki-
leg reynsla og þar kynntist hann
konuefni slnu Anne-Marie sem
lifir hann ásamt sex börnum
þeirra. Aö námi loknu komust
þau haustiö 1943 til Svlþjóöar I
trássi viö feröabann þýska hers-
ins, og þar vann Hallur hjá Folk-
tandvlu-den I Kalix I Noröurbotni.
Þau undu vel hag slnum þar og
minntist Hallur þess oft slöan. En
skömmu eftir stríöslokin héldu
þau til lslands ásamt fyrsta barni
sínu.
Viö sem liföum okkar bernsku-
og æskuár I skugga heimskreppu
og yfirvofandi heimsstyrjaldar
vorum ekki bjartsýn á fram-
tíöina, hvorki sjálfra okkar né
alls mannkyns. Skólafólk var
yfirleitt félaust og kveiö auk þess
atvinnuleysi aö námi loknu.
Vitringar vöruöu og viö lang-
skólanámi, jafnvel læknar áttu aö
vera orönir of margir. „StUdents-
próf er góö menntun og ættu
mennyfirleitt aö láta þaö nægja”,
mátti lesa I einu dagblaöinu og
var höfundur einn af áhrifa-
mönnum þjóöarinnar. Þegar litiö
var til Utlanda blasti viö sigur-
ganga fasismans I hverju iandinu
á fætur ööru. Til voru þeir hér
heima sem fögnuöu þessu bæöi
leynt og ljóst. En hinir sem sáu
voöann sem voföi yfir alþýöu
heimsins, ánauö og andlegt
ófrelsi.settu traust sittásamfylk-
ingu verkamanna og annarra lýö-
ræöissinna heima fyrir. En á al-
þjóölegum vettvangi treystu
menn þvl aö Sovétrlkin yröu þaö
bjarg sem öldur fasismans mynd
brotna á aö lokum. — Hallur
Hallsson átti þvi láni aö fagna aö
þurfa ekki aö striöa viö fátækt I
æsku. Faöir hans, Hallur eldri
Hallsson, var mikils metinn tann-
ladcnir hér f Reykjavik, eins og
allir Reykvlkingar sem farnir eru
aö reskjast munu kannast viö og
þótt viöar væri leitaö. Hallur eldri
haföi brotist til mennja af eigin
rammleik. Hann var fágætur
mannkostamaöur og orölagöur
fyrir hagleik og vandvirkni I
starfi sfnu. Hann var þrekmaöur
og naut góörar heilsu og stundaöi
slna vinnu fram á siöasta dag.
Hann dó 78 ára gamall áriö 1968.
Hallur eldri haföi alla tlö veriö
heimakær maöur og lltt látiö til
sin taka utan vinnustaöar og
heimilis, en hann — og þau hjón
bæöi — voru einlægir alþýöu-
sinnar jafnt á kreppuárum sem
slöar.
Halluryngri var llkur fööur sln-
um um margt, undi vel heima aö
loknu dagsverki, en lét þó ekki
fram hjá sér fara góöa tónleika
eöa lista- og leiksýningar. Friöar-
og jafnréttismál voru honum
áhuga- og alvörumál frá æsku-
árum og hann lét sig ekki vanta á
mannfundi þar sem varaö var viö
hættu af herstöö og kjarnorku-
vopnum. Enda þótt hann tæki lít-
inn þátt I félagsllfi var hann
mannblendinn, maöur glaöur og
reifur. Um viömót hans hlýtt og
traustlegt geta þeir boriö sem til
hans hafa leitaö sem tannlæknis
eöa átt viö hann önnur skipti.
Eiginkonan og börnin, vanda-
menn og vinir, munu eiga I sjóöi
meöan lífiö endist minningar um
vammlausan dreng. B.E