Þjóðviljinn - 12.07.1980, Qupperneq 2
Sérrit Þjóöviljans um ALMENNINGSIÞROTTIR OG ÚTIVIST
12. júlí 1980
2
Badmintoniðkendur skyldu hafa í huga að:
Góð undirstaða, eykur ánægjuna
Spjallað við Garðar Alfonsson hjá TBR
Garðar Alfonsson er einn
þessara ódrepandi hugsjóna-
manna i iþróttahreyfingunni.
Hann hefur helgaó badminton-
iþróttinni drjúgan hluta starfsævi
sinnar og nú hefur hann umsjón
meö húsakosti Tennis- og bad-
mintonfélags Reykjavikur,
ásamt þvi að þjálfa keppnismenn
og trimmara. Það var þvi að
komast i feitt þegar við náöum
tali af Garðari i TBR-húsinu fyrir
rúmri viku.
— Að hve miklu leyti getum við
talið badminton fjölskylduiþrótt?
— Þetta er ein af fáum iþrótt-
um, sem fullorðinn getur leikið
við barn sitt á „jafnréttisgrund-
velli”. öll aldursskipting er
þannig rofin. Getulega séö er eng-
inn vandi á ferðum og eru þar til
ýmsir möguleikar. Þaö hefur t.d.
aukist gifurlega mikið að heilar
fjölskyldur komi til okkar. Sér-
staklega er áberandi hvaö kon-
urnar eru duglegar við aö drifa
aðra fjölskyldumeölimi með sér.
Þannig getur 4 manna fjölskylda
tekið á leigu völl.
— Hvaöa þætti likamsstarf-
seminnar þjálfar badmintoniðk-
un helst?
— Það er óhætt að segja, að
badminton hafi lúmsk áhrif i
sambandi við hreyfingu vegna
þess hve fólk gleymir sér oft i
leiknum. Ég las það I sænsku
timariti að badminton væri
árangurrikasta aðferðin (iþrótt-
in) til að ná upp þreki, úthaldi og
snerpu hjá byrjendum. Þetta er
sennilega vegna keppnis-
formsins.
I nánari útlistun má fullyrða að
allir eða flestir „iþróttalegir”
þættir likamsstarfsins þroskist
viö iökun badminton, tækni, þol,
snerpa og einbeiting. Þá er hinn
andlegiþroski einnig mikilvægur.
— Hvernig er best fyrir
byrjendur í iþróttinni aö bera sig
að?
—Mikilvægast er að fá kennslu
eða leiðbeiningar i upphafi. Hjá
okkur i TBR reynum við að kenna
grundvallaratriöin og boöið upp á
byrjendanámskeiö. Rétt tök
byggjast á réttum hreyfingum.
Byrjunaratriðin þvinga fólk oft
i upphafi, en auka siðan ánægjuna
þegar fram i sækir. Það er oft
erfitt að eiga við að kenna hin
réttu tök, en þau veröa að lærast.
— Nú eru margir sem leika
badminton sér til ánægju og gleði
utanhúss. Hefurðu einhverjar
ráðleggingar handa þeim?
— Við þurfum nauðsynlega að
hafa bækling um grundvallar-
atriðin, einmitt fyrir þetta fólk,
en slikur bæklingur er þvi miður
ekki til. Það eykur ánægjuna aö
setja upp súlur, snúru eða net og
jafnvel afmarka völl. Það er
nokkuð mikilvægt I þessu
sambandi aö láta súlurnar ná vel
upp fyrir netið eða snúruna.
— Segjum að mig langi til þess
að hefja æfingar i badminton.
Hvert á ég að snúa mér?
Garðar Alfonsson
— Þá er lang best fyrir þig að
snúa þér til einhvers félags sem
hefur badminton á sinni könnu. I
Reykjavik eru þetta TBR, KR,
Valur og gott ef Vikingar eru ekki
enn með badmintoniðkun hjá sér,
Úti á landi eru flest félögin með
badminton innan sinna vébanda.
Þá er hugsanlegt fyrir fólk að fá
leigðan litinn sal beint, en eölileg-
ast er samt að tala við félag og fá
ráðleggingar.
— IngH
1^*1
MNI
Spaöinn skal snúa þannig í
hendi/ að kantur bogans sé
í beinu framhaldi af
greipinni.
GRIPIÐ:
Festan í gripinu lendir á 3
fingrum, en þumalfingur
og vísifingur halda laust
við.
BAKHANDARSLAG:
Þegar svokölluð bakhönd er notuð til þess að koma
boltanum yfir netiðer það gert eins og sést á myndunum
hér að ofan. Athugið að hægri öxl snýr í netið og við slag-
ið er alveg teygt úr hendinni.
Nokkrar
ábendingar
um undir-
stöðuatriði
í badminton
Eins og Garðar Alfonsson
bendir á í viðtalinu hér á
síðunni er mjög nauðsyn-
legt að þeir sem hyggjast
iðka badminton tileinki sér
rétt grundvallaratriði
íþróttarinnar. ( framhaldi
af þessum orðum Garðars
ákváðum við að grípa karl
glóðvolgan og biðja hann
um að sýna okkur hvernig
ætti að framkvæma hlut-
ina rétt. — IngH
það á að teygjast alvei
olnboga.
Ferðamenn, félög, samtök
Kynnist fegurð Mývatnssveltar, dveljizt að
HÓTEL REYNIHLÍÐ
margbáttala'fyl-irgiteíðSlu fyrir'eirfstaÆ
inga, hópa og riðstefnur.
Útvegum gestufn leigubíl með eða án
bílstjóra.
Seljum benzín og olíur.
HÓT|L RÉYNIHLIÐ
við Mývatn