Þjóðviljinn - 12.07.1980, Qupperneq 5
12. juli 1980
Sérrlt Þjóðviljans um ALMENNINGSIÞROTTIR OG ÚTIVIST
Silungsvötnin eru vannýtt
Einar Hannesson, fulltrúi
veiðimálastjóra
Silungaveiöi á tslandi I byggö
og í óbyggO hefur verið stunduð
með þjóðinni i aldaraöir. Alls eru
um 800 stöðuvötn á Iandinu yfir
0,3 ferkm. og 83 vötn yfir einn
ferkm. að stærð, auk fjölda
smærri vatna þar sem silung er
að finna.
Aður fyrr voru silungaveiðar
einkum nýttar af bændum og þá
jafnvel i stórum stfl, en á siðari
hluta þessarar aldar hefur nýting
silungaveiði að hálfu bænda stór-
lega minnkað. Að visu hefur sil-
ungsveiði þróast yfir I aö vera
sportveiði, og jafnvel fjölskyldu-
skemmtun borgarastéttarinnar,
en sú stangveiöi hefur veriö iítil
og því orðið um ofbeit aö ræða I
fiestöllum silungavötnum hér-
lendis.
„Athuganir hafa leitt það i ljós
aö vötn hérlendis eru vannýtt.
bar væru helst undanskilin Mý-
vatn, Þingvallavatn og Apavatn
en þar hefur verið veitt reglulega
I net og einnig veriö nokkuð um
stangveiði. í öðrum vötnum hefur
netaveiðin svo til alveg fallið
niður” sagði Einar Hannesson
hjá Veiðimálastofnun i samtali
við Þjóðviljann.
„Það eralls ekki fullnægjandi aö
veiöa einungis á stöng i silunga-
vötnum, þar verður lika að koma
til netaveiði bæði til að grisja
vötnin og einnig til þess að nýta
betur þau hlunnindi sem vötnin
geta gefið af sér. Það eru vissu-
lega uppi fordómar gagnvart
netaveiði f vötnum, en menn eru
famir að gera sér grein fyrir þvi i
siauknum mæli að ef við ætlum
ekki að yfirfylla öll silungavötn af
smáfiski þá verður að fara að
grisja. Mér hefur jafnvel dottið I
hug hvort ekki væri ráð að leigja
áhugasömum veiöimönnum rétt
til netaveiöi i þeim vötnum sem
eigendur eða þá veiðifélög telja
sér ekki fært að stunda sllka veiði
svo einhverju nemi.
Hinu þarf lika að gæta að, að
skipta veiðitlmanum þá heppi-
lega niður á milli stangveiöinnar
og netaveiðinnar” sagöi
Einar. A Feröamálaráðstefn-
unni sem haldin var á Akureyri
um miöjan mai sl. var samþykkt
tillaga þar sem segir ma:
„Nýting stangveiði fyrir silung I
stööuvötnum er hins vegar viða
mjög skammt á veg komin. Þar
býðst rikuleg aðstaða, ef rétt er á
spilum haldið, i hinum fjölmörgu
stöðuvötnum i landinu bæði
byggða- og afréttarvötnum.”
Einar Hannesson sem stýrði
starfshóp ráöstefnunnar sem
ræddi um möguleika i silunga-
veiöi hérlendis sagöi að á ráð-
stefnunni heföi veriðhvatt til þess
að sköpuð yrði aðstaða fyrir fólk
til að komast með góöu móti i
þessa veiði. Til þess aö svo mætti
veröa, þyrfti fyrst og fremst aö
bæta og byggja upp aðstöðu viö
mörg stööuvatnanna. Obyggða-
vötn þurfa að komast I betra
vegasamband við þéttbýlið, og
einsþarf aö kynna og reka áróður
fyrir silungaveiði sem fjölskyldu-
iþrótt og góðri og hollri útivist.
„Laxveiðin hérlendis er orðin
mjög þróuð og komin i fastar
skorður, hins vegar hefur sil-
ungaveiði litið verið sinnt enn
sem komið er, og þar eigum við
mikið óunniö starf fyrir höndum á
næstu árum.
Kostir stöðuvatnanna eru þeir
helstir, að þar getur öll
fjölskyldan dvalið saman i tjöld-
um eða I góðum veiðhúsum sem
viða hafa verið reist.
Stangveiði hefur verið að
aukast mikið meðal fjölskyldu-
fólks á síðustu árum, og eins er
orðinn mikill uppgangur I stang-
veiðifélögum viða um land. Viö
höfum i vötnum hérlendis upp til
hópa sæmilegan fisk og sums
staðar mjög góðan, en þvi miöur
er allt of mikiö af smáum fiski
inan um sem kaffærir allt, ef ekki
veröur við brugðið”.
A tslandi eru góð veiðivötn sem
dreifast vel um landið, sem við
verðum að læra að nýta betur”
sagði Einar að lokum.
-lg.
j Ef öll vötn nýttust: I
j 500 tonn af j
j silungi á ári j
I Ef öll silungsaveiöivötn á |
■' tslandi yröu nýtt til hins ■
Ifyllsta, án þess að til ofveiði I
kæmi, áætlar Jón Kristjáns- I
son fiskifræðingur á Veiöi- |
1 málastofnun aö heildar- •
Isilungaveiðin gæti oröið um I
500 tonn á ári. Jón telur I
einnig, að einungis helstu I
' vötnin i Húnavatnssýslu ■
einni, gætu gefiö af sér 60 I
• tonn silungs á ári.
■--------------------.
I Markaður I
j lítill og i
; verðið lágt :
i.
„Sölumöguleikar og verð-
lag á silungi er alvarlegt
vandamál i sambandi við
æskilega nýtingu vatna-
silunga. Markaöur fyrir
silung er litill og verðið til-
tölulega lágt. Auka þarf
neyslu á silungi.
Ef þaö á að takast, veröur
nauðsynlegt að hafa skipulag
á sölunni þannig, að
ákveðinn aðili einn eöa fleiri
taki við silungi frá hinum
dreiföu silungsvötnum og
komi honum i verslanir. Ef
vel á að takast til i þessum
efnum, verður nauðsynlegt
aö koma á sérstökum sölu-
herferðum til þess aö vekja
athygli á silungi sem ljúf-
fengum neyslufiski” segir
Þór Guðjónsson veiðimála-
stjóri i grein um ástand og
horfur I veiöimálum sem
birtist fyrir skömmu, i
búnaðarblaöinu Frey.
Samþykkt Ferðamálaráð-
stefnunnar á Akureyri:
Veiöiaðstaðan kynnt
A ferðamálaráöstefnunni á
Akureyri um miöjan mai sl. sam-
þykkti nefnd sem fjallaði um
veiöi i straum- og stööuvötnum
eftirfarandi ályktun:
„Ferðamálaráöstefnan á Akur-
eyri 1980 telur aö I ám og vötnum
og I sjó séu miklir möguleikar til
stangveiði. Laxveiði á stöng er þó
vel þróuð bæði hvað varðar skipu-
lag og nýtingu. Um göngusilungs-
veiði gildir svipaö og um lax-
veiðina. Nýting stangveiði fyrir
silung I stöðuvötnum er hins
vegar viöa mjög skammt á veg
komin. Þarbýðst rikuleg aöstaða,
ef rétt er á spilum haldiö, i hinum
fjölmörgu stöðuvötnum i landinu
bæði byggða- og afréttarvötnum.
Ráöstefnan vill benda á nauö-
syn þess, aö veiðifélög séu stofnuö
um öll vötn I landinu, eins og lög
gera ráö fyrir, og fastri stjórn
þannig komiö á veiðiskap i þeim.
1 þvi efni verði lögð áhersla á að
koma upp aðstöðu fyrir veiði-
menn og aðra feröamenn viö
vötnin, byggðir veröi veiðiskálar
og bátar verði til afnota ásamt
góðri gæslu. Vel kemur til greina i
vissum tilvikum aö samræma al-
menn tjaldbúðasvæði við vötn og
aðstööu fyrir veiðimenn eins og
gert hefur veið. i þjóðgarðinum á
Þingvöllum.
Siöast en ekki sist telur
ráðstefnan mikilvægt að unniö
veröi markvisst að kynningu á
veiðiaðstöðu sem fólki standi til
boða og að silungsveiöileyfi verði
til sölu sem viðast svo sem á
almennum veitingastööum við
þjóðvegi landsins.
Sjóstangaveiöi er tiltölulega
ung grein sportveiði hér á landi
og lofar þessi starfsemi góðu.
Sýnt er þó aö það kostar verulegt
átak að festa þessa grein I sessi.
Til þess aö svo megi veröa, þarf
vafalaust aö koma til stuöningur
opinberra aðila.”
Við sem viijum fyigjast með
höfum gott útvarp í bíinum
THUNDERBIRD LB/MB
VerO kr. 25.880,-
SEW/LL LB/MB/Cessetta
Veró kr. 93.620
CONTINENTAL LB/MB/FM stereo/Cassetta
Verð kr. 108.750,-
PACIFIC LB/MB
VerO kr. 36.825.-
LOTUS LB/MB/FM
Veró kr. 58.000
A UDIOMOB/LE LB/MB/FM
Stereo Auto Reverse
VerO kr. 175.045.-
OP/Ð Á LAUGARDÖGUM - SKOO/Ð í GLUGGANA - SENDUM í PÓSTKRÖFU
'SílMIffiE tnwœtMip
MW LW
THUNDERBIRD
VV BiWtONK
SWVOt
LOTUS MK 2
U-VHf gQ 01 96 107 ____
MW 550 450 350 150 ' 137
< W 2000 1500 1100 1000
mzmm
L. M
u U
LOTUS
Kraftmagnarar, háta/arar og segu/böndímik/u úrva/i. ••••••••••••••••••••••
••••••••••••••••••• ísetning af fagmönnum og viögeröaþjónusta íbesta lagi.
A/ft tí/ h/jómf/utnings fyrir:
HEIMILIÐ - BÍLINN
OG
D/SKÓTEK/D
D
i\aa io
«•
ARMULA 38 (Selmúla megini 105 REYKJAVIK
SIMAR: 31133 83177 POSTHOLF1366