Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 7
12. júli 1980 Sérrit Þjóðviljans um ALMENNINGSIÞROTTIR OG ÚTIVIST r Hörður Oskarsson á Selfossi; Aðstaðan hin besta „Ef maður kemur sér héðan burt úr rykinu um tiu minútna gang upp i hllöar, þá ertu kominn i fyrsta flokks útivistar og göngu- land sem ekkert er uppá aö klaga” sagöi Siguröur Jónsson pr.entsmiöjustjóri og mikill áhugamaöur um skiöaiþróttir og útivist um áratugi, I samtali viö Þjóöviljann. „Aðstaða til útivista finnst mér fyrst og fremst liggja i þvi hve fljótt maður er að komast út úr byggðinni. Hérna við ísafjörð notast ég einkum við fjárgötur á gönguferðum minum, en annars eru göngur og önnur útivist ekki mikið stunduð hér yfir sumar- timann nema þá af keppnisfólki i skiðaiþróttunum og okkur hinum sem finnum að við erum að verða of þungir.” Sigurður sagði að i fyrrasumar hefði verið endanlega gengið frá góðum grasvelli fyrir knatt- spyrnufélagið en fyrsti leikurinn á vellinum verður háður núna i mánuðinum. Þá hafa golfmenn verið að koma sér upp aðstöðu, auk þess sem sparkvöllum hefur verið komið fyrir viða i bænum. Það ber litið á frjálsiþrótta- starfi hérna á Isafirði, en helsti fjörkippurinn sem ég hef orðið var við i sambandi við almenningsiþróttir ef svo má kalla er að hjólhestamennska hefur aukist gifurlega á þessu sumri. Um árabil hefur litið borið á hjólreiðarmönnum hér, en i sumar hafa þeir farið i hópum hér um göturnar, enda þegar út i það er hugsað tóm della að fara á bil á milli húsa hér á Isafirði. Þú ert bæði fljótari á hjólinu og eins er það miklu hollara og ódýrari ferðamáti. Veðrið hefur lika verið með afbrigðum gott hér vestra i sumar svo það má varla heita að iþróttaaðstöðu og þá um leið auk- inn áhuga á almenningsiþróttum hér,” sagði Hörður Óskarsson sundhallarstjóri á Selfossi i samtali við Þjóðviljann. Hörður sagði að aðstaða til almenningsiþrótta og skipulögð útivistarsvæði væru nú til fyrir- myndar á Selfossi. Við sundhöll- ina hefur verið komið upp góðri útilaug, tveimur setlaugum og litilli vaðlaug fyrir smábörn. Þá eru einnig blak- tennis- og körfu- boltavellir á sundlaugasvæðinu. Af öðrum útivistar- og iþrótta- svæðum á Selfossi má nefna glæsilegan iþróttavöll grasi gróinn með sérstaklega útbúnum trimmbrautum, golfvöll, og ekki má gleyma hestasportinu sem er mjög mikið stundað á Selfossi og stangveiðinni i ölfusá. „Utivistarsvæðin hér á Selfossi eru ákaflega vel nýtt. vildi ég segja, og bæði sótt af bæjarbúum og einnig á sumrin af fjölskyldu- fólki úr sumarbúðstaðalöndunum i Þrastarskógi og i ölfusborgum auk þess sem Eyrbekkingar og Stokkseyringar sækja mikið hing- að uppeftir. Þó að Sundlaugin með sina að- stöðu og öll önnur aðstaða sé hér fyrir hendi, þá tel ég samt brýna ástæðu til að auglýsa hana vel og kynna fyrir bæjarbúum, svo sem flestir verði þátttakendur” sagði Hörður. Aðspurður um vetrariþróttir á Selfossi, sagði hann bæjarbúum ansi þröngur stakkur búinn á flat- lendinu. „Aftur á móti er mikið um ferðir i Bláfjöll héðan og eins hef ég mikið orðið var við það á siðustu árum, að áhugi fjölskyldufólks á gönguferðum hefur stóraukist og nú er mjög vinsælt að ganga gömlu vörðuðu leiðina á Hellisheiði frá Kamba- brún niður að Kolviðarhól”, sagði Hörður að lokum. _ ip Vetraríþróttir eiga hug allra „Sportmennska i alls kyns mynd er að sjálfsögðu landlæg hér á Húsavik, eins og annars staðar og þá ekki sist vetrar- iþróttir, en hins vegar er ekki mikið um skipulagðar hópferðir, gönguferðir og annað slikt, en það hlýtur að koma”, sagði Sigurjón Benediktsson tannlæknir i sam- tali viö Þjóöviljann. A Húsavik er góður golfvöllur og iþróttavöllur með hlaupa- braut; hins vegar eru engar sér- útbúnar skokkbrautir þar. Mikill áhugi er fyrir hestamennsku, en vetrariþróttirnar eiga hug allra, enda stutt að fara i fjallið beint ofan við bæinn. „Það hleypur ávallt mikið lif i iþróttalifið hérna á Húsavik á veturna og það er mikil vinna lögð i að útbúa góðar skiða- og göngubrautir. A sumrin hefur hins vegar að þvi mér finnst vantað frumkvæðið fyrir skipu- lögðu iþróttastarfi og útiveru fyr- ir alla fjölskylduna likt og er á veturna”, sagði Sigurjón. „Nú i sumar hefur þó verið haldiö hér á vegum iþróttafélags- ins leikjanámskeiö fyrir yngri börn, sem mér hefur fundist vera til fyrirmyndar. Þetta er í fyrsta skipti að ég held að slikt leiktæja- námskeið er haldið hér á Húsa- vik, og aðaltilgangurinn er að kynna fyrir börnum undirstöðu- atriði i hinum ýmsu leikjum og iþróttum, en afrekskeppnin ldtin skipta minnstu máli. „Eg vona að slik námskeið sem þetta verði haldin sem oftast”, sagði Sigur- jón að lokum. — lg Sigurjón Benediktsson á Húsavík: ég hafi blotnað á hjólinu siðustu tvo mánuði”, s.agði Sigurður að lokum. -lg. „Landsmót Ungmenna- félaganna sumarið 1978 sem hald- ið var hér á Selfossi, var geysi- mikil lyftistöng fyrir alla i r Sigurður Jónsson, Isafirði: Hjólreiðar í sókn Nýtt glæsilegt hústjaldaúrval 7 geröir. Sendum myndalista. Tjaldbúdir Gesthálss, sfmi: 44392 HEIMSÆKIÐ HEIMAEY og hina sérstæðu náttúru. Margar ferðir daglega til meginlandsins, og bátsferðir umhverfis Heimaey. Tjaldstæði í Herjólfsdal, 15 mínútna gang frá miðbæ. Besta fiskasafn og fullkomnasta á íslandi. Sundhöll með 1. flokks aðstöðu. 9 holu golfvöllur. VELKOMIN TIL VESTMANNAEYJA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.