Þjóðviljinn - 12.07.1980, Page 9
12. júli 1980
Sérrlt ÞJóðviljans um ALMENNINGSIÞROTTIR OG UTIVIST
9
Trimmbæklingarnir fást allir hjá ISt.
ÖRÆFIN HEILLA
13 daga ferð
Öræfi — Kverkfjöll — Sprengisandur
Brottför:
13. júlí, 27. júlí og 10. ágúst
■ Fæði framreitt úr eldhúsbíl.
■ Ferðist á þægilegan hátt.
■ Kynnist eigin landi.
■ Leitið nánari upplýsinga.
Ferðaskrifstofa
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR HF.
Borgartúni 34 — Sími 83222
Gas og grílvörur
Suöuriandsbraut 4
simi 38125
A auða svæðinu að baki húss Tennis- og badmintonfélags Reykja-
vfkur við Gnoðarvog er áætlað að tennisvellir risi.
Tennisíþróttin
er á uppleið
Tennisiþróttin hefur verið i
mikilli lægð hér á landi undan-
farna áratugi, en nú eru ýmiss
teikn á lofti þess efnis að unnend-
um iþróttarinnnar fjölgi stöðugt.
Helstu orsakir þess eru tiðar
ferðir landans á sólarstrendur,
hvar þessi Iþrótt er ákaflega vin-
sæl. Þanniger nú i bigerð að reisa
2 fullkomna tennisvelli, meö öllu
tilheyrandi, við hús TBR i Gnoða-
vogi og eitthvað fleira verður gert
á næstunni til þess að hlaupa
undir bagga með unnendum
iþróttarinnar.
Tennis var talsvert iökaður hér
á landi á árunum 1930 til 1950,
einkum á Akureyri og Reykjavik.
Reyndar náði iþróttin aldrei
verulegri Utbreiðslu, en samt var
haldið Islandsmót árlega frá 1927
til 1942. Þá var Tennis og
badmintonfélag Reykjavikur
stofnað árið 1938 og voru þar að
verki nær eingöngu tennisiðk-
endur.
Það sem öðru fremur dró úr
tennisiðkun hér á landi var hve
aðstaðan var erfið. Tennisvell-
irnir vestur á Melavelli voru ekki
á beint hentugum staö og þegar
frumherjanna naut ekki lengur
við hættu menn smátt og smátt að
stunda iþróttina.
— Ég held að það sé nánast
óhugsandi að ná upp vinsældum
tennisiþróttarinnar hér á landi á
nýjanleik nema að það verði hlúð
verulega vel að henni. Veðráttan
setur okkur þær skorður að
fremur erfitt er aö stunda tennis
útivið og vallarstæröin gerir það
að verkum að of dýrt er að byggja
hús yfir tennisvöll, sagði Garðar
Alfonson hjá TBR, en hann er all-
vel kunnugur tennisiþróttinni.
— Við báðum Garðar um að
segja okkur frá þeim möguleik-
um, sem tennisáhugamenn eiga á
að stunda iþrótt sina á næstu ár-
um.
— Nú, það eru ýmsir mögu-
leikar til og þá ber að nota. Þaö er
t.d. hægt að leika tennis á sumum
hinna stóru malbikuðu svæða, en
þar þarf að koma til önnur að-
staða. Best eða nauðsynlegt er aö
hafa gæslu og bað- og búningsaö-
stöðu. Mér dettur I hug, i þessu
sambandi, að vel mætti nýta
stóra bilastæðiö á milli aðalleik-
vallarins og Hallarinnar i
Laugardal undir tennisvelli. Þar
er bað- og búningsaöstaöa til
staðar allt i kring og raunar
mættu tennisvellirnir vera hluti
af iþrótta- og útivistaraðstöðunni
i dalnum.
— Viö hús TBR stendur til að
byggja 2 tennisvelli, en fjárveit-
ing til þess verkefnis hefur enn
ekki komist inn á fjárlög þrátt
fyrir góðan skilning borgaryfir-
valda. Reyndar sótti Reykja-
vikurborg þaö nokkuð stift að við
kæmum þessum völlum upp. Þeir
vilja hafa eftirlit og skipulag á
þessum hlutum, sem verða að
fylgja ef tennisíþróttin á að ná
verulegri fótfestu, sagði Garðar
Alfonsson að lokum.
— IngH
Prýöum landió—plöntum tijám!
Veiðijakki/ með eða án buxna.
Einnig hentugur klæðnaður fyrir hestamenn.
Vatnsþéttur með loftræstingu
Síkkanlegur faldur
á jakka.
Innfelld hetta
í kraga.
Rennilás
á buxnaskálmum.
Fisfatnaðurinn
loftræsti er vindþéttur
og vatnsfráhrindandi.
Laufléttur og lipur.
Litir:
Rauður, appelsinugulur,
brúnn, blár og grænn.
mninmmiiit
Skúlagötu 51,
Reykjavík,
sími 11520.