Þjóðviljinn - 12.07.1980, Síða 12

Þjóðviljinn - 12.07.1980, Síða 12
bl/.Avil.nMt nm ALMENNINGSIÞRÓTTIR OG ÚTIVIST 12. juli 1980 íþrótta- og útivistaraðstaða í Laugardal og Breiðholti skoðuð í fylgd Stefáns Kristjánssonar, íþróttafulltrúa Reykjavíkur „Þurfum að veita fjármunum þangað sem þörfin er mest” — Ég held að íþróttahreyfingin hafi hvergi I heiminum aðra eins tiltrú og hér. Merki þessa má sjá víða um land og hér fyrir framan okkur höfum við þau stærstu, iþróttamannvirkin i Laugardal, sagöi Stefán Kristjánsson, iþróttafulltrúi Reykjavlkur, þegar hann sat ásamt okkur Þjóðviljamönnum I stúku Laugardalsvallarins einn sól- skinsdag fyrir skömmu. óteljandi möguleikar fyrir hendi. Viö báðum Stefán um að segja okkur frá Iþróttamannvirkjunum I dalnum og þeim verkefnum sem framundan væru. — Við sundlaugarnar er ætlunin að byggja nýja baö- og búnings- herbergjaaðstööu, en þessi að- staða nú er ekki varanleg, þvi undir stúkunni verða væntanlega gufuböö o.fl. Þar er mikið pláss sem má nýta. Austan viö Laugarnar tekur slðan viö tjaldstæði og kastvöllur. Svæðið á milli aöalvallarins og Lauganna er hins vegar óskipu- lagt ennþá, en þar eru ýmsir möguleikar á aö nýta þá aöstöðu. Aöalleikvangurinn okkar verður væntanlega látinn eiga sig að mestu á næstunni, en þar veröur þó um ýmislegt minni- háttar viðhald að ræða. Á milli' hans og hinna svokölluöu Fögru- valla (frjálsiþróttavöllur) verða salerni, böð- og búningsherbergi ætluð keppnislþróttamönnum, trimmurum og áhorfendum. Það er til teikning af þessu húsi, sem kemur væntanlega I beinu fram- haldi af húsinu sem hýsir salernin nú. Ætlunin er að þessi aðstaða verði opin allan daginn fyrir al- menning. Nú, knattspyrnuvellirnir við Höllina hafa komið okkur að góð- um notum og er ætlunin aö stækka svæðiðsem þeim er ætlað. Jafnframt er komin fram tillaga frá Iþróttaráöi um að byggja færanleg áhorfendastæöi, norðan við knattspyrnuvellina. Upplýst skokkbraut áhugavert verkefni Var ekki gert ráð fyrir þvl að skautahöll risi hér i Laugardaln- um? — Jú, þaö er alveg rétt og á sin- um tima var meira að segja búið að bjóða út byrjunarfram- kvæmdir. Þessu var slðan hafnað, væntanlega vegna hins mikla kostnaðar. Það er þó ætlun- in að þessi skautahöll rlsi og verður hún austan við Laugar- dalshöllina og tengist búningsað- stöðunni þar. — Hvað með aöstöðu fyrir trimmarana, svokölluðu. Verður hún bætt enn meir á næstunni? — Já, blessaður vertu. Ofan á það sem ég hef þegar nefnt er skemmtileg trimmbraut um dal- inn I undirbúningi og verður hún upplýst. Brautin mun liggja frá sundlauginni, aö Þvottalaugum,

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.