Þjóðviljinn - 12.07.1980, Síða 18
18
Sérrit ÞjóAvlljans um ALMENNINGSIÞROTTIR OG UTIVIST
12. júli 1980
Siglingar eru
Heillandi íþrótt
Þaðvar heldur betur að komast í
íeitt fyrir okkur Gunnar ljós-
myndara þegar okkur var boðið i
siglingatúr i siðustu viku.
Hvorugur okkar hafði komið um
borö i seglskUtu áður og þarna
bauðst okkur að kynnast alveg
nýjum heimi. Ekki verður annað
sagt en sá heimur sé bæði ögrandi
og heillandi i senn.
Stundvislega kl.9 sl. þriðju-
dagskvöld mættum viö, sjóhæfir,
að bryggju siglingamanna i
Kópavogi. Reyndar voru áhöld
um það hvort við værum sjóhæfir,
hið kaldrifjaða hræðsluglott og
undarlegur „sveitamannaklæðn-
aður” var vist til vitnis um það.
NU. um borð i hið glæsilega
fley, Auðbjörgu, vorum við
ferjaðir af Jóni Inga Jónssyni og
Eyþóri „altmuligmand”. Þegar
um borð var komiö tók á móti
okkur einn eiganda skipsins,
Jóhann H Nielsson.og aöstoðar-
maöur hans, Isleifur Friðriksson.
Já, og ekki má gleyma stUlkunum
tveimur sem meö i förinni voru,
Hrafnhildi og Bryndisi Gunnars-
dætrum.
Stefnan var tekin Ut Fossvoginn
og fljótlega lentum við i samfloti
með 3 öörum skútum af svipaðri
stærð, Ingu, Skýjaborg og
Marconi. Þetta var sérstaklega
glæsileg sigling, þvi allir höfðu
beggja skauta byr út Fossvoginn.
Þegar við nálguðumst Bessastaði
var okkur sagt að sá staöur væri
mikið notaður sem leiðarvisir
fyrir hina siglandi og kom það
skemmtilega heim og saman við
nýafstaöið forsetakjör.
Afram með smjöriö. Eftir
nokkur hróp á milli áhafna
Auðbjargar og Ingu var ákveðið
aö fara svokallaðan skerjahring,
en þá er siglt Ut fyrir baujur sem
eru utarlega i Skerjafirðinum,
yfir að Seltjarnarnesinu og heim
aftur. A heimleiðinni þurfti að
beita upp I vindinn og það þýddi
að það pusaði hressilega á okkur.
Slfkt geröi feröina enn skemmti-
legri en ella, þó að halli Auð-
bjargarinnafhafi orðiö fullmikill
oftsinnis eöa eins og strákarnir
sögöu: „HUn sýnir bláa litinn”.
Afallalaust gekk þessi jóm-
frúarferö okkar Þjóðviljamanna
á seglskútu og ekki er hægt að
segja annað en að viö höfum verið
hrifnir af því sem við kynntumst.
Þaö fer væntanlega best á þvi að
láta myndirnar tala slnu máli um
þessa skemmtilegu sjóferö.
Með Baldri
yfír BreiÓafjörÓ
Þú sparar bensínið og styttir leiðina vestur á firði verulega, ef
þú flytur bílinn með m.s. Baldri frá Stykkishólmi til
Brjánslækjar. Sigling yffír Breiðafjörðinn með víðkomu í
Flatey, getur orðið ein ógleymanlegasta minning sumarsins.
Sumaráætlun m.s. Baldurs er þessi:
Mánudaga: 2. júní tll 29. sept.
Frá Stykkishólmi kl. 9.00 árdegis.
Frá Brjánslæk kl. 14.30 síðdegis.
Áætlaöur komutími til Stykkishólms kl.18.00.
Fimmtudaga: 3. júlí til 18. sept.
Frá Stykkishólmi kl. 10.00 árdegis.
Frá Brjánslæk kl. 14.30 síödegis.
Áætlaður komutími til Stykkishólms kl. 18.00.
Laugardaga: 5. júlí til 30. ágúst.
Frá Stykkishólmi kl. 10.00 árdegis.
sigling um suðureyjar.
Frá Brjánslæk kl. 15.30 síödegis.
Áætlaður komutími til Stykkishólms kl. 19.00.
M.s. Baldur fer 2 eöa fleiri ferðir í mánuöi
milli Reykjavíkur og Breiðafjarðarhafna, sem
eru nánar auglýstar hverju sinni.
Föstudaga. 6. júní til 26. sept.
Frá Stykkishólmi kl. 14.00 síödegis, eftir
komu póstbifreiðarinnar frá Reykjavík.
Frá Brjánslæk kl. 18.00 síðdegis.
Áætlaöur komutími til Stykkishólms kl. 21.30.
Einnig fæst m.s. Baldur leigöur á sunnu-
dögum til siglinga um fjörðinn.
Farþegar athugið, að bílflutninga er nauð
synlegt aö panta meö fyrirvara.
Upplýsingar í Reykjavík: Skipaútgerö ríkisins — Sími 28822.