Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 19
12. júli 1980 Sérrit Þjóðviljans um ALMENNINGSÍÞRÓTTIR OG OTIVIST Jóhann H. Nielsson aö „venda”. Rabbaö við Jóhann H. Nielsson Hér hverfur kynslóðabilið Jóhann H. Nielsson heitir „skipstjórinn” á Auöbjörgu, seglskútunni sem við Þjóðvilja- menn fórum meö i stutta hring- ferð fyrir skömmu. Hann er vel kunnugur öllum leyndar- dómum siglingaiþróttarinnar. enda siglt mikið undanfarin 6 ár. Jóhann á einnig Laserbát, sem er eins manns far. Við spuröum Jóhann hvort hægt væri að kalla siglingar hér á landi fjölskylduiþrótt. — Viö erum nú að reyna aö halda þessu uppi sem keppnis- iþrótt, það er alveg nauðsynlegt. Hins vegar er talsvert af fólki, sérstaklega i Garðabæ og Reykjavik, sem stundar siglingar sem fjölskylduiþrótt. bað gerir mikið af þvi aö fara i lengri ferðir,„crusing”Reyndar skiptist þetta nokkuð i tvennt og ég fæ ekki betur séð en að vinsældir siglinga séu aö aukast, hvort sem um keppnisiþrótt eða fjölskyldu- iþrótt er að ræða. Þetta helst i hendur. — Er mikill kostnaður þvi sam- fara að stunda siglingar? — Það er I fyrsta lagi best að eiga bát sjálfur eða i samvinnu við aöra. Báta er hægt að fá á allt niður I 6-700 þús og upp i ótaldar miljónir. Þannig má segja, aö stofnkostnaðurinn sé talsveröur, en rekstrarkostnaður er ekki svo ýkja mikill. Hann er helst fólginn itryggingum, viðhaldi, legugjaldi VERIÐ VELKOMIN Hótel KEA Akureyrí Hafnarstræti 89 Sími (96) 22200 o.þ.h..Ætli þetta sé ekki um 300 þús. á ári. 1 hverju er hollusta siglinga- iþróttarinnar helst fólgin? — Það er nú fyrst og fremst úti- vistin. Svo er það mjög erfið iþrótt að sigla litlu bátunum. Ég gat t.d. ekki siglt Lasernum fyrr en ég hafði æft lyftingar um tima og breytt talsverðu magni af fitu i vöðva. Þá fær maður mjög sterka frjálsræðistilfinningu i siglingum, svipaða þeirri sem maður fær við aö renna sér niður brekku á skiðum. Þetta er heillandi. Margt annað má tina til. Það er ákveðin spenna fylgjandi þvi aö sigla, sérstaklega i keppni. Einnig er félagsskapurinn mjög mikil-' vægur. Aldurshóparnir blandast vel saman, t.d. heimsækja ungu strákarnir mig eins og hvern annan kunningja sinn. I lokin má geta þess að hér á landi eru starfandi nokkrir siglingaklúbbar. Tómstundaráö Kópavogs starfrækir Kópanes og hinum megin i Fossvoginum er Siglunes Æskulýðsráðs Reykja- vikur. Slöan eru það Brokey i Reykjavik, Ýmir I Kópavogi, VoguriGarðabæ, Þytur i Hafnar- firði, Nökkvi á Akureyri og siglingaklúbbur á Isafirði. Þessir klúbbar mynda siðan Siglinga- samband Islands, SIL. Hafi ein- hverjir áhuga á að forvitnast meira um siglingaiþróttina er best að snúa sér til þessara aöila. wm ISLENSKIHESTIMNN á: sigurgöngu Við Islendingar viljum eignast vini sem víðast og halda sessi okkar í samfélagi þjóðanna. Bera höfuð- ið hátt. Nú á dögum ber íslenski hesturinn hróður okkar til sífellt fleiri landa. Enginn aflar okkur fleiri vina. Fyrir um það bil aldarfjórðungi hóf Búvörudeild Sambandsins kynningu á ís- lenska hestinum á megin- landi Evrópu og áfram er unnið að því verkefni, beggja vegna Atlantshafsins. Ætlað er að um 50 þúsund útlendingar umgangist nú íslenska hestinn. Sigurganga hestsins okkar erlendis á sinn þátt í því að varpa Ijóma á aðrar íslenskar útflutningsafurðir og skapa þeim betri markaðsstöðu á erlendum vett- vangi. íslenskur ferða- iðnaður hefur meðal annars __ notiðþess ríkulegaáundan- % förnumárum. 1116 fSLAND PFERDE ISLANDS HESTEN ICELAND HORSE Samband ísl. samvinnufélaga Búvörudeild Simi 28200- Pósthólf 180 Mtnnum sérstaklega á: VEITINGASALINN Il.hæð Góður matur á vægu verði. Hinn landskunni Ingimar Eydal skemmtir matargestum öll kvöld i sumar. Dansleikir laugardagskvöld. SÚLNABERG , matstofa Heitir og kaldir réttir allan daginn. Opið 08-23. Glæsileg matstofa. AKURE YRINGAR BÆJARGESTIR Hótel KEA býður: Gistiherbergi Veitingasal Matstofu Bar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.