Þjóðviljinn - 12.07.1980, Side 20

Þjóðviljinn - 12.07.1980, Side 20
ALMENNINGSÍÞRÓTTIR OG ÚTILIF Skokkið hressir 011 likamsstarfsemin þarfn- ast okru. Likaminn framleiöir þessa orku með þvi að brenna hluta af fæðunni með hjálp súrefnis. Likaminn getur geymt næringu en ekki súrefni. Þess vegna getum við lifað lengi án þess aö borða, en getum ekki lifað án þess að anda. Lungun og hjartað, sem dælir súrefni og næringu með blóðinu út um líkamann, eru þvi þau liffræri, sem lif okkar og heilsa byggja mest á. Ollum ætti þvi að vera ljós nauðsyn þess aö halda þess- um liffærum heilbrigðum. Það getum við bezt með þvi að forð- ast tóbaksreykingar en stunda I stað þess hollar iþróttir og úti- vist. Hér verður aðeins fjallað um eina þeirra, skokkið. Það kostar ekkert Þið sóið aðeins dálitlu vilja- þreki, en það ætti ekki að setja ykkur á hausinn. Miklar likur eru til þess, að þaið auðgizt af góðri heilsu i staöinn. Engin sérstök tæki Mörg heilsubótarkerfi kosta mikið fé. Það á ekki við um skokkið. Konur, sem aðeins eiga háahæla skó, verða þó að fá sér skó með lágum hælum. Engin sérstök mann- virki Opnið bara útidyrnar og svo getið þið byrjað! Tekur litinn tima Hver vika er 10.080 minútur. Ef þið skokkiö 3 daga vikunnar i 30 minútur, eyöið þið aðeins i það 90 mlnútum. Ef þiö eruð yfir þritugt og ófús á að verja þess- um tima I þágu betri heilsu, skuluð þið vera við þvi búin að sóa enn meiri tima I veikindi siðar á ævinni. Skokk er fyrir unga sem aldna Allir, sem eru á aldrinum 7—10 ára hafa gagn af hóflega vaxandi þjálfun skokksins. 1 Danmörku hefur maður einn, Frederik Larsen að nafni, stundað skokk i nokkra áratugi. Fyrir nokkru hélt hann upp á 80 ára afmælið með þvi að hlaupa 12 km á 1 klst. og 26 min.! Hann varð siðast veikur árið 1932! Það er öruggt Skokkþjálfunin eykst stig af stigi. Engin hætta er á of- reynslu, ef þið skokkið stutta vegalengd fyrst og smábætið svo við hana. Styrkir hjarta og lungu Skokkæfingarnar miða að þvi að bæta hjarta ykkar, lungu og blóðrás með þvi að auka smám- saman álagsþol þessara liffæra. Sá dagur kann að koma, þegar lif ykkar veltur á hæfni þessara liffæra. í»ið verðið hraustari og hraustlegri.^ Þjálfunin örvar blóðrásina, styrkir vöðvana og eykur þér bjartsýni. Skokkiö grennir mjaðmir og læri, styrkir slaka vöðva og sléttir magann. Þeir, sem eru vel á sig komnir, eru lika hraustari á kynlifssviðinu. Þetta hefur einnig sálfræðileg áhrif. Ef þið eruð hraustleg i út- liti, þá eykst einnig sjálfstraust ykkar. Ykkur finnst, að þið séuö meira aðlaðandi. Eykur þol og öryggi. Skokkið eykur afköst ykkar I vinnunni án þess að þið ofbjóðið hjartanu. Hraustur skokkari er ekki meðal þeirra, sem fd fyrir hjartað við óvænta áreynslu. Hjálpar ykkur til að léttast Skokk, ásamt skynsamlegu mataræöi, tryggir að þið léttist, ef með þarf. Þið brennið hita- einingum ört með þvi að ganga og skokka. Þiðléttist með þvi að eyða meiri orku, en nemur þeim hitaeiningum, sem þið fáið i fæðunni. Þið léttist á þvi að skokka, en þvl aðeins að þið troðið ykkur ekki út af mat þegar heim kemur. (úr bæklingi 1S1) ■■■■■■■■ 1 hljólreiðum sameinast á skemmtilegan hátt holl og góð llkamshreyfing og ódýr hentug leiö til að komast ferða sinna. Reyndar er aðstaða til hjólreiða fremur bágborin hér á landi,enda er hjólreiöamönnum nánast lifs- hættulegt aö hætta sér út á fjöl- farnar akbrautir. Reyndar er aö- eins að rofa til I réttindamálum hjólreiðamanna,þvi til stendur að leyfa þeim að nota gangstéttir, sem virðist einungis vera sjálf- sagt mál. Fullkomin, ný reiðhjól kosta nú um 95 þús. fyrir börn og um 130 þús. fyrir fullorðna. Mikil sölu- aukning hefur orðið á reiðhjólum, sérstaklega hafa hjól fyrir full- orðna veriö eftirsótt. Haldi svo áfram sem horfir, má búast við þvi.að innan tiðar verði hægt að sjá marga hjólreiðamenn saman- komna á fararskjótum slnum, eins og á myndinni hér að ofan. FerðQbúnoður fyrir bílínn snaustkf Siöurnúla 7-9 - Sími 82722 VARAHLUTIR AUKAHLUTIR VERKFÆRI

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.