Þjóðviljinn - 15.07.1980, Síða 11

Þjóðviljinn - 15.07.1980, Síða 11
Þriöjudagur 15. júli 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Asgelr og Janus til Svíþjóðar á morgun Eins og kunnugt er þá gátu þeir Asgeir Sigurvinsson og Janus Guölaugsson ekki leikiö meö Islenska liöinu i gærkvöldi. Þeir veröa hins- vegar báöir meö þegar leikiö veröur gegn Svium 17. júli og koma til móts viö landslös- hópinn á morgun. Ásgeir veröur reyndar I góöum félagsskap eins leikmanna Svia, Ralf Edström en hann leikur einmitt meö liöi As- geirs, Standard Liege. — hól. / Islenska liðið Liösuppstilling Islenska landsliösins I leiknum I gær- kvöldi var þannig: Markvöröur: Þorsteinn ólafsson Aörir leikmenn: örn óskarsson Trausti Haraldsson Marteinn Geirsson Siguröur Halldórsson Albert Guömundsson Guömundur Þorbjörnsson Arni Sveinsson Magnús Bergs Pétur Ormslev Sigurlás Þorieifsson Númer leikmanna voru i samræmi viö þessa röö. Ein breyting var gerö á upphaf- legri liösuppstillingu. Hinn bráöefnilegi leikmaður Breiöabiiks, Siguröur Grét- arsson, kom inn á I staöinn fyrir Arna Sveinsson þegar nokkuö var liöið á leikinn. — hól. Slðastliöið föstudagskvöld fór fram á Laugardalsvellin- um leikur KR og IBV en hon- um haföi veriö frestaö frá þvi kvöldinu áöur. Eyja- menn unnu þennan leik meö þremur mörkum gegn einu og skoraöi þeirra aðal- markamaskia, Sigurlás Þor- leifsson,tvö af mörkum ÍBV. Sigurlás viröist ekki ætla aö gefa eftir markakóngstitil- inn frá þvl fyrra rétt auö- veldlega, þvl hann fylgir nú Matthiasi Hallgrlmssyni fast á eftir meö sjö mörk gegn nlu mörkum Matthiasar. Hér á myndinnisést Sigurlás skora annaö mark IBV. Á fyrstu myndinni sést markvörður KR-inga reyna aö koma hönd á knöttinn. Sigurlás er hins vegar snöggur og nær aö þvæia kenttinum til hliöar. Eftirleikurinn er svo auö- veldur. Auk Sigurlásar skor- aöi bróöir hans, Kári, fyrir IBV. Mark KR skoraði Ágúst Jónsson. Myndir: —gel. Marteinn Geirsson lék sinn 50. landsleik i gærkveldi. Enginn knatt spyrnumaður Islenskur hefur leikiö jafn marga landsleiki og hann. Meistaramót goliklúbbanna Steinunn og Óskar sigra Næstum hver einasti golf- klUbbur hér á landi hélt sitt meistaramót um helgina. Mótin voru því æöi mörg og vegna þrengsla I blaðinu veröur ein- ungis getiö I dag um úrslit lang- fjölmennasta mótsins, meistara- móts GR. Þar uröu úrslit þessi: Meistaraflokkur: 1. Oskar Sæmundss. 305högg. 2. RagnarÓlafss. 310högg. 3. SigurðurPéturss. 312högg. 4. Hannes Eyvindss. 315 högg. 5. Geir Svanss. 318 högg. 1. flokkur: 1. Hans ísebarn 330högg. 2. HaukurGuömundss. 341högg. 3. Ólafur B. Ragnarss. 345högg. 2. flokkur: 1. Kristinn Ólafss. 325högg. 2. Ari Guömundss. 351högg. enn 3. Ingi S tefánss. 365 högg. 3. flokkur: 1. Baldvin Haröars. 359högg. 2. Hans Kristinss. 365högg. 3. Jóhann Steinss. 370högg. Meistaraflokkur kvenna: l.SteinunnSæmundsd. 245högg. 2.SólveigÞorsteinsd. 250högg. 3. Jóhanna Ingólfsd. 265högg. 1. flokkur kvenna: 1. ElisabetMöller 303högg. 2. Guörún Eiriksd. 308högg. 3. Laufey Karlsd. 311högg. 2. flokkur kvenna: 1. Lilja Óskarsd. 333högg. 2. Aöalheiöur Jörgens. 338högg. 3. Katla Ólafsd. 365högg. Eldri unglingaflokkur: l.FransSiguröss. 332högg. Yngri unglingaflokkur: 1. Guömundur Aras. 250 högg. Osló 14. júlí. Noregur - ísland 3:1 (1:0): Islands varö Ógæfu flest ad liði Enn má Islenskt knattspyrnu- landsliö þola tap. 1 gærkvöldi var leikiö i Osló viö Norömenn og uröu úrslit leiksins þau aö Norö- menn unnu 3:1. Þær upplýsingar sem hér liggja eru góðfúslega fengnar frá Helga Danielssyni, einum af fararstjórum Islenska liösins. Þrátt fyrir tap I gærkvöldi lék Islenska iiöiö tvlmælalaust sinn besta landsleik þaö sem af er sumrinu og má þaö teijast einkar athygiisvert fyrir þá sök aö liöið var nú án flestra okkar snjöllustu atvinnumanna. Aöeins Þorsteinn Ólafsson og örn óskarsson, sem reyndar veröa aö teljast hálfat- vinnumenn, léku meö. Fyrri hálfleikur var aö sögn Helga eign lslendinga, þvi þeir áttu hvert marktækifærið á fætur ööru og nánast ótrúlega óheppnir aö skora ekki. Sigurlás Þor- leifsson, Pétur Ormslev og Guö- mundur Þorbjörnsson áttu góö færi, sem ekki nýttust. Þvi var grátlegt aö eina mark hálfleiksins skyldi skoraö af Norðmönnum úr næstumeina tækifæri þeirra. Markiö veröur á vissan hátt aö skrifast á reikning Arna Sveins- sonar, sem missti frá sér send- ingu Marteins Geirssonar eftir mikiö hrak fyrir framan islenska markiö var dæmd óbein auka- spyrna og upp úr henni skoraði Stein Kollshaugen. I siöari hálfleik byrjuöu Islend- ingar af miklum krafti, ;og átti t.a.m. Guömundur Þorbjörnsson ágætt tækifæri, en hitti boltann illa. Eftir þunga pressu aö norska markinu fóru heimamenn aö ná betri tökum á leiknum og á 26. minútu skoraði Pal Jakobsen annaö mark þeirra. Hann komst I gott færi eftir nettan samleik Norömanna og skoraöi meö þrumuskoti sem Þorsteinn haföi engin tök á aö verja. Eftir markiö freistuöu lslendingar aö jafna metin og komst Albert Guö- mundsson I afbragösgott tækifæri en brenndi illa af. Norðmenn komust svo i 3:0 þegar 5 minútur voru eftir af leiknum. Arne Erlandsen skoraöi svipaö mark og 2. mark Norömanna. Þaö hef- ur legiö sem þung mara á islensku knattspyrnulandsliöi aö ná ekki aö skora mark i landsleik, — svo ekki sé talaö um mörk — en rétt fyrir leikslok tókst Eyja- manninum marksækna, Sigurlási Þorleifssyni aö laga stööuna i 3:1. Hann átti fast skot I stöng, fékk boltann aftur og kom honum boöleiö i netiö. Þetta er fyrsta mark Sigurlásar i „alvörulands- leik” og örugglega ekki þaö slöasta. Aö sögn Helga áttu flestir leikmenn islenska liösins góöan leik; þaö sem heföi skort var nýting hinna ágætu marktæki- færa. Miöaö viö tækifæri heföu úrslit eins og 3:3 ekki verið ósanngjörn. Norömenn nýttu næstum öll sin marktækifæri þvi flestar atlögur aörar aö marki tslands voru heldur máttlitlar. Hjá Islenska liöinu heföi Guömundur Þorbjörnsson átt virkilega góöan leik og uppfyllt þær vonir manna sem svo lengi hafa veriö bundnar viö hann. I sókninni voru Pétur Ormslev og Sigurlás Þorleifsson ansi sprækir og léku fremur óörugga norska vörn grátt. t vörninni var Trausti Haraldsson góöur. Helgi sagöi aö leikurinn I gær heföi rennt stoöum undir skoöanir margra aö tslend- ingar ættu aö treysta fyrst og fremst á þá leikmenn sem leika knattspyrnu hér heima. t norska liöinu var vart margra góöra knattspyrnumanna, Pal Jakobsen — sem oröaöur hefur veriö viö atvinnumennsku — var stórhættulegur og einna besti maöur norska liösins. A leiknum fengu islensku landsliösnefndarmennirnir ó- vænta heimsókn. Tony Knapp leit nefnilega viö. Hann kom til Noregs úr leyfi i Englandi, gagn- gert til aö fylgjast meö leiknum og skrifa um hann. i „Verdens gang”. Kvaöst Helgi vera spennt- ur mjög fyrir þvi sem Knapp kæmi til meö aö skrifa um fyrrum skjólstæðinga sina! — hól ... - -W -

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.