Þjóðviljinn - 16.07.1980, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 16. jiili 1980
Miövikudagur 16. júll 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Heimskort ólympiuleikanna
Samkvæmt skrá sem viö höfum úr
Information yfir riki sem taka þátt i
Ólympiuleikunum (84 eru þar) og þau
sem ekki koma (52) er samsetning
þessarra tveggja fylkinga hin undar-
legasta. Bretar fara, en Vestur-Þjóö-
verjar ekki. Norömenn sitja heima en
Danir fara. Tansania fer, en ekki
Kenya. Eöa, svo viö snúum okkur aö
herforingjaklikunum: Guatemala
tekur þátt í ólympiuleikunum, en Chile
ekki.
Þessi ríki mæta
Evrópa:
Andorra, Austurrlki, Belgia, Búl-
garia, Danmörk, DDR, Finnland,
Frakldand, Grikkland, Holland, Ir-
land, Island, ítalfa, Kýpur, Júgó-
slavia, Lúxembúrg, Malta, Pólland,
Portúgal, Rúmenia, San Marino,
Sviss, Sovétrikin, Spánn, Stóra-Bret-
land, Tékkóslóvakla, Ungverjaland,
Austurriki.
Afríka
Alsir, Benin, Botswana, Eþlópia,
Gabon, Kamerún, Kongó, Miö-Afrlku,
Lesotho, Lýbla, Madagascar, Mali,
Mauritius, Niger, Nigerla, Senegal,
Efri-Volta, Seycheleyjar, Sierra -
Leone, Tansanla, Uganda, Zambla,
Zanzibar, Zimbabave.
Ameríka
Brasilia, Ekvador, Guatemala,
Guyana, Jamaica, Kólumbla, Kosta
Rlka, Kúba, Mexico, Nicaragua,
Panama, Peru, Puerto Rico, San
Domingo, Súrinam, Trinidad, Tobago.
Asía.
Afganistan, Burma, Indland, Irak,
Jórdania, Kuwait, Laos, Libanon,
Mongólla, Nepal, Noröur-Kórea, Sýr-
land, Sri Lanka, Vietnam.
Eyjaálfan.
Astralía, Guinea, Nýja-Sjáland.
Þessi mæta ekki
Evrópa:
Albanla, Liechtenstein, Monaco,
Noregur, Vestur-Þýskaland.
Afríka.
Egyptaland, Filabeinsströndin,
Ghana, Kenya, Liberia, Malawi, Mar-
okko, Máretanla, Sómalla, Súdan,
Swaziland, Tsjad, Túnis.
Ameríka.
Antigua, Antilleyjar, Argentina,
Bahamaeyjar, Barbados, Bandarikin,
Bermuda, Belize, Bolivia, E1 Salva-
dor, Haiti, Honduras, Kajmaneyjar,
Kanada, Chile, Uruguay, Virginíu-
eyjar.
Asía.
Bahrein, Bangladesh, Filippseyjar,
Hong Kong, Indónesia, Israel, Japan,
Klna, Malasla, Pakistan, Saudi-Ara-
bía, Singapore, Suöur-Kórea, Thai-
land, Tyrkland.
Eyjaálfan
Fiji, Papua
Sitthvaö mun ónákvæmt I þessari
upptalningu, og eitthvaö vantar. T.d.
segir þar ekki frá allstórum Afrlku-
rlkjum eins og Angóla og Mósambik
(en fyrrnefnt riki er haft hvitt og
síöarnefnt svart á meöfylgjandi korti,
þótt llklegt sé aö bæöi séu meö).
Snyrtiaðgerðir og pólitísk spenna
Senn hefjast ólympíu-
leikar í Moskvu, þeir
umdeildustu sem hingað til
hafa verið haldnir. Undir-
búningur hefur staðið
lengi, og eins og vænta
mátti hefur tilefnið m.a.
verið notað til að fríkka
borgina, ryðja burt göml-
um húsum, mála gamlar
kirkjur og opna sumar sem
um hríð hafa verið lokaðar
og þar fram eftir götum.
Slíkar snyrtiaðgerðir eru
reyndar alsiða hvar og
hvenærsem von er margra
gesta, en eins og jafnan í
Sovétríkjunum, þá verður
allt sem þar er gert hlaðið
mikilli pólitískri spennu og
auka-merkingu. Um það
sameinast bæði sovésk
stjórnvöld, sem vilja gefa
sem fallegasta mynd af
höfuðborg sinni, og gagn-
rýnir útlendingar, sem
finnst tilstandið minna á
hin frægu Pótémkíntjöld.
Undirbúningurinn í Moskvu er
aö sönnu fjölbreytilegri og póli-
tiskari en svo aö rétt sé aö kenna
hann viö snyrtiaögeröir einar. 1
tilvikum sem þessum kemur
glöggt I ljós hiö mikla miö-
stjórnarvald, sem getur skipaö
þegnum sinum fyrir meö miklu
róttækari hætti en t.d. Kanada-
menn og Vestur-Þjóöverjar, svo
tvær slöustu ólympluþjóöir séu
nefndar. Eins og fram hefur
komiö I fréttum hefur veriö reynt
aö fækka fólki I Moskvu meö
öllum mögulegum og ómögu-
legum ráöum. Mjög margir hafa
veriö sendir I sumarleyfi I júli og
skólabörn hafa veriö send I ung-
herjabúöir 1 miklu rikari mæli en
áöur. Nú um skeiö hafa veriö tak-
markanir á umferö til borg-
arinnar, menn hafa t.d. ekki
fengiö aö kaupa þangaö járn-
brautarmiöa nema aö sýna aö
þeir séu heimilisfastir I Moskvu
eöa séu sendir þangaö einhverra
nauösynlegra erinda. Fréttaritari
Guardian haföi frétt þaö, aö ekki
aöeins heföu andófsmenn veriö
fluttir úr borginni til aö koma I
veg fyrir aö þeir næöu sambandi
viö erlenda fréttamenn, meö «vip
uöum hætti heföi ungu fólki meö
hippatilhneigingar og svo alko-
hólistum veriö smalaö á brott.
Lítil tilhlökkun?
Vestrænir fréttamenn segja, aö
tilhlökkun sé miklu minni hjá
Moskvubúum en þeir bjuggust
viö. Máske er ástæöan m.a. sú, aö
Sovétmenn hafa mikla tilhneig-
ingu til aö ofkeyra svo I áróöri aö
enginn heyrir neitt lengur: þegar
menn hafa I nokkur misseri heyrt
dýröaróö um ólympluhugsjónir,
Iþróttir og friö og vináttu og þar
fram eftir götum, þá er eins lik-
legt aö viöbrögöin fari aö veröa
neikvæöhjá almenningi. 1 annan
staö veit fólk, aö Olympiuleik-
arnir eru mjög dýrir og hafa
kostaö frestun á mörgum nauö-
synlegum framkvæmdum, ekki
slst I húsnæöismálum, og þaö
dregur úr ánægjunni — fyrir nú
utan þaö, aö ekki mæta nærri
allar Iþróttaþjóöir til leiks.
Eftirlit
Oryggisráöstafanir eru miklar.
Sumir blaöamenn vestrænir
leggja áherslu á, aö þær séu þess
eölis, aö Sovétmenn óttist
hermdarverk, svo mjög og vlöa
er leitaö aö einhverju sem mætti
nota sem vopn. Aörir telja aö
stjórnvöld reyni ekki siöur aö
nota mikiö lögreglueftirlit og skil-
rikjaskoöun til aö skera sam-
skipti borgarbúa og hinna erlendu
gesta sem allra mest niöur. T.d.
er nú strangur lögregluvöröur
ekki aöeins um bústaöi fþrótta-
mannanna heldur og þau hótel
þar sem fréttamenn og feröa-
menn búa. Hafa af þvl eftirliti
þegar skapast undarlegar sögur
sem benda til þess, aö oft muni
strikka á taugum komumanna
sem þurfa aö komast eitthvaö
annaö en þangaö sem skilriki
þeirra akkúrat hljóöa upp á.
ólympiubangsinn Misjka
Boli, boli
bankar á dyr!
Þaö sem nú var sagt um
viöleitni til aö takmarka sam-
gang viö útlendinga fær staö-
festingu I verulegum áróöri sem
beinist aö þvl aö vara fólk viö þvi,
aö bandaríska leyniþjónustan,
CIA, og skuggabaldrar aörir, ætlí
aö senda sveitir manna til
Moskvu meöan á leikunum stend-
ur til aö gera heimamönnum lifiö
leitt. Einn sovéskur fréttaskýr —
anidoröarþetta m.a. á þessa leiö:
„1 samræmi viö hina and-
ólympisku áætlun CIA hafa
nokkrir bandarlskir útgefendur
fengiö fyrirmæli um aö gefa út
allskonar andsovésk rit, aug-
lýsingar og dreifibréf, sem á aö
dreifa I Moskvu, aörir framleiö-
endur hafa einnig lagt sitt af
mörkum meö þvl aö búa til alls
konar skyrtur, töskur, yfirhafnir,
kveikjara, regn- og sólhlifar og
fleiri muni meö áskorunum um
verndun mannréttinda og mót-
mælum illræmdustu andstæöinga
sovétskipulagsins, sem sovéska
þjóöin litur á sem svikara.
Auk þessara ráöstafana gegn
Moskvuleikunum eru útsendarar
CIA virkir I stuöningi slnum viö
áróöur fjölmiöla i sambandi viö
atburöina f Afganistan. Aö sjálf-
sögöu er ekki minnst á banda-
riska njósnara og skemmdar-
verkamenn, sem stjórna, fjár-
magna og vopna þá flokka, sem
smyglaö er yfir landamæri
Afganistan frá grannríkinu
Pakistan.
Andólymplska áætlunin er einn
meginþátturinn I viötækri and-
sovéskri starfsemi CIA, sem auk
þess aö vera njósnastofnun
tundar sálfræöilegan hernaö,
undirróöurstarfsem i og
skemmdarverk.”
Moskvusjónvarpiö hefur sent út
sérstakar dagskrár til aö vara
fólk viö „hinni andólymplsku
sveit CIA”. Nú hafa t.d. franskir
Iþróttamenn, sem til Moskvu
fara, lýst þvl yfir flestir, aö þeir
muni meö einhverjum hætti láta I
ljós mótmæli einmitt viö ,,at-
buröum I Afganistan” — og
veröur fróölegt aö vita hvernig
veröur brugöist viö sllkum
tlöindum af hálfu heimamanna:
skyldi þaö ekki veröa nokkur stór
biti I háls aö negla þau mótmæli
llka viö CIA eöa „hálffasisk öfl”?
Bera sig mannalega
Fréttaritari Guardian, sem
fyrr var nefndur, haföi oröiö var
viö gremju I garö Bandarikja-
manna hjá fólki sem hann tekur
tali á götunni — og sumir strákar
höföu fundiö einfalda og hentuga
skýringu: þeir þora bara ekki aö
koma af þvi þeir vilja ekki tapa!
Hitt er svo ljóst, aö sovésk blöö
hafa veriö mjög önnum kafin viö
aö rista Carter forseta niö út af
banni þessu. Þá leggja sovésk
blöö og fréttastofur mikla áherslu
á aö reyna aö sanna aö þaö hafi
mistekist aö hunsa ólympluleik-
ana. Dæmi um þetta er nýlegt
fréttabréf frá APN. A fyrstu siöu
er vitnaö I Killanin lávarö, for-
mann Alþjóölegu ólymplunefnd-
arinnar, sem sagöi, aö leikarnir I
Moskvu yröu æsispennandi. A
þeirri næstu er vitnaö I Palmer,
formann bresku ólymplunefnd-
arinnar, sem segir aö Moskva sé
vel undir leikana búin. A hinni
þriöju kemur forstjóri Intúrist og
segir aö staöiö hafi veriö viö
áætlun um aö selja miljón
aögöngumiöa erlendis. Hafi 480
þúsundir selst I sóslallskum
rlkjum, 490 þús. I Vestur-Evrópu,
1401 Rómönsku Amerlku og 70.000
i Astu og Afriku. Alls muni 250
þús. feröamenn koma til Sovét-
rikjanna vegna leikanna. Hann
segir aö feröamenn frá Banda-
rikjunum veröi fáir vegna banns
Carters eöa um 1000 en ekki er
þess getiö hve mjög þessi hlutföll
I miöasölu hafa breyst eftir aö
Bandarlkjamenn og Vestur-Þjóö-
verjar ákváöu aö senda ekki
iþróttamenn til leikanna.
En þó Moskvumenn beri sig
mannalega: þaö er óneitanlega
margt sem vintar á Ólympiuleik-
a þar sem hvorki Bandarikja-
menn, Kanadamenn, Vestur -
Þjóöverjar, Japanir né Kinverjar
eru meö. Sjá kortiö. —áb.
Einn þeirra sem ekki kemur: bandarlski
maraþonhlauparinn Rodgers.
ólympiuþorpiö; strangar öryggisráöstafanir.
Ný mannvirki og mikiö um málningu
á daaskrá
>„Skólinn skal í samvinnu við foreldra og
adra forrádamenn barna
reyna aö kenna þeim að sætta sig
við ósanngjarnar kröfur og hlýðnast
yfirboðurum sinum skilyrðislaust”
„Námsskráin”
— sem ekki má sjást —
Hvaö læra börnin I skólanum?
Hvurs lags spurning er þetta?
Auövitaö læra börnin aö lesa,
skrifa og reikna og aö teikna og
prjóna og smiöa, og þau læra
landafræöi, náttúrufræöi og
félagsfræöi og leikfimi og söng
o.fl. o.fl. Þetta sjáum viö allt I
námsskrá grunnskóla og skólinn
gerir meira. Hann býr börn I
samvinnu viö heimilin undir llf og
starf I lýöræöisþjóöfélagi sem er I
sifelldri þróun. Því skulu starfs-
hættir skólans mótast af um-
buröarlyndi, kristilegu siögæöi og
lýöræöislegu samstarfi. Og skól-
inn á einnig aö temja nemendum
viösýni og efla skilning þeirra á
mannlegum kjörum og umhverfi,
á islensku þjóöfélagi og skyldum
einstaklingsins viö samfélagiö.
Þetta stendur I lögum um
grunnskóla nr. 63 útgefnum 1974
og er gott og blessaö. En skyldu
börnin læra eitthvaö meira I skól-
anum en námsgreinarnar? Slæö-
ist kannski meö eitthvaö I landa-
fræöitlmanum sem ekki flokkast
beinllnis undir landafræöi eöa á
ekki heima I markmiösgrein
grunnskólalaganna. Getur t.d. átt
sér staö aö börn og unglingar læri
I skólanum aö þaö borgar sig aö
svara þvl sem kennarinn vill fá
fram — vera á sama máli og hann
— eöa læra börn kannski aö not-
færa sér náungann, aö keppa viö
hann og aö þegja um skoöanir
sinar. Og getur veriö aö nem-
endur þjálfist stundum meira og
betur I aö þegja og hlýöa og bæla
niöur eigin langanir heldur en aö
tala dönsku og ensku?
Vissulega læra börnin allt þetta
I skólanum og miklu fleira. Þau
læra aö biöa. Þau læra aö vinna
einstaklingsbundiö. Þau læra
þolinmæöi. Þau læra aö tala ekki
um eigin reynslu. Þau læra aö
sýna félögum slnum afskiptaleysi
og fálæti. Þau læra aö heyra ekki
þó þau sýnist hlusta. Þau læra aö
tjá sig I oröum eftir þvl sem
kennarinn vill. Þau læra aö
hemja hreyfiþörf sína. Þau læra
aö bæla niöur eigin óskir. Og þau
læra aö hlýöa yfirboöurum skil-
yröislaust.
Þessi upptalning er ekki gerö
útl bláinn. Rannsóknir á þvi sem
raunverulega fer fram I kennslu-
stofu staöfesta þaö. Og þetta
„námsefni” ef svo má segja er oft
á tíöum ekkert fyrirferöarminna
en hitt sem er opinberlega fest á
blaö.
A Noröurlöndum er þetta fyrir-
brigöi — eöa aukaverkanir skól-
ans — gjarnan nefnt Hin dulda
námsskrá (á dönsku det skjulte
læreplan) og eins og sjá má
stangast hún I meginatriöum á
viö hin opinberu. Eöa hvenær
haldiö þiö aö komi frá mennta-
málaráöuneytinu reglugerö eöa
tilskipun sem væri eitthvaö á
þessa leiö:
„Hlutverk skólans er aö viö-
halda stéttaskiptingu I landinu.
Hann skal reyna I samvinnu viö
foreldra og forráöamenn og aöra
sem hafa meö krakkana aö gera
aö kenna þeim aö sætta sig viö
ósanngjarnar kröfur og hlýönast
yfirboöurum slnum skilyröis-
laust. Llka skal skólinn leitast viö
af fremsta megni aö venja nem-
endur viö aö loka augunum fyrir
vandræöum og eymd náunga slns
og aö halda ýmsum gæöum sem
þeim kunna aö áskotnast fyrir sig
eina”.
Nei, hjálpi mér allir heilagir,
svona lagaö veröur seint skrásett
I lýöræöisþjóöfélagi.
Á þaö hefur margoft veriö bent
aö skólinn er afurö og spegilmynd
þjóöfélagsins og sú stofnun þess
sem beinlínis býr til þá gerö fólks
sem þaö þarf á aö halda. Þegar
þaö er haft I huga er ekkert ein-
kennilegt aö skólakerfiö sé
þannig uppbyggt aö þetta óskráöa
en mikilvæga „námsefni” komist
til skila og nái aö móta nemendur.
Ég hef sterkan grun um aö oft
takist okkur kennurum mun betur
aö þjálfa börnin I þessu dulda
námsefni heldur en hinu sem á
blaö er fest. Ekki af illmennsku,
heldur af þvl aö kennarinn á ekki
annarra kosta völ. Hann er
starfsmaöur I forræöiskerfi
(autoritivu kerfi) sem sníöur hon-
um ákaflega þröngan stakk.
Ég er samt ekki I vafa um aö
langflestir kennarar vinna starf
sitt af mikilli samviskusemi og
reyna aö miöla nem. þvl sem þeir
vita sannast og réttast. Þrátt
fyrir slæmt kerfi tekst oft vel til
en líka alltof oft illa og varla er
vafa undiropiö aö allt frá upphafi
skólahalds hér á landi hefur þjóö-
félagiö einmitt fengiö þá þegna
útúr skólakerfinu sem þaö ætlaö-
ist til aö fá. Alþýöu manna var
þaö vissulega mikil réttarbót
þegar fræösluskylda komst á og
flestir trúöu þvi þá og margir
halda þaö enn aö skólinn yröi þaö
jöfnunartæki sem leiddi til minni
stéttaskiptingar og meira jafn-
réttis. Þvi miöur er þessu þver-
öfugt fariö. Skólinn eykur á
stéttaskiptinguna. Hann er sniö-
inn viö hæfi efri stéttanna og mis-
jöfn hefja börn skólagöngu en
misjafnari ljúka þau henni. Þessi
staöhæfing er byggö á rannsókn
sem Sigurjón Björnsson og Wolf
gang Edelstein geröu I barnaskól-
um hér á landi fyrir nokkrum ár-
um og hafa niöurstööur nú veriö
gefnar út á bók.
Þaö er ekki bara I skólakerfinu
aöeitterufalleg orö og annaö blá-
kaldur veruleikinn. Viö lifum I
lýöræöisþjóöfélagi þar sem flest
er harla gott,er sagt. Eöa erum
viö kannski ekki frjáls til aö velja
og hafna og móta sjálf okkar eigiö
ltf? Ekki munu allir vera á einni
skoöun I þeim efnum og a.m.k.
finnst Claes Anderson lýöræöis-
hjaliö lltilsviröi og þvi til staöfest-
ingar ætla ég aö tilfæra kafla úr
ljóöinu „Herbergisfélagar” I
lauslegri þýöingu:
„Steliö frá okkur og kalliö þaö
hagræöingu. Geriö okkur
heimilislaus og kalliö þaö
byggöaáætlun. Niöurlægiö okkur
og nefniö þaö félagslega aöstoö.
Geriö okkur brjáluö og kalliö þaö
geövernd. Eitriö fyrir okkur og
kalliö þaö umhverfisvernd. Geriö
okkur atvinnulaus og kalliö þaö
hagræöingu. Leiöiö okkur á villi-
götur og kalliö þaö auglýsingar.
Seljiö lfkami vora og kalliö þaö
kynferöilegt frelsi. Snuöiö okkur
og kalliö þaö tekjuöflun fyrir
rikiö. Hlutgeriö okkur og kalliö
þaö „Hfsstandard”. Ljúgiö aö
okkur og nefniö þaö málfrelsi.
Hæöiö vinnu okkar og kalliö hana
litilvæga. Kúgiö okkur og kalliö
þaö lýöræöi”.