Þjóðviljinn - 16.07.1980, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 16.07.1980, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. iúll 1980 Evrópuráðið býður fram styrki til framhaldsnáms starfandi og verðandi iðnskólakennara á árinu 1981. Styrkirnir eru fólgnir i greiðslu fargjalda milli landa og dvalarkostnaðar (húsnæði og fæði) á styrktimanum, sem getur orðið einn til sex mánuðir. Umsækjendur skulu helst vera á aldrinum 26—50 ára og hafa stundað kennslu við iðn- skóla eða leiðbeiningarstörf hjá iðnfyrir- tæki i a.m.k. þrjú ár. Sérstök umsóknareyðublöð fást i mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik. Umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 15. september 1980. Menntamálaráðuneytiö, 15. júli 1980. Borgarspítalinn Lausar stöður Sérfræðingar lyf- Hlutastaða(7 eyktir) sérfræðings i lækningum við Lyflækningadeild Borgarspitalans er laus til um- sóknar. Sérmenntun I endocrinologiu er æskileg. Umsækjendur skulu gera nákvæma grein fyrir menntun, starfsferli, visindavinnu og ritsmiðum. Upplýsingar um stööuna veitir yfirlæknir deildarinnar. Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavikur við Reykjavikurborg. Staðan veitist frá 1. okt. 1980 eða eftir nánara samkomu- lagi. Umsóknir sendist til stjórnar Sjúkrastofnana Reykjavikurborgar, Borgarspitalanum, eigi siðar en 15. ágúst n.k. 2 stöður sérfræðinga i svæfingum og deyf- ingum við Svæfinga- og gjörgæsludeild Borgarspitalans eru laus- ar til umsóknar. Umsækjendur skulu gera nákvæma grein fyrir menntun, starfsferli, visindavinnu og ritsmiðum. Upplýsingar um stööuna veitir yfirlæknir deildarinnar. Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavikur við Reykjavikurborg. Stöðurnar veitast frá 1. okt. 1980 eða eftir nánara sam- komulagi. Umsóknir sendist til stjórnar sjúkrastofnana Reykjavikurborgar, Borgarspitalanum, eigi siöar en 15. ágúst n.k. Reykjavik, 16. júli 1980. BORGARSPITALINN. ÚTBOЮ Tilboð óskast i byggingu 6 eininga dreifistööva og for- steyptum einingum (spennistöðvar fyrir rafdreifikerfi RR) fyrir Rafmagnsveitu Reykjavikur. Otboðsgögn eru afhent á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavikurborgar gegn 10 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðin veröa opnuð á sama staö miðvikudaginn 6. ágúst 1980 kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR Fnkifl<|uvegi 3 — Sími 2S800 Otför Bjargar Magneu Magnúsdóttur Laugateigi 12, Reykjavik verðurgerð frá Fossvogskirkju á morgun, fimmtudaginn 17. júli, kl. 3. Ólafur Guðmundsson og börn. Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför Bergljótar Guðmundsdóttur Eyþór Þórðarson Guömundur Pétursson Ingibjörg Eyþórsdóttir Sigriður Eyþórsdóttir Þóröur Eyþórsson Eydis Eyþórsdóttir Asdis Steingrímsdóttir Gaukur Jörundsson Jón L. Arnalds Aðalbjörg Stefánsdóttir Loftferðagrín JULILEIKHClSIÐ sýnir FLUGKABARETT eftir Brynju Benediktsdóttur, Erling Gislason og Þórunni Sig- urðardóttur. Leikstjóri: Brynja Bene- diktsdóttir. Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson. Tónlist: Karl Sighvatsson. Flugkabarett á sér nokkuð skrautlega sögu. Hann hét i fyrravor Flugleikur og var færð- ur upp á vegum Þjóðleikhúss, fyrst I Cardiff og London, en siöan i kúlutjaldi við Laugardalshöll og að lokum á Kjarvalsstöðum i tengslum við leikmyndasýning- una þar. Nú er þetta verk komið i gang aftur, I þetta sinn ekki á vegum Þjóöleikhússins, og er sýnt að Hótel Borg. Það er að mörgu leyti heppilegt umhverfi fyrir sýning- una og ekki er heldur illa til fund- iö að kalla verkið kabarett, þar sem umgerö þess er fremur losaraleg. Flugkabarettinn tekur til með- ferðar ýmis alkunn og mikið rædd efnitengd flugi svo sem starfsem: flugfélaga, viðskiptatengsl við Austurlönd nær, flugrán og fleira, og skopast að þessum hlutum á fremur góðlátlegan hátt, en meg- inuppistaöa verksins er starf flugfreyjunnar og það sérkenni- lega umhverfi sem skapast i millilandaflugi, tungumálafrum- skógurinn, drukknir Islendingar um borð, þaö herfilega hrogna- mál sem flugáhafnir tala sin á milli o.s.frv. Þar sem ég er ný- kominn úr einum sex flugferöum kom mér þetta umhverfi býsna kunnulega fyrir sjónir, það hefur sem sé tekist mæta vel að endur- gera stemmninguna. Sýningin byggir mjög á hátt- bundnum hreyfingum. og tónlist og hljóð eru snar þáttur hennar. Búningar Sigurjóns eru bráð- snjallir og tónlist Karls prýðilega unnin. Hins vegar fóru textarnir meira og minna forgöröum, en kannski gerði það ekkert til. Gisli Rúnar er flugstjóri á Flóka Vil- geröarsyni og er prýðilega mynd- ugur sem slikur, en svosem ekki meira. Flugfreyjuliðiö er 1 hönd- um þeirra Eddu Þórarinsdóttur, Sögu Jónsdóttur, Eddu Björg- vinsdóttur og Guðlaugar Mariu Bjarnadóttur og hafa þær allt til brunns að bera sem krafist er af flugfreyjum, og heita svo þar á ofan þetta lika þjóðlegum nöfn- um. Flugkabarettinn er hressileg og fjörleg sýning, mjög nákvæmlega og vel útfærð af Brynju hendi, en byggingin er dálitið lausleg og textinn hefði að ósekju mátt vera betur skrifaöur. Sverrir Hólmarsson Flugfreyjuliðið er I höndum þeirra Sögu Jónsdóttur, Guðlaugar Mariu Bjarnadóttur, Eddu Björgvinsdóttur og Eddu Þórarinsdóttur Sumarbridge XJrslit í Sumarspilamennsku Að venju var fjölmennt i Sumarspilamennsku sl. fimmtudag. Að þessu sinni mætti 61 par til leiks. Spilað var i 4 riðlum. Úrslit uröu: A-riðill: Halla Bergþórsdóttir — KristjanaSteingrlmsd. 249 Jón Amundason — Sigurður Amundason 244 Erla Eyjólfsdóttir — Gunnar Þorkelsson 237 Ragnar Björnsson — Þórarinn Arnason 232 Guðlaugur Nielsen — Gisli Tryggvason 226 B-riðill: Magnús Halldórsson — Magnús Oddsson 267 Geirarður Geirarðsson — Sigfús Sigurhjartarson 257 Albert Þorsteinsson — Sigurður Emilsson 248 Bjarki Bragason — Bragi Jónsson 239 Gestur Jónsson — Jón Steinar Gunnlaugsson 235 C-riðill: Steinberg Rikharðsson — Tryggvi Bjarnason 257 Jón Páll Sigurjónsson — SteingrimurSteingrimss. 253 &i Umsjón: Ólafur Lárusson Gissur Ingólfsson — Valur Sigurðsson 234 Jónas P. Erlingsson — Böðvar Magnússon 233 Arni Alexandersson — Ragnar Magnússon 233 D-riðill: Skúli Einarsson — Þorlákur Jónsson 209 Guðmundur Pálsson — Sigmundur Stefánsson 200 Erla Sigurjónsdóttir — Esther Jakobsdóttir 183 . Georg Sverrisson — Sigurjón Helgason 169 Friðrik Guðmundsson — Hreinn Hreinsson 169 Eftir 6 kvöld I Sumarspila- mennsku, er staða efstu manna þessi: Sigfús örn Árnason llstig Sverrir Kristinsson 8 stig Valur Sigurðsson 8 stig Spilað er á morgun, og hefst keþpni kl. 19.30 i Domus Medica.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.