Þjóðviljinn - 20.07.1980, Síða 7

Þjóðviljinn - 20.07.1980, Síða 7
'HELGIN 19*—20. júli. líJóÖVlLJINN — SIÐA 7 i gærflutti Einar Ágústs- son sendiherra ræðu ís- lensku sendinefndarinnar á kvennaráðstef unni í Kaupmannahöfn. Ræðan var flutt á ensku og fer hér á eftir í þýðingu frá utan- rikisráðuneytinu. Frú forseti, herrar og frúr. Fyrir hönd islensku sendinefndarinnar færi ég hinum dönsku gestgjöfum okkar þakkir fyrir gest- risni og frábæran undir- búning þessarar ráðstefnu. Hið alþjóðlega kvennaár Sameinuðu þjóðanna markaði vissulega spor í jafnréttisbaráttu islenskra kvenna og varð hvetjandi fyrir áframhaldandi starf að jafnri stöðu karla og kvenna. Þegar litiö er yfir það hvað áunnist hefur á fyrra helmingi kvennaáratugsins og hvað ógert er, þá virðist manni i fljótu bragði að ekki hafi miklu verið komið i verk. Það ber miklu meira á þvi sem ógert er. Ekki dugir þó að lita einungis á dökku hliðarnar heldur ber einnig að lita á það sem áunnist hefur. Þar ber hæst tvö atriði, þ.e. setning almennra jafnréttislaga og kjör konu til for- setaembættisins, frú Vigdisar Finnbogadóttur. Ekki einasta er hún fyrsta konan i heiininum sem kjörin er forseti, heldur er hún fyrsta konan sem kjörin er til þjóðhöfðingja I lýðræðislegum kosningum. Þetta hvort tveggja má aö miklu leyti rekja til hinnar miklu umræöu sem varö um jafn- réttismál i kjölfar kvennaársins. Kveðja frá Vigdísi 1 tilefni þessa vil ég leyfa mér að lesa ávarp til ráðstefnunnar, sem borist hefur frá Vigdisi Finn- bogadóttur: „Sem kjörið forseta- efni Islands, sendi ég ykkur, sem eruð samankomin I Kaupmanna- höfn á þessari mikilvægu ráð- stefnu kveðju mina og fylgist með umræðum ykkar af miklum A degi Sameinuðu þjóðanna 24. okt. 1975 lögðu islenskar konur niður vinnu á heimilum og vinnumarkaði til að sýna fram á mikilvægi atvinnuþátttöku kvenna. sem móður, hefur um aldir bund- iö hana við heimilisstörf, hindrað hana i jafnri þátttöku i atvinnulifi og opinberri ákvaröanatöku, eöa skapað konum tvöfalt vinnuálag eftir að þær gerðust þátttakendur i atvinnulifinu. Fá riki hafa markað ákveðna stefnu i fjölskyldumálum, sem miðaði að jafnari verkaskiptingu jafnt innan sem utan heimilis, og leysti foreldra frá hluta þeirra verka sem fram að þessu hafa fyrst og fremst hvilt á konum. Þvi miður ber sú framkvæmdaaætlun sem hér liggur frammi þvi einnig vitni aö horft er framhjá þessari frumorsök. Aætlunin tekur greinilega fyrst og fremst mið af slæmu efna- hagsástandi i þriðja heiminum, sem vonlegt er og viö skiljum enda, að þar er þörfin brýnust. Jafnframt verður þó að viður- kenna að enn er langt i land til jafnréttis i svokölluðum þróuöum löndum og varast ber að taka þau sem fyrirmynd i þessu efni eða þröngva upp á þróunarlöndin munstri vesturlanda. Þrátt fyrir mun betri efnahag, menntun og siaukna atvinnuþátttöku og þar meö auknar tekjur kvenna sem óspart eru hvattar til aö axla meiri byröar og ábyrgö, hefur ekki samhliða verið létt af þeim störfunum sem börn og heimili krefjast og hvorki karlmenn þessara landa né samfélagið sjálft hafa nema i litlum mæli tekið á sig þessi störf, meðan kon- urnar hafa bætt á sig öðrum. Jöfn verkaskipting kynjanna á heimil- unum er forsenda þess að mæöur og feður fái i reynd jöfn tækifæri til að njóta sin i atvinnu- og félagslifi. Barnaár Sameinuöu þjóðanna hefur t.d. ekki að þessu leyti skil- að þeim árangri, sem vonir voru bundnar viö, og ástæðan er sú að stjórnvöld lita enn á börnin sem einkamál foreldra og þá aðallega móöurinnar, en ekki sameiginlegt mál þjóöfélagsins. Þannig verður lausn á vanda i þessu sambandi áfram einkalausn og tregöa er viðast hvar fyrir hendi til aö leysa málið samfélagslega. Vopn eöa öruggt athvarf t svörum frá fjölmörgum þjóö- um, sem liggja til grundvallar framkvæmdaáætluninni kemur r Ræða Islands á kvennaráðstefnu SÞ „Betur má ef duga skal” r Þó margt hafi áunnist er fleira ógert á Islandi og í öðrum löndum áhuga og viröingu. Island hefur með þessum forsetakosningum vakið athygli heimsins á mikil- vægum þætti varðandi stöðu kvenna I þjóöfélaginu. Eg vænti þess að sá boðskapur berist með aukinni áherslu á ykkar vegum til landa ykkar.” Með setningu laga um jafnrétti kvenna og karla árið 1976 var mótuð opinber stefna um jafnan rétt kynjanna og sett var á stofn jafnréttisráð til að framfylgja lögunum. Allir vita að ekki er nægilegt að setja löggjöf um jafn- rétti ef þaö er ekki i samræmi við þau viðhorf sem rikja i þjóöfélag- inu. Þvi hefur aöaláherslan ver- ið lögö á það að reyna að breyta hinum hefðbundna hugsunarhætti um stöðu karla og kvenna sem rikt heftur öldum saman. Það tekur langan tima, sumir segja kynslóðir. Þessarar viðhorfs- breytingar er þegar farið aö gæta og telja ýmsir aö hún hafi átt sinn þátt i þvi að tslendingar kusu sér konu til forseta fyrir þremur vikum. Það að kona skipar æðsta embætti lýöveldisins vekur þær vonir að fyrr verði sigrast á hefð- bundnum viöhorfum manna til verkaskiptingar kynjanna, en ella hefði oröið. Fleira hefur gerst á s.l. fimm árum, sem telja má áfanga I jafn- réttismálum. Kvennaár og aukin menntun A fyrsta degi hins alþjóðlega kvennaárs var sett á stofn kvennasögusafn Islands. A degi Sameinuðu þjóðanna 24. október 1975, lögðu islenskar kon- ur niður vinnu á heimilum og vinnumarkaði til að sýna fram á mikilvægi atvinnuþátttöku kvenna enda kom i ljós að þjóö- félagið var óstarfhæft án þátttöku þeirra. A þessum degi, sem vakti gifurlega athygli, héldu konur stærsta útifund, sem haldinn hef- ur verið á Islandi. A sviði menntunar hefur ýmis- legt áunnist s.l. fimm ár. Fleiri njóta menntunar og stúlkur hafa oröið fjölmennari i framhalds- skólum. Hlutfall kvenna sem ljúka prófi frá Háskóla tslands er nú tvöfalt hærra en var 1975. Með tilkomu fjölbrautaskóla hafa piltum og stúlkum opnast nýir og auknir möguleikar, til að vikja frá hefðbundnu starfsgreinavali kynjanna. Aukin fullorðins- fræösla hefur bætt möguleika eldra fólks, sérstaklega kvenna, til aö auka menntun sina. Almenn heilsugæsla er á háu stigi á tslandi og öll læknisfræði- leg aðstoð á meögöngutima og eftir fæöingu er góð. Atvinnuþátttaka kvenna hefur stóraukist. Fiskvinnslan, sem er undirstöðuatvinnuvegur tslend- inga er borin uppi af konum, en i reynd er litið á þær sem vara- vinnuafl og þær sendar heim á at- vinnuleysistimum. Vinnumark- aðurinn er enn að mestu leyti kynskiptur, þar eru sérstök kvenna- og karlastörf og launa- stiginn endurspeglar það. Launa- munur kvenna og karla hefur þó minnkað á þessu timabili. Þegar litið er yfir þessa upp- talningu sést aö ýmislegt hefur á- unnist s.l. fimm ár, en betur má ef duga skal. Fátt áunnist á stiórnmálasviöinu A pólitiska sviöinu hefur lltið sem ekkert áunnist s.l. fimm ár. Pólitisk forysta er I höndum karla. A alþingi sitja þrjár konur af 60 alþingismönnum, eða 5% og er það sama tala og árið 1975. Hlutfall kvenna i sveitarstjórnum hefur hækkað úr 3,7% upp i 6,2%. Enginn Islenskur stjórnmála- flokkur hefur sett fram markaöa stefnu um fjölskyldumál. Þótt stofnun jafnréttisráðs væri viss opinber viðurkenning á mikilvægi jafnréttismála, þá hefur ekki ver- ið búið að ráöinu sem skyldi og stjórnvöld hafa ekki sýnt þaö for- dæmi sem jafnréttislögin kveða á um. Aöilar vinnumarkaðarins eiga gifurlega margt ógert i jafnréttis- málum. Það er nauðsynlegt að endurmeta störf i þjóöfélaginu með tilliti til launakjara og draga markvisst úr verkaskiptingu eftir kynferði. Vinnumarkaðurinn og hið opin- bera koma ekki til móts viðþarfir fjölskyldunnar með sveigjanleg- um vinnutima fyrir foreldra, nægilega uppbyggingu dagvistar- stofnana, endurbótum á húsnæöismálum og ekki einu sinni greiöslu fæðingarorlofs úr almennum tryggingum til allra mæðra, hvað þá foreldraleyfi fyr- ir feður. Vinnuframlag á heimil- um er I dag einskis metið hvorki launalega séö né i þjóðhagsút- reikningum. Hið opinbera verður að móta sérstaka fjölskyldupólitik, sem hafi að markmiöi að aflétta hinu tvöfalda vinnuálagi sem hvilir að jafnaði á konum. Fyrr en það er gert er óraunhæft aö gera ráð fyr- ir þvi aö konur geti tekið þátt i uppbyggingu þjóðfélagsins til jafns við karla. Engin stefna í f jölsky Idumálum Sama gildir reyndar einnig um fleiri lönd en tsland, liklega all- flest, að ekki er horfst I augu viö þá staðreynd sem ætla má aö sé ein aöalorsök ólikrar stöðu karla og kvenna, kyngreindrar verka- skiptingar og misjafnra tekna. Liffræðilegt hlutverk konunnar t.d. fram að vegna fjárskorts hef- ur ekki verið komið upp nægilega mörgum dagheimilum fyrir börn. A sama tlma hafa þróuð lönd i stórauknum mæli örvað konur til mennta og raunverulega fjárfest i menntun þeirra. Er þaö ekki dæmi um skilningsleysi af opin- berri hálfu þegar ekki er jafn- framt séð til þess að þessi mennt- un nýtist, konum sjálfum og þjóð- félaginu? En hún nýtist ekki ef konan er annaö hvort frá störfum um langt árabil vegna móöur- hlutverks sins eöa lifir við tvöfalt vinnuálag sem háir henni á báð- um stööum. Fjárskortur til dag- heimila og annarrar þjónustu við foreldra er vissulega fyrir hendi I fátækum löndum, en i löndum, þar sem hægt er að leggja offjár i vopnabúnað eöa fjármunum er fremur varið til að byggja hrað- brautir þannig að umferð geti gengið hraðar fyrir sig heldur en að búa börnum öruggt athvarf á meðan foreldrar þeirra sinna störfum utan heimilis, — þar er ekki hægt að tala um peninga- leysi; I þeim löndum er þetta spurning um forgangsröðun. 1 framkvæmdaáætluninni er talað um að konur eigi að hafa „lykiihlutverk I framleiðslunni” og þeim er ætlað að sækja fram hvarvetna i atvinnulifi, stjórn- málum o.s.frv., en þar sem litið Framhald á ‘’T.siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.