Þjóðviljinn - 20.07.1980, Side 13

Þjóðviljinn - 20.07.1980, Side 13
HELGIN 19.—20. júH. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Verk eftir Niels Holme. Tape-action eftir Ulf Berg. Myndirnar á siðunni eru úr bókinni „Experi- mental Envivronment 1980”. Á Korpúlfsstöðum í águst Sydsjælland aug. 1979 Danmark. Lisbeth Hedager. „Experimental Environment 1980” Perspective eftir Niels Haf- stein. Pytagoras 1977. Paul Brand Oslo Norge. r Ein viöamesta myndlistarsýning á Islandi MAGIC SQUARg Upphafsmenn að „Experimental Environment”,Rúri, Lisbeth Hedagcr og Henrik Pryds Beck á skrif- Magic square 1978, Jón Gunnar stofu Nýlistasafnsins. Ljósm. —gel—. Arnason „Hugmyndin að þessu kviknaöi árið 1978 þegar ég og Jón Gunnar Arnason vorum i Danmörku og hittum þau Henrik Pryds Beck og Lisbeth Hedager. Við ræddum um stöðu nútlmamyndlistar á Norðurlöndum og komumst að raun um að viö vissum lltið hvert um annað, og að nauðsynlegt var að auka tengsl á milli nútima- myndlistamanna á Norðurlönd- unum”, sagði Rúri, en hún er framkvæmdastjóri sýningar undir nafninu „Experimental Environment” sem opnuö verður á Korpúlfsstöðum 1. ágúst n.k. Þetta er fyrsta sýningin I röð sýn- inga undir þessu heiti, sem veröa á öllum Norðurlöndunum og er þetta sú stærsta þeirra. Jafn- framt er þetta ein viðamesta myndlistarsýning sem haldin hefur veriö hér á landi. „I framhaldi af viðræðum okkar i Kaupmannahöfn árið 1978 var ákveðið aö reyna aö koma á fót ráðstefnu með þátttöku allra landanna til undirbúnings sam- sýningu á norrænni nútima myndlist meö yfirskriftinni „Experimental Environment”. Fékkst styrkur frá Norræna menningarsjóönum til ráöstefn- unnar sem haldin var i nóvember 1979”, sagði Rúrl. Þrir Islendingar sóttu ráöstefn- una, sem var mjög lifleg. Þar voru lögð drög aö gerð bókar sem nýlega er komin út og ber sama nafn og sýningarnar. Þá var ákveðið að halda sýningu nú i sumar og komu einkum tveir staðir til greina Sveaborg viö Helsinki i Finnlandi og Korpúlfs- staöir. Sagði Rúri að Korpúlfs- staöir hefðu að lokum oröið fyrir valinu, fyrir fyrstu og stærstu sýninguna, en næsta sýning veröur I Sveaborg. Þá hafa Sonja Heine safnið i Noregi, Álborg safnið, Luisiana safnið I Dan- mörku og Moderna safnið I Stokk- hólmi sýnt áhuga á aö fá sýningu til sin. „Þá kom fram sú hugmynd aö koma upp menningarmiöstöð á Korpúlfsstöðum bæði vegna þeirra möguleika sem staðurinn býður upp á og einnig vegna þess góða orðstlrs sem Islenskir nú- timamyndlistarmenn hafa getiö sér I Evrópu”, sagði Rúri enn- fremur. Undirbúningur fyrir sýninguna nú i ágúst er i höndum Nýlista- safnsins og stendur yfir af fullum krafti. Mikiö af verkunum verða utanhúss og að hluta til unnin á staðnum. Hingað koma fjölda- margir norrænir listamenn vegna sýningarinnar og einnig koma hingað myndlistargagnrýnendur, Tillaga að völundarhúsi i Vest- mannaeyjum eftir Magnús Pálsson. fréttamenn og fleiri. Norræni menningarsjóðurinn hefur styrkt þessa sýningu og von er á fleiri fjárstyrkjum. Þá verða teknar kvikmyndir og videomyndir af sýningunni sem sýndar verða á næstu sýningum I þessari sýninga. áætlun. Eins og fyrr segir verður þetta mjög viðamikil sýning með þátttökuallra Norðurlandanna og langstærsta myndlistarsýning sem haldin hefur verið að Korpúlfsstööum. — þs

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.