Þjóðviljinn - 20.07.1980, Side 22

Þjóðviljinn - 20.07.1980, Side 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN HELGIN 19.—20. júll. mtííÍÍÍÍÍ IDAGMA. : ; Rússneski drengurinn Ólafur Friöriksson, verkalýösleiö- togi, flutti áriö 1921 rússneskan dreng meö sér til lands. Hann var talinn hafa hættulegan augnsjúk- dóm svo yfirvöldin vildu vlsa hon- um úr landi. Ólafur neitaöi og þaö kom til blóöugra átaka... Þaö mál er rifjaö upp. ............... f Helgarvíðtal viö ivar orgiand Ivar Orgland heitir maöur I Noregi. Hann er mörgum islendingum aö góöu kunnur enda hefur hann komiö oft hingaö til lands og þýtt fjölda islenskra bókmenntaverka á norsku. Fréttaritari Visis I Noregi ræöir viö Orgland I Helgarviötali. Sérstæð sakamál eru á sinum staö og er þar sagt frá hinni 91 árs gömlu Lorine de Moss Harman sem myrt var á hræðilegan hátt. Lögreglan fann moröingjann fyrir tilviljun en þá kom I ljós aö hann sagöist hafa veriö á valdi anda. Auk þess: Ýtarlegt viötal viö Pálma Jónsson um fóöurbætisskatt og fleira, Helgarpopp úr ýmsum áttum, A förnum vegi Gisla Jóns- sonar, fast efni eins og venjulega og loks er sagt frá dularfullum bréfum fiölbreyttu efnl mmm- „Karlinnákassanum.. A Speaker’s Corner I Hyde Park I London getur hver sem er stigið upp á kassa og flutt ræöu um hvaö sem vera skal. Ahorfendur taka virkan þátt I umræöunum og staöurinn hefur veriö nefndur einn helsti öryggisventill bresks þjóö- I lifs. Frá honum er sagt I máli og i} STARF OG KJOR Byrjunarlaun kr. 339.092 Hámarkslaun kr. 465.573 Einar Jón Olafsson útvarpsvirki ,3öfum varla efni á að vera í þessari vinnu” „Fyrsta rafeindatækið sem kemur hingaö til lands er út- varpslampinn. Siöan veröur litil þróun þangaö til fyrir 10—15 ár- um aö hún veröur mjög hröö. Svo hröö aö segja má aö viö fáum á okkur 100 ára þróun á þessum stutta tfma.” Þetta segir Einar Jón ólafsson litvarpsvirki. en hann vinnur á radioverkstæðinu Hljómur. Hann lauk námi sinu fyrir fjórum árum og starfar enn við sina iön. Enn segi ég vegna þess aö Einar Jón segir mér aö launin séu svo slæm aö fáir geti leyft sér, ef svo má segja, aö halda áfram aö starfa viö þá atvinnu, sem þeir hafa menntast til og hafa áhuga á,eftir aö heimili er stofnaö. ,,Og hvaö gera menn þá”? spyr ég: Fá sér konu ,,JU, ætli menn fái sér ekki konu til aö létta undir meö sér”, segir Einar Jón, „eöa maka ætti ég kannski frekar aö segja ”, En áöur en viö förum nánar Ut i launakjör Utvarpsvirkja skulum viö fræöast meira um starfiö. „Þaö er fólgiö i almennum viögeröum á rafeindatækjum heimilanna”, segir Einar Jón. „Fyrst i staö voru þaö eingöngu þessi tæki á heimilunum*útvarp og siöar sjónvarp, en á siöari ár- um er alls konar rafeindatækjum sifellt aö fjölga á vinnustööum, sérstaklega stórum stööum. Ann- ars eru tölvurnar lika aö veröa algengar á minni vinnustööum og þeim munfjölga mjög á næstuár- um.” „Samfara þessari þróun er komin upp krafan um breytta menntun Utvarpsvirkja og þá lika annaö heiti á starfinu. Rafeinda- virkjun mun þaö kallast i framtiöinni.” Nýtt starfsheiti — rafemdavirkjun — Hvernig er háttaö menntun útvarpsvirkja? „Útvarpsvirkjun er fyrsta iöngreinin i landinu sem afnam gamla meistarakerfiö þannig aö nU fer öll menntun okkar fram innan veggja skólans. Námiö er þvi opiö öllum sem áhuga hafa. Þetta er afar eftirsótt nám. Arlega sækja um þaö milli 80 og 100 manns en aöeins 24 komast aö hverju sinni. Margir veröa þvi frá aö hverfa eöa fresta náminu.” „Sumir sem sækja um skólann hafa stUdentspróf og er þeim gef- inn kostur á aö hraöa náminu fyrsta áriö. Algengt er aö stUdentarnir fari I framhaldsnám eftir skólann hér og fara þá gjaman I Tækniskólann. ÞU hefur kannski gaman af aö heyra aö stUlkur vtlja sér lika þetta starf. Ein Utskrifaöist I fyrra og nU eru 2 eöa 3 i námi.” „Námiö tekur fjögur ár og námstiminn mun ekki lengjast eftir þær breytingar sem ég nefndi áöan aö nauösynlegar væru. Breytingarnar eru fólgnar I þvi aö eftir fyrstu tvö árin,þar sem allir læra þaö sama, velja menn sér sérsviö sem þeir siöan fullnuma sig á. Eins og nU er fær Utvarpsvirki nasasjón af öllum þáttum starfsgreinarinnar en fær siöan ekki tækifæri til aö þjálfast virkilega vel á neinu.sérsviöi.” — Hafa þessarbreytingar lengi verið i bigerö? „Segja má aö þessar hug- myndir hafi veriö aö þróast i ein 8 ár. NU stendur einungis á reglu- geröarbreytingu en ef allt fer aö vonum kemst máliö heilt i höfn I haust.” — Eiga útvarpsvirkjar kost á endurmenntun? „Viö erum aö vinna upp endurmenntunarkerfi fyrir Ut- varpsvirkja en þaö er dýrt fyrir svo fámenna þjóö sem viö erum aö koma á endurmenntun I þessari starfsgrein. Rikisvaldiö hefur bæöi veriö sanngjarnt og ósanngjarnt viö okkur I þvi máli en þó vil ég nefna sérstaklega einn mann aö öörum ólöstuöum og þaö er Gunnar Guttormsson starfsmaöur f Iönaaöarráöu- neytinu. Hann hefur ævinlega sýnt okkur mikinn skilning og hjálpaö okkur á ótal vegu. Þar fyrir utan höfum viö leitaö til ýmissa manna fjölmargra ann- arra sem lagt hafa okkur liö.” — Þetta hlýtur aö vera skemmtilegt starf úr þvi aö svo margir veröa frá aö hverfa árlega; hvaö gerir starfið svona skemmtilegt? „Þaö er ákaflega gaman aö fylgjast meö og taka þátt I þeirri tæknibyltingu sem er aö hefjast og á ég þá aö sjálfsögöu viö örtölvubyltinguna. Þetta veröur aldrei vélrænt starf eöa dautt en ókostirnir ef ég á aö nefna þá lika eru timapressan sem viö vinnum sifellt undir. Viö veröum aö meta hvert verk á staönum og áætla timann og sá timi veröur aö nægja Viö getum ekki unniö aö viögeröum I eftirvinnu, þaö myndi enginn viöskiptavinur sætta sig viö,hvaö þá verölags- eftirlitiö.” „Þrátt fyrir kosti starfsins þá er rýrnunin I stéttinni ákaflega mikil, sennilega skila sér ekki til starfa um lengri tima nema 40—50% þeirra sem ljúka prófum. NU eru I Sveinafél. útvarpsvirkja um 60 manns. Astæöan fyrir þessu eru slæm laun. Og eftir aö menn hafa veriö i annarri betur borgaöri vinnu er erfitt aö snúa viö jafnvel þó aö fjárhagurinn þyldi þaö.” ÍJtvarpstækið heimilisvinur — Og atvinnan er næg? „Já, hún er næg. Viö tilkomu ódýrra tækja má viröast sem at- vinnan dragist saman en starfs- tækifærunum fjölgar jafnhliöa. Fólk er lika fariö aö leggja meiri áherslu en áöur á aö gera yiö gömul tæki. Sérstaklega er þáö eldra fólkiö sem vill hafa gömlu tækin sin áfram. Þetta eru orönir nokkurs konar heimilisvinir.búnir aö standa á náttboröinu i 20—30 ár. Þaö er ööruvlsi meö útvarps- tæki en húsgögn. Útvarpstækiö talar til þin en stólarnir ekki.” „Annars er þaö stundum skritiö hvaöfólk hugsar einkennilega um peninga. Oft er ég beöinn aö gera viö sáraódýrt tæki, kannski kostar þaö ekki nema 10 þús. kr. en þaö er alveg sama. Reikn- ingurinn veröur samt aldrei lægri en 8 þús. og þegar hann kemur hrópa menn uppyfir sig. Lika þó aö ég hafi veriö búinn aö gefa upp veröiö fyrirfram.” Semjum tæpast i frjálsum samningum — Eigum við þá ekki aö snúa okkur aö siálfum laununum? „Byrjunarlaun eru 339.092 og hæst er hægt að komast i 465.573. Aöeins flokksstjórar og verk- stjórar geta komist hærra. Þetta eru rauntekjur útvarpsvirkja vegna þessa aö viö megum ekki vinna eftirvinnu nema þeir sem vinna hjá stórum fyrirtækum og I Straumsvik. Laun þeirra I Straumsvlk eru allt aö 200 þús. hærri á mánuði. 1 raun og veru er ekki hægt aö segja aö útvarps- virkjar semji i frjálsum samning- um eins og aðrar stéttir. Okkar starf er háö verðlagseftirliti og verölagseftirlitiö ákveöur verö á útseldri vinnu okkar. Sú er aöal- ástæðan fyrir okkar lágu launum og aö viö getum ekki bjargaö okk- ur á eftirvinnunni eins og margir aörir.” „Viö höfum hugleitt aö fara út I einhvers konar bónus- eöa ákvæöisvinnukerfi en finnst þaö ekki aðlaöandi. Timapressan og stressiö er nóg fyrir en samt sem áöur er þetta helsta úrræöiö sem viö sjáum svo aö ekki veröi enn meiri flótti úr stéttinni en þegar er oröinn. Kannski er bónusinn eina leiðin — Er þaö þá svo meö þessa starfsgrein eins og svo margar aörar aö ekkert nema óskaplegur vinnuhraði gefur 1 aöra hönd sæmilegt kaup? „Ef ekkert breytist sé ég ekki fram á annað, en ég endurtek aö mér finnst þaö afar óæskilegt. 1 svona mikilli timapressu er llka ávallt hætta á aö vinnuvöndun minnki I þessu starfi sem öörum.” — Hvaö veröur um Simvirkja- skólann þegar nám útvarpsvirkja breytist? „Það flyst allt til okkar. Hingaö til hefur Póstur og simi þjálfaö sitt fólk algerlega upp á eigin spýtur og þaö hefur haft I för meö sér stéttarig. Allt þaö leiöindamál leysist þegar kennsla I rafeinda- virkjun hefst og ég veit aö allir aöilar eru ánægöir meö þaö fyrir- komulag.” — Hefuröu áhyggjur af örtölvuþróuninni? „Ég hef trú á þvl aö tölvan — meðan hún er notuö af hæfilegri skynsemi eins og I dag — muni ekki valda skaöa heldur muni hún veröa til mikils gagns bæö hvaö varðar skipulagningu og eins I upplýsingaleit. Hitt er svo annaö mál aö tölvur má misnota eins og aöra góöa hiuti og ókostirnir sem ég sé f fljótu bragöi eru þeir aö mannfækkun getur oröiö of hröö á ýmsum vinnustööum. En þá er þaö hlutveok viökomandi verka- lýösfélaga aö hafa þar hönd I bagga og láta tæknina ekki taka af sér völdin.’’ — hs

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.