Þjóðviljinn - 20.07.1980, Síða 29
Klúbbur ess eff:
Jazz og pizzur
Djassinn dunar um helgina i
Klúbbi eff ess, Félagsstofnun
stúdenta viö Hringbraut.
1 kvöld, laugardag, leikur
hljómsveit Eyþórs Gunnarssonar
djass-rokk, og eru þar á feröinni
nokkrir félagar úr Mezzoforte.
Annaö kvöld leikur svo hljóm-
sveit hins alkunna trommuleik-
ara Guömundar Steingrims-
sonar. Hljómsveitin leikur hressa
jazz-tónlist, og magnaöur
trommuleikur Guömundar
kemur engum á óvart.
Klúbbur eff ess i Félagsstofnun
stúdenta viö Hringbraut er eini
skemmtistaöurinn sinnar teg-
undar I borginni. Auk tónlistar-
innar eru þar á boöstólum
sjávarréttir og ljúffengar pizzur,
auk léttvinanna margrómuöu.
Klúbburinn er opinn öll kvöld frá
kl. 20.00—01.00.
Laugardagskaffi
Fyrir þá sem taka laugardags-
morguninn snemma og arka i bæ-
inn er tilvaliö aö lita viö i Sokk-
holti hjá Rauösokkum. Þar
veröur kaffi á könnunni en til um-
ræöu veröur væntanlega kvenna-
hátíö i haust. Allar hugmyndir og
uppástungur eru vel þegnar og
ekki veitir af aö byrja undirbún-
ing sem fyrst. Þá sitja rauö-
sokkar auövitaö fyrir svörum, ef
einhvern fýsir aö vita eitthvaö um
starfsemina og ekki er óliklegt aö
kvennaráöstefnuna i Kaup-
mannahöfn beriá góma, þar er af
nógu aö taka. Allir velkomnir
meöanhúsrúm leyfir. — ká
Skálholtshátíö
Skálholtshátiö er á morgun,
sunnudaginn 20. júli. Hátiöin
hefst meö klukknahringingu og
messu kl. 13.30. Biskup Islands,
herra Sigurbjörn Einarsson og
séra Guömundur óli ólafsson
þjóna fyrir altari, séra Jakob
Jónsson dr. theol predikar. Skál-
holtskórinn syngur.
Kl. 16.30 hefst svo samkoma I
kirkjunni. Agústa Agústsdóttir
syngur einsöng, dr. Gylfi Þ.
Gislason flytur ræöu og Friörik
Dónaldsson leikur á orgel. Séra
Heimir Steinsson stjórnar ritn-
ingarlestri og bæn, og samkom-
unni lýkur meö almennum söng.
Ferö veröur á hátiöina frá Um-
feröarmiöstööinni kl. 11, og frá
Skálholtikl. 17.50. — ih
Ljósfræði í Hl
Prófessor Thomas K. Gaylord
frá Georgia Institute of
Technology, heldur fyrirlestur
mánudaginn 21. júli, 1980, sem
hann nefnir „Fiber and Inte-
grated Optics”. Fjallar hann
meöal annars um framtiöar-
möguleika á sviöi fjarskipta og
gagnavinnslu meö ljósleiöum og
krystalhólógrafiu. Fyrirlesturinn
veröur I húsi Verkfræöi- og Raun-
visindadeildar Háskólans aö
Hjaröarhaga 2—6 i stofu 158 og
hefst kl. 16.00
Magnús Vald.
í Suðurgötu 7
Magnús Valdimar Guölaugsson oröiö til I Hollandi á sföasta vetri.
opnar i dag sýningu I Galleri Sýningin er opin virka daga kl.
Suöurgötu 7. 6—lOog um helgar kl. 4—10. — ih
Verkin á sýningunni hafa flest
Vegaþjónusta FÍB
Um helgina veröa bllar vega
þjónustu FIB eins og hér segir:
Vegaþjónustubifreiö FIB 5 i
Borgarfiröi. Vegaþjónustubifreiö
FIB 9 á Akureyri. Vegaþjónustu
bifre:ö FIB 2 á Bilaverkst. Víöi.
Víöidai V-Hún. Vegaþjónustubif-
reiö FIB 7 i Hornafiröi. Vegaþjón-
ustubifreiö FtB 6 á Bilaverkst.
Dalvikur.
Aöstoöarbeiönum er hægt aö
koma á framfæri i gegnum Gufu-
nes radio. Brú radió og Akureyr-
ar radio. — Þeim sem aöstoöar
óska er bent á aö gefa upp númer
bifreiöar og staö^e^ 'ogu, og eins
1 - ri þeir eru fé: i FÍB. en
þ*:r ganga fyr*r '• þjónustu.
Finnig vill FtB ' i okumönn-
um a aö hafa meo . r viftureimar
af réttri stærö, varahjólbaröa og
helstu varahluti i kveikju.
Helgin 12.
' i”OJ3V -
—13. jdíl. ÞJÓÐVILJINN —
StÐA 29
um helgina
Reynir Sigurösson og Tom Einar Ege. A myndina vantar önnu Gunnlaugsdóttur, en málverkiö sem viö
sjáum er eftir hana og heitir „Á elleftu stund”. Ljósm. Ella.
Þrír ungir í Djúpinu
Miðbæjar má larí er
nafniðsem þrír ungir lista-
menn hafa gefið sér og
vinnustofu sinni. Anna
Gunnlaugsdóttir, Tom Ein-
ar Ege og Reynir Sigurðs-
son hafa um nokkurn tíma
rekið vinnustofu saman í
Aðalstræti 6, og halda nú
sina fyrstu sýningu i Djúp-
inu við Hafnarstræti.
A sýningunni eru 12 oliumyndir,
allar málaöar á siöustu tveimur
árum, og eru flestar þeirra til
sölu. Myndirnar eru allar I raun-
sæisstil og ber talsvert á þjóöfé-
lagsgagnrýni I þeim — hér er á
feröinni ungt fólk sem greinilega-*
hefur margt til málanna aö
leggja. Þremenningarnir hafa
allir numiö viö Myndlista- og
handiöaskóla Islands, en auk þess
hefur Anna veriö viö framhalds-
nám i Paris.
Sýningin er opin daglega kl.
11—23 og lýkur miövikudaginn 30.
júli. — ih
Sumarsýning FÍM
t FtM-salnum aö Laugarnes-
vegi 112 stendur nú yfir sumar-
sýning á verkum 18 Islenskra
listamanna, sem flestir eru meö-
limir i Félagi islenskra mynd-
listamanna. Er þetta i fyrsta sinn
sem FtM stendur fyrir sérstakri
sumarsýningu.
Sýningin er óvenjuleg fyrir
fleiri hluta sakir en árstimann.
Aögangur ókeypis, en myndirnar
eru allar til sölu. Geta kaupendur
gengiö út meö myndirnar undir
handleggnum, en nýjar myndir
veröa hengdar upp jafnóöum. Þá
er sýningin opin á óvenjulegum
tima: kl. 19—22 daglega.
Á sumarsýningunni kennir ým-
issa grasa. Þar eru m.a. grafik-
myndir eftir Ragnheiöi Jóns-
dóttur, Eddu Jónsdóttur, Ingi-
berg Magnússon ofl. oliumálverk,
vatnslitamyndir o.fl. Myndir eru
eftir Agúst Petersen, Arna Pál
Jóhannsson, Eyjólf Einarsson,
Guöberg Auöunsson, Gunnar örn
Gunnarsson, Gunnlaug Stefán
Gislason, Jón Axel Björnsson,
Magnús Á. Árnason, Magnús
Kjartansson, Sigrúnu Guöjóns-
dóttur, Snorra Svein Friöriksson,
Ingiberg Magnússon á þessar þrjár myndir í sumarsýningu FtM. Ljósm. Ella.
Stefán Geir Karlsson, Steingrim
Þorvaldsson, örlyg Sigurösson og
örn Þorsteinsson.
1 FlM-salnum eru til sölu kort
sem félagiö gaf út i sumar meö
myndum af verkum Sigurjóns
Ólafssonar. Sumarsýningunni
lýkur3. ágúst. — ih
Fremst er myndin „A ferö og flugi” e.'tir Eyjólf Einarsson, en i
baksýn myndir Arna Páls Jóhannssonar. Ljósm. Ella.
í
(