Þjóðviljinn - 22.07.1980, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 22. júli 1980
Allt á núll-
piinkti í
leikKR
og Þróttar
1 hjörtum margra Vestur-
bæinga vöknuöu miklar vonir
þegar KR-ingar gjörsigröu
forystuliö Fram á dögunum og
blönduöu sér um leiö i baráttuna
um Islandsmeistaratitilinn. Nú er
aö sjá sem þetta hafi veriö fals-
vonir þvi KR-ingar hafa alls ekki
náö sama klassa i spili og gegn
Fram. A sunnudaginn léku KR-
ingar viö Þröttara á Laugardals-
vellinum er vlst óhætt aö segja aö
þar hafi allt veriö á núll-
punktinum. Mörkin voru engin
skoruö og marktækifæri sárafá.
Bæöi liöin hurfu á braut meö eitt
stig, Þróttarar eiga erfiöa stööu
aö verja á botni deildarinnar og
KR-ingar geta sagt aö eitt stig sé
betra en ekkert, þó bæöi liöin
komi til meö aö gleyma þessum
leik fljótt.
Þróttarar áttu meira I fyrri
hálfleik og áttu nokkur slöttungs
góö marktækifæri sem ekki
nýttust.
í siöari hálfleik var lognmollan
öllu yfirsterkari. Virtust leik-
menn hafa öllu meiri áhuga á aö
ljúka leiknum heldur en aö spila
hann og þvi var þaö fátt sem
gladdi augaö. Hættulegust tæki-
færin áttu þeir Sverrir Herberts-
son fyrir KR og Páll Ólafsson
fyrir Þrótt. Hann var bestur I liöi
Þróttar, fljótur leikmaöur og
ákveöinn.en hjá KR var meöal-
mennskan algjör. —hól
Bræöurnir Sigurlás og Kári Þorleifssynir eru tvimælalaust tveir af allra bestu leikmönnum IBV, tekniskir og skemmtilegir leikmenn. Hér
sjást þeir I baráttu I leik IBV og Breiöabliks á laugardaginn. Sigurlás virðist frábiöja sér afskipti Ólafs Björnssonar. ijósm: — eik.
íslandsmótið 1. deild: Breiðabiik - ÍBV 2:0
íþróttir 0 íþróttirg) íþróttir
r
Blikar í baráttunni
um titilinn
2. deild
Uppgjör Akureyrarfélaganna
Þórs og KA fór fram á Akureyri
um helginga og lauk meö glæsi-
legum sigri KA, 3:1. Óskar Ingi-
mundarson skoraöi tvivegis fyrir
KA og Gunnar Gislason eitt
mark. Fyrir Þór skoraöi Oddur
Óskarsson.
Orslit leikja I 2. deild um helg-
inauröusemhérsegir: KA — Þór
3:1, Selfoss — Armann 4:4, isa-
fjöröur — Þróttur N,3:0, Austri —
Völsungur 2:2, Fylkir — Haukar
1:2.
Staöan er þessi:
KA............ 10 8 1 1 34:7 17
Þór........... 10 7 1 2 21:9 15
Haukar........ 10 5 3 2 21:19 13
IBt ........... 9 4 3 2 21:18 11
Fylkir........ 94 14 16:8 9
Völsungur_____ 9 3 2 4 11:15 8
ÞrótturN...... 8 2 2 4 10:17 8
Selfoss....... 9225 15:23 6
Armann........ 9 1 3 5 15:25 5
Austri ........ 9 0 2 7 11:34 2
Læknir
fékk
bílinn
Skurölæknirinn Knútur
Björnsson var hinn lánsami
þegar Toyota-keppnin I golfi fór
fram á Hvaleyrarvelli i Hafnar-
firöi um helgina. Toyota-um-
boöiö haföi fyrirfram lofaö þeim
keppanda sem kæmist næst hol-
unni á 5. braut I teigskoti
heilum bil I verölaun, og Knútur
varö næstur allra. Kúlan staö-
næmdist 75,5 sentimetra frá hol-
unni og þaö nægöi til sigurs.
bessi glæsilegu verölaun áttu
hugi og hjörtu keppenda á Hval-
eyrinni og var baráttan geysi-
hörö. Keppt var i öllum mögu-
iegum flokkum og voru kepp-
endur alls u.þ.b. 250 talsins.
Sigurvegari i meistarfiokki
varö Jóhann Benediktsson og i
kvennaflokki Asgeröur Sverris-
dóttir. —hói.
Þar er nú oröiö nokkurn veginn
ljóst mál aö þeir Kópavogsblikar
blanda sér ekki i baráttuna viö
fall niöur i 2. deild. Þvert á móti
viröast þeir á þessari stundu hafa
alla buröi til aö gera rósir I 1.
deildinni. Stutt er í efstu liö.aöeins
þrjú stig.og eftir sigur yfir Is-
landsmeisturum IBV á laugar-
daginn hlýtur notalegur fiöringur
aö fara um KópavogsbUa, sem
séö hafa slna menn skoppa á milli
deilda undanfarin ár. Islands-
meistararnir fengu á sig tvö mörk
á laugardaginn án þess aö geta
svaraö fyrir sig.
Leikurinn var opinn og
skemmtilegur til aö byrja meö og
talsvert um skemmtileg atvik.
Hinn marksækni leikmaöur IBV,
Sigurlás Þorleifsson, var ekki I
sinum besta ham en hann átti
engu aö sfður nokkrar góöar
syrpur, s.s. skalla I þverslá. Mark
Blika kom þegar litiö var eftir af
fyrri hálfleik. Siguröur Grétars-
son skoraöi eftir fallega send-
ingu Helga Bentssonar. Helgi
haföi komist framhjá tveimur
varamönnum ÍBV af mikilli harö-
fylgni og markiö aö miklu leyti
honum aö þakka.
Blikar slökuöu ekkert á i seinni
hálfleik og áttu oft á tiöum hinn
ágætasta leik. A móti voru Eyja-
menn næsta ótrUlega daufir og
gátu litla björg sér veitt. Siöara
mark Blika kom þegar stutt var
til leiksloka. Ólafur Björnsson
komst á eigin spýtur einn innfyrir
og skoraöi, 2:0.
Breiöabliksmenn eiga nú
marga afbragössnjalla knatt-
spyrnumenn. Þeir Helgi Bentsson
og Siguröur Grétarsson hafa að
undanfömu átt hvern stórleikinn
á fætur öörum og aö þessu sinni
brást þeim ekki bogalistin. Is-
landsmeistararnir hafa enn ekki
sýnt þá jöfnu baráttu semein-
kenndu þá þegar tslandsmótið fór
fram I fyrra. Eru þeir ótrúlega
brokkgengir, geta sýnt knatt-
spymu eins og hún gerist best hér
á landi en siöan detta þeir niöur
þess á milli. Benda má á aö
nokkrir af þeirra bestu mönnum
hafa yfirgefiö Eyjarnar og þó
t.a.m. Sigurlás Þorleifsson sé
kominn aftur bætir koma eins
leikmanns ekki missi jöfra á borö
viö Arnar Óskarsson, Arsæls
Sveinssonar, Valþórs Sigþórs-
sonar og Karls Sveinssonar.
— hól.
Syrtir í álinn hjá
Valsmönnum
Rétt eins og i fyrra ætlar Is-
landsmótiö I knattspyrnu aö
veröa hin skemmtilegasta bar-
átta. Um helgina töpuöu bæöi
forystuliö mótsins, Valur og
Fram,sinum leikjum og sú staöa
er komin upp aö nánast öll liö
deildarinnar þ.e. ef Þróttarar
og FH-ingar eru undanskildir
eiga möguleika á sigri. Þaö
hefur ekki fariö framhjá nein-
um aö Valsmenn, sem flestir
spá sigir I deildinni,hafa verið á
hraöri niöurleið aö undanfömu.
Hver leikurinn rekur annan og
liösmenn viröast engan veginn
finna sig. A sunnudaginn kom
einn dapur Valsdagur I viöbót.
Neösta liö I 1. deild, FH, sem
margir voru búnir aö afskrifa
tók óvæntan fjörkipp og vann
veröskuldaðan sigur 2:1. Vais-
menn voru e.t.v. ekki heppnustu
menn i heimi upphafsminút-
urnar, þvi tvivegis meö stuttu
millibili náöu FH-ingar aö
bjarga á linu eftir snarpa
sóknarlotu Valsmanna.
Fyrsta mark leiksins kom
undir lok fyrri hálfleiks. Boltinn
gekk ámilli manna viö vitateig
Vals og virtist ekki mikil hætta
á feröum, Nokkuö óvænt náöi
svo Helgi Ragnarsson til bolt-
ans, gaf háa sendingu inn til
Pálma Jónssonar og hann náöi
eldsnöggt aö drepa boltann og
senda hann siöan meö þrumu-
skoti i'vinstra markhorniöalveg
út viö stöng, 1:0. Fleiri uröu
mörkin ekki I hálfleiknum.
Seinni hálfleikur virtist alveg I
járnum fyrst i staö þar til FH--
ingar náöu aö skora sitt annaö
mark. Magnús Teitsson komst
einn innfyrir og renndi bolt-
anum I netið framhjá ólafi
Magnússyni I marki Vals, 2:0.
Eftir þetta mark fóru Valsmenn
heldur betur aö sækja en voru
sem fyrr, seinheppnir uppi viö(
markiö. Matthias Hallgrims-
son, sem haföisig litiö í frammi,
komst i dauðafæri einn innfyrir
enskaut framhjá. Þegar nokkuö
var liöiö á fyrri hálfleikinn
skiptu Valsmenn þeim Guö-
mundi Þorbjörnssyni og Her-
manni Gunnarssyni út af og inn
komuMagnús Bergs (kvefaöur)
og Jón Einarsson. Sókn Vals frá
þeim kafla og til loka var æöi
hörö en þaö var ekki fyrr en
nokkrar minútur voru til leiks-
loka aö Dýra Guömundssyni
tókst aö skora fyrir Val með fal-
legum skalla eftir hornspyrnu
Jóns Einarssonar. Ekki tókst
Valsmönnum aö bæta marki viö
þrátt fyrir örvæntingarfullar
tilraunir.
FH-ingar léku sinn besta leik
á sumrinu og af mikilli skyn-
semi. Þeir gáfu Valsmönnum
aldrei neinn friö og skyndiupp-
hlaup þeirra voru á tiöum stór-
hættuleg. Þó Valsmenn hafi sótt
mun meira seinni part siöari
hálfleiks var þaö I raun ekki
nema eölilegt, þvi skiljanlega
kappkostuöu FH-ingar aö
halda fengnum hlut og treystu
vamir sinar. Sigurinn var I raun
sanngjarnt þó auðvitað heföi
hann alveg eins getaö lent Vals
megin. Bestu menn FH voru
þeir Viöar Halldórsson og Val-
þór Sigþórsson i vörninni.
Sóknarmennirnir voru og
skeinuhættir. í heild átti liöiö
góöan leik.
Þaö er erfitt aö skilja Vals-
menn þessa dagana og stór-
furöuleg er sú ráöstöfun þjálf-
ara Vals aö gefa Siguröi
Haraldssyni ekki tækifæri á aö
spreyta sig. Maöur sem getur
haldiö marki hreinu 11 leiki i
röö hlýtur aö geta spjaraö sig.
Ólafur MagnUsson virkaöi óör-
uggur I leiknum gegn FH og
heföi vel mátt hvilast. Albert
Guömundsson er oröinn furöu-
lega mistækur upp á siökastiö
og heldur vart auöveldustu bolt-
um. Þá er vinnslan á Matthiasi
Hallgrlmssyni nánast engin.
Mega þeir félagarnir fara aö
taka sig alvarlega I hnakka-
drambiö ef ekki á illa að fara.
— hól.