Þjóðviljinn - 22.07.1980, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 22.07.1980, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 22. júll 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 1» Úrslit leikja I 10. umferð urðu sem hér segir: FH—Valur 2:1 Breiðablik — IBV 2:0 Akranes — Fram 4:0 KR — Þróttur 0:0 Vikingur — IBK 2:1 Staðan að þessum leikjum loknum er þá þessi: Valur 10 6 1 3 23 : 12 13 Akranes 10 5 3 2 17; 10 13 Fram 10 5 2 3 11; 13 12 Vikingur 10 3 5 2 11; :10 11 Breiöablik 10 5 0 5 18: 14 10 ÍBV 10 4 2 4 17; : 17 10 KR 10 4 2 4 10: : 11 10 Keflavik 10 2 4 4 9; 14 8 Þróttur 10 3 2 5 7: : 10 7 FH 10 2 2 6 14: : 25 6 Markhæstu menn: Matthias Hallgrlmsson 9 Sigurlás Þorleifsson 7 Siguröur Grétarsson 7 Diörik ólafsson grelp oft skemmtilega inn f leikinn i gærkvöldi. Hér sést hann bjarga af tánum á elnum leikmanna ÍBK. Víkingur í 4. sætið Eftir leiki Vikings og tBK á Laugardalsvellinum i gærkvöldi geta 7 af 10 iiöum 1. deildar gert sér vonir um sigur. Svo jöfn og skemmtileg er staöan aö meö ólikindum má telja. Þaö er greinilegt aö viö missi margra snjöllustu knattspyrnumanna okkar hafa topparnir dottiö út og fyrir vikiö veröur baráttan jafn- ari og skemmtilegri og bókstaf- lega hver einasti leikur sem eftir er mótsins er úrslitaleikur. Nær ómögulegt er aö spá hvernig fer, þvi flest forystuliöin hafa bæöi sýnt góöa knattspyrnu — og einnig hreint afleita. t upphafi var útlit fyrir aö Valsmenn og Framarar myndu berjast ein liöa um tslandsmeistaratitilinn en nú horfir ööruvisi viö. Bæöi liðin hafa heldur betur misst flugiö svo deildin hefur galopnast. Leikur Vlkings og IBK I gær- kvöldi var ósköp tiðindalitill i fyrri hálfleik og fátt markvert sem fyrir augu bar. Virtust leik- menn aðallega hafa áhuga á aö kýla fram og til baka. I þeim siöari brá svo við að Vik- ingar komu tvíefldir til leiks og var hann allur sérstaklega vel spilaður af Vlkingum sem hrein- lega óðu I dauöafærum og hefðu mörkin hæglega getað orðiö 6-7. Helgi Helgason kom Vlkingum yfir þegar u.þ.b. 10 mlnútur voru af hálfleiknum. Var markið sér- lega vel unnið af Vlkingum, bolt- inn gekk manna á milli uns Helgi rak endahnútinn með föstum jarðarbolta út I hægra hornið. Stuttu slðar bætti Heimir Karlsson við marki fyrir Vlking. Hann fékk skallabolta frá Helga og skaut þrumuskoti af u.þ.b. 25 metra færi sem steinlá I markinu. Stórglæsilegt. Eftir markið héldu Vlkingar áfram að pressa og tvisvar i röö komst hinn eldfljóti Lárus Guö- mundsson einn innfyrir en mis- tókst herfilega. Voru tækifæri Vlkinga öll opin og hrein mildi aö ekki skildi mark sett. Undir lokin sóttu Keflvikingar nokkuð I sig veðriö og tókst Stein- ari Jóhannssyni aö skora alveg undir lokin og laga stöðuna i 2:1. Fleiri urðu mörkin ekki. Víkingar léku einn sinn besta leik á keppnistimabilinu og sér- lega gaman að sjá hvernig ungu sóknarmennirnir eru farnir að blómstra I liði þeirra. Má fullvlst teljast að ekkert verði gefið eftir af Vlkingum I komandi baráttu um lslandsbikarinn. — hól Fram stöðugt á afturleið? Framarar hafa I slðustu leikjum veriö að missa flugið þannig að nú er að sjá sem íslandsmeistaradraumur geti tæpast oröið að veruleika. A laugardaginn fóru þeir upp á Skipaskaga og sneru þaðan hnipnir aftur með ekkert stig I pokahorninu, ekkert mark skoraö og þriðja tapleikinn I röð I 1. deildinni. Sllkt kann auðvitaö ekki góöri lukku aö stýra og ef heldur sem horfir sér það hver maður að Framliö berst ekki á toppi 1. deildarinnar — heldur botni! Skagamenn á hinn bóginn komust I efsta sætiö við sigur þvl Valsmenn töpuðu og má segja að víöa sé kátt á hjalla þar sem knattspymaerstunduðþvl eins og kunnugt er þá er það hvers manns yndi þegar Valsmenn tapa. Sigurður Halldórsson skoraði fyrsta mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks og kom ÍA I 1: 0. I slöari hálOeik bættu þeir svo þremur mörkum við. Kristján Olgeirsson skoraöi tvivegis á fallegan hátt. 1 fyrra skiptið eftir aukaspyrnu. Hann tók spyrnuna sjálfur og boltinn sigldi alla leiö- ina I netið. Hann skoraði siðan aftur þegar skot Kristins Björns- sonar virtist á leið framhjá en Kristján náði til knattarins og skoraði, 3:0. Siðasta markið átti svo Siguröur Halldórsson. Guö- jón Þórðarson átti langt innkast inní teig og Sigurður var á réttum stað og spyrnti I netið. Eins og tölurnar sýna, var sigur Skagamanna fyllilega verð- skuldaöur. Þeir spila nú mjög vel og asttu að eiga góða möguleika þegar til kastanna kemur. Sigurður Halldórsson var einna bestur en flestir liösmenn áttu góðan leik. Hjá Fram voru allir svona álíka slakir. —hól. Olympíulelkamir í Moskvu settir á laugardaginn: Helmsmetm þeg ar tekin að falla 22. Olympíuleikar nú- tímans voru settir í Moskvu síðastliðinn laug- ardag með hátíðarræðu Bresjnefs forseta Sovét- rikjanna. Það var mál manna sem voru við setningu leikanna, sem tók u.þ.b. 4 klst., að öll at- höfnin hefði farið fram með miklum glæsibrag. Greinilegt er, að þrátt fyrir fjarveru 64 þjóða hafa Sovétmenn ekkert sparað til að gera þessa leika sem best úr garði. Setningin fór fram á Len- in-leikvangnum í Moskvu að viðstöddum rúmlega 100 þús. áhorfendum. Athöfninni var sjónvarp- að víða um heim, ekki að- eins í Sovétríkjunum. Það vakti athygli við setning- una, að sovéskir sjón- varpsmenn beindu myndavélum sínum frá inngöngu þeirra þjóða sem ekki gengu undir eig- in fána. Virtist lítið bera á mótmælaaðgerðum þegar setningarathöfnin fór fram. Allmargar rasður voru fluttar við setninguna en hvaö mesta athygli vakti ræða Killianins lávaröar, sem bauð allar þátt- tökuþjóðirnar velkomnar og fagnaöi sjálfstæði þeirra, eins og þaö var oröað I fréttaskeyt- um. Þær þjóðir sem gengu undir Olympíufánanum voru eftir- taldar: Bretland, Ástralia, And- orra, Holland, Belgia, Dan- mörk, Sviss, San Marino, Frakkland, ttalia, Puerto Rico, Luxemburg og irland. Keppni I frjálsum Iþróttum er ekki hafin en tekiö var strax til viö knattspyrnu, sund, skotfimi, hnefaleika, handknattleik, fim- leika, dýfingar, blak, körfu- knattleik og ýmislegt annaö, s.s. róður, sem fram fer I Tallin. Eins og búist hafði veriö viö fyrir leikana hafa Sovétmenn þegar tekið örugga forystu I stigakeppninni og i kepninni um flesta verðlaunapeninga. Seint i gær höfðu Sovétmenn unniö 6 gullverölaun en A-Þjóöverjar komu næstir með 3 gullverö- laun. Svlar eignuöust sinn fyrsta gullkálf I gær þegar hinn 18 ára gamli Bengt Baron vann I 100 metra baksundi. Sigur Svi- ans kom mjög á óvart því að fyrir keppnina I Moskvu var hann einungis nr. 9 á heimslist- anum. Sovétmaður kom i 2 . sæti á eftir honum og A-Þjóö- verji varö I 3. sæti. Stjarnan frá síðustu Olymplu- leikum, Nadia Comenici frá Rúmenlu, hefur þegar tekiö for- ystuna I fimleikum. Eftir hinar fjölmörgu æfingar sem stúlkurnar þurfa að leysa af hendi var Comenici meö 39,85 stig (af 40.), jöfn Natalju Shaposhnikovu frá Sovétrikjun- um. 15 ára gömul stúlka frá A- Þýskalandi var I 3. sæti og Nelli Kim I 4. sæti. 1 flokkakeppninni höföu sovésku stúlkurnar þegar tekið forystuna meö 197,75 stig. Keppnin var hörö þvi aö A- Þýskaland var I 2. sæti og Rúm- enar I 3. sæti. Eins og á leikunum i Montreal eru Kúbumenn nú með frábært liö i Iþróttamanna. 1 keppninni I lyftingum sem hófst I gær vann Daniel Nunez I 56 kg. flokki og setti um leiö nýtt heimsmet þeg- ar hann jafnhattaði 125 kg. og hlaut fyrir vikið gullverðlaun. Heimsmet var sett I kvenna- flokki þegar A-Þýska stúlkan Barbara Krause synti I gær 100 metra skriðsund á 54,79 sek. Keppt hefur verið i geysilega mörgum greinum og hér aöeins striklað á stóru. —hól. ★ Moskva 80

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.